Morgunblaðið - 19.01.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974
Önnur djass- og
ljóðadagskrá 1
Norræna húsinu
ÖNNUR sænsk-íslenzka djass- og
Ijóðadagskráin verður haldin í
Norræna húsinu í dag, og verður
hún með svipuðu sniði og dag-
skráin á fimmludagskvöld. Allir
miðar seldust þá upp í Norræna
húsinu, og var þar mikil stemn-
ing, að sögn IVIaj Britt Imnander,
forstöðumanns Norræna hússins.
Þrir Svíar taka þátt í þessari
dagskrá — Lasse Söderberg, ljóð-
skáld og þýðandi, sem stjórnar
dagskránni, Rolf Sersam bassa-
leikari og Jaeques Werup, rithöf-
undur og saxófónblásari. Nóta
þeír liðsstyrks íslenzkra djassleík-
ara — þeirra Guðmundar Stein-
grímssonar trommuleikara, Arna
Elfar's píanóleikara, Gunnars
Ormslevs saxafónleikara og Jóns
Sigurðssonar bassaleikara. Leik-
konurnar Guðrún Ásmundsdóttir,
Helga Hjörvar og Margrét Helga
Jóhannsdóttir lesa upp úr ljóðum
Framkvæmda-
stjóri Heilsu-
verndarstöðvar
islenzkra skálda, þeirra Jóns
Óskars, Jóhanns Hjálmarssonar,
Matthíasar Johannessen og Þor-
steins frá Hamri, en tveir þeirra
lesa einnig upp úr eigin verkum.
Lýst eftir
vitnum
ÞRIÐJUDAGINN 15. janúar var
ekið á bifreiðina G-8025, sem er
Morris-fólksbifreið, rauð á lit.
Gerðist þetta milli kl. 8-13 þar
sem bifreiðin stóð í stæði við
V itatorg. Vinstri framstuðari og
svuntan þar fyrir neðan voru
beygluð. A staðnum fannst brot
úr bifreiðalukt, sem reyndist vera
úr Volkwagen árg. 1968-74. Tjón-
valdur er beðinn að gefa sig fram
ásamt öðrum vitnum.
Þá var ekið á bifreiðina R-9264,
sem er Datsun 1600, gul að lit, þar
sem hún stóð í stæði við Brautar-
holt 6 milli kl. 17 og 18 á fimmtu-
dag. Var afturhurðin dælduð
nokkuð. Tjónvaldur er beðinn að
gefa sig fram við rannsóknarlög-
regluna ásamt öðrum þeim, sem
vitni urðu að þessu óhappi.
Loks var ekið á R-6668, sem er
Lada-fólksbifreið. árg. 1973, þar
sem hún stóð við Kóngsbakka 1-18
einhvern tíma á bilinu frá mið-
nætti á fimmtudag til kl. 8 í gær-
morgun. Vinstra afturbretti var
beyglað og mátti sjá í sárinu rauð-
an lit. Á tímabilinu frá miðnætti
til kl. 1 sást á þessum slóðum
til Landroverbifreiðar sem dró
rauða Cortinu með P-númeri, sem
byrjaði á 12. Eru ökumenn þess-
ara farartækja beðnir um aðgefa
sig fram við rannsóknarlögreglu.
Tvær skjaldbökur og tveir ungir krókódflar komu til landsins f sfðustu viku. Það er dýragarður-
inn f Kaupmannahöfn sem lánar fslenzka dýrasafninu dýrin f tvo mánuði. Krókódílarnir, sem
eru Nílarkrókódílar eru um metri að lengd, en eiga eftir að stækka mikið og geta orðið tvö tonn
að þyngd og fimmtíu ára gamlir.
Hálíónýt hafnarmann-
virki á Akureyri
A ÁRUNUM 1968—1970 var
unnið að gerð nýrar vöruhafnar á
Akureyri, og var um 30 millj. kr.
veitt til þeirra framkvæmda.
Eimskipafélag íslands hóf þá líka
að reisa1 vöruskemmu á upp-
fyllingunni innan við bryggjuna,
en þá kom i Ijós, að mannvirkin
byrjuðu að sfga. Var þá hætt við
allar framkvæmdir og danskir að-
ilar fengnir til að kanna gerð
hafnarinnar. Þeir hafa nú skilað
álitsgerð og segja, að þessi mann-
virki séu ónothæf. Breyta verður
hönnun þeirra og gerð. Á vori
komanda mun vinna við gerð
vöruhafnarinnar hefjast aftur, en
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur í fyrradag var samþykkt
með 8 samhljóða atkvæðum að
ráða Gísla Teitsson framkvæmda-
stjóra Heilsuverndarstöðvar.
Nokkrar umræður urðu um stöðu-
veitingu þessa og verður nánar
skýrt frá þeim síðar.
