Morgunblaðið - 23.03.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974
Fa
J T Ití l. t l.l li. A V
'AIÆR"
® 22-0*22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIfí
, tel. 14444*25555
V/M//M
BÍLALEIGA car rental
(Hverfisgötu 18
SENDUM 86060
/pt BÍLALEIGAN
'íSIEYSIR
CAR RENTAL
24460
í HVERJUM BÍL
PIONŒŒR
ÚTVARPOG STEREO
KASSETTUTÆKI
ISl
SKODA EYÐIR MINNA.
Shodh
uieait
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
FERÐABILAR HF.
Bílaleiga — Sími 81260
Fimm manna Citroen G.S.
station. Fimm manna Citroen
G.S. 8 — 22 manna Mercedes
Benz hópferðabílar (m. bílstjór-
um).
BókhaldsaðstoÖ
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
VARIÐ LAND
Undirskriftalistum Varins
lands var komið til forsætisráS-
herra og forseta sameinaðs
alþingis í fyrradag. Þar meö
fengu þingmenn og ríkisstjórn-
in skilaboö frá yfir 55000
manns, sem tjáðu sig um þaö
með ótvíræðum hætti, að öryggi
landsins á að vera tryggt.
Engan mann óraði fyrir, að
slíkur fjöldi manns myndi
skrifa undir listana á svo
skömmum tíma og um það leyti
árs, þegar samgöngur eru erfið-
ar í landinu. Þjóðviljinn hefur
haldið því stíft fram, að beitt
hafi verið yfirvalds-og atvinnu-
rekendakúgun til þess að fá
fólk til að skrifa undir Iistana.
Auðvitað er siík fyllyrðing út í
hött og fáránlegt, þegar verið
er að bera þessar undirskriftir
saman við opinberar kosningar
á þrengingartímum þjóðar-
innar, þegar allur fjöldinn átti
alltsitt undirörfáum gerræðis-
fullum einstaklingum. Ef „yfir-
mannakúgunarkenning" Þjóð-
viljans er rótt, þá er augljóst,
að sá ágæti maður Jónas
Kristjánsson hefur pínt starfs-
menn Árnastofnunnar til að
skrifa undir 39 manna plaggið
og Guðmundur Arnlaugsson
rektor neytt kennara sína til að
skrifa undir sams konar plagg,
sem kom fram undir nafni
Hamrahlíðarskólans. En allir
skynsamir menn vita, að ekkert
slikt hefur gerzt.
Eina tilraunin, sem gerð
hefur verið til að kúga fólk í
sambandi við þessa undir-
skriftasöfnun, er komin úr
st jórnarherbúðunum. Þjóð-
viljinn lét landráðastimpilinn
dynja á mönnum dag eftir dag,
kallaði þá, sem undirskrifuðu,
landnfðinga og landsölumenn
og svo frv. Og Eysteinn Jóns-
synitókstmeð he+kjum að pína
fram samþykki í framkvæmda-
stjórn Framsóknar um að skora
á fólk að skrifa ekki undir lista
Varins lands, því að slíkt
„myndi veikja samningaað-
stöðu okkar.“ 1 Ijósi þessara
tilrauna til að fæla fólk frá
söfnuninni er hinn glæsilegi
árangur enn merkilegri. Auð-
vitað er Ijóst, að ekki náðist til
nærri allra, sem undir vildu
skrifa, og margir, sem
fylgjandi eru áframhaldandi
tryggum vörnum landsins,
skrifuðu ekki undir af ýmsum
ástæðum. Sumir almennt á
móti undirskriftum, sumum
fannst yfirskrift skjalanna
ekki nógu harðorð og ákveðin
o.s.frv. Og ekki má gleyma því,
að flokkshollir framsóknar-
menn, sem einlæglega eru
f.vlgjandi þeim málstað, sem
Varið land barðist fyrir,
veigruðu sér við að ganga á
móti óskum framkvæmda-
stjórnarinnar f málinu, en auð-
vitað myndi öðru máli gegna
um þá í almennum kosningum.
Undirskriftasöfnunin er þvf
stórkostlega glæsileg og full-
víst er, að miklu meiri fjöldi er
fyigjandi þvf, að landið verði
áfram varið og ekki verði
glannalega að verki staðið við
endurskoðun varnarsamnings-
ins, eins og nú virðist eiga að
gera til þess að friðmælast við
kommúnista.
Urslitin í stúdenta-
kosningunum
Úrslitin f stúdentakosningun-
um hafa vakið mikla athygli.
