Morgunblaðið - 23.03.1974, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23, MARZ 1974
17
Samkomulag um
friðun Eystrasalts
Ráðgjafi Goldwaters
sendiherra 1 Svíþjóð
Helsinki, 22. marz NTB.
FULLTRÚAR þeirra sjö rfkja,
sem eiga iönd að Eystrasalti
Handtökur
Madrid, 22. marz NTB
SPÁNSKA lögreglan hefur hand-
tekið 32 menn í tveimur hópum,
sem eru grunaðir um byltingar-
starfsemi, að því er sagt var frá i
dag. í Barcelona var send út frétt
um handtöku 22ja manna, sem
sagt var, að væru félagar í stjórn-
leysingjasamtökum i Katalóniu
og hefðu þessir menn staðið að
fjölmörgum sprengjutilræðum nú
upp á siðkastið. Hinir tíu voru
handteknir i Valencia eftir mót-
mælaaðgerðir í háskólanum þar á
dögunum. Eru þeir sagðir komm-
únistar.
undirrituðu í dag samkomulag í
Helsinki, þar sem kveðið er á um
friðun Eystrasalts. Er þessi samn-
ingur fyrsti sinnar tegundar.
Utanrikisráðherra Finnlands
Jermu Laine sagði í lok fundarins
að þau viðhorf til umhverfismála
sem ríktu, stefndu beinlínis að
því að gera lífið betra og heiminn
byggilegri. Hann benti á að ríkis-
stjórnirnar yrðu að taka tillit til
þeirra þegar ákvörðun væri tekin
og að samkomulagið sýndi að
ríkin, sem ættu lönd þarna að
þekktu þá ábyrgð, sem á þeim
hvíldi og skildu nauðsyn þess að
vernda þetta hafsvæði. I samn-
ingnum er kveðið á um að sérstök
nefnd verði sett á laggirnar með
aðalbækistöðvar í Helsinki og
fylgist hún með framkvæmd sam-
komulagsins.
Á stultum
frá París
til Brussel
□ Þessi hópur er lagður
af stað frá París til
Briissel og fer á stultum.
Ferðin tekur tíu daga.
Hópurinn er frá Suð-
vestur-Frakklandi og
ætlar að sækja ferða-
málaþing í Briissel.
Hann sést hér á Champs
Elysées í París.
Washington, 22. marz. AP.NTt
HUBERT Humphrey, fyn
verandi varaforseti, fagnaði
í dag þeirri ákvörðun
Nixons forseta, að skipa sendi-
herra í Stokkhólmi eftir eins og
hálfs árs hlé, en kvaðst ekki
vera ánægður með valið á sendi-
herranum, Robert Strausz-Hupe.
Humphrey hét þó að berjast
fyrir því i utanríkismálanefnd-
inni að skipun Stausz-Hupes yrði
samþykkt. Hann var á sínum tíma
ráðunautur Barry Goldwaters
öldungadeildarmanns i utanríkis-
málum.
Talsmenn utanríkisnefndarinn-
ar leggja áherzlu á að skoðanir
Strausz-Hupes hafi orðið talsvert
hófsamri á síðari árum, en skípun
hans mælist þó misjafnlega vel
fyrir. Sumir stjórnmálafréttarit-
arar teija að val hans eigi að gefa
Svíum vissa bendingu.
Fyrir fimm árum tilnefndi
Nixon hann sendiherra í Mar-
okkó, en dró tilnefninguna til
baka þegar formaður utanrikis-
nefndarinnar, J. W. Fulbright,
lýsti yfir þvi að nefndin gæti ekki
samþykkt skipun diplomats með
jafnihaldssamar skoðanir í stöð-
una. Seinna var þó samþykkt til-
nefning Strausz-Hupe i stöðu
sendiherra i Sri Lanka.
Nixon kallaði heim sendiherra
Bandaríkjanna í Stokkhólmi á
sínum tíma vegna harðrar gagn-
rýni Olofs Palme forsætisráð-
herra á stríðsrekstur Bandaríkj-
anna í Víetnam.