Sjálfboða-
liðar hittast
ÞRÁTT fyrir óhagstætt veður til
byggingarframkvæmda hefur
Sjálfstæðishúsið þokazt áfram og
er nú kominn hiti á neðstu hæð
þess.
Byggingarnefndinni hefur því
þótt ástæða til að kalla saman alls
þá, sem unnið hafa í sjálfboða-
vinnu við húsið, en þar eru Öðins-
menn fjölmennastir. Ennfremur
eru boðaðar stjórnir sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík, ásamt nokkr-
um öðrum gestum.
Eru þessir aðilar beðnir að
koma í húsið kl. 2:00 e.h. í dag.
laugardag.
Hvatarkonur munu sjá um all-
ar veitingar, en þær hafa að
undanförnu séð sjálfboðaliðum
við húsið fyrir kaffiveitingum þar
á staðnum.
verið er að hanna höfnina á ný
hjá Vita- og hafnarmálastjóran-
um.
Pétur Bjarnason, hafnarstjóri á
Akureyri, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að byrjað
hefði verið á þessum framkvæmd-
um snemma á árinu 1969, eða
síðast á kreppuárunum, og var
talsverðu fé veitt til framkvæmd-
anna m.a. til að auka atvinnu á
Akureyri, en atvinnuástand var
þá bágborið. Svo var það um vorið
1970, þegar framkvæmdir áttu að
hefjast á ný, að menn tóku eftir,
að undirstöður mannvirkisins
höfðu sigið. Kom þá í ljós, að
jarðlög voru þarna mjög laus í
sér. Eimskipafélag Islands hafði
árið áður byrjað að byggja stóra
vöruskemmu á uppfyllingunni, og
kom einnig í ljós, að grunnur
hússins hafði sigið á kafla.
Sagði Pétur, að 1970 og 1971
hefðu danskir sérfræðingar verið
Gullpening-
ar Bárðar
uppseldir
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Bárð Jóhannessön
gullsmið, sem gefur út minnis-
peninga í tilefni af Þjóðhátiðinni
'74 eins og áður hefur komið
fram. Bárður skýrði frá því, að
áhugi á peningunum hefði verið
mikill og væru nú uppseldir þeir
100 gullpeningar, sem hann gæfi
Ut. Hver gullpeningur kostar 37
þúsund krónur. Þá sagði Bárður,
að verulegt magn af silfur- og
koparpeningum hefði einnig selzt
og mundi hagnaður af þessari
minjapeningaútgáfu renna til
líknarmála, þannig, að 30% hagn-
aður færi í heyrnarhjálp, en land-
læknir mundi ákveða í samráði
við listamanninn, hvernig afgang-
inum yrði varið.
fengnir til að rannsaka gerð
mannvirkisins, og fyrir síðustu jól
hefðu þeir skilað frá sér skýrslu
um, hvernig halda ætti áfram með
gerð vöruhafnarinnar. Leggja
þeir fram ákveðnar tillögur um,
hvernig áfram skuli haldið, og
gera ráð fyrir, að gerð mann-
virkisins verði breytt. Er nú unn-
ið að hönnun þess hjá Vita- og
hafnarmálastjóra.
Fjármagns til bryggjugerðar
innar var að mestu aflað með
bráðabirgðalánum úr Byggðasjóði
og ríkisframlögum, sem komu
seinna, en hrukku skammt.
Byggðasjóður hefur nú viljað fá
þessi lán greidd, en að vonum eru
Framhald á bls. 20.
Hátíðarfundur Isafoldar
HÁTIÐARFUNDUR í stúkunni Isafold f tilefni 90 ára afmælis hennar var haldinn f Hótel
Varðborg 11. jan sl., daginn eftir afmælisdaginn, að viðstöddum stórtemplar, Ölafi Þ. Kristjáns-
syni, umboðsmanni hátemplars, Eiríki Sigurðssyni, og öðrum gestum og stúkufélögum. Æðsti-
temirtar stúkunnar er Sveinn Kristjánsson. Daginn áður hafði verið farin blysför með 12 blys að
Friibjarnarhúsi, þar sem 12 menn höfðu stofnað stúkuna á nákvæmlega sama tfma dags og
i* var farin. (Ljósm. Mbl. Sv.P.)
40 amerískir
stúdentar
FJÖRUTÍU bandarískir stúd-
gntar og þrir prófessorar frá
háskólum og menntaskólum i
Bandarikjunum komu til íslands í
gær, en með þeim er fræðslufull-
trúi alþjóðasambands hótelsölu-
stjóra i New York.
Stúdentar þessir eru allir við
nám i hótelrekstri og ferðamálum
og munu þeir sitja hér námskeið
aðHótel Loftleiðum dagana 18. til
20. janúar. Námskeiðið er haldið
á vegum skóla i Bandaríkjunum
og alþjóðasambands hótelsölu-
stjóra.
Skyr
61,30 kr.
1974
24,50
1971
Hækkun f tíð vinstri stjórnar.