Morgunblaðið - 19.01.1974, Side 32
Prentum
stórt
sem
smátt
B
Freyjugötu 14' Sími 17667
nucLvsmcnR
^^-»22480
LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974
Pólveriar
kaupa ekki
loðnumjöl
ajáaÉ i' :; v
| jjMj
• . /’ ..v
SAMNINGAVIÐRÆÐUR við Pól
verja, sem staðið hafa yfir í
Reykjavfk undanfarna daga,
strönduðu í gærkvöldi, ug munu
samningamennirnir pólsku halda
heim á morgun án nokkurs samn-
ings. Það verð, sem Pólverjarnir
vildu kaupa loðnumjöl á, var alis
kostar óraunhæft miðað við verð-
lag, sem er á loðnumjöli í dag, að
því er Gunnar Petersen einn
samningamanna tjáði Mbl.
Þegar pólska samninganefndin
Krónan fellur enn
miðað við dollar
BANDARÍKJADOLLAR heldur
áfram að styrkjast og í fyrradag
féll krónan miðað við dollar um
eina krónu eða um 1,1% og hefur
þá lækkun krónunnar gagnvart
dollar frá áramótum numið hart-
nær 4% Að öðru leyti hefur verið
um míklar sveiflur að ræða í
gjaldeyrismálum, þótt þar hafi
ekki verið um nein stórstökk að
ræða. Dönsk króna hafði t.d.
lækkað miðað við krónuna og var
f gær komin í 12,86 krónur sölu-
gengi. Sterlingspund kostaði i
gær 191,10 krónur og hafði þá
lækkað um nærri 2% frá áramót-
um miðað við íslenzka krónu.
kom til landsins, bjuggust menn
við, að fljótlega tækist að gera
sölusamning, þar eð Pólverjar
höfðu látið í ljós mikinn áhuga á
að kaupa mikið magn loðnumjöls,
áður en þeir komu til landsins.
Var jafnvel talað um -A hluta alls
loðnumjölsins.
Á síðastliðnu ári keyptu Pól-
verjar 25 þúsund lestir af loðnu-
mjöli, og var búizt við því, að þeir
myndu jafnvel kaupa meíra nú.
Mjölútflytjendur eru, þrátt fyrir
þetta, bjartsýnir á að geta selt
mjölið, en talið er, að það geti
tekið nokkurn tíma að semja um
sölu á því magni, sem gert var ráð
fyrir, að Pólverjarnir keyptu.
Leikur í snjó — Sv. Þorm.
300 milljón króna hagnaður ríkis-
sjóðs vegna hækkaðs bensínverðs
FYRIRSJAANLEGT er nú, að
verð á bensínlítra verði komið
upp í allt að 32 krónur eftir 6 til 7
vikur og í síðasta lagi í aprflmán-
uði og er þá aðeins miðað við þær
verðhækkanir á heimsmarkaði,
Börkur og Magnús með 750
lestir til Neskaupstaðar
TVEIR bátar komu með loðnu til
Neskaupstaðar í gær. Voru það
Börkur, sem var með 550 lestir og
Magnús með 200 lestir.
Mjög mikil atvinna er nú í Nes-
kaupsstað, því skuttogararnir
hafa fiskað ágætlega að undan-
förnu, og ekki verður atvinnan
minni nú, þegar loðnan er komin
Emerson Lake
og Palmer
á listahátíð?
VONIR standa nú til, að unnt
verði að fá eina frægustu popp-
hljómsveit heims, Emerson, Lake
& Palmer, til þess að koma hingað
til lands á listahátfðina í sumar.
