Morgunblaðið - 12.01.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1974
15
Sakaðir
um getn-
aðarvörn!
Dublin 11. janúar — AP
DÓMSMÁLARAÐHERRA
írska lýðveldisins hefur nú
stefnt stofnun þeirri, sem ann-
ast fjölskyldu- og féiagsráð-
gjöf, fyrir meint brot á lög-
gjöfinni um bann við auglýs-
ingum og sölu á getnaðarverj-
um.
Þessi ákvörðun var tekin eft-
ir að hæstiréttur landsins við-
urkenndi rétt sjómannskonu
einnar til að fara með
getnaðarverjur inn í landið, en
sú viðurkenning var sögulegur
viðburður.
Sala, kynning og auglýsing-
ar á getnaðarverjum eru alger-
lega bannaðar með lögum í
lýðveldinu, en um 95% íbúa
þess eru kaþólskrar trúar.
Þrjár kærur hafa verið lagð-
ar fram á hendur stofnuninni,
— þ.e. fyrir að hafa boðið
getnaðarverjur til sölu, fyrir
að hafa brotið ritskoðunarlög
með því að dreifa ritum um
fjölskylduráðgjöf, og fyrir að
hafa auglýst getnaðarverjur.
Yfirheyrslur hefjast 19.
febrúar.
Löggjöf írska lýðveldisins
um getnaðarvarnir er ein af
ástæðunum, sem mótmælend-
ur í Norður-lrlandi nefna fyrir
andstöðu við sameiningu ríkj-
anna tveggja.
Leysum orkuvand-
ann með samvinnu
Washington 11. janúar — AP
„ÞESSAR alþjóðlegu ráðstefnur
um orkuvandamálin eiga sér ekk-
ert fordæmi í diplómatfskum
samskiptum þjóða, — en orku-
vandamálin sjálf eiga sér heldur
ekkert fordæmi." A þessa leið
fórust Henry Kissinger, utanrík-
isráðherra Bandaríkjaniia, orð á
blaðamannafundi f gær, er hann
ræddi um fundi þá sem Nixon
forseti h'efur boðið til olíufram-
leiðsluríkjum annars vegar og
oliuþurfi iðnaðarríkjum hins
vegar, f Washington á næstu
vikum.
Þessum fundum er ætlað að
leysa þetta geigvænlega vanda-
mál á grundvelli samvinnu og vin-
áttu. I boðsbréfi sinu til olíufram-
leiðslulandanna segir Nixon m.a.,
að heimurinn standi nú á kross-
götum samvinnu og „sívaxandi
pólitískrar og efnahagslegrar tog-
streitu “.
Segir Nixon, að strax innan
þriggja mánaða eftir fundinn með
iðnaðarlöndunum 11. febrúar yrði
frekari viðræðum mílli bæði
framleiðslulandanna og neyzlu-
landanna komið á.
Svíar reyna olíu-
kaup frá írak
Þannig breytast göturnar eftir að olfu- og bensínskorturinn fer að
segja til sfn. Þessar rayndir sýna eitt og sama götuhornið f þýzka
háskólabænum Tubingen. Sú efri er tekin á virkum degi, þegar
öll umferð er í fullum gangi, en sú neðri er tekin á sunnudegi. Þá
er akstur bifreiða f flestum tilfellum bannaður, en menn deyja
ekki ráðalausir og nota tækifærið til að hverfa svolítið aftur f
tímann með því að fara ferða sinna í hestvögnum. Fyrir bragðið
verður sunnudagsaksturinn miklu heilnæmari.
Stokkhólmi og Kaupmannahöfn
11. janúar AP—NTB
SÆNSK sendinefnd lagSi
í dag af stað áleiðis tii
íraks til að ræða hugs-
anleg kaup á hráolíu
þaðan. Hér er um að
ræða opinbera sendi-
nefnd, en í desember sl.
ákvað sænska stjórnin að
veita 200 milljónum
Hæsta fjárlagafrumvarp í
sögu Svíþjóðar lagt fram
sænskra króna til kaupa á
hráolíu og olíuvörum.