Með kosningunum breyttu
Vökumenn stöðu sinni svo, að
þeir eiga nú 12 menn af 28 í
Stúdentaráði, en áttu 9 af 28
áður. I samtali við Mbl. í gær
hafði Kjartan Gunnarsson, 1.
maður á lista Vöku, þetta að
segja um kosningarnar:
„Persónulega er ég ekki
ánægður með úrslitin, vegna
þess, að ég tel að frammistaða
þessa stúdentaráðsmeirihluta
hafi á s.l. tveimur árum verið
með þeim hætti, að ekki hafi
verið ástæða fyrir stúdenta til
að treysta forsjá þeirra áfram í
baráttu fyrir hagsmunamálum
stúdenta og Háskólans. Skýring
mfn á þessu er sú, að forystu-
menn vinstri aflanna í skólan-
um sáu fram á það, að þeim er
ekki lengur stætt á að bjóða
fram undir nafni Verðandi. Þvf
komu þeir fram með bræðings-
lista þar sem f efstu sætunum
eru bæði mjög róttækir vinstri
menn og hægfara framsóknar-
menn. Það er þó langt frá því,
að mikil samstaða og einnig sé í
þessu liði. Má þar nefna, að
útstrikanir á lista vinstri
manna höfðu því nær breytt
röð. 1. 4. og 7. manns um eitt
sæti niður á við.“
Messur á morgun
Dómkirkjan
Messa kl. 11.00. Séra Þórir Step-
hensen Föstumessa kl. 2.00. Lit-
anian sungin. Passiusálmar. Séra
Óskar J. Þorláksson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.30. i Vesturbæjar-
skólanum v/Ölsugötu. Pétur Þór-
arinsson stud. theol. talar við börn-
in. Séra Óskar J. Þorláksson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2.00. Dagur eldra fólks-
ins Lftir messu býður kvenfélagið
þvi til skemmtunar og kaffidrykkju i
Laúgarnesskólanum Barnáguðs-
þjónusta kl. 10.30. Séra Garðar
Svavarsson.
Fríkirkjan Reykjavik
Barnasamkoma kl. 10.30 Guðni
Gunnarsson. Messa kl. 2.00. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Dómkirkja Krists konungs
1 Landakoti
Lágmessa kl. 8.30 f.h. Hámessa kl.
10.30 f .h. Lágmessa kl. 2.00 e.h.
Ásprestakall
Kirkjudagur: Messa i Neskirkju kl.
2.00. Kristinn Hallsson syngur.
Kaffisala Kvenfélags Ásprestakalls
að Hótel Sögu, Súlnasal, kl. 3.00.
Séra Grimur Grimsson.
Neskirkja
Barnaguðsþjónuta kl. 10.30. Séra
Jóhann S. Hliðar. Guðsþjónusta kl.
2 00 Séra Grímur Grimsson
Langholtsprestakall
Barnasamkoma kl 10.30. Séra
Árelius Nielsson Guðsþjónusta kl
2.00. Ræðuefni: „Að eiga ekkert
nema guðsblessun í pottinn." Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson. Óska-
stundin kl. 4.00 Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson.
Hallgrimskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 10.00. Guð-
fræðistúdentar. Messa kl. 11.00.
Ræðuefni: Matur og mannlif. Dr.
Jakob Jónsson.
Grénsásprestakall
Barnasamkoma kl. 10.30 Guðs-
þjónusta kl. 2.00. Altarisganga.
Séra Halldórs S Gröndal.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 2.00. Aðalsafnaðar-
fundur eftir messu. Séra Ólafur
Skúlason.
Háteigskirkja
Lesmessa kl. 9.30. Barnasamkoma
kl. 1 0.30. Séra Arngrimur Jónsson
Messa kl. 2 00. Séra Jón Þorvarðs-
son.
Kársnesprestakall
Barnasamkoma í Kársnesskóla kl.
11.00. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl . 1 1.00. Séra Árni Pálsson.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í Víghólaskóla kl.
11.00. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 2.00. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
Fríkirkjan Hafnarfirði
Guðsþjónusta kl. 2.00. Ferming.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Garðakirkja
Barnasamkoma i skólasalnum kl
1 1 00. Messa kl. 2.00. Aðalsafnað-
arfundur að Garðakoti að messu
lokinni. Bragi Friðriksson
Hvalsneskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 1 1.00. Séra
Guðmundur Guðmundsson.
Útskálakirkja
Messa kl. 2.00 Séra Guðmundur
G uðmundsson.
Sunnudagaskóli
kristniboðsfélaganna
er i Álftamýrarskóla kl. 10.30. Öll
börn eru velkomin.
Fíladelfía Reykjavik
Safnaðarguðsþjónusta kl. 14 00.
Almenn guðsþjónusta kl 20.00.
Finar Gíslason.
Kirkja óháða
safnaðarins
Messa kl. 1 1 árdegis (athugið
óeðlilegan messutima) Séra Emil
Björnsson
spurt ogsvarað
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
□ KLIPPT tJR
KVIKMYND?
Kristján Zóphanfasson spyr
forstjóra Austurbæjarbiós:
Bíógestir í Austurbæjarbíói
hafa rætt um þann möguleika,
að kvikmyndin fræga, Clock-
work Orange, hafi verið klippt.
Sé svo, langar mig að spyrja
hver það sé, sem gefur fyrir-
mæli um slíkt og hvers vegna.
Arni Kristjánsson, forstjóri
AuSturbæjarbíós, svarar:
Ekkert var klippt úr mynd-
inni hér á landi og mér þykir
ótrúlegt, að það hafi verið gert
erlendis áður en hún kom
hingað, því að þegar eintakið
kom hingað var það mælt upp í
textagerðinni og þá reyndist
ekki vanta neitt á lengdina frá
því sem gefið var upp.