Að sögn Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar framkvæmdastjóra listahá-
tfðar er málið enn á umræðustigi,
en fvrr í vetur sýndi hljómsveitin
áhuga á íslandsför með hljóm-
leikahald á listahátfð fyrir aug-
um. Jasper Parrott umboðsmaður
Vladimir Ashkenazys f London
vinnur nú að því fyrir hönd lista-
hátfðar að fá allar upplýsingar
um kostnað, tímasetningu o.s.frv.,
og taldi Jón Steinar iíklegt, að
Ijóst yrði um næstu mánaðamót,
hvort af komu hljómsveitarinnar
gæti orðið og með hvaða skilmál-
um. Verður þá tekin ákvörðun
um hugsanlegt hljómleikahald.
Nánar verður sagt frá Emerson,
Lake & Palmer á Slagsíðunni f
blaðinu á morgun.
í fyrrinótt var bræla á miðun-
um úti af Norðfjarðarhorni, en
þegar leið á morguninn lægði
nokkuð, og fóru bátarnir þá að
kasta. Sjór var nokkuð þungur og
áttu sumir í hálfgerðum erfiðleik-
um með að draga. Spáð var batn-
andi veðri á miðunum í gær-
kvöldi, og ef loðnan hefur haldið
sig ofarlega í nótt, ættu bátarnir
að hafa fengið einhvern afla.
sem kunnar eru í dag. Bensínlítr-
inn kostar nú 26 krónur og hækk-
aði í þá krónutölu 8. desember
sfðastliðinn úr 23 krónum. Þegar
bensfn verður komið upp í 32
krónur hefur það á örfáum mán-
uðum hækkað um hartnær 40%.
Öll þessi hækkun er sögð stafa af
olíukreppunni f heiminum.
Tekjur ríkissjóðs og vegasjóðs
af bensínsölu munu verða á árs-
grundvelli, er þessi hækkun hef-
ur átt sér stað 1.8 milljarðar, og
vegna þessara hækkana aukast
þær um 300 milljónir króna. Öll
sú hækkun fer í ríkissjóð. A þenn-
an hátt hagnast ríkissjóður mjög
á oliukreppunni. Vegasjóður fær
hins vegar á ársgrundvelli 987
milljónir króna, og breytist sú
tala ekki við hækkun heimsmark-
aðsverðs, þar sem gjaldið af
hverjum lítra er föst krónutala,
9,87 krónur, en bensínsala hér-
lendis er á ársgrundvelli umlOO
milljónir lítra. Vegasjóðsgjaldið
var hækkað fyrir rúmu ári um 2
krónur á lítra. Bensíntollur er
50% af innkaupsverði.
Þegar bfleigandi kaupir einn
lftra af bensíni greiðir hann í
opinber gjöld 16,13 krónur
og er þá vegasjóðsgjaldið inni-
falið, en það er eins og áður
sagði 9,87 krónur. Þegar
fyrirsjáanleg hækkur er
komin, greiðir bíleigandinn 18
krónur eða um það bil í opinber
gjöld.
Þá má geta þess, að þegar
bensínlítrinn hefur náð 32 krón-
um, hefur hann hækkað um ná-
kvæmlega 100% frá sumri 1971.
Stofnanir flytjast
til Vestmannaeyja
NÚ hefur verið ákveðið, að aðset
ur embættis bæjarfógetans í
Vestmannaeyjum, sem verið hef-
ur í Reykjavík frá því að eldgos
hófst í Heimaey, flytjist frá og
með 1. febrúar nk. til Vestmanna-
eyja. Mun embættið frá þeim
tfma framkvæma allar embættis-
athafnir í Vestmannaeyjum.
Jón Helgason, formannsefni B-listans í Einingu:
Verkalýðshreyfingin verði sterk
og samstillt í kjarabaráttunni
í DAG og á morgun fara fram
kosningar til stjórnar verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akur-
eyri, og er þetta f fyrsta skipti
um langt árabil, sem tveir list-
ar koma fram við stjórnarkjör.
Kosningin fer fram f dag f
Alþýðuhúsinu á Akureyri kl.
10—19, en á morgun, sunnu-
dag, er kjörstaður opinn kl.