Evtusjenko:
Viðbrögð
yfirvalda
voru
ruddaleg
Torino, NTB.
SOVÉZKI rithöfundurinn
Evgeny Evtusjenko hefur lýst
þvf yfir, að viðbrögð yfirvalda
vegna stuðnings hans við Alex-
ander Solzhenitsyn hafi verið
ruddaleg. Lýsti Evtusjenko
þessu vfir í bréfi til blaðsins
„Demokratic Dimension" í Tor-
ino. Hann kvaðst hafa sent sím-
skeyti til Brezhnevs flokksleið-
toga til að mótmæla brottvísun
Solzhenitsyns og stjórnvöld
hefðu brugðizt þannig við að
banna Ijóðakvöld, þar sem
Evtusjenko átti að lesa upp Ijóð
sfn.
Evtusjenko segir í bréfinu,
að hann sé ekki sammála Solz
henitsyn í öllu, en hversu mik-
il sem misfök hans kunni að
vera, sé algerlega fáránlegt að
lfkja þeim við glæpina, sem
framdir voru á blóðferli
Stalíns. „Borgarar okkar eiga
skilið, að við þá sé taiað á ær-
legan hátt, bæði um fortíð og
nútíð,“ sagði skáldið í ofan-
greindu bréfi.
Björg sýnir
um páskana
Nemendur í yngri deild Tónlistarskólans
TONLEIKAR YNGRI
DEILDAR SKÓLANS
Á laugardaginn 23. marz verða
haldnir hinir árlegu tónleikar
yngri deildar Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Á tónleikunum
koma fram um 16 nemendur á
aldrinum frá 11 ára til 15 ára. A
efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Mozart, Grieg, Kabalevský,
Turina, Bartók, Hándel, Haydn,
Kreisler og fl. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 2.30 r Austurbæjarbfói.
Velunnarar skólans eru velkomn-
ir meðan húsrúm leyfir.
Jóhannesarpassía Bachs
flutt í dymbilvikunni
Listavika Menntaskólans á ísafirði
BJÖRG Þorsteinsdóttir opnar
málverkasýningu f Norræna hús-
inu þriðjudaginn 9. aprfl, en sýn-
ingin mun verða opin kl. 14—22
daglega fram til 16. apríl. A sýn-
ingunni verða um 30 málverk og
teikningar og sum verkin æði stór
um sig. Óli eru málverkin máluð
frá 1972 og fram á þennan dag.
Björg Þorsteinsdóttir er nýkom-
in heim frá Frakklandi, þar sem
hún var styrkþegi frönsku ríkis-
stjórnarinnar á árunum 1972 og
1973 til náms i grafik og málara-
list. Efna styrkþegar árlega til
sýningar í París, sem Björg tók
þátt í bæði árin og hlaut árið 1972
2. verðlaun fyrir grafik. Áður
hafði hún hlotið þar i borg viður-
kenningu á grafiksýningu.
Björg stundaði myndlistarnám
við Myndlistarskólann í Reykja-
vík og Myndlista- og handíðaskóla
íslands, þaðan sem hún lauk
teiknikennaraprófi 1964. Eftir
það var hún við Listaakademfuna
i Stuttgart, í Atelier 17 í Paris og
vrð Beaux Arts skólann í París.
Þaðan kom hún heim í ágústmán-
uði sl.
Björg efndi til einkasýningar á
grafik í Unuhúsi 1971 og hefur
tekið þátt í mörgum alþjóðlegum
grafiksýningum á Norðurlöndum.
Þýzkalandi, Frakklandi. Júgó-
slavíu, Spáni, ítalíu, Bandarikj-
unum og Ástralíu. Einnig tók hún
þátt i teiknisýningu í Moderne-
safninu í Rijeka í Júgóslaviu.
