Morgunblaðið - 19.01.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974
7
forum
world features
Eftir
Stephen
Fay
Neyðin
í Bretlandi
ÞEGAR brezka ríkisstjórnin til-
kynnti um miðjan desember síð-
astliðinn, að nauðsynlegt yrði að
stytta vinnuvikuna þar i landi
niður i þrjá daga, voru frétta-
skýrendur yfirleitt þeirrar skoð-
unar, að þessar ráðstafanir væru
ónauðsynlegar. Héldu sumir þvi
fram, að með þessu væri Edward
Heath forsætisráðherra að reyna
að hræða námaverkamenn til þess
að hætta við yfirvinnubann í
námunum, og bentu á, að svo
stutt vinnuvika stofnaði efnahag
landsins í stórkostlega hættu.
Þremur vikum seinna voru
margir þessara sömu fréttaskýr-
enda farnir að ræða um nauðsyn
tveggja daga vinnuviku, eða jafn-
vel eins dags vinnuviku. Forstöðu-
mannaflokksins á stefnu rikis-
stjórnarinnar er Tony Benn
(Anthony Wedgewood Benn), sem
er iðnaðarráðherra í „skuggaráðu-
neyti" Verkamannaflokksins.
Hann heldur þvi fram, að þessar
ráðstafanir rikisstjórnarinnar séu
alls ekki nauðsynlegar, þvi stjórn-
in hafi gefið villandi upplýsingar
um kolabirgðirnar. Þvi miður fyrir
Benn þá virðast útreikningar hans
varðandi kolabirgðirnar ekki siður
villandi.
Rikisstjórnin hefur ekki mót-
mælt þeirri staðhæfingu Benns,
að orkuráðstafanirnar kosti Breta
tvo milljarða sterlingspunda á
mánuði i minnkaðri framleiðslu.
Þetta er ekki vegna þess, að
stjórnin vilji ekkiandmæla, heldur
leg ástæða fyrir þessu vandræða-
ástandi er þvi eingöngu sam-
bandið milli rikisstjórnar og náma-
manna.
Þegar Eðward Heath tók við
embætti forsætisráðherra, af-
neitaði hann hugmyndinni um
opinber afskipti af launamálum.
Seinna snerist honum hugur, og
nú er hann ákveðinn fylgismaður
þeirrar stefnu. Launamálastefna
stjórnarinnar hefur verið fram-
kvæmd í þremur þrepum, og
stjórnin heldur jafn fast við þriðja
þrepið og við það fyrsta, þótt for-
sendur þess séu ekki lengur fyrir
hendi (reiknað var með örum efna-
hagsvexti á árinu 1974, eins og
málin standa nú verður ekki um
neinn vöxt að ræða). Telur stjórnin
Orkuskorturinn f Bretlandi
menn ýmissa iðjuvera hafa meir
að segja komið með tillögur um að
hætta allri framleiðslu, þar til
samið hefur verið við námamenn.
Aðalástæðan fyrir þessari svart-
sýni er stálframfeiðslan, en fyrir
tæpum hálfum mánuði skýrði dr.
Monty Finniston, aðalforstjóri
British Steel Corporation, frá þvi,
að bráðlega yrði nauðsynlegt að
minnka stálvinnslu niður i þriðj-
ung þess magns, sem framleitt
var, áður en orkuskorturinn gerði
vart við sig.
Vandamálið er aðallega það, að
obbinn af því kolamagni, sem
unnið er í námunum, fer beint í
orkuverin til að tryggja sem mesta
framleiðslu rafmagns, en stáliðju-
verin eru látin sitja á hakanum. Þó
er það svo, að mest allur iðnvarn-
ingur Bretlands þarf á stáli að
halda, allt frá bifreiðum niður i
niðursuðudósir.
