Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1974 13 r Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri: Erlend lán nauðsynleg til fram- kvæmda Hitaveitu og Rafmagnsveitu I SVARI Birgis tsleifs Gunnars- sonar borgarstjóra við fyrirspurn frá Björgvin Guðmundssyni (A) um fjárhagsstöðu borgarsjóðs og borgarfyrirtækja, sem borin var fram á síðasta fundi borgarstjórn- ar, kom m.a. fram, að lausafjár- staða borgarsjóðs hefur verið nokkuð erfið undanfarið. Þetta stafar m.a. af því, að í janúar er engin fyrirframgreiðsla útsvara tekin af launum og það, sem áður innheimtist á síðustu dögum árs- ins, kemur nú inn á lengri tíma. Nú er þetta erfiðleikatímabil hins vegar aðmestu að baki og fer greiðslustaðan mjög batnandi. Fyrirspurn Björgvins Guð- mundssonar (A) var svohljóð- andi: 1. Hvernig er lausafjárstaða borgarsjóðs í dag? Hvernig hefur hún þróazt síðustu mánuði? a. Hefur borgarsjóður orðið að taka einhver skammtímalán und- anfarið vegna fjárskorts? b. Hve mikil er yfirdráttarskuld borgarsjóðs í Landsbankanum f dag? Hve mikil var hún um ára- mót? Hver er yfirdráttarheimild- in? Hve miklir vextir voru greidd- ir af yfirdrætti borgarsjóðs f Landsbankanum sl. ár? 2. Hvernig er fjárhagsstaða borgarsjóðs gagnvart hinum ýmsu fyrirtækjum borgarinnar í dag? Hvernig hefur hún þróazt undanfarna mánuði? Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri: Lausafjárstaða borgarsjóðs hefur verið allerfið undanfarnar vikur og með erfiðasta móti i janúar. Til skýringar á því má nefna eftirfarandi: Samkvæmt reikningsjöfnuði borgarsjóðs 31.12. 1973 (tekinn 25.1. 1974) hefur endanlegt upp- gjör ekki farið fram við ýmsar stofnanir, sem borgarsjóður hefur lagt út fyrir á árinu og reiknað er með að innheimtist á reikningsárinu. Þannig vantar uppfærslu eftirstöðva og endan- legt uppgjör við ríkissjóð, Trygg- ingastofnun, Sjúkrasamlag Reykjavíkur og íþróttasjóð. Það, sem borgarsjóður hefur lagt út fyrir áðurnefnda aðila og ekki enn fengið greitt, má áætla um 360 millj. króna, og eru þá eldri skuldir þessara aðila meðtaldar, að frátöldum mótkröfum þeirra. Af þessum 360 millj. eiga 208 millj. örugglega að koma á næst- unni í borgarsjóð, en afgangurinn skuldfærist væntanlega og má þar m.a. nefna íþróttasjóð, sem vænt- anlega greiðir aðeins um 10 millj. af 68 millj. króna skuld um ára- mót, svo og þátttöku ríkisins í byggingu Borgarspítala. Janúarmánuður er sérstaklega erfiður nú, þar sem engin fyrir- framgreiðsla útsvara er tekin af launum 1. janúar, og sá kúfur, sem áður innheimtist á síðustu dögum ársins, dreifist nú á lengri tíma. Fasteignagjaldainnheimta gat og ekki hafizt vegna tafa á útsendingu fasteignagjaldseðla, þar sem ákvörðun um þau var tekin allt of seint. Samtals inn- heimtust í Gjaldheimtunni í janúarmánuði 172 millj. króna í hlut borgarsjóðs, sem er mjög lágt hlutfall af þeim tekjum, sem Gjaldheimtan ætti að innheimta miðað við heildartekjuáætlun borgarsjóðs. Um þróunina er það að segja, að nú fyrri hluta árs (að janúar undanskildum) fer greiðslustaðan mjög batnandi. Spurt er um það, hvort borgar- sjóður hafi orðið að taka einhver skammtímalán undanfarið vegna fjárskorts. Því er til að svara, að borgin hefur ekki nýlega tekið nein sérstök skammtímalán um- fram yfirdrátt á