Svíar hafa áður sent sendi-
nefnd til Líbýu og gert til-
boð í olíu, sem nú eru í
athugun.
Frá Kaupmannahöfn bárust
þær fréttir í dag, að olíufélögin í
landinu hefðu í dag tilkynnt verð-
hækkanir á bensíni og kostar nú
lítrinn um f ' ísl. kr„ sem er um 3
kr. hækku. . Búizt er við meiri
hækkunum á næstunni.
Landstjórnin í Færeyjum bann-
aði í dag akstur einkabifreiða um
næstu helgi, frá 12 á miðnætti á
föstudag þar til 5 á mánudags-
morgun. Svipað bann gilti einnig
um sfðustu helgi.
Stokkhólmi, 11. janúar, AP.
SÆNSKA stjórnin lagði fram í
dag hæsta fjárlagafrumvarp í
sögu Svíþjóðar en varaði jafn-
framt við því, að vegna orku-
skortsins óg óvissu í orkumálum,
yrði að endurskoða það síðar á
Heríhlutun
ekki líkleg
— segir Schlesinger
Washington 11. janúar — NTB
JAMES Schlesinger, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna. sagði á
blaðamannafundi í gær, að ekki
gæti talizt liklegt, aðtil hernaðar-
fhlutunar að hálfu Bandarfkj-
anna myndi koma í Miðaustur-
löndum, en hins vegar gætu menn
aldrei útilokað algerlega slíkan
möguleika.
Koma þessi uinmæli Schlesing-
ers í kjölfar yfirlýsingar hans
fyrr í vikunni um að Bandaríkin
kynnu að sjá sig tilneydd að sker-
ast ■ ieikinn með vopnavaldi
vegna olfuþvingana Araba. Þau
orð ollu miklu frafári í Arabaríkj-
unum.
árinu og myndi það þá að öllum
líkindum hækka töluvert.
Gunnar Stráng fjármálaráð-
herra sagði, að allar bjartsýnar
spár um efnahag Svíþjóðar á
árinu væru úr sögunni. Fimm
prósent framleiðsluaukning væri
t.d. vafasöm núna. Það leyndist
þó ein góð frétt í frumvarpinu:
það voru ekki lagðir á neinir nýir
skattar. Fjármálaráðherrann
varaði þó við því, að langvarandi
vandræðaástand í olíumálum
myndi hafa mjög slæm áhrif á
efnahag landsins og það hefði
áhrif á skattana.
Margir Sviar borga helming
tekna sinna í skatta og þeir eiga
yfir höfði sér 17,65 prósent virðis-
aukaskatt á mat og flesta aðra
framleiðslu. Með fjárlagafrum-
varpinu er miðað að því, að bæta
atvinnuöryggi, starfsaðstöðu, og
að því að hjálpa sjúkum, öldruð-
um og stórum fjölskyldum.
Engar stórfelldar breytingar er
að finna í frumvarpinu en
velferðarmál fá þar langmest fé.
Framlag til þeirra hækkar um
fjóra milljarða sænskra króna,
upp i 23 milljarða. Framlag til
Leysir Ehr-
lichman frá
skjóðunni?
Washington 11. janúar
AP—NTB.
JOHN Ehrlichman, sem áður var
einn af æðstu ráðunautum Nixons
forseta og lykilmaður i Water-
gate-málinu, hitti í dag Leon
Jaworski, saksóknara í málinu, og
ræddust þeir við drjúga stund.
Engin opinber yfirlýsing fékkst
um tilgang viðræðnanna, en ýms-
ir fréttaskýrendur telja hugsan-
legt, að Jaworski sé að reyna að
komast að einhvers konar sam-
komulagi við Ehrlichman um að
ljóstra upp óþekktum atriðum, er
þetta mikla hneykslismál varðar.
varnarmála hækkaði um 920
milljón sænskar krónur, upp í
8,85 milljarða. Aðstoð við erlend
ríki hækkaði um 35 prósent, upp í
tvo milljarða króna. Hætt var við
aðstoð við Chile, en aðstoð við
Norður-Vietnam hækkaði úr 50
milljónum upp í 170 milljónir
sænskra króna. Frumvarpið
verður nú lagt fyrir þingið en þar
hafa sósialdemókratar nú ekki
meirihluta í fyrsta skipti í 43 ár.