Erfiðleikar þjóðarinnar virðast
svo til engin áhrif hafa á náma-
verkamennina, sem standa fast á
kröfum sinum. í heilan mánuð
hafa fulltrúar námamanna og
námastjórnarinnar staðið í samn-
ingaviðræðum til að finna leið til
lausnar deilunni (sem enn varðar
aðeisn yfirvinnubann, en ekki
verkfall), en án árangurs. Eru
menn nú helzt á þvi, að deilan geti
enn dregizt á langinn, og'að hún
leysist ekki fyrr en annað hvort
ríkisstjórnin eða námamenn hrein-
leggefast upp.
Ríkisstjórnin má eiga það, að
hún sá fram á þessa þróun mála,
þegar hún lögleiddi þriggja daga
vinnuviku. Tilgangurinn með
þessari styttingu vinnuvikunnar
var að halda sem lengst í rýrnandi
kolabirgðir, svo aðgerðir náma-
manna leiddu ekki skyndilega til
algjörrar stöðvunar iðnaðarins.
Stefnir ríkisstjórnin að því að
koma sér upp það sterkri varnar-
stöðu, að hún þurfi ekki að vera á
undan námamönnum að gefast
upp. Gallinn á þeirri stefnu er hins
vegar sá, að ríkisstjórnin hefur
meiru að tapa en námamennirnir,
sem eru enn I fullu starfi og hirða
sín laun.
Helzti gagnrýnandi Verka-
nauðsynlegt að standa vörð um
þriðja þrepið, að því er varðar
kaupgjald og verðlag.
Námamennirnir eru stjórninni
ekki sammála, þótt stjórnin hafi
gengið þannig frá þriðja þrepinu,
að námastjórninni var heimilað að
bjóða þeim mun meiri kauphækk-
anir en öðrum stóð til boða. Eins
og er stendur námamönnum til
boða 16,5% kauphækkun, sem
flestar aðrar stéttir væru fljótar að
samþykkja. Námamennirnir telja
hins vegar, að svo einfalt sé
vandamálið ekki. Þeir vilja, að
ríkisstjórnin bæti nú fyrir fyrri
sundir sínar og fyrri ríkisstjórna.
Námamenn hafa verið hafðir út-
undan allt frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar, laun þeirra hafa
ekki verið of góð, og hundruð
námamanna leita frá námunum á
viku hverri. Svo þeir krefjast veru-
legra hækkana nú. Eru þeir allir á
einu máli um þá kröfu.
William Whitelaw, sem nú er
vinnumálaráðherra, er sammála
námumönnunum um, að þeir eigi
skilið betri laun. Það er erfitt að
finna nokkurn, sem ekki er á sama
máli. En hann er ekki sammála
þeim um, að öll hækkunin þurfi að
koma til framkvæmda nú. Hann
væri reiðubúinn til að bjóða náma-
mönnum að láta nú þegar fara
fram nákvæma rannsókn á kjörum
þeirra og heita þeim verulegum
kjarabótum, þegar þriðja þrepinu
lýkur. En hann er ákveðinn í því,
að fyrr verður það ekki hægt.
Nú er svo komið, að Iftil hreyf-
ing virðist möguleg í þessu máli,
og þær raddir gerast æ háværari,
sem vilja nýjar þingkosningar
fljótlega. Margir íhaldsmenn eru
hrifnir af hugmyndinni um kosn-
ingar, sem snerust um það „hver
stjórnar Bretlandi?" og fáir telja
miklar líkur fyrir því, að breyting
verði á valdastöðu flokkanna.
Mikil ringulreið ríkir innan Verka-
mannaflokksins. En við vitum,
hver stjórnar Bretlandi. Það er
ríkisstjórnin, og erfitt er að sjá, á
hvern hátt gæti orðið um stór-
vægilega breytingu að ræða á
þessu sviði, þótt sú staðreynd
yrði staðfest í kosningum.
Rakstur við gasljós.
af því hún getur það ekki. Enginn
veit enn, hve mikið stytting vinnu-
vikunnar kostar í minnkandi fram-
leiðslu og atvinnuleysisbótum,
nema hvað i lok fyrstu stuttu
vinnuvikunnar höfðu um 750 þús-
und manns verið skráðir atvinnu-
lausir, og sú tala fer daghækk-
andi.
