Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 12

Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 Herranótt MR: 60 NEMENDUR Menntaskól- ans í Reykjavfk leika í Herra- nótt MR, sem að þessu sinni er söngieikurinn Lísa í Undra- landi eftir hinni kunnu sam- nefndu sögu rithöfundarins Klaus Hagerup. Söngleikurinn fjallar þó ekki um hinn sak- lausa ævintýraheim barnabók- arinnar, verkið er nútímafært og undraland nútfmans er sótt heim með öllum sfnum auglýs- ingum, spennu og hraða, en persónur undralandsins halda sér samt sem áður, hattarinn, kötturinn, kanínan, hérinn, skjaldbakan, drottningin, Lísa o.fl. Herranótt Menntaskólans f Reykjavík hefur sýnt söngleik- inn Lfsu í Undralandi þrisvar sinnum í þessari viku við mjög góðar undirtektir. — betri en Herranótt hefur fengið f lang- an tíma að sögn aðstandenda. Gífurleg vinna hefur verið lögð í uppfærslu þessa verks, æfing- ar hafa verið í gangi dag og nótt í rúma 2 mánuði. Pétur Einars- son er leikstjóri og sá hann einnig um hönnun leiktjalda. Hann á hvað stærstan þátt f hversu vel hefir tekizt, og má segja, að hann hafi fengið það mesta út úr því fólki, sem starf- aði við Herranótt, sem mögu- legt var. Menntskælingar hafa tekið tæknina í sfna þjónustu við gerð leiktjalda. Hafa þau vakið mikla athygli og lof flestra. Tónlistin, sem leikin er við hin ýmsu ljóð, sem sungin eru f leikritinu, hefur einnig vakið verðskuldaða athygli. Jóhann G. Jóhannsson, sem er nemandi í MR, útsetti lögin og æfði söng og jeik af mikilli nákvæmni. Fjórar skuggamynda- sýningarvélar varpa stanzlaust myndum á þrjá stóra sýninga- fleti, sem gerðir eru úr tuttugu og þremur pappastrimlum, er hengdir eru upp f loftið, og mynda bakgrunn leiksviðsins. Inn i leikritið fléttast lit- myndasýning, er sýnir þær breytingar, er verða á Lísu meðan hún dvelst í undralandi. Tónlistin er tekin upp í upp- tökusal Péturs Steingrfmsson- ar, sem er í Hallgrímskirkju- turni. Þar voru einnig tekin upp ýmis hljóð, ræður drottningar, söngur o.fl., sem notað er i leikritinu. Leikarahópur Herranætur. Góðan daginn, gott fólk! Lísa í Undra- landi nútímans Dansar eru samdir og æfðir af Björgu Jónsdóttur dansara við Þjóðleikhúsið og nemanda í Menntaskólanum. Þau Jóhann unnu sfðan saman að upp- færslu söngsins og dansanna, en 8 músatelpur fara með alað- danshlutverkin, auk þess sem þær syngja töluvert. Leikmuni hefur Þóra Björk Jónsdóttir gert, en búningar eru að hluta fengnir á láni frá FIOL leikhúsinu danska, en aðrir hlutir eru gerðir af nem- endum. Eins og áður var sagt koma myndvörpur mikið við sögu, og annast Gunnar Steinn Pálsson stjórn þeirra, auk þess sem hann tók myndirnar. Teikningar eru gerðar af Guð- mundi Gíslasyni, þýðingu annaðist Sigurður Snævarr. Þær sýningar, sem þegar hafa verið ákveðnar eru þessar: Föstudagskvöld 22. marz kiukkan 20.30, laugardagskvöld 23. marz klukkan 23.45, mánudagskvöld 25. marz klukkan 20.30. Allar sýningarnar eru í Austurbæjarbíói og verða þær fleiri ef aðsókn gefur tilefni til. Miðasala er f Austurbæjarbfói alla daga. — á.j. Greinargerð frá Félagi íslenzka prentiðnaðarins Vegna villandi frásagna af samningaviðræðum sveinafélaga prentiðnaðarins og vinnuveitenda þeirra, vill Félag íslenzka prent- iðnaðarins taka fram eftirfar- andi: I fréttum hefur komið fram, að tilboð atvinnurekenda hafi verið hafnað af viðkomandi félögum. Það rétta er hins vegar, áð sam- komulag, undirritað af formanni samninganefndar Hins íslenzka prentarafélags og formanni Fé- lags íslenzka prentiðnaðarins, var lagt fyrir fundi félaganna. Var samkomulagíð fellt í báðum félög- unum. Með fyrrgreindu samkomulagi var fallizt svo til að fullu á launa- kröfur prentara. Miðað við febrú- arkaup var algengasta hækkunin um 31%, en að meðtalinni vísi- töluuppbót 1. marz 39,1%. Var hækkunin hvergi minni. Hjá sveini á 1. ári nam hækkunin 42,55%. Hækkar kaup prentnema einnig um þá prósentu, en auk þess fengu þeir sérstaka hækkun á aukavinnukaupi. Allt kaup í prentsmiðjum hækka auk þess um 3%,!4 1974 og aftur um 3% 1/6 1975. Ef taxtinn er kauptaxti vélsetj- ara við dagblöð, verður dagkaup þeirra kr. 14.519.