Morgunblaðið - 23.03.1974, Qupperneq 1
36 SIÐUR
69. tbl. 61. árg.
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sovézkt rit um utanríkismál:
Hugarfarsbreyting hjá EBE
í landhelgismálinu
FRÉTTIR sem norska fréttastof- ráðstafana til að vernda fiskimið sem varð fyrir svörum sagði að
an NTB sendi frá Brussel á
fimmtudag, herma að stjórnar-
nefnd Efnahagsbandalags
Evrópu hafi fjallað um land-
helgismálin á breiðum grundvelli
og meðal annars gefið í skyn að
hún telji að strandríki eigi að
hafa rétt til að grfpa til einhliða
Nekrasov
rekinn frá
Moskvu
út að 200 mflna mörkum, talið frá
12 mílna landhelgi.
Morgunblaðið hafði samband
við NTB og spurðist nánar fyrir
um þessar fréttir. Vaktstjórinn
Moskvu, 22. marz NTB
SOVÉZKA lögreglan hefur rekið
frá Moskvu einn kunnasta rithöf-
und Sovétrfkjanna, Viktor
Nekrasov, sem á sfnum tíma
hlaut Stalínsverðlaunin fyrir bók-
ina „í skotgröfum Stalíngrad“.
Nekrasvo hringdi í dag frá
Kiev, höfuðborg Sovétlýðveldis-
ins Ukrainu, til vina sinna í
Moskvu og tjáði þeim, að óein-
kennisklæddir Iögreglumenn
hefðu komið til heimilis hans i
Moskvu og fyrirskipað honum og
konu hans að tygja sig til brott-
ferðar. Var sagt, að hann hefði
brotið gegn þeim ákvæðum, sem
dvalarleyfi hans í Moskvu væri
háð. Brotið mun hafa falizt i því,
að hann hefur tekið upp hanzk-
ann fyrir Alexander Solzhenitsyn
og Andrei Sakharov.
Nekrasov sagði, að lögreglu-
mennirnir hefðu beðið meðan þau
hjónin létu niður farangur sinn
og síðan fylgt þeim um borð í
flugvélina til Kiev. Þau gátu val-
ið, hvorl þau færu með flugvél
eða lest en urðu að borga fargjald-
ið sjálf. Nekrasov er rúmlega
séxtugur að aldrei. Hann var rek-
inn úr kommúnistaflokknum fyr-
ir nokkrum árum.
fréttin væri orðrétt höfð eftir
áreiðanlegum heimildarmönnum
í Brussel. Þeim skildist að breyt-
ing hefði orðið á skoðunum
ýmissa aðildarlanda EBE i land-
helgismálunum, en þau hafa
hingað til ekki viljað ljá máls á
efnahagslögsögu sem fæli í sér
yfirráð strandríkis yfir fiskimið-
um út að 200 mflum.
Morgunblaðið sneri sér einnig
til Más Elíssonar fiskimálastjóra
og spurði hann um þetta mál: ,,Ég
hef nú ekki fengið nema fjöl-
miðlafréttir af þessu, en ef þetta
er rétt skilið, er þetta stórfelld og
gleðileg hugarfarsbreyting,“
sagði fiskimálastjórinn.
— Hvernig er það þegar talað
er um efnahagslögsögu, er þá átt
við fiskinn i sjónum líka, eða bara
auðæfi sem finnast i landgrunn-
inu sjálfu?
— Við lítum að sjálfsögðu þann-
ig á málið, að þar fylgi fiskurinn
með og það gera flestar aðrar
þjóðirnar í „200 mílna klúbbn-
um“. Hins végar eru svo nokkuð
Framhald á bls. 20
Sir Alec hættir
London, 22. marz AP.
0 Sir Alec Douglas Home,
fyrrverandi utanrfkisráðherra
Bretlands, hefur tilkynnt, að
hann muni hætta afskiptum af
stjórnmálum fyrir næstu kosn-
ingar í Bretlandi, hvenær sem
þær verða. Kjörtímabilið er að
vfsu rétt hafið. en vegna hæp-
innar stöðu minnihlutastjórnar
Verkamannaflokksins geta
kosningar orðið í Bretlandi
hvenær sem er. Sir Alec er nú
sjötugur að aldri. Hann er af
skozkri aðalsætt og fórnaði
jarlsnafnbót til þess að taka við
embætti forsætisráðherra af
Harold Maemillan árið 1963.
Hafði hann áður verið utan-
ríkisráðherra f stjórn Maemill-
ans.