Sprengt á Spáni
Barcelona 11. janúar — AP
ÞRJÁR fremur vægar sprenging-
ar skóku Barcelona í býtið í morg-
un. Lögreglan hefur neitað að
gefa opinberlega skýringar á
þessum sprengingum, en heimild-
ir innan hennar herma, að þær
standi ( sambandi við dauðadóm
yfir ungum Spánverja, sem sak-
ur er um að hafa myrt lögreglu-
mann nokkurn. Aðeins einn mað-
ur særðist Iftillega af völdum
sprenginganna.
Herréttur hafði fyrr í þessari
viku dæmt unga manninn tii
dauða fyrir að hafa myrt lögreglu-
manninn eftir misheppnað banka-
rán. Maðurinn og tveir sökunaut-
ar hans voru við réttarhöldin
sakaðir um að vera félagar
Vodka
frá Kína
New York 11. janúar — NTB
OG þá eiga Bandarikjamenn von
á því, að geta drukkið kinverskt
vodka á næstunni. Kínverjar eru
nefnilega byrjaðir að flytja út
vodka til sölu á bandarískum
markaði. Ekki er þó útséð um,
hvort þessar kinversku guðaveig-
ar geta keppt við veigarnar frá
hinu stórveldi kommúnistaheims-
ins, þvi Sovétmenn flytja árlega
út meir en 300.000 flöskur af
vodka til Bandaríkjanna. Skyldi
Nixon ekki krækja sér i fylgis-
menn vegna bættra sambúðar við
Kína?
íberísku frelsishreyfingarinnar,
sem berst gegn ríkisstjórn
Francos. Þessi dauðadómur verð-
ur hins vegar endanlegur þegar
æðsti yfirmaður hersins í Barce-
lona-héraði tekur ákvörðun þar
um, en hennar er einmitt að
vænta mjög bráðlega.
Karl Gústaf flutti sfSustu
hásætisræðuna.
Síðasta hásætis-
ræðan í Svíþjóð
Stokkhólmi, 11. janúar, AP.
ENDALOK 250 ára konung-
legrar hefðar voru í Svíþjóð í
dag, þegar sænska þingið var
sett f síðasta skipti með
hásætisræðu. Karl Gústaf, hinn
nýi 27.ára gamli konungur Sví-
þjóðar, flutti ræðuna yfir þing-
mönnum og fyrirfólki f
konungshöllinni. Ný stjórnar-
skrárlög, sem verða samþykkt
endaniega í þinginu í vor,
breyta stöðu konungsins í
„Tákn þjóðarinnar".
Hásætisræðan með öllu sínu
orðaflúri verður lögð niður og i
hennar stað kemur stytt
yfirlýsing, sem forsætisráð-
herrann mun lesa við þingsetn-
ingar hér eftir. Karl Gústaf
konungur sat i fornu silfur-
hásæti Sviakonunga þegar
hann flutti ræðuna í dag og
fullvissaði þingheim um
konunglega náð og vinsemd,
sem þeir yrðu aðnjótandi í
starfi sinu.
Nýir og breyttir timar komu
fram í ræðu konungs, þvi að
hann minntist nú á ýmis mál,
sem eru efst á baugi og þar á
meðal oliumálið, sem hann
sagði, að myndi verða þjóðinni
erfiður baggi.
Konungurinn á sjálfur
erfiðari tima framundan því
þingið hefur lækkað „laun“
hans um 105 þúsund dollara,
niður í 950 þúsund dollara. Það
hefur m.a. i för með sér, að
hann verður að láta sér nægja
að hafa tvo matsveina í eldhúsi
sinu í staðinn fyrir fimm og
verður einnig að selja
einhverja af 18 hestum sinum.
I
(