hlaupareikningi í Landsbanka, en yfirdráttarskuld í Landsbanka í dag er 214 millj. króna og var um áramót 140 millj. Fer hún nú væntanlega ört lækk- andi, en hún hækkaði verulega nú við kaupgreiðslur um mánaða- mót. Föst yfirdráttarheimild f Landsbanka er 80 millj. kr., en breytingar til tímabundinnar hækkunar eru skv. sérsamn- ingum við bankann hverju sinni. Vextir og kostnaður af yfirdrætti borgarsjóðs voru 12 millj. á árinu 1973. Skuldir borgarsjóðs við fyrir- tæki borgarinnar voru í ársreikn- ingi 1972 72 millj. króna, en 31. 12. 1973 117 millj. króna, og hafa því aukizt um 45 millj. Endanlegt uppgjör liggur þó ekki fyrir og eiga tölur vafalaust eftir að breyt- ast. Björgvin Guðmundsson (A) sagðist vilja þakka borgarstjóra skýr svör, sem hann teldi leiða í ljós, að borgin þyrfti að tryggja sér langtimalán frekar en yfir- drætti. En nú nýlega hefur verið leitað heimildar til stórfelldrar lántöku erlendis að upphæð 1.40Ó milljónir króna vegna fram- kvæmda við Rafmagnsveitu og Hitaveitu og vegna hafnarinnar. Með þessu láni tel ég að einnig sé áætlunin að bjarga erfiðri lausa- fjárstöðu borgarsjóðs og því hafi lánið verið haft óþarflega hátt. Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri kvað það rétt að sótt hefði verið um lántökuheimild og ef litið væri á greiðsluáætlanir Hitaveitunnar . og Rafmagns- veitunnar og stöðu þeirra í dag og andstöðu ríkisins við gjaldskrár- breytingar þessara fyrirtækja þá kæmi því miður i ljós, að senni- lega hefði verið farið fram á of lágt lán, en ekki of hátt eins og Björgvin hefði haldið fram. Úlfar Þórðarson borgarfulltrúi: Heilbrigðisráðuneytið tefur framkvæmdir Reykjavíkur í heilbrigðismálum MIKLAR umræður urðu um sam- skipti heilbrigðisráðuneytisins og Reykjavfkurborgar á fundi borgarstjórnar nýverið. Tilefni umræðnanna var bókun f fundargerð heilbrigðismálaráðs borgarinnar frá f janúar. Þar er þeirri áskorun beint til borgar- stjórnar, að hún taki á leigu hluta af húsi Öryrkjabandalagsins að Hátúni 10 B í því skyni að koma þar upp hjúkrunarheimili fyrir aldraða Reykjvíkinga með ferli- vist. Samkvæmt áætlunum borg- arlæknis mætti koma um 80 rúm- um fyrir f þessu húsnæði en einn- ig yrði f húsinu aðstaðayfir borð- stofu, setustofur og iðjuþjálfun. Margrét Guðnadóttir prófessor, sem er fulltrúi Alþýðubandalags- ins f heilbrigðismálaráði greiddi atkvæði gegn því, að borgin kæmi upp þessu heimili og kvaðst telja, að það mundi tefja fyrir lausn á málefnum aldraðra. Adda Bára Sigfúsdóttir (K) gerði mál þetta að umræðuefni og gat um það, að rikisspítalarnir starfræktu sjúkradeild í einu af húsum Öryrkjabandalagsins og því hefði heilbrigðisráðuneytið nú ákveðið að leita eftir því að fá á leigu það húsnæði, sem borgin hefði einnig áhuga á. 1 þessu hús- næði ætlaði ráðuneytið síðan að reka deild fyrir langlegusjúkl- inga, sem nyti þjónustu frá Land- spítalanum. Borginni bæri því að hætta tilraunum sínum til að ná þessu húsnæði áleigu. Úlfar Þórðarson (S): Að mínu mati er þetta mál ekki eins einfalt og Adda Bára vill vera láta. Borg- in hefur veitt Öryrkjabandalag- inu umtalsverða aðstoð við hús- byggingar þess. Hún gaf þvi t.d. lóðina undir hús það, sem hér er rætt um og hefur lánað því fé út á hverja íbúðareiningu. Nú hefur svo komið