Morgunblaðið - 23.03.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974
Prentarasamningarnir
— Enn ber mikið á milli
ENN ber mikið á milli í kjara-
deilu Hins íslenzka prentara-
félags og prentsmiðjueigenda.
Siðasti samningafundur þessara
aðila með sáttasemjara var hald-
inn í fyrrakvöld. Hófst fundurinn
kl. 20 og stóð fram yfir miðnætti,
en lítið sem ekkert miðaði í sam-
komulagsátt.
Þórólfur Danielsson, formaður
Hins íslenzka prentarafélags,
sagði í samtali við Morgunblaðið í'
gær, að útlitið væri ekki beint
bjart, því enn bæri mikið á milli i
samningunum. Sagði hann að
helztu kröfur prentara, og sem
enn ætti eftir að ná samkomulagi
um, væru, 1. Krafa um orlofsupp-
bót, 2. krafa um að hætt verði að
telja laugardaga með í sumarfri-
um, 3. veruleg hækkun á kaupi
kvenna í prentsmiðjum, 4. að
samningstíminn renni út að
hausti til, 5. að hærra kaup verði
greitt fyrir laugardagsvinnu í
prentsmiðjum dagblaðanna en
verið hefur hingað til.
Um sjálfa launaprósentuna
sagði Þorólfur, að prentarar
hefðu reynt að gera sér grein
fyrir hvernig hin ýmsu iðnaðar-
félög hefðu samið, síðan stóru
samningarnir voru gerðir 26.
febrúar s.l. og að sjálfsögðu
myndu prentarar ekki sætta sig
við lakari prósentuhækkun en
félögin hefðu almennt náð.
Hið íslenzka prentarafélag
hefur boðað verkfall frá og með
n.k. miðvikudegi ef samningar
hafa ekki tekizt fyrirþann tíma.
Þegar við spurðum Harald
Sveinsson, framkvæmdastjóra
Árvakurs, um samningana sagði
hann, að Félag prentiðnaðarins
hefði gengið að kaupkröfum
H.Í.P. „Að öðru leyti vísa ég til
greinagerðar frá Félagi prent-
iðnaðarins, sem birt er f Morgun-
blaðinu í dag,“ sagði hann.
Loðnuvertíðin brátt búin ef
ekki gengur meira á miðin
LOÐNUVEIÐIN sfðasta sólar-
hring var ekki eins góð og verið
hefur sfðustu daga. Frá því um
miðnætti f fyrrinótt fram til kl.
18.00 höfðu 12 skip tilkynnt um
afla samtals 2500 lestir. Flest
fóru skipin til Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar, en nokkur fóru
einnig til Þorlákshafnar og
Grindavíkur.
„Það er farið að dofna yfir veið-
inni, og loðnuvertíðin stendur
varla lengi úr þessu, nema meira
magn gangi á miðin,“ sagði
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð-
ingur þegar við ræddum við hann
um borð í rannsóknarskipinu
Arna Friðríkssyni í gær, og hann
bætti við: „Því miður vitum við
ekki um neina stórgöngu á leið-
inni, en vitað er að lengi má fá
einhverja loðnu fyrir sunnan og
austan. Það sýndi sig bezt í fyrra.
Að sjálfsögðu vona ég að okkur
hafi skjátlast að þessu sinni og að
meiri loðna eigi eftir að ganga á
miðin, því ekki veitir af.“
Hjálmar sagði, að þeir á Árna
Friðrikssyni hefðu í gær leitað á
norðanverðum Breiðafirðinum að
Látrabjargi, en lítið fundið af
loðnu.
Eftirtalin 12 skip tilkynntu um
afla til Loðnunefndar frá því á
miðnætti í fyrrinótt fram til kl.
18.00 í gær: Sveinn Sveinbjörns-
son NK með 200 lestir, Grímsey-
ingur GK 90, Bergur VE 120,
Heimir SU 340, Magnús NK 220,
Örn KE 280, Faxi GK 200, Skírnir
AK 240, ísleifur VE 220, Hafrún
ÍS 180, Þórður Jónasson EA 140
og Svanur RE 340.
Hver er
lagi? —
LEIKRITIÐ Jón Arason eftir
Matthías Jochumsson verður
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu n.k.
miðvikudagskvöld.
Verkið um Jón Arason
biskup hefur aldrei verið sýnt á
leiksviði fyrr en þessi ein fjöl-
mennasta og viðamesta sýning
þjóðleikhússins er m.a. sett
upp f tilefni þjóðhátíðarársins.
Mjög langan tíma hefur tekið
að koma þessari sýningu uppM
en 70—80 leikarar og aukaleik-
arar taka þátt f sýningunni.
Rúrik Haraldsson leikur sjálf-
an Jón Arason biskup.
Leikstjóri við Jón Arason er
Gunnar Eyjólfsson og hefur
Jón biskup Arason
í Þjóðleikhúsinu
hann einnig búið leikinn til
flutnings fyrir leiksvið. Leik-
myndateiknari er Sigurjón
Jóhannsson, en Lárus Ingólfs-
son hefur teiknað búninga.