Það er því erfitt að reikna út
afleiðingarnar, en Ijóst er, að efna-
hagur landsins er á leið í strand.
og það tekur langan tíma að koma
honum á flot á ný. Þó erfitt sé að
spá um framtiðina, er Ijóst, hvað
hefur gerzt og hvað ekki. í fyrsta
lagi þá hefur olíuskömmtun Araba
haft takmörkuð áhrif. Það er oft
erfitt að fá benzín á benzinstöðv-
um, sérstaklega i London, og
minnkandi aðflutningur oliu hefur,
aukið á vandræðin vegna kola
skortsins, en önnur riki Efnahags-
bandalagsins, sem eru á sama
báti, hafa komizt vel af.
Vandræðin stafa heldur ekki af
þvi, að lestarstjórar hafa ákveðið
að vinna aðeins eftir settum regl-
um; aðgerðir þeirra hafa haft mjög
óþægilegar afleiðingar, sérstak-
lega fyrir þá sem sækja vinnu frá
úthverfum Lundúna, en efnahags-
áhrifin hafa verið litil. Raunveru-
BANDPÚSSIVÉL OG HEFIL BEKKUR óskast keypt Upplýsingar í slma 501 28 ÁTEIKNLfÐ PLINTHANDKLÆÐI gömlu mynstrm Hannyrðaverzlunin Erla, ' Snorrabraut
5 FWI MIÐSTÖÐVARKETILL óskast keyptur Upplýsingar í sima 501 28 ÍBÚÐ OSKAST Ung hjón óska eftir 2ja herb. ibúð. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Uppl. i slma 37390
UNGT REGLUSAMT PAR með eitt barn óskar eftir lítilli ibúð með eldhúsi I Hveragerði/Sel- fossi. Þeir, sem vildu sinna þessu, hringi i sima 1 1 434. FORD BRONCO '72 Til sölu fallegur og vel með fannn Ford Bronco árg 1972. 8 cyl spod Nánari upplýsingar i sima 83764
PLAST til sölu 4ra tommu plast ásamt klefahurð með karmi og læsingu, pressa og mótor, spiralar. Simi 92 — 1 665 ÍSLENZK MYNT íslenzk myntsöfn, compl 1 922 — 1 973 og einnig án gullpenings Jóns Sigurðssonar i möppum til sölu. Tilboð merkt: „Mynt — 4860" sendist Mbl
SKATTFRAMTÖL Veitum aðstoð við skattframtöl Pantið tíma sém fyrst. Simar 41095 og 85789. Framtalsþjónustan MagnúsA. Bjarnason. Þórólfur Kristján Beck. IESIÐ |R«jTrsttnlilíií)iíi DRCLECD
Herbergi nálægt miðbænum, helzt með eldhúsaðgangi og ein- hverjum húsgögnum, óskast fyrir útlending. Upol í sima 1 5555.
Hafnarfjörður Ófullfrágengið kjallarapláss, 80—90 ferm. til leigu í Norðurbænum í Hafnarfirði. Sérinngangur. Ýmislegt kemur til greina. Nánari upplýsingar í símum 52045 og 52453.
ÚTBOÐ fj!
Rilboð óskast t að steypa gangstéttir ásamt jarðstrengjalögnum og
götulýsingu t Breiðholtshverfi I.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, gegn 5000 króna
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 6. febrúar 1974
kl. 2.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
VIÐTALSTIIMII
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstaeðisflokksins
i Reykjavik
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til við-
tals á laugardögum frá kl. 14.00 til 16.00. í Galtafelli. Laufásvegi
46
Laugardaginn i 9. janúarverða til viðtals:
Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, Gísli Halldórs-
son, borgarfulltrúi og Elín Pálmadóttir, varaborgarfulltrúi