Morgunblaðið - 17.03.1974, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974
Heldur brú yfir Hvalfjörð
Samtal við Friðrik Þorvaldsson hjá Akraborginni
Friðrik Þorvaldsson.
í NÆSTA mánuði er væntanlegt
ferjuskip til siglinga frá Reykja-
vík til Akraness og á að koma í
stað Akraborgarinnar gömlu, sem
verður seld. Skipið kemur frá
Noregi og er 8 ára gamalt, hefur
verið í ferðum frá Stanvangri. En
á leíðinni frá Reykjavík til fyrr-
nefndra staða hefur nú verið í
förum skip siðan 1932, þegar
stofnað var um það fyrirtæki og
Suðurlandið keypt. Síðan tók við
Laxfoss, sem tvivegis strandaði og
var gerður upp í milli, en lauk
sinni ævi 1952, en Akraborgin tók
við. Frá upphafi hefur Friðrik
Þorvaldsson starfað hjá fyrirtæk-
inu og séð um afgreíðslu þessara
skipa. Víð hittum hann nú að máli
niður við höfn og létum orð falla
um að hann virtist ekkert hrifinn
af þessari lausn og komu nýja
skipsins.
— Nei, það má til sanns vegar
færa, svaraði hann. — Ég tel
ferjuskipið óhentugt, en auðvitað
vona ég að það reynist vel. En það
kemur annað til. Ég vil láta leysa-
samgöngurnar á annan hátt —
með brú yfir Hvalfjörð.
— Af hverju?
— Skipið er seinlegra og
umfram allt miklu dýrara heldur
en að byggja brú. Og með brú á
Hvalfjörð má spara vegagerð inn
fyrir fjörðinn og viðhald á
honum. Sá vegur gæti orðið
ágætur sveitarvegur, þegar
þungaflutninarnir fara allir aðra
leið. En það munar fyrir umferð
norður og vestur að losna við
30—40 km leið inn fyrir fjarðar-
botninn, ef brú er komin yfir
Hvalfjörðinn, t.d. hjá Laufa-
grunni, skammt frá Kiðafelli. Þar
væri hægt að fylla upp að mínnsta
kosti fjórða hluta af leiðinni yfir
En breiddin er yfirleitt 2960 m á
firðinum.
— Þú ert lengi búinn að berjast
fyrir gerð brúar yfir Hvalfjörð, er
það ekki, Friðrik?
— Jú, ég hafi gerzt talsmaður
brúar yfir Hvalfjörð. Mér er
jafnan fast í huga afrekið við gerð
hinnar traustu og ódýru Hvítár-
brúar, sem vígð var 1928. Ég
fylgdist vel með brúarfram-
kvæmdinni þeirri og ég hefi árum
saman safnað öllu, sem ég hefi
getað náð í um brýr og brúarfram-
kvæmdir úti í heimi. Það hefur
styrkt mig 1 trúnni á að brúargerð
yfir Hvalfjörð sé hið rétta.
-----Þegar ég hóf fyrst áróður
um brú yfir Hvalfjörð, vissi ég
ekki að sú hugmynd var áður
kunn, m.a. hafði Guðmundur
Jónsson, skólastjóri á Hvanneyri,
fyrir löngu hreyft málinu, eins og
fram kemur í síðustu grein hans í
Mbl. 1. júní 1966, heldur Friðrik
áfram. Þar var tekið á málinu
með yfirveguðum og raunsærri
hætti en ég hafði gert. En jafnvel
það gat ekki rofið þá dauðaþögn,
sem valdhafar og fréttamenn létu
sér duga. Ég lá betur við höggi, en
ég hafði tekið dæmi um stór-
brotin verk, einkum til að sýna
hvernig framsýnir menn leysa
vandamál samfélagsins.
— Og þú ert alltaf að fylgjast
me’ð brúargerð úti í heimi. Hvað
er það nýjasta?
— Frá Juneau, höfuðborg
Alaska, berst nú sú frétt að um 20
ára gamall draumur um brú á
þjóðvegi, sem liggur þvert yfir
landið, sé nú að rætast. Þarna er
landslag mjög líkt og við Hval-
fjörð, firðirnir virðast hafa stælt
hver annan. A sínum tíma álpuð-
ust yfirvöld á staðnum til að
krækja með veginn fyrir fjörðinn
Knik Arm, í stað þess að brúa
hann, eins og sumir vildu. En nú
loksins sjá ráðamenn í Alaska
yfirsjón sína. Nú krefjast stjórn-
málamenn úr öllum héruðum
landsins þess, að brúin verði gerð
yfir fjörðinn. Auk annars sparn-
aðar styttir hún ferðatímann milli
Anchorage og Fairbanks um
klukkustund. Þessi sparnaður er
talinn þess virði að verja 200
milljónum dollara í brúna ásamt
uppfyllingum. Eru framkvæmdir
þegar hafnar og áætlað að þær
taki 3 ár.