í ljós, að bandalagið vill gjarna leigja 3 hæðir í húsinu og hefur nú um eins árs tímabíl ver- ið rætt um, að þar mætti koma upp deild fyrir langvistunarsjúkl- inga með ferlivist, sem nyti sér- fræðiaðstoðar frá Borgarspítalan- um og væri fyrst og fremst hugs- uð til að greiða úr hinum mikla vanda Reykvíkinga á þessu sviði. Nú ber hins vegar svo við, að ríkið sækir fast að fá þetta húsnæði og e.t.v. skiptir ekki öllu máli hver mundi reka þetta húsnæði, ef tryggt væri, að verið væri að leysa vanda Reykvíkinga en það mun sennilega ekki vera ætlunin held- ur á að setja þarna upp langlegu- deild fyrir rúmliggjandi sjúkl- inga. Þá framkvæmd tel ég frá- leita í þessu húsi. Miklu eðlilegra væri að ríkið heimilaði fram- kvæmdir við B-álmu Borgarspítal- ans og legði til hennar lögbundið framlag en henni ereinmitt ætlað að leysa úr vanda langlegusjúkl- inganna. En þetta fé hefur ríkið ekki talið sig geta útvegað og ekki heldur framlag sitt til þjónustu- deildar Borgarspítalans en hins vegar eru allt i einu ti 125 milljón- ir til að sölsa undir heilbrigðis- ráðuneytið framkvæmdir, sem borgin vill fara út i til þess að leysa vanda Reykvíkinga. En þetta er raunar aðeins eitt dæmið í viðbót um furðulega og óafsakanlega framkomu heil- brigðisráðuneytisins gagnvart Reykjavíkurborg, sem m.a. hefur lýst sér í því eins og getið var um hér fyrr, að rikið leggur ekkert til framkvæmda við Borgarspitalann á árinu og hefur heldur ekki greitt lögboðið framlag til Grensásdeildarinnar. Adda Bára Sigfúsdóttir (K): Eg vissi nú ekki, að borgarlæknir væri að vinna að þessu máli og hefði látið gera teikningar í því skyni. Og þykir mér raunar und- arlegt, að það skuli hafa farið svo hljótt. En hér er hins vegar um fljótlegustu leiðina að ræða til að greiða úr vanda langlegusjúkl- inga og því eðlilegt, að rikisspítal- arnir taki við þessum rekstri. tJIfar Þórðarson (S): Eg vil upplýsa það eins og raunar kemur Sigurlaug Bjarnadóttir borgarfulltrúi; Samstarf skóla og heimila ber að efla A FUNDI borgarstjórnar Reykja- vfkur í fyrri viku var samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum að beina þeim tilmælum til skóla- stjóra við skóla borgarinnar, að þeir leituðust við að koma á fót samstarfsnefndum kennara, nemenda, foreldra og skólastjóra við skóla sína. Tillagan er komin frá fræðsluráði og flutti Sigur- laug Bjarnadóttir (S) hana í borgarstjórn. Sigurlaug Bjarnadóttir (S): Eins og borgarfulltrúar muna eft- ir, var tillögu frá Öddu Báru Sig- fúsdóttir um að stofna skyldi sam- starfsnefndir við skóla borgar- innar vísað til fræðsluráðs. Ráðið hefur haldið fund með skólastjór- um og kannað undirtektir þeirra i þessu sambandi. Á þeim fundi kom fram áhugi skólastjóra á þessari hugmynd en hins vegar andstaða gegn því, að slíkar nefndir yrðu valdboðnar. Fræðsluráð var því sammála um að leggja til við borgarstjórn, að hún beindi þeim tilmælum til skólastjóranna, að þeir leituðust við að koma á fót samstarfs- nefndum í skólum sinum sam- kvæmt eftir farandi reglum: 1. gr. I samstarfsnefnd skulu eiga sæti: skólastjóri, sem boðar til og stýrir fundum nefndarinnar, tveir foreldrar, tveir nemendur og tveir kennarar. Yfirkennari skal vera ritari nefndaririnar. gr. Fulltrúar í samstarfsnefnd skulu kosnir ár hvert í byrjun skólaárs á almennum foreldra- fundi cg almennum nemenda- fundi 7. — 9. bekkja og al- mennum kennarafundi, sem skólastjóri gengstfyrir. Hver ofannefndra aðila um sig skal kjósa tvo fulltrúa og tvo til vara í samstarfsnefndina til eins árs. 3. gr. Fundir í samstarfsnefnd skulu haldnir svo oft sem skólastjóra þykir þurfa, en þó ekki sjaldn- ar en fjórum sinnum á skóla- árinu. 