Sir Alec er annar kunnra for-
ystumanna íhaldsflokksins,
sem boðar brottför sína af
stjórnmálasviði Bretlands, en
nýlega tilkynnti Anthonv
Barber, fyrrum fjármálaráð-
herra, að hann yrði ekki i fram-
boði til næstu kosninga.
Geir Hallgrímsson um varnarmálin:
Kjósendur fái tækifæri til að veita stjóm-
arflokkunum ráðningu í kosningum
„sjalfstæðisflokkurinn
mun fylgja fast fram þeirri kröfu
og efndum á því loforði, að
varnarmálin verði tekin til með-
ferðar og ákvörðunar, áður en
Alþingi lýkur nú í vor í fullu
trausti þess, að meirihluti
alþingismanna komi í veg fyrir
þá fyrirætlun, sem birtist f
ábyrgðarlausum tillögum rfkis-
stjórnarinnar, ella munum við
skjóta máli okkar undir dóm kjós-
enda. Eftir tvo mánuði, í sveitar-
stjórnarkosningum, hafa kjós-
endur m.a. tækifæri til að veita
ríkisstjórnarflokkunum ráðningu
fyrir meðferð þeirra á öryggis-
málum landsins og i næstu
alþingiskosningum verða flokkar
og frambjóðendur krafðir sagna
um afstöðu þeirra til varnarmái-
anna, ekki sfzt eftir að meirihluti
kjósenda hefur skorað á Alþingi
og rfkisstjórn að leggja á hilluna
ótímabær áform inn uppsögn
varnarsamningsins og brottför
varnarliðsins.“
Þannig komst Ueir Hallgríms-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, að orði, er Morgunblaðið
spurði hann í gær, hver yrðu við-
brögð Sjálfstæðisflokksins við
þeim umræðugrundvelli, sem
samstaða hefur nú náðst um
innan ríkisstjórnarinnar. Geir
Hallgrímsson sagði ennfremur:
„Eins og fram kemur í bókun
okkar fulltrúa sjálfstæðismanna í
utanríkisnefnd hefur rfkisstjórn-
in sýnt af sér slíkt ábyrgðarleysi
um öryggismál íslands, að með
eindæmum er. Ástæðan er hrossa-
kaup innan rikisstjórnarinnar,
sem á þessu stigi hefur lokið með
uppgjöf Framsóknarflokksins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna fyrir kröfum Alþýðu-
bandalagsins. Þö er það ljóst, að
Alþýðubandalagið hefur fram-
lengt dvöl varnarliðsins, a.m.k.
um eitt ár umfram það, sem það
sjálft hefur talið stjórnarsáttmál-
ann segja til um og ennfremur
hefur það gengið inn á hérveru
bandarískra flugliða — að vísu
Sósíaldemókratar
fórnuðu hagsmunum
finnskra verkamanna
Moskvu, 22. marz NTB
TÍMARITIÐ sovézka „Novoje
Vremja", sem fjallar um utan-
rfkismál sakaði f dag sósíal-
demókrata í Finnlandi um að
hafa fórnað hagsmunum verka-
lýðsins í nýgerðum tollasamning-
um. Segir blaðið, að sósíal-
demokratar í Finnlandi vinni að
þvf að kljúfa verkalýðshreyfing-
una þar i landi.
„Það er athyglisvert," segir
Novoje Vremja, „að í Finnlandi
'Englendingurinn Ian Ball, sem
réðst á bifreið Önnu prinsessu
og Marks Philipps, kom fyrir
rétt í London á fimmtudag.
M.vndin var tekin, þegar lög-
reglumenn komu með hann til
dómshússins í Bow-stræti. Þar
var hann sakaður um morðtil-
ræði við lffvörð prinsessunnar
og tilraun til að ræna henni og
manni hennar.
er reynt að velta öllum vandamál-
um hins kapítalfska hagkerfis yf-
ir á verkamenn. Verkalýðshreyf-
ingin hafði nægilegan stvrk til að
neyða fyrirtækin til að fallast á
skilmála, sem voru verkamönnum
sýnu hagstæðari. Tillögur þær,
sem sósíaldemokratar í verkalýðs-
hreyfingunni settu fram, voru á
hinn bóginn ekki annað en tillög-
ur vinnuveitenda i aðeins breyttu
formi," segir f grein blaðsins.
Sömuleiðis dregur greinarhöf-
undur í efa vilja sósíaldemókrata
til samvinnu við aðra verka-
mannaflokka og gagnrýnir áætl-
anir stjórnarinnar, sem miða að
því að koma á jafnvægi í efna-
hagsmálunum. Segir i greininni,
að áætlunin hafi verið unnin af
sósfaldemókrötum í samvinnu við
fyrirtækin i landinu.