— Hvað er helzt talið vera á
móti því að gera brú yfir Hval-
fjörð?
— Aðalmótbáran hefur verið
dýptin á firðinum og veðrin, þ.e.
rokin. En til að afsanna hvort
tveggja getum við tekið brúna
yfir Bosphorus i Tyrklandi. Bosp-
horus er hvergi grynnri en 30 m,
en Hvalfjörður er frá 3 upp í 27 m
djúpur með dýpri pyttum á stöku
stað, sem auðvitað þarf ekki að
fara ofan í með stöpla. Frá Bosp-
horusbrúnni hefur verið sagt í
fréttum. Þar var að verki slík
framsýni og stórhugur og þarna
voru unnin svo stór fjárhagsleg
— og verkfræðileg afrek, að
málið á erindi við okkur.
Aðstöðumunur er að vísu mikill,
en margt í reynslu
þeirra, sem að brúargerðinni
stóðu, getur orðið okkur að
gagni í sambandi við brúargerð
yfir Hvalfjörð. Við vorum að tala
um veðrin í Hvalfírði. En fs-
lenzkur skipstjóri hefur sagt mér,
að á Bosphorus sé meira hávaða-
rok en hann hafi fyrr eða síðar
kynnzt. Og tyrkneskur skipstjóri,
Temel Nail Karademir, sem í 20
ár hefur siglt um Bosphorus,
segir í viðtali við heimsþekkt
tímarit, að straumar geti náð 7
mflna hraða og ferjutafir i 3—4
klukkustundir séu tíðar, jafnvel
allt að þremur sólarhringum.
— Líklega er rétt að segja svo-
litið nánar frá þessari merku brú,
heldur Friðrik áfram skýringum
sínum. — í skýrslu til mín, sem
dagsett er 14. janúar sl., frá full-
trúa Aktiengesellchaft fiir Hoch-
und Tiefbauten i Essen segir, að
þrátt fyrir ytri aðstæður hafi i
fyrstu verði ráðgert að setja
stöpla í sundið, sem hvergi er
grynnra en 30 m, eins og fyrr er
sagt. Frá því var þó horfið,
einkum vegna mannhættu og
vinnutafa, en þarna sigla um hin
stærstu skip milli Miðjarðar- og
Svartahafs. Skrúfurastir og
snerting við vinnupalla gat einnig
leitt til málaferla, jafnvel í fjar-
lægum heimshlutum. Það varð
því að ráði að byggja 165 m háa
burðarstöpla á ströndinni báðum
megin og spenna 1074 langa brú á
milli þeirra. Brúin er tengd
brúarsporðum, sem Asíumegin er
255 m á lengd og Evrópumegin
231 m. Þannig að brúin er 1560 m
löng og 64 metra yfir meðalhaf-
fleti.
— Ekki verður séð, að fárviðrin
þarna hafi valdið truflunum. Sir
Ralph Freeman frá fyrirtæki því,
sem hannaði brúna, segir að frá-
gangurinn til varnar titringi
vegna veðurs, hafi reynzt vel.
Hann segir orðrétt á ensku: „. . .
such as tends to occuor in wind-
excited vertical oscillation of the
structure. Furthermore, should
such oscillation develop, subject-
ing the hanger ropes to fluctuat-
ing load, their natural hysteresis
or energy-absorbing property
would be brougt into play to
supply a valuable element of
structural damping“. Ég ætla að
biðja um að hafa þetta á ensku,
svo menn haldi ekki að ég hafi
misþýtt. Hann segir að þolið hafi
sannasti í febrúar 1973, þegar 130
km veðurhæð skall á brúnni, án
þess að hreyfingar yrði vart og þó
var brúargólfið ekki fullunnið né
endanlega tengt við stöplana. Og
Friðrik sýnir okkur bréfið til
sannindamerkis að rétt sé eftir
haft. Verkfræðingum hafi þarna
tekist að leysa tæknilega þetta
viðfangsefni, svo brúin titri ekki
þó veðrin skelli á henni.
— Bosphorusbrúin virðist nokk-
uð breið á mynd. Hvað hugsarðu
þér að brú yfir Hvalfjörð þyrfti að
vera breið?
— Hún þarf ekki að vera meira
en þrjár akreinar á breidd. I
Vancouver í Canada er til dæmis
Lions Gate hengibrúin með þrem-
ur akreinum og umferðinni
stjórnað með umferðarljósum,
þannig að græn ljós eru á tveimur
akreinum í einu og þær þá báðar
notaðar í þá áttina, en síðan skipt
um og tvær akreinar verða í hina
áttina, en ein akrein sem merkt er
rauðu er notuð í gagnstæða átt við
græna ljósið. Aftur á móti er
Bosphorusbrúin meira en lengdin
ein. Hún er 33,4 metrar á breidd.