— á viku, eða kr. 363,— á timann í dagvinnu miðað við 40 klst. vinnu. Hver auka- vinnutimi greiðist með kr. 726, —, auk orlofsfjár. (Öll vinna umfram dagvinnu hjá prenturum er greidd með 100% álagi i stað 40% og 80% hjá öðrum iðnaðarmönn- um). Dagvinnukaup samkvæmt fyrrgreindum taxta hækkar því um kr. 17.692, — á mánuði. í þessu sambandi skal bent á, að í prentiðnaðinum er vitað um veru legar yfirgreiðslur á samnings- kaup, eins og reyndar í öðrum atvinnugreinum. Er umræddur kauptaxti því e.t.v. ekki óeðlileg viðmiðun sem almennur kaup- taxti í prentiðnaði í dag. Þegar litið er á það, að prentar- ar náðu fram launakröfum sín- um, telst það eðlileg ályktun, að þeir hafi hafnað sínum eigin launakröfum. Eru slík vinnu- brögð all nýstárleg aðferð í kjara- baráttu launþega. Samkvæmt fyrrgreindu sam- komulagi var líf- og örorkutrygg- ing aukin verulega og fæðingar- styrkur aukinn úr tvéim vikum í þrjár vikur. Þá var einnig samið um, að tillög til lífeyrissjóðs, sjúkrasjóðs og orlofsheimilissjóðs væru aukin sérstaklega með því að reikna þau af útborguðu kaupi i stað samningsbundins kaups áð- ur. Einnig voru gerðar lagfæring- ar á ýmsum atríðum samning- anna, t.d. varðandi útborgun launa, heilbrigðisreglur, inn- heimtu félagsgjalda nema og vaktavinnu. Gert er ráð fyrir auknum launa- greiðslum i veikindatilfellum gegn því að niður félli ákvæði um greiðslur veikindadaga tíl full- frískra manna. Voru samninga- nefndirnar sammála um nauðsyn þess, að breytt yrði fyrri samn- ingsákvæðum þar sem segir, að allir prentarar skuli fá greidda 14 veikindadaga ári, hvort sem þeir veikjast eða ekki. Samningstíminn skyldi sam- kvæmt samkomulaginu vera til 1. apríl 1976, eins og hjá flestum öðrum launþegafélögum. Verður að telja það eðlilegast, að hinir ýmsu starfshópar innan sama fyr- irtækis hafi sama samningstíma, en að fyrirtækin eigi ekki yfir höfði sér vinnustöðvun allan árs- ins hring. Má benda á sem dæmi, að þau fjögur félög, sem eiga starfandi félagsmenn hjá dag- blöðunum, gætu verið með sinn hvern samningstímann, sem þýddi stöðvun allra starfs- manna, ef eitt félag gerði verk- fall. Orlofsfé af aukavinnu þeirra starfsmanna, sem unnið hafa 12 ár í iðninni að meðtöldum iðn- námsárum skyldi aukiðúr8 1/3% í 9 1/3%. Þessir starfsmenn fá nú 27 orlofsdaga á ári, sem mun vera það lengsta, sem þekkist í hlið- stæðum iðngreinum. Samkvæmt frásögnum fjöl- miðla munu þau atriði, sem aðal- lega ber á milli i samningaviðræð- um prentara og prentsmiðjueig- enda, vera aukið orlof og svo- nefnd orlofsuppbót. Prentarar gera kröfu um að fá greidd 6% ofan á laun síðasta árs sem ferðapeninga, þegar farið er f orlof. Grafiska sveinafélagið fer aftur á móti fram á, að sveinar geti framvísað farseðlum og hótelreikningum til endur- greiðslu hjá prentsmiðjunum. Þessum kröfum hefur Félag ís- lenzka prentiðnaðarins algjörlega hafnað. Orlofsuppbót opinberra starfsmanna, sem bent hefur ver- ið á til stuðnings kröfum þessum, telur FÍP ekki sambærilega; enda er orlofsuppbót rikisstarfsmanna greiðsla 1 stað orlofsfjár af auka- vinnu, en ekki sem viðauki við það. Kröfuna um talningu laugar- daga í orlofi telja prentsmiðjueig- endur endanlega afgreidda með samþykkt orlofslaga nr. 87/1971. Öllum öðrum kröfum um stytt- ingu vinnuvikunnar hefur verið hafnað. Raunverulegur (effektiv- ur) dagvinnutimi i prentiðnaðin- um er i dag kominn niður í rúm- Iega 30 klst. á viku, þannig að fjórði til fimmti hver greiddur klukkutimi í dagvinnu er greidd- ur sem frítími. Telja prentsmiðju- eigendur ekki tímabært að stytta dagvinnutímann frekar en orð- ið er, við óbreyttar aðstæður. Af þessu stutta yfirliti má sjá, að með fyrrgreindu samkomulagi hefðu bókagerðarmenn fullkom- lega öðlazt þær kjarabætur, sem hliðstæð fagfélög hafa náð og i veigamiklum atriðum höfðu þeir áður náð hagstæðari kjörum en aðrir launþegar. Reykjavík, 21. marz 1974. Vesturlandskjördæml Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins ! Vesturlandskjördæmi verður haldinn I Hótel Borgarnesi, Borgarnesi sunnudaginn 31. marz nk. kl. 1 4:00 DagskráiVenjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Vörður F.U.S. boðar til almenns félagsfundar i litla sal Sjálfstæðishússins, þriðju- daginn 26. marz kl. 20.30. Fundarefni: Kynning á ungum frambjóðendum I prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins. Eftirtaldir frambjóðendur halda stuttar ræður og svara fyrirspurn- um: Gunnar Sólnes, Herbert Ólason. Ingi Þór Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Tómas Ingi Olrich, Tryggvi Pálsson, Þorbjörg Snorradóttir. Fundarstjóri: Anders Hansen. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. AKRANES Sjálfstæðiskvennafélagið Bára, heldur fund, þriðjudaginn 26. marz kl. 8.30 i Sjálfstæðishúsinu við Heiðarbraut. Sigurlaug Bjarna- dóttir frá Vigur flytur erindi. FÉLAG ÍSLENZKA PRENTIÐNAÐARINS.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.