Morgunblaðið - 17.03.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.03.1974, Blaðsíða 1
48 SIÐUR OG LESBOK 64. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Olíufundir um helgina: Líklegast óbrey tt olíuverð um sinn Vínarborg, 16. marz.AP—NTB. OLlUMALARAÐHERRAR þeirra þréttán ríkja, sem aðild eiga að samtökunum OPEC (Sam- tökum olíuútflytjenda), komu saman til fundar f Vínarborg í morgun til þess að fjalla um olíu- verðið. A sunnudag verður síðan sérstakur fundur ráðherra aðildarríkja OAPEC, þ.e. ara- bískra olíuútflytjenda, en aðild að þeim samtökum eiga öll Arabarfkin, sem eru í OPEC auk Egyptalands, Sýrlands og Rahreins, sem ekki eiga aðild að OPEC. Búizt er við hörðum deil- um á báðum fundunum, bæði um Ylur sólar- geislanna Það hefur sannarlega birt yfir landi og fölki í blfðviðrinu að undanförnu. Jafnvel þúfnakoll- arnir kættust, þegar þeir fundu yl sölargeislanna og brostu til Ijösmyndara Morgunblaðsins, Ólafs K. Magnússonar, sem tók þessamynd fvikunni. það hvort hækka eigi olíuverð eða lækka og hvort aflétta skuli olíu- sölubanni á Bandaríkin eða ekki. Ahmed Zaki Yamani olíumála- ráðherra Saudi-Arabíu sagði við fréttamenn í morgun, að hann mundi leggja til á OPEC-fundin um í dag, að verðið yrði lækkað frá 1. apríl að telja. Libyski ráð- herrann, Ezzedin Mabruk, sagði, að önnur aðildarríki OPEC væru þeirrar skoðunar, að halda skyldi verðinu óbreyttu enn um sinn; olíumálaráðherra Venezuela, Valentin Hernandez Aœsta, sagðist ekki sjá neina ástæðu til að lækka olíuverðið, því að þær röksemdir, sem legið hefðu fyrir verðákvörðuninni um síðustu ára- mót, væru enn í fullu gildi, iðnaðarrikin hefðu ekki enn náð tökum á verðbólgunni heima fyrir. Loks sagði olíumálaráð- herra Alsír, Belaid Abdesselam, að hann vildi heldur ræða, olíu- hækkun en um lækkun. Egypzka blaðið ,,A1 Ahram" hefur spáð því síðustu daga, að verðið verði áfram óbreytt um sinn og væntanlega verði sam- þykkt á fundunum í Vínarborg að auka eitthvað olíuframleiðsluna í Arabaríkjunum, en samdráttur hennar miðað við sl. ár nemur nú um 15%. Alls er óvíst, að oliusölu- banninu á Bandaríkin verði af- létt, enda þótt bæðí Egyptaland og Saudi-Arabfa séu því mjög fylgjandi. „A1 Ahram“ segir, að banninu gegn Hollandi verði haldið áfram um sinn, en Þýzka- land og Italía hafi verið sett á lista yfir þær þjóðir, sem taldar eru vinveittar Aröbum. Haft er eftir heimildum i Libyu, að ekki verði tekin endanleg ákvörðun á Framhald á bls. 47 Enn ólga innan portú- galska hersins Miðla Bretar málum milli EBE og USA? Lissabon, 16. marz, AP — NTB. HERSVEITIR portúgölsku stjórnarinnar afvopnuðu f dag liðsmenn herdeildar einnar, sem virt höfðu að vettugi skipun ríkis- stjórnarinnar um að halda sig í herhúðunum. Ilafði deildin reynt að fara fótgangandi til Lissabon úr norðri, en fékk ekki þann stuðning, sem hún hafði búizt við. Var henni snúið aftur til herbiíð- anna og þar^var hún afvopnuð. Herinn í landinu er enn f við- bragðsstöðu vegna ókyrrðar þeirr- a, sem komið hefur upp eftir brottvikningu tveggja yfirmanna hersins, da Costa Gomes og de Spinola, en þeir höfðu haldið þvf fram, að Portúgölum muni ekki takast að vinna hernaðarlegan Grikkland: Stjórnmálaleið- togi handtekinn Aþénu, 16. marz.NTB. GRÍSKA öryggislögreglan hefur handtekið leiðtoga Miðsambands- ins f Grikklandi, Georg Mavros, að því er fjölskylda hans upplýs- ir. Ekki er vitað, hvert Mavros var fluttur og engin skýring hefur verið gefin á handtöku hans. Hins vegar er talið, að hún sé tilkomin vegna þess, að Mavros lét í ljós ánægju sína yfir því, að brezka stjórnin skyldi aflýsa flotaheim- sókn til Grikklands og sýna þar með í verki hug sinn til grisku herforingjastjórnarinnar. sigur á þjóðernisöflunum f ný- lendum landsins í Afríku. Q Héldu ungir Iiðsforingjar mót- mælafund við strfðsskólann í Lissabon í dag, þar sem þeir lýstu stuðningi viðyfirmennina ogmál- stað þeirra. I