Morgunblaðið - 23.03.1974, Side 14

Morgunblaðið - 23.03.1974, Side 14
Jónas H. Haralz: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 Horlur í efnahagsmálum Grein sú, sem hér fer á eftir, er að mestu samhljóða erindi, sem Jónas H. Haralz, bankastjóri, hélt á fundi Landsmálafélagsins Varðar hinn 19. marz kl. inngangur A undanförnum fimm árum hefi ég ekki rætt ástand og horfur efnahagsmála á opinberum vett- vangi. Ég byst við, að flestir skilji þá afstöðu mfna. í meira en ára- tug hafði ég verið við stjórn efna- hagsmála riðinn sem ráðunautur ríkisstjórna og forstöðumaður þeirrar stofnunar, sem á vegum ríkisstjórnarinnar fylgdist með þeim málum, framkvæmdi athug- anir og gerði tillögur. Á þessum árum höfðu að venju, og e.t.v. framar venju, staðið óvægnar deilur um stjórn efnahagsmála. Mikilvægt var, að ekki værí hald- ið áfram ófrjóum deilum um liðna atburði, að embættismenn, og sér- fræðingar fengju óáreittir að sinna verkefnum sínum og af- staða til nýrra viðhorfa væri tekin á nýjum grundvelli. Þegar formaður Varðar hóf máls á þvf við mig, að ég yrði málshefjandi í umræðum um horfur í efnahagsmálum, var ég á báðum áttum um það, hvort ég ætti að breyta fyrri afstöðu. Mér virðist að svo langt sé nú um liðið síðan ég hætti afskiptum af stjórn efnahagsmála, að ekki sé lengur sama ástæða til að forðast umræð- ur um þau og áður. Þá virðist mér einnig, að svo alvarleg viðhorf blasi nú við f þessum málum, að erfitt sé fyrir þá, sem mikinn áhuga hafa á þeim málum og mik- ið hafa um þau fjallað að Iáta þau með (Mlu afskiptalaus. Ég hefi hugsað mér að fjalla um þrjú meginatriði. í fyrsta lagi, hvert sé það ástand í efnahags- málum, sem nú sé ríkjandi, og hverjar þær horfur, sem fram- undan virðast vera. í öðru lagi, hvar sé að leita skýringa á þeirri framvindu efnahagsmála, sem orðið hefur. i þrðja lagi mun ég reyna að fjalla um þau viðbrögð, sem hugsanleg og eðlileg virðast í glímunni við þann vanda, sem við er að etja. Ég vil skjóta því að, að ég mun sem minnst fara með tölur. Ástæðan er annars vegar sú, að ég hefi ekki aðstöðu umfram hvern annan til að afla nýlegra og réttra talna, en hins vegar sú, að þróun efnahagsmála er í meginatriðum svo augljós, að nákvæmar tölur bæta litlu við almenna lýsingu. Þar að auki gerist þróunin með þeim hraða, að við liggur, að tölur verði úreltar áður en útreikningi þeirra Ijúki. Ástand og norfur Brezka tímaritið „The Economist" sagði nýlega, að ástandið í efnahagsmálum Breta væri svo alvarlegt, að meiri hætta væri á, að í umræðum um þau mál væri of lítið gert úr alvörunni en að hún væri orðum aukin. Hversu mikill munur, sem er á efnahags- ástandi í Bretlandi og hér á landi, og sá munur er vissulega mikill, held ég þó, að þetta atriði sé sam- eiginlegt. Alvaran er sltk, að meiri hætta er á því, að of lítið sé úr henni gert, heldur en að hún sé orðum aukin. 1 hverju er þessi alvara þá fólgin? Ég vil beina athyglinni að tvennu: hraðri verð- bólgu og miklum og vaxandi halla á greiðslujöfnuði við önnur lönd. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hér á landi hefur verið allmikil verðbólga síðan á styrjaldarárunum, og mun meiri verðbólga en í nágrannalöndum okkar. Það er enn fremur alkunn- ugt, að vcrulegur halli, stundum mikill halli, hefur verið á greiðsluviðskiptum okkar við önnur lönd mikinn hluta þessa sama tímabils. Það, sem nú hefur gerzt, er aftur á móti það, að verð- bólgan hefur færzt mjög i aukana. Hún var á s.l. ári tvöfalt meiri en hún hafði yfirleitt verið áður, og verður í ár væntanlega þrefalt eða jafnvel fjórfalt meiri. Jafn- framt hefur halli á greiðsluvið- skiptum vaxið mjög í einstöku góðæri undanfarinna ára. Úr þessum halla dró verulega að nýju á s.l. ári, 1973, þegar verðlag útflutningsafurða hækkaði óvænt, en á þessu ári stefnir aftur til mikils og vaxandi halla. Þessi halli hefur, eins og kunnugt er, verið jafnaður með miklum og slvaxandi erlendum lántökum. Hvaða afleiðingar má gera ráð fyrir, að margföldun verðbólgu og stóraukinn halli á greiðslujöfnuði muni hafa áefnahagslíf landsins? Fyrir þessu er satt að segja all- erfitt að gera sér nákvæma eða örugga grein. Hugmyndaflug er af skornum skammti, til þess að átta sig á þeim hlutum, sem menn hafa ekki beina reynslu af. En ýmislegt er þó deginum ljósara. í fyrsta lagi, og það mun sjálfsagt flestum finnast skipta hvað mestu máli, mun grundvelli verða svipt undan rekstri atvinnufyrirtækja. Meðan verðlag erlendis fór enn ört hækkandi, gátu þær atvinnu- greinar, sem framleiða fyrir er- lendan markað, staðizt öra verð- bólguþróun. Þær atvinnugreinar, sem framleiða fyrír innlendan merkað urðu jafnframt aðnjót- andi mikillar aukningar veltu vegna aukinna tekna þjóðarinnar. Þegar verðlag erlendis hækkar ekki lengur, eða fer lækkandi, eins og nú blasir við, gegnir öðru máli. T\'eimur útflutningsgrein- um, lagmetis- og ullariðnaði, hef- ur nú nýlega verið heitið útflutn- ingsbótum, þrátt fyrir mjög mikl- ar erlendar verðhækkanir, sem þær hafa orðið aðnjótandi. Fyrir- sjáanlegt er, að megingreinar sjávarútvegsins, þorskveiðar og hraðfrysting, muni komast í sömu aðstöðu síðar á árinu, og ekki þarf getum að því að leiða, hvernig horfi fyrir iðnaðar- og þjónustu- fyrirtækjum, sem eiga í sam- keppni á erlendum og innlendum markaði. En, munu menn spyrja, verður þá ekki bara gengið lækk- að eða útflutningsbætur greiddar, svo allt geti gengið sinn vana- gang? Þarf hins vegar að taka það fram, að gengislækkun hefur mikil áhrif á innlent verðlag og tekna þarf að afla til að greiða útflutningsbætur, og sú tekjuöfl- un mun væntanlega einnig hafa áhrif á verðlagið. Hvor þessara leiða, sem valin er, mundi því erin magna verðbólguna, svo von bráð- ar væri enn staðið frammí fyrir sama vandanum. í öðru lagi hefur ör verðbólga mikil og víðtæk áhrif á hátterni jafnt einstaklinga sem fyrirtækja. Einstaklingurinn horfir á sparifé sitt renna út í sandinn en skuldir verða að engu. Hann leitast því við að koma eign- um sínum í einhver þau verð- mæti, sem verðbólgan fær ekki grandað, fasteignir, húsgögn, heimilistæki, bifreiðar o.s.frv., jafnframt því, sem hann sækist eftir að skulda sem mest. Varð- veizla verðmæta verður aðalatrið- ið, en ekki þarfirnar fyrir þá muni, sem aflað er, eða notagildi þeirra til að fullnægja öðrum þörfum en varðveizlunni einni. Á hliðstæðan hátt fer um fyrir- tækin. Heilbrigður rekstur og góð afkoma skipta ekki lengur máli. Það varðar öllu að komast yfir eignir, sem hækka í verði, og afla sem mests lánsfjár í því skyni. En er þetta einhver nýjung, munu menn spyrja. Hefur ekki verð- bólga undanfarinna þriggja ára- tuga haft einmitt þessi áhrif? Jú, rétt er það, en aðeins að vissu marki. Verðbólgan hefur, þrátt fyrir allt, ekki verið meiri en svo, og almennir vextir hafa verið það háir, að sparnaður hefur haldizt uppi og rekstur alls þorra fyrir- tækja hefur verið heilbrigður. En hvernig er unnt að gera ráð fyrir, að þetta geti haldið áfram, ef verðbólga verður þrisvar eða fjór- um sinnum meiri en menn hafa vanizt. I þriðja lagi. Ör verðbo'Iga og mikill halli á greiðslujöfnuði grafa fljótlega undan lánstrausti landsins erlendis. Við Islendingar búum f víðáttumiklu landi, þar sem margt er ógert. Við þurfum á erlendu fjármagni að halda að vissu marki á næstu áratugum til þess að ráða við þessi verkefni. Þess vegna er eðlilegt, að nokkur halli sé á greiðsluviðskiptum okk- ar við önnur lönd, en sá halli verður að vera innan hóflegra marka, ef það lánstraust, sem byggt hefur verið upp með ærinni fyrirhöfn, á að geta haldizt. í stuttu máli sagt fæ ég ekki séð, hvernig nokkurn vegin heilbrigður rekstur atvinnuveg- anna og full atvinna eiga að geta haldizt samfara verðbólgu, sem er þrisvar til fjórum sinnum meiri en við höfum áður átt að venjast. Eg fæ heldur ekki séð, hvernig hagvöxtur og eðlilegar framfarir geta orðið við slíkar aðstæður. Sannleikurinn er sá, að þess munu engin dæmi í veröldinni, að nokkurt efnahagskerfi hafi stað- izt slíka verðbólgu, nema á styrjaldartímum, þegar strangur agi hefur ríkt í öllum greinum. Almenn upplausn og hnignun hefur ætið fylgt slíkri verðbólgu, og sú upplausn og hnignun hefur að sjálfsögðu ekki náð til efna- hagslífsins eins. Orsaklr verðbðlgunnar Við skulum þá víkja að öðrum þætti þessa máls. Hvernig gat það gerzt, að verðbólga og greiðslu- halli ykjust svo mikið og snöggt sem raun ber vitni? í umræðum um þessi mál hefur það verið látið í veðri vaka, að aðalskýringin á þessu væri vöxtur verðbólgu er- lendis. Það er rétt, að mikil aukn- ing hefur orðið á verðbólgu er- lendis undanfarin ár og verð- hækkanir, i sumum tilvikum all- miklar verðhækkanir, hafa af þeim sökum orðið á þeim vörum, sem fluttar eru til landsins. Þó heyrir það enn til undantekninga, að verðbólga erlendis sé yfir 10% á ári, þ.e.a.s. meiri en hún var hér á landi áður fyrr. Bein áhrif verð- hækkana á innfluttum vörum nam á árunum 1972 og 1973 að- eins frá einum fimmta til eins fjórða af heildarhækkun verðlags hér á landi. Auðséð er þvi, að þarna er skýringuna á verðbólg- unni hér á landi ekki að finna nema að tiltölulega litlu leyti. Hitt skiptir svo verulegu máli, að óvenjulegar verðhækkanir á út- fluttum vörum höfðu mikil þensluáhrif hér innanlands og gerðu útflutningsatvinnuvegun- um um skeið fært að standa undir mikilli hækkun innlends tilkostn- aðar. Gegn þessum áhrifum erlendis frá á efnahagslegt jafn- vægi hér innanlands áttum við hins vegar vopn, sem unnt var að beita, en var ekki beitt, nema í litlum mæli. Þá er komið að kjarna málsins. Meginskýringin á mikilli verðbólguþróun hér á landi á undanförnum árum er sú, að lítið sem ekkert hefur verið að gert til þess að hamla gegn slikri þróun, og að í þessu efni varð mikil breyting fyrir nokkrum ár- um síðan. Það hefur oft verið sagt á und- anförnum árum og áratugum, að engin íslenzk ríkisstjórn hafi get- að ráðið við verðbólguna. Að mín- um dómi eru þessi ummæli og önnum þeim lík byggð á misskiln- ingi. Hafi þetta ekki verið Ijóst áður, þá ætti það a.m.k. að vera ljóst nú að fenginni reynslu und- anfarinna ára. Sannleikurinn er sá, að þær margvíslegu ráðstaf- anir, sem sí og æ hafa verið gerð- ar gegn verðbólgunni á undan- förnum áratugum báru verulegan árangur. Þær hægðu mjög á verð- bólgunni annað slagið, stöðvuðu jafnvel gang hennar um skeið. Það var þessi sifellda barátta, sem allar ríkisstjórnir háðu hver með sínum hætti, fram í byrjun þessa áratugar, sem gerði það að verk- um, að verðbólgan varð þó ekki meiri en um 10% árlega að meðal- tali. Ekki skipti það heldur minna máli, að margs konar ráðstafanir voru gerðar til þess að unnt væri að halda uppi fullri atvinnu og reka atvinnulífið með eðlilegum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.