Morgunblaðið - 17.03.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MARZ 1974
m
JJ HÍI.i LKU.A V
'aiaii;
22*0-22-
RAUOARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
7
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
tel. 14444 • 2SSS5
BlLALEIGA CAR RENTAL
(Hverfisgötu 18
SENDUM |f~| 86060
/^BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
«“24460
I' HVERJUM BÍL
PIO NEER
ÚTVARP OG STEREO
KASSETTUTÆKI
/ MEIRI VANDI
ERAÐGÆTA
§ SAMVINNUBANKINN
VORUBILAR
3ja ðxla bílar
árg: '72 Volvo FB 88
m/svefhúsi
árg: '72 Volvo FB 88
árg: '72 Volvo FB 86
árg: '67 Volvo FB 88
árg: '73 Scania 110 super
árg: '72 Scania 110 super
árg: '71 Scanía 11 0 super
árg: '65 Merc. Benz 1920.
Miðstöð vörubíla og vinnuvéla-
viðskiptanna.
“&ÐS/OÐ
SlMAR 81518 - 85162
SIGTÚNI 7 - REYKJAVIK
SIG. S. GUNNARSSON
LESIÐ
— illo
MjbuoiuíIibh,. _
SSranaiðl
bnnLEGR
Hve hátt er kirkjugjald þitt?
KIRKJAN er móðir íslenzkrar
menningar. Hvort sem okkur
lfkar það betur eða verr, þá ber
svo að segja allt í félagslífi
okkar og menntun, einkum
bókmenntum og andlegu lífi,
hennar mót, hennar svip.
Hugsunarháttur, málfar,
siðgæði og samvizka eru mótuð
af sögum og kenningum kristn-
innar trúar. Meira að segja
þeir, sem þó ætluðu sér að
rækja önnur trúarbrögð eða
helgisiði, verða áflestan hátt að
njóta þess, að við erum kristin
þjóð með stofnun, sem heitir
kirkja. Og þeirri stofnun lúta
allt af 98 af hundraði Islend-
inga.
Einu sinni var kirkjan
ríkasta stofnun þessarar
þjóðar. Hún átti jarðeignir,
reka, hlunnindi og ftök um
allar jarðir.
Þessu var hún að vissu leyti
rænd eða svipt yfirráðum með
stjórnmálalegu valdi. Þo munu
enn einmitt hér á landi skrifleg
skilríki og heimildir, sannanir
og skjöl um þessar eignir. En
þær féllu undir útlendan
konung á sínum tíma, síðan
undir íslenzka ríkið. Og mundi
því verða þungt undir fæti að
skila þessum eignum nú til síns
fyrri eiganda.
Segja má, að kirkjan fylgi ís-
lendingi hvert spor frá vöggu
til grafar, á stærstu stundum f
gleði og sorg, við skírn, ferm-
ingu, hjónavígslu, greftrun,
fyrir utan allt á hátíðum og
tyllidögum í bæn og sögn, brosi
og tárum.
Hvar væru skólar, sjúkrahús,
tryggingar, sjúkrasamlög og
hæli umkomulausra og alls-
lausra án hennar? Hvar væru
sigrar lækna og vísinda án
hennar? Berið saman aðstöðu
holdsveikra í kirkjulöndum og
flestum hinna kirkjulausu
landa.
Ríkið launar presta kirkj-
unnar og borgar þannig vexti af
eignum hennar óbeint.
En hvað er svo greitt til allrar
annarrar starfsemi hennar?
Prestastétt íslands er fámenn,
um eða innan við hundrað
manns, svo að sú upphæð er
sem fjöður á fæti annarra út-
gjalda ríkissjóðs, sem til þeirra
fer.
En svo eiga söfnuðir að byggja
sínar kirkjur og annast rekst-
ur þeirra að mestu án opin-
berrar greiðslu til stuðnings.
Þött ekki væri varið til kirkju-
bygginga nema nokkrum pró-
sentum þess, sem lagt er fram
til skólabygginga, þætti það
stórfé. Greiðslan til kirkjunnar
heitir kirkjugjald á skatt-
seðiinum. Og hefur til skamms
tima og er held ég ennþá 500
krónur á ári fyrir gjaldskylda
þegna. Þeir, sem ekki tilheyra
kirkju, greiða sömu upphæð til
Háskóla íslands.
Nú geta allir séð, hvað hægt
er að gera fyrir 500 krónur! Það
er hlægilega lítil upphæð,
þegar miðað er við skatta og
skyldur nútímans. Og samt er
þetta nýlega orðið svona hátt.
Fram að 1960 að minnsta kosti
var kirkjugjaldið 63 krónur, ef
ég man rétt. Þetta er fyrir
hálfum skósólum, sem ætlað er
móður íslenzkrar menningar að
lifa af. Erfiðast er þetta í mjög
fámennum söfnuðum i sveitum.