Q Vegvísar viö
Þrengslaveg
í Svínahrauni
Heiðar Reykdalsson, Rauða-
læk 12, Reykjavík, spyr:
Hvernig stendur á því, að
vegvísar á Suðurlandsveginum,
þar sem leiðir skiptast til
Hveragerðis og Þorlákshafnar,
gefa rangar upplýsingar. T.d.
þegar ekið er austur til Þorláks-
hafnar, er merkt beygja til
hægri, en til Hveragerðis beint
áfram. Þarna er enginn vegur
til hægri en beygt er til vinstri
þegar fara á til Hveragerðis, en
ekið beint áfram til Þorláks-
hafnar. Sama er að segja um
hina tvo vegvísana. Þegar ekið
er að austan frá Hveragerði og
Þorlákshöfn til Reykjavíkur,
gefa þeir einnig alrangar vís-
bendingar.
Arnkell Einarsson, vegaeftir-
litsmaður hjá Vegagerð ríkis-
ins, svarar:
Þegar gengið var frá gatna-
mótum Suðurlandsvegar og
Þrengslavegar í Svínahrauni
upphaflega, var þverbeygt til
hægri út á Þrengslaveginn, þeg-
ar ekið var áleiðis til Þorláks
hafnar. Þegar varanlegt slitlag
var lagt á veginn, var ekki reikn
að með því, að Þrengslavegur
tengdist beinni tengingu við
Suðurlandsveginn, eins og nú
er, og má raunar búast við því,
að breyting verði gerð á vega-
mótunum á ný, þannig að aftur
verði beygt til hægri út á
Þrengslaveginn. Hins vegar
þykir beygjan á Suðurlandsveg-
inum sjálfum ekki það kröpp,
að ástæða sé til að láta Hvera-
gerðisörina á skiltinu vísa til
vinstri.
BRIDGEFÉLAG KVENNA:
Parakeppni félagsins stendur
nú yfir, og taka 40 pör þátt i
henni. Eftir 1. umferð eru eftir-
talin pör efst:
Halla Bergþórsd.
— Jón Arason 144
Aðalheiður Magnúsd.
— Brandur Brynjólfss. 140
Ingibjörg Halldórsd.
— Sigvaldi Þorsteinss. 134
Ólafía Jónsdóttir
— Örn Arnþórss. 134
Rósa ivars
— Agnar Ivars 128
Sigriður Pálsdóttir
— Jóhann Jóhannss. 128
Margrét Ásgeirsd.
— Vilhjálmur Aðalsteinss. 127
Gunnþórunn Erlingsd.
— Þorarinn Sigþórss. 127
Sigrún Pétursdóttir
— Magnús Sigurjónss. 126
Esther Jakobsdóttir
— Þorfinnur Karlsson 125
Meðalskor: 108 atig.
— O — O — 0 — 0 — o —
Ellefu umferðum er nú lokið
í meistarakeppni Bridgefélags
Reykjavíkur og hefur sveit
Guðmundar Péturssonar tekið
forystuna með því að vinna
sveit Þo'ris Sigurðssonar í síð-
ustu umferð.
Röð og stig efstu sveitanna er
nú þessi:
Sveit
Guðmundar Péturss. 173
Hjalta Elíassonar 166
Harðar Arnþórss. 164
Gylfa Baldurss. .* 160
Þóris Sigurðss. 158
Braga Jónssonar 133
Helga Jóhannss. 104
Sigurðar Sverriss. 93
Næsta umferð verður spiluð
miðvikudaginn 3. april í Domus
Medica og spila þá saman m.a.
sveitir Braga og Guðmundar.
— o — o — o — o —
Firmakeppni Bridgefélags
Selfoss er nýlokið og urðu úr-
slit þessi:
1. Verzl. Magnúsar Magnúss.
h/f.
(Sigurður Sighvatss.) 113
2. Mjólkurbú Flóamanna
(Krístmann Guðmundss. 113
3. Fossnesti
(Vilhjálmur Þ. Pálss.) 109
4. Málun s/f.
(Kristján Jónsson) 108
5. Verzlunin Lindin
(Vilhjálmur Þ. Pálss.) 10)
6. Skúli Agústsson h/f.
(Vilhjálmur Þ. Pálss.) lOf
7. Jón Péturss. verkst.
(Már Ingólfss.) 104
8—9. Hótel Selfoss
(Höskuldur Sigurgeirss.) 102
8—9. Radíó og Sjónvarpss. s/f.
(Kristján Jónsson ) 102
10—11. Sérleyfisbílar Selfoss
(Oddur Einarsson) 101
10—11. Hagtrygging h/f.
(Halldór Magnúss.) 101
12. Prentsm. Suðurlands
(Sigurður Sighvatss.) 99
13. Brunabótafélag íslands 98
14. Trésm. Þorsteins og Árna
h/f. 98
Bridgefélagið þakkar öllum
fyrirtækjum fyrir veittan
stuðning. Alls tóku 48 fyrirtæki
þátt í keppninni.
A. G. R.