Tónlistin víð leikinn er samin
af Þorkatli Sigurbjörnssyni.
Matthías Jochumsson samdi
leikritið skömmu fyrir síðustu
aldamót einmitt um svipað leyti
og hann vinnur að hinum
kunnu þýðingum sinum á leik-
ritum Shakespeare. Leikurinn
var fyrst gefinn út á ísafirði
aldamótaárið og er það all tákn-
rænt að kostnaðarmaður við út-
gáfuna var Skúli Thoroddsen.
Matthías getur þess í formála
að þessari útgáfu að hann fylgi
í flestum atriðum sannsöguleg-
um heimildum og segist hann
styðjast við annála þeirra
Björns á Skarðsá, Jóns Egils-
sonar, Jóns Gizurarsonar og Ar-
bækur Espólíns. I þessu sam-
bandi er gaman að geta þess að
Jón Sigurðsson forseti getur
þess einhvers staðar í ritum sín-
um að Jón Arason megi með
sanni telja síðasta Islending-
inn. Enda var Jón Arason sá er
harðast snerist gegn yfirgangi
Dana hér á landi og jafnan litið
á hann sem þjóðhetju og um
leið píslarvott, þar eð hann lét
lífið fyrir trú sina.
Helstu hlutverkin i Jóni Ara-
syni eru leikin af eftirtöldum
leikurum: Rúrik Haraldsson
leikur titilhlutverkið, synir
hans, Ari, Björn og Sigurður
eru leiknir af: Hákoni Waage,
Gísla Alfreðssyni og Randver
Þorlákssyni. Guðbjörg Þor-
bjarnar leikur Helgu konu
Jóns, en Sunna Borg leikur
Þorunni dóttur þeirra hjóna.
Ævar Kvaran er Daði i Snógs-
dal, Séra Jón, ráðsmann í Skál-
holti leikur Baldvin Halldórs-
son, Erlingur Gíslason er
Kristján skrifari, Valur Gísia-
son er Jón á Svalbarði, en Jón
Aðils leikur Þorleif Grímsson á
Möðruvöllum. Sigmundur Örn
Amgrimsson er Marteinn
Einarsson, biskup í Skálholti og
margir fleiri fara með minni
hlutverk í leiknum.
Myndin: Jón biskup Arason
ræðir við syni sína áður en þeir
gengu allir til höggstokksins.
Frá vinstri: Rúrik Haraldsson i
hlutverki Jóns biskups, Gísli
Alfreðsson í hlutverki Björns
prests og Hákon Waage í hlut-
verki Ara lögmanns. Ljósmynd
Mbl. árni johnsen.
meðaltalshækkun á verð-
5% _ 7% _ 10% - eða?
Aukatónleikar
Sinfóníunnar
NÆSTU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða í Há-
skólabíói fimmtudaginn 28. marz.
Það eru aukatónieikar með ungu
fólki. Einleikarar með hljóm-
sveitinni verða Anna Aslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari (>g
Jón Heimir Sigurbjörnsson
flautuleikari. Stjórnandi verður
Páll P. Pálsson.
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til nokkurra forustumanna
stjórnmálaflokkanna og leitaði
eftir umsögnum þeirra um um-
ræðugrund völlinn í varnar-
málaviðræðunum við Banda-
ríkjastjórn, sem rfkisstjórnin
hefur nú samþykkt. Ekki tókst
að ná í Einar Agústsson utan-
ríkisráðherra né Hannibai
Valdimarsson, formann Sam-
taka frjálslyndra og vinstri-
manna, en hér fara á eftir svör
þeirra Gylfa Þ. Gfslasonar og
Bjarna Guðnasonar:
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, formað-
ur Alþýðuflokksins, sagði:
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá Verðlags-
stjóra og Kaupmannasamtök-
unum, þar sem fullyrt er, að verð-
lagshækkanir á mánudag n.k.
verði 5,5—7% (skv. útreikn-
ingum verðlagsstjóra) og 5—7%
(skv. tilkynningu Kaupmanna-
samtakanna). Eru þessar tilkynn-
ingar birtar hér á eftir.
Þess skal getið. að frétt
Morgunblaðsins var byggð á upp-
lýsingum frá starfsmanni Kaup
mannasamtakanna eins og fram
kemur í fréttinni. Vera má, að
meðaltalshækkun verðlags sé
ekki um 10%, heldur 7%, en við
„Við héldum fund í þing-
flokknum í gær strax að aflokn-
um fundinum í utanríkismála-
nefndinni. Ég hafði fengið leyfi
til þess að skýra þingflokknum
frá umræðugrundvellinum. Við
urðum sammála um, að ef gert
yrði samkomulag við Bandarfk-
in á þeim grundvelli, þá færi
því fjarri að öryggis íslendinga
sjálfra yrði gætt og ekki heldur
sameiginlegra öryggishags-
muna ísiendinga og nágranna-
þjóða þeírra. Við vorum á einu
máli um, að sjónarmið þau, sem
umræðugrundvöllurinn byggist
á, séu önnur en þau sjónarmið
sem þingsályktunartillaga okk-
nánari athugun kemur í Ijós, að
ómögulegt er á þessu stigi máls-
ins að fullyrða endanlega um
meðaltalsverðhækkunina, svo
margir sem álagningarflokkarnir
eru. 1 frétt Morgunblaðsins er
lögð áherzla á að hækkunin er
mjög mismunandi og rétt er, að
endanleg meðal talshækkun
iiggur ekki fyrir. Til að fá meðal-
talshækkunina yrði að kanna
hvern einasta álagningarflokk og
taka meðaltal af öllum niðurstöð-
unum. Þess má geta, að verðlags-
hækkunin kemst upp fyrir 10% í
sumum tilfellum og allt niður f
5% í öðrum.