Þar í talin reinaskil, leiðslur,
handrið o.fl. Til hvorrar handar
eru þrefaldar akreinar hvor fyrir
sig 10,5 m á breidd. Yzt eru
göngubrautir, 2,5 m breiðar eða
samtals 5 m. Af þessu má ráða,
hvílíkt stórvirki má gera, ef
stjórnvöld hafa skilning á því að
samgöngur eru lífæðar þjóðfé-
lagsins. Samgönguyfirvöld Tyrk-
lands áttu frumkvæðið að brúar-
gerðínni og eru eigendur hennar,
og þau höfðu gáningu á því að
kveða sér til ráðuneytis þraut-
reynda menn frá Englandi, ítalíu
og Þýzkalandi. Jafnframt tryggði
Europian Investment Bank lán
með góðum kjörum og naut til
þess atbeina áðurnefndra landa,
Frakklands og E.E.C. Verðið er
talið 34 millj. dollarar, en ekki
veit ég hvort sjálfvirka eftirlits-
kerfið er þar með.
— Svo var það í október sl. að
Bosphorusbrúin var fullgerð, hélt
Friðrik áfram. Að vísu af öðrum
toga spunnin en flotbrúin, sem
Darios I Persakonungur og
Xerxes, sonur hans, settu á svip-
uðum slóðum um 500 árum fyrir
Krists burð. Yfirvöld í Istambul
hafa gert að umtalsefni, hversú
umferðarmál borgarinnar Istam-
bul hafa breytzt til hins betra nú.
Jafnvel þótt ferjur yrðu ekki
veðurtepptar nema nokkra
klukkutíma, varð bílatraðakið ill-
viðráðanlegt. Það er nú úr sög-
unni. 22000 farartæki renna
tafarlaust yfir brúna daglega.
— Nú má kannski segja að þú
talir fyrir daufum eyrum, eins og
Cato gamli forðum, sem ávallt
sagði: Auk þess legg ég til að
Carþagó verði lögð í eyði. Þú
dregur ekki af þér að leggja til að
Hvalfjörður verði brúaður?
— Eg hefi verið spurður að því
hvort ekki sé leiðigjarnt að tala
um brú á Hvalfjörð, sem enginn
ljær eyra. Það er nú öðru nær. Og
allra síst nú. Sem kunnugt er, eru
Japanir miklir atorkumenn og
það er í frásögur fært, að þeir geri
230 m langa strengi eða vel 11
sinnum lengri en járnstubbarnir,
sem keyptir voru í hringveginn.
Ég hefi nú fengið upplýsingar um
þetta. Japanir nota mjög hraðn-
andi sement og sérstakt yfirstyrkt
járn og aðferðir þeirra til brúar-
gerðar eru byggðar á sérstökum
aðferðum Dyckerhoff og Wid-
manns í Vestur-Þýskalandi, sem
þeir hafa leyfi fyrir að nota. Nú
er sagt að Union Carbide ætli að
gera vegabætur norðan Hval-
fjarðar í sambandi við verk-
smiðju. Það væri góður greiði ef
þeir gerðu móttak brúarinnar
þeim megin. Auðvitað verður
aðalverkið við brúargerð að hvíla
á okkur sjálfum, til hagsbótar
fyrir alla, sem leggja leið sína til
nærliggjandi byggðarlaga eða
lengra. Brú yfir Hvalfjörð er
meira en ágizkunarmál. Hún er
hugsjón og hagfræðilegt atriði.
Og hún getur borgað sig á nokkr-
um árum.
— Samt mun mér fara sem Guð-
mundi skólastjóra og láta skrifum
linna, sagði Friðrik Þorvaldsson
að lokum. En að því mun koma, að
tregðulögmálið mun víkja. Það er
vont lögmál og mörgum áskapað.
Mér er vel i minni, hve þjóðin var
peningalaus, þegar Hvítárbrúin
var gerð og hve við vorum fáfróð-
ir á nútíma vísu. Enginn velti
vöngum yfir því hvort spjöll
myndu verða, ef sumarlangt væri
skvampað í ánni, þar af þrjá mán-
uði við stöpulinn í henni miðri.
Auðvitað varð ekkert tjón og
þarna hefur brúin staðið í nærri
hálfa öld og mun áfram standa
um langa framtíð, samtíð sinni til
lofs og dýrðar. Vizkan er auðvitað
aldrei ofþökkuð, en hefðum við
setið uppi með suma þætti hennar
1928, trúi ég að náttúruverndar-
mennirnir hefðu bannað allar til-
færslur á ánni, svo að Árni Páls-
son verkfræðingur og Sigurður
Björnsson brúarsmiður hefðu
orðið að setja dragferju yfir hana.
Hin fagra brú yfir Bosphorussund, sem tengir Evrópu og Asíu