4. gr. Markmið samstarfsnefndar er að vinna að heill nemenda, styrkja samskipti skóla og heimila og styðja starfsemi skólans i hvivetna. Samstarfsnefnd skal vera skólayfirvöldum til ráðuneytis og foreldrum og nemendum til leiðbeiningar um eftirfarandi: a) vinnuskilyrði nemenda og annan aðbúnað þeirra í skóla, b) heimanám, félagslif og tóm- stundaiðju nemenda, c) neyzluvenjur nemenda, skólanesti og skólamáltiðir, d) agareglur í skólum og viður- lög við brotum á þeim. fram í fundargerð heilbrigðis- málaráðs, að teikning var gerð af húsnæðinu til þess að átta sig á möguleikum þess í janúar 1973. En ég vil enn ítreka þá skoðun mína, að öll framkoma heil- brigðisráðuneytisins í þessu máli er alls ekki samboðin opinberum stj örnsý sl uaði lum. Sigurjón Pétursson (K): Mér kemur mjög á óvart, aðteikningar skuli liggja fyrir að þessu hús- næði. Ég man ekki til þess, að borgarráð eða borgarstjórn hafi gert neinar samþykktir um að slíkt skuli unnið og spyr ég því borgarstjóra hver hafi heimilað þessa vinnu. Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri: Ég hefi fylgzt með vinnu borgarlæknis að þessu máli og mér er kunnugt um, að hann fékk á láni teikningar af húsinu hjá Öryrkjabandalaginu til þess að kanna hvort húsnæðið gæti komið að þeim notum, sem hann ætlaði þvi. En ég tel rétt að taka fram i þessu sambandi, að ég er þeirrar skoðunar, að embættis- menn eigi að sýna frumkvæði við lausn þeirra mála, sem undir embætti þeirra heyra, en ekki bíða sí og æ eftir fyrirmælum borgarstjórnar um hvaðeina. Þetta hefur borgarlæknir gert og sýnt með því, að hann er mjög hæfur embættismaður og fagna égþessu framtaki hans. Albert Guðmundsson (S) kvaðst vilja benda á í sambandi við þessar umræður, að sam- kvæmt þeirri tillögu, er hann hefði flutt og samþykkt hefði verið um að ákveðnum hundraðs- hluta af útsvarstekjum borgar- innar yrði árlega varið til fram- kvæmda i þágu aldraðra, hefði eingöngu verið átt við nýbygg- ingar í þágu aldraðra og hann teldi þvi að borgarlæknir hefði staðið vel að þessu máli. Markús Örn Antonsson (S): Ég tek undir það með Úlfari Þórðar- syni, að þetta mál allter eittdæm- ið í viðbót um óheilbrigða afstöðu heilbrigðisráðuneytisins tilþeirra málefna Reykjavíkur, sem undir það falla. Og raunar er það svo, að ráðuneytið þrjózkast jafnan við að taka undir réttlátar óskir borgarinnar og frumkvæði hennar í heilbrigðismálum fyrr en það er til þess neytt. Sveinn Björnsson (S) kvaðst telja, að Sigurjón Pétursson gerði full mikið úrþeim ,,glæp“ borgar- læknis að hafa kynnt sér mögu- leika umrædds húsnæðis með teiknivinnu. Borgarlæknir hefði þvert á móti með þessu sýnt, hvernig góðir embættismenn, sem sinna vilja starfi sínu af áhuga, eiga að vera. Þessum lið úr fundargerð heil- brigðisráðs var siðan vísað til borgarráðs til umf jöllunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.