ar um endurskoðun varnar-
samningsins miðast við.
En það er sérstaklega at-
hyglisvert við þennan umræðu-
grundvöll, að í honum er ekki
gert ráð fyrir því, að varnar-
samningnum verði sagt upp,
heldur að gert verði samkomu-
lag á grundvelli hans. Okkur,
og áreiðanlega fleirum, kemur
á óvart að Alþýðubandalagsráð-
herrarnir skuli hafa fallizt á
slíkt.
Við i þingflokki Alþýðu-
flokksins erum þeirrar skoðun-
ar, að því fari fjarri að sam-
komulag við Bandaríkin á þess-
Fréttatilkynningin frá verðlags-
stjóra er svohl jóðandi:
„Vegna áberandi fréttar í blaði
yðar í dag um „10% hækkun verð-
lags n.k. mánudag," bið ég yður
aðbirta eftirfarandi leiðréttingu:
Hækkun verzlunarálagningar
var heimiluð með tilkynningu
dagsettri 18. þ.m. Nam hækkun
álagningarinnar 7% í heildsölu
en 10% i smásölu. Telja má að
umrædd álagningarhækkun valdi
almennt 2 til 3% hækkun vöru-
verðs.
Hækkun söluskatts úr 13% í
17% veldur 3,54% hækkun sölu-
skattsskyldrar vöru og þjónustu.
um grundvelli eigi stuðning
meiri hluta íslenzku þjóðarinn-
ar.“
Dr. Bjarni Guðnason, formað-
ur Frjálslynda flokksins, sagði,
að þar eð hann ætti ekki sæti í
utanríkismálanefnd Alþingis,
þá hefði hann ekki séð um-
ræðugrundvöllinn, og því teldi
hann ekki ráðlegt að tjá sig um
hann né heldur þær fregnir
sem borizt hefðu um innihald
hans. „Mér skilst að þessi um-
ræðugrundvöllur sé stöðugt að
breytast,“ sagði Bjarni Guðna-
son, „og því get ég ekki tjáð mig
um hann fyrr en ég sé hvernig
þetta lítur út.“
Séu áhrif þessara breytinga á
álagningu og söluskatti vegin
saman, má telja að þau nemi al-
mennt 5,5 til 7% hækkun vöru-
verðs.“
Fréttatilkynningin frá Kaup-
mannasamtökum Islands er svo-
hljóðandi:
„Vegna þeirrar miklu hreyf-
ingar, sem nú er á verðlagsmálum
í landinu og með tilliti til hlutar
smásöluverzlunarinnar í álagn-
ingu og álagningarhækkun
þ.e.a.s. hækkun verðlagsákvæða
skv. ákvörðun verðlagsnefndar og
tilkynningu verðlagsstjóra frá 18.
þessa mánaðar, vilja Kaupmanna-
samtök Islands, taka fram eftir-
farandi:
„Þann 18. marz sl. gaf verðlags-
stjóri út tilkynningu um verðlags-
ákvæði. Þessi tilkynning verðlags-
stjóra var breyting á tilkynningu
um sama efni frá 21. desember
1972. Breytingin á verðlags-
ákvæðunum var þannig, að álagn-
ingarprósentan hækkaði um 10%,
þannig að álagning, sem var 10%
verður 11%, 20% verður 22%,
30% verða 33% o.s. frv. Þessi
hækkun hefur f för með sér
2—3% hækkun á útsöluverði
vara. Frá og með mánudeginum
25. marz nk. hækkar söluskattur
úr 13% í 17%. Söluskattshækkun-
in hefur í för með sér 3,54%
hækkun á útsöluverði vara. Það
skal tekið fram, að söluskattur-
inn kemur einnig ofan á álagn-
ingarhækkunina þannig að
hækkunin á útsöluverði verður
því meiri eða frá 5—7% á allar
þær vörur, sem falla undir til-
kynningu verðlagsstjóra. Verð á
öðrum vörutegundum er
ákvarðað sérstaklega, annað
hvort af verðlagsnefnd (9 manna
nefnd) og verðlagsnefnd land-
búnaðarafurða (6 manna nefnd).
Framhald ábls. 20
Gylfi Þ. Gíslason:
Hafa Ab-ráðherrarnir fallið
frá skilyrðum um uppsögn?