gærkvöldi um- kringdu hersveitir úr þjóðvarðlið- inu skólann, en þá hylltu liðsfor- ingjarnir ákaft yfirmennina fyrr- verandi sem fram komu í fyrsta sinn opinberlega eftir brottrekst- Framhald á bls. 47 London, 16. marz.NTB. LÍKLEGT er, að ummæli þau sem Nixon forseti Bandarfkjanna lét falla f gær um samskipti Bandaríkjanna og Evrópu, verði aðalefni viðræðna utanrfkisráð herra Bretlands og V-Þýzkalands þegar þeir hittast í Bonn eftir helgina. Haft er eftir góðum heimildum f London, að hörku- tónninn í ummælum Nixons hafi komið nokkuð á óvart í búðum brezkra stjórnmálamanna, enda Herlið gegn Kúrdum Beirút, 16. marz, AP. ÞRJtJ frönsk herfvlki, sem njóta stuðnings skriðdreka, hafa tekið sér stöðu f olíuhéruðunum í norð- urhluta íraks og búa sig undir stórsókn gegn 20.000 manna skæruliðaher Kúrda undir for- ystu Mustafa Barzani, samkvæmt blaðafréttum í Lfbanon í dag. Herliðið hefur sótt inn i Sulaimaniya, mikilvægan bæ um 40 mflur frá landamærum írans til þess að koma i veg fyrir, að hann falli i hendur Barzanis. Yfirmaður írakska herliðsins er Taha Chakargi, sem hefur oft áð ur stjórnað herferðum gegn Kúrdum. Sulaimaniya hefur verið eitt helzta vígi Kúrda i flestum fyrri átökum þeirra við stjórnar- herinn. Samkvæmt öðrum fréttum hafa Kúrdar ráðizt á þorpið Chemchemal, 25 mílur austur af olfubænum Kirkuk, til þess að loka þjóðveginum milli Kirkuk og Sulaimaniya og umkringja írakska herliðið í Sulaimaniya. Uppreisnarmenn kveiktu í stjórnarbyggingunni og lögreglu- stöðinni og rændu þorpslæknin- um samkvæmt fréttunum. Barzani er sagður hafa fariðfrá aðalstöðvum sínum í Gallala og komið sér upp nýjum aðalstöðv- um í Hajj Omran, þar sem landa- mæri íraks, Tyrklands og Irans mætast. Útvarpið i Bagdad hefur ekkert sagt um bardagana siðan fréttir um þá bárust fyrir fjórum dögum. þótt öllum hafi verið ljóst, að talsverður og all-alvarlegur ágreiningur væri með Banda- ríkjunum og aðildarríkjum Efna- hagsbandalagsins, sérstaklega þó Frökkum. Búizt er við, að brezka stjórnin reyni að hafa milligöngu um það á næstunni, að bilið mílli þessara ríkja verði brúað og að James Callaghan utanríkisráðherra muni leggja skýrt afmarkaða stefnu brezku stjórnarinnar fyrir Henry Kissinger utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, þegar hann kemur til London á næstunni, sennilega eftir dvölina í Moskvu, en þangað fer hann 25. marz nk. Nú eru komnir til London tveir nánir aðstoðarmenn Kissingers, þeir Arthur Hertaman aðstoðar- utanríkisráðherra og Helmunt Sonnenfeldt ráðgjafi hans, og verða þeir þar til sunnudags. Sovétstjórnin fyrirskipar: Bókasöfn fjarlægi öll ritverk Solzhenitsyns Moskvu, 16. marz, NTB. SOVÉZK yfirvöld hafa gefið öllum bókasöfnum ( Sovétríkj- unum fyrirskipun um að fjar- lægja öll ritverk eftir Alexand- er Solzhenitsyn, sem gefin hafa verið út í Sovétríkjunum. Telja bókmenntamenn í Moskvu þetta jafngilda boði um hóka- brennu, því að þessi ráðstöfun vfirvalda gerir það að verkum, að sovézkir lesendur hafa engin tök á að ná í ritverk höfundar- ins með löglegum hætti og imnt verður að leggja hald á þau, hvar sem þau finnast. Verður almenningi þar með Ijóst, að hætta er í því fólgin að eiga bækur hans, en meðal þeirra er hið vinsæla rit „Dagur f lífi Ivans Denisoviehs". Það vekur Ifka athg.vli, að skipan yfirvalda nær til allra þeirra skrifa Solzhenitsyns, sem birt voru í tímaritinu „Novi Mir” á sfnum tfma, en fyrrverandi ritstjóri bess, sem nú er látinn, Alexander Tvar- dovsky hélt verndarhendi yfir Solzhenitsvn meðan honum var það fært, en hann féll sjálfur í ónáð áður en vfir lauk. Um nokkurt skeið hefur, að sögn NTB verið erfitt að fá bækur Solzheni tsyns í almennings- söfnum. Sjálfur kvartaði Solzh- enitsyn yfir þvf þegar árið 1967, að svo virtist sem sett hefði verið óopinbert útláns- bann á bókina „Dagur í lffi Ivans Denisoviehs".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.