10—18.
Morgunblaðið hefur snúið
sér til Jóns Helgasonar, sem er
formannsefni B-listans, en
kosningaskrifstofa B-listans er
að Brekkugötu 4, sfmar 21635
og 11425, og rætt við hann um
kosninguna og ástæður þess, að
hann hefur gefið kost á sér til
framboðs á móti núverandi
stjórn félagsins.
— Það sem olli því, að ég gaf
kost á mér sem formannsefni á
B-listanum, sagði Jón Helgason,
var þrýstingur frá því fólki,
sem ég hef starfað með á s.l. 9
árum. Tilmæli til mín um fram-
boð við stjórnarkjör í Einingú
tók ég sem traust til mín fyrir
það starf, sem ég innti af hendi
í Einingu áður fyrr og færði
mig því yfir i Einingu frá
Sjómannafélagi Akureyrar, þar
sem ég var varaformaður.
Mér voru vel kunnar þær
ástæður, sem leiddu til þess, að
eftir því var leitað, að ég færi í
þetta framboð. Það er sú
óánægja, sem grafíð hefur um
sig á sJ. ári, síðan Jón Ásgeirs-
son tók við formennsku. Félags-
fólk telur, að hann hafi ekki
sinnt því verkefni og þeim
kvörtunum, sem hafa borizt frá
því, og það var a.m.k. sagt við
mig, að meðan ég hefði verið
starfsmaður Einingar hefði ver-
ið brugðizt á allt annan hátt við
slíkum kvörtunum en gert
hefur verið að undanförnu.
Þess má geta í þessu sambandi,
að nú er starfslið mun fjöl-
mennara en áður var og hefði
það því átt að geta sinnt vanda-
málum og umkvörtunum
félagsfólks mun betur. Á s.l. ári
voru 8 starfsmenn á skrifstofu
Einingar.en voru aðeins 4 áður
fyrr.
Á s.l. vetri var ráðinn maður
á skrifstofuna, Helgi
Guðmundsson, sem ekkert
þekkti til þessara starfa. Hann
hefur meira verið í pólitiskum
hugleiðingum en að vinna að
hagsmunamálum verkafólks
hér fyrir norðan. Enda telur
fólk, að hann hafi sinnt meira
Framhald i bls. 20.
Þá mun Útvegsbankinn í Vest-
mannaeyjum flytja aðalstöðvar
sinar til Eyja 20. janúar. Af-
greiðsla verður áfram í aðalbank-
anum í Reykjavík og veitir Sig-
hvatur Bjarnason gjaldkeri henni
forstöðu. Víxlar sem greiðast eiga
í Útvegsbankanum í Vestmanna-
eyjum með gjalddaga 29. janúar
eða síðar, eiga að greiðast í Vest-
mannaeyjum. Útibússtjóri eða
fulltrúar hans munu hafa viðtöl
hálfsmánaðarlega einn til tvo
daga í senn í aðalbankanum í
Reykjavík, og mun það verða til-
kynnt síðar, að því er segir í til-
kynningu frá bankanum. Jafn-
framt munu starfsmenn af-
greiðslu útibúsins i Reykjavík
hafa milligöngu um afgreiðslu
ýmissa mála viðskiptavina
bankans.
HÆTTULEG
UR LEIKUR
BÖRN ogunglingar nota snjóinn
gjarnan til ýmissa skemmtana.
Ein er sú skemmtan, sem er öðr-
um hættulegri, að það er að hanga
aftan i bifreiðum á ferð. Viða eru
mikil brögð að þvf, að börn leiki
þennan hættulega leik. Lögreglan
á Akranesi hefur t.d. undanfarið
átt í miklum brösum með þetta,
og leggur hún ríka áherzlu á, að
foreldrar brýni fyrir börnum sín-
um, hversu hættulegt þetta uppá-
tæki getur verið, og svo að fólk
virði útivistartíma barna.