Fyrir þetta gjald verður að
halda kirkjum — samkomu-
húsum safnaða — við og
strangt tekið byggja þær, hita
þær upp, lýsa þær, kosta kirkju-
vörð, meðhjálpara og hringjara,
sem oft er ailt sami maður,
annast söng og organleikara og
borga þeim eins og sagt er ein-
hverja þóknun og svo að sjálf-
sögðu ýmislegt fleira.
Allir hljóta að sjá hversu
fáránlega lágt og satt að segja
skammarlega lítið þetta gjald
er, hvernig sem á er litið. Það
ætti að minnsta kosti að tvö-
faldast. Eg hafði nærri sagt
tífaldast, sem er engin fjar-
stæða. Margir hinna beztu
þegna landsins mundu fagna
því og varla af þvf vita. Margir
unna kirkju sinni heilshugar að
verðleikum, þótt fáir taki eftir
hve fáránleg þessi aðstaða er
orðin.
En samt er eitt eftir, mjög
íhugunarvert og hálfgerð eða
algjör hneisa.
Það kom í ljós með þeirri
breytingu, sem varð í sveitar-
stjórnarmálum, að þá urðu
þeir, sem annars voru kannski
ekki metnir skatts, öryrkjar,
örvitar, aumir og umkomu-
lausir, sæmdir þessum 500
króna sköttum til kirkjunnar.
Þar skyldi þessi aumasti
skattur allra skattgreiðslna
nútímans blakta og blómstra til
ama.
Það var ung og gáfuð vinkona
mín, sem vinnur við einhvers
konar tölur, sem vakti athygli
mína á þessu í öllu skattafarg-
aninu í janúar. Éfe trúi fyrst
hvorki eyrum né augum.
Þetta stríðir á móti anda og
eðli kirkjunnar. Hún er og
telur það sitt æðsta að vera
vernd og vinur hinna „bjargar-
lausu og snauðu". Hví ætti hún
svo að vera neydd til að elta
einmitt þá með „rukkun“ um
skitnar fimm hundruð krónur
fram á grafarbarminn í ríki,
þar sem annars flest er fyrir þá
gert fyrir hennar kraft
og orð? Nú skora ég á
biskup, kirkjumálaráðherra og
þó umfram allt löggjafa og töl-
fræðinga að kippa þessu í lag
hið allra bráðasta. Undanskilja
þá kirkjugjöldum, sem ekki eru
þess á annað borð umkomnir að
gegna öðrum greiðslum. Þetta
ætti að verða þessum vitringum
auðvelt með eins árs fyrirvara.
„Þá mætti brenna skattseðla-
hrúgunni, sem enginn greiðir
hvort sem er, en er aðeins
kirkjunni til vansa i öllu
hennar nútíma umkomuleysi,“
sagði unga konan.
„Við hin getum borgað og
viljum borga meira til kirkj-
unnar,“ bætti hún við af reisn
og fórnarlund.
„Við tökum ekki einu sinni
eftir því, hvort skattur hækkar
um þúsund krónur, erum vön
að axla byrðarnar."
Ég tek undir orð hennar. Og
göngum nú að verki. Hækkum
kirkjugjöldin, svo þau hæfi
sinu hlutverki og sinu heiti, og
Strikum þau út af öryrkjunum.
BRIDGEFÉLAG KVENNA:
Sveitarkeppni félagsins er nú
lokið. í meistaraflokki sigraði
sveit Hugborgar Hjartardóttur
með yfirburðum, fékk 150 stig.
Auk Herborgar eru i sveitinni
Halla Bergþórsdóttir, Kristjana
Steingrímsdóttir, Vigdis Guð-
jónsdóttir og Ósk Kristjánsdótt-
ir. Næstar urðu eftirtaldar
sveitir:
Guðrún Bergsdóttir 119
Elín Jónsdóttir 115
Alda Hansen 113
Ingunn Bernburg 88
í 1. flokki sigraði sveit
Sigrúnar Pétursdóttur með 102
stigum. Auk Sigrúnar eru i
sveitinni Arnína Guðlaugsdótt-
ir, Hanna Gabrielsson og Mar-
grét Sigurðardóttir, en næstar
urðu eftirtaldar sveitir:
Sigríður Siggeirsdóttir 99
Guðbjörg Þórðardóttir 98
Sólveig Kristjánsd. 77
Næsta keppni félagsins verð-
ur parakeppni, sem hefst
mánudaginn 18. marz, og stend-
ur hún yfir i 5 kvöld. Þátttaka
óskast tilkynnt sem fyrst til for-
manns félagsins, Margrétar Ás-
geirsdóttur, í sima 14218.
— o — o — o— o —
Þegar 10 umferðum er lokið i
Reykjavíkurmótinu (sveita-
keppninni) er staða efstu
sveita þessi:
Þíris Sigurðss. 164
Hjalta Elíass. 153
Hannesar Jónss. 146
Harðar Arnþórss. 126
Gylfa Baldurss. 124
Sigtryggs Sigurðss. 122
Guðmundar Péturss. 118
Tryggva Gislas. 85
Síðustu þrjár umferðirnar
verða spilaðar sunnudaginn 24.
marz nk. og hefst spilamennsk-
an kl. 13.
— o — o— o— o —
Undanúrslit fyrir íslands-
mótið í tvímenningi i Reykjavík
verða spiluð þriðjudaginn 23.
og miðvikudaginn 24. marz„ og
hefst spilamennskan klukkan
20 bæði kvöldin.
Tíu umferðum er nú lokið í
meistarakeppni Bridgefélags
Reykjavíkur og hefur sveit Þor-
is Sigurðssonar tekið forystuna.
Röð og stig efstu sveitanna er
nú þessi:
Þcris Sigurðss. 156
Guðmundar Péturss. 155
Gylfa Baldurss. 152
Hjalta Elíass. 152
Harðar Arnþórss. 144
BragaJónss. 113
Helga Jóhannss. 98
Sigurðar Sverriss. 93
Næsta umferð verður spiluð
miðvikudaginn 20. marz í
Domus Medica kl. 20 og eigast
þá við m.a. sveitir Þóris og Guð-
mundar.
Frá bridgedeild Breiðfirðinga-
félagsins.
Þegar 10 umferðum af 39 er
lokið í barometerkeppninni er
staða efstu para þessi:
Ingibjörg — Sigvaldi 333
Ölafur — Halldór 210
Guðrún—Guðrún 190
Jón Þ. — Gissur 164
Óskar — Gústaf 118
Gísli — Vilhjálmur 103
Gísli — Sigurður 100
Kristján — Ólafur 58
Fanney — Laufey 57
Guðjón — Þorvaldur 53
— o — o — o —
FráTafl- og bridgeklúbbnum.
Nú er lokið aðalsveitakeppni
félagsins með sigri sveitar Þór-
halls Þorsteinssonar — hlaut
sveitin 128 stig. Með Þórhalli
eru I sveitinni Kristján Jónas-
son, Sigtryggur Sigurðsson,
Anton Valgarðsson, Ölafur
Jóhannesson og Auðunn Guð-
mundsson.
Röð sveitanna f meistara-
flokki varð annars þessi:
Tryggva Gíslasonar
Bernharðs Guðmundss.
Þórarins Árnas.
Rafns Kristjánss.
Gests Jónss.
Sigriðar Ingibergsd.
Kristínar Þórðard.
Jóns Baldurss.
Guðlaugs Brynjólfss.
Urslit síðustu umferðarinnar
urðu þessi:
Sveit
Rafns vann Guðlaugs 19—1
Sigríðar vann Jóns B. 20—0
Tryggva vann Bernharðs 12:—8
Þórhalls vann Kristínar 20—0
Gests vann Þorarins 11—9
I fyrsta flokki sigraði sveit
Erlu Eyjólfsdóttur — hlaut 146
stig. í sveit Erlu eru ásamt
henni: Gunnar Þorkellsson,
Baldur Asgeirsson, Zophonias
Benediktsson og Jón Oddsson.
Röð sveitanna i 1. flokki varð
annars þessi:
Guðmundar Pálss. 140
Sigurjóns Tryggvas. 125
Kristínar Ólafsd. 121
Birgis ísleifss. 120
Þorsteins Erlingss. 94
Guðmundíu Pálsdóttur 60
Hannesar Ingibergss. 43
Gísla Tryggvas. 28
Guðmundar Guðmundss. 23
Á næsta keppnistímabili
spila fjórar efstu sveitirnar í
meistaraflokki og fjórar neðstu
sveitirnar í meistaraflokki fær-
ast niður í fyrsta flokk.
Orslit siðustu umferðarinnar
í 1. flokki urðu þessi:
Sveit:
Kristinar vann Þorsteins 15—5
Guðmundar P. vann Guðm.
122 G. 20—0
116 Gísla vann Hannesar 16—4
97 Sigurjóns vann
95 Guðmundíu 20—0
86 Erlu vann Birgis 20—0
84 Næsta keppni félagsins verð-
80 ur barometerkeppni 38 para og
53 er þegar fullskráð í keppnina
39 nema sérstök forföll verði.
* .....rvz . £j\j a
fimmtudaginn og er spilað i
Domus Medica.
— o — o — o —
Tvær siðustu umferðirnar í
Reykjanesmótinu verða spilað-
ar í Skiphóli i Hafnarfirði í dag
og hefst spilamennskan klukk-
an 13. Verðlaunaafhending
verður um kvöldið i Skiphóli,
en Höllinn verður opinn fyrir
spilara og aðra velunnara spila-
íþróttarinnar.
A.G.R.