Morgunblaðið - 23.03.1974, Side 21
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 21
□ SVONA BÝR ANNA PRINSESSA
Hér birtast tvær af fyrstu myndunum, sem Anna prinsessa hefur
leyft aö láta taka á heimili sínu í Oak Grove House í Camberley í
Englandi, þar sem hún og eiginmaður hennar, Mark Phillips, búa að
staðaldri, þegar skyldustörfin kalla ekki á þau til f jarlægra staða.
A annarri myndinni sést borðstofan. Stóra klukkan var brúðar-
gjöf til ungu hjónanna frá City of Westminster, einu borgarhverfa
Lundúnarborgar, og borðið og stólarnir með græn- og gulröndóttu
áklæðinu voru gjöf frá félagssamtökum í Bretlandi sem njóta
einhvers konar viðurkenningar eða verndar brezku krúnunnar.
A hinni myndinni sést dagstofan. Tveggja sæta sófinn er klæddur
grábrúnu áklæði og stólarnir tveir eru klæddir brúnu og grábrúnu
rúðóttu áklæði. Sófasettið var að sjálfsögðu gjöf til hjónanna, frá
einhverjum háttsettum brezkum embættismanni, og persneska
teppið á gólfinu var gjöf frá forsætisráðherra Irans, sem áður hét
Persía.
Utvarp Reykjavík
LAUGARDAGUR
23. marz
□ BJARNI OG
FISKISAGAN
9 Dr. Bjarni Guðnasont
alþingismaður og formaður
Frjálslynda flokksins, var gest-
ur á fundi samtakanna Junior
Chamber Suðurnes fyrir
skömmu og svaraði þar fyrir-
spurnum fundarmanna. í ný-
legum Suðurnesjatíðindum er
ítarleg frásögn af fundinum og
er upphaf frásagnarinnar af
honum á þessa leið:
„Bjarni hóf mál sitt á dæmi-
sögu, til að skýra hvernig
stjórnmálaflokkar starfa og
hvað þeir vilja. 1 því tilfelli er
til saga um fiskkaupmann,
sagði Bjarni. Kaupmaðurinn
vildi færa út kvíarnar, auka
viðskipti sfn, svo hann setti
skilti fyrir ofan dyrnar á búð
sinni og á því stóð „Hér er seld
ný skata“.
Viðskiptavinur kom í búðina
og verzlaði við kaupmann og
sagði: Það er óþarfi fyrir þig að
hafa „Hér er“ á skiltinu, því
allir vita að það er hér, og
hvergi annars staðar.
Daginn eftir kom sami við-
skiptavinurinn aftur til að
verzla, og þá stóð á skiltinu
„Seld ný skata“. Viðskiptavin-
urinn gerði sín viðskipti og
sagði síðan: Það er alveg óþarfi
að hafa „Seld“ á skiltinu, því
engum dettur í hug