Borðtennismót
EINS og undanfarin ár gengst
Æskulýðsráð Reykjavíkur fyrir
borðtennismóti skólanemenda á
gagnfræðastigi, þ.e. úr þeim skól-
um, þar sem tómstundahópar
starfa í þessari íþróttagrein.
Keppnin fer fram f Laugardals-
höllinni laugardaginn 23. mars og
hefst kl. 13,30. Fyrirkomulagið er
einmenningskeppni, en hver skóli
sendir fjögurra manna sveit auk
tveggja varamanna. Síðastliðið ár
bar sveit Hagaskóla sigur úr být-
um, en þá tóku 10 skólar þátt f
mótinu.
3»JINNLENT
Flóamarkaður
VESTFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur flóamarkað í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
laugardaginn 30. marz kl. 14.00.
Stjórn og skemmtinefnd tekur á
móti gjöfum frá Vestfirðingum og
öðrum velunnurum. Allur ágóði
rennur til Vestfjarða.
1 DYMBILVIKUNNI flytur Pólý-
fónkórinn Jóhannesarpassfu J.S.
Baeh. Asamt kórnum taka sjö ein-
söngvarar og þrjátfu manna
kammerhljómsveit þátt í þessum
flutningi, en stjórnandinn er
Ingólfur Guðbrandsson. Verkið
verður flutt í Háskólabíói á skfr-
dag og föstudaginn langa, en
verði uppselt í bæði þessi skipti
hefur komið til álita, að passfan
verði flutt þriðja sinni laugardag-
inn fyrir páska.
Einsöngvararnir verða Michael
Goldthorpe, Sigurður Björnsson,
Malcolm King, Halldór Vilhelms-
son, Ingimar Sigurðsson, Elísabet
Erlingsdóttir og Ruth Little
Magnússon.
Alls taka um 140 manns þátt i
flutningi Jóhannesarpassiunnar,
þar af 30 manna kammerhljóm-
sveit, eins og fyrr segir, en kon-
sértmeistari verður Rut Ingólfs-
dóttir.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
Jóhannesarpassian er flutt óstytt
hér á landi, en hún er fyrst í
röðinni hinna stóru kórverka
Bachs.
Isafirði, 22. rz.
□ Skólafélag Menntaskólans á
ísafirði mun gangast fyrir menn-
ingarhátfð dagana 25.—31. marz,
þar sem á hverjum degi verður
boðið upp á dagskrá tengda bók-
menntum og listum. Hátíð þessi
hefur hlotið nafnið „sólrisuhátið"
með skírskotun til nærveru vors-
ins.
Nemendur menntaskólans vilja
á þennan hátt auka tengsl sín við
bæjarbúa og leggja fram sinn
skerf til að lffga upp á bæjarlífið.
Segja má, að fyrsti vísir að slíku
hafi verið svonefnt listakvöld,
sem skólafélagið stóð fyrir á sl.
vetri og þótti takast mjög vel. Nú
vilja nemendur hafa dagskrána
fjölbreyttari, þannig að allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Af efnisatriðum hátiðarinnar
má nefna dagskrá um leikrita-
skáldið Bertold Brecht, jasssam-
komu, skáldavöku, fjölbreytta
tónlistardagskrá, sýningar brúðu-
leikhúss og tvær úrvals kvik-
myndir. Meðal aðkomulistafólks,
sem sækir hátiðina, verða:
Guðrún Á. Símonar, Jökull
Jakobsson, Þorsteinn frá Hamri,
Megas og gítarleikararnir Arnald-
ur Arnaldsson og Jön ívarsson.
Meðal ísfirzkra listamanna etu
Jónas Tómasson og Jakob Hall-
grímsson, að ógleymdum liðs-
mönnum skólakórsins og nýstofn-
aðar jasshljómsveitar.
Öll atriðin fara fram i Alþýðu-
húsinu, nema sýningar brúðuíeik-
hússins, sem verða í Sjálfstæðis-
húsinu. Akveðið er að semja
dreifibréf með nákvæmri dag-
skrártilhögun og verður það borið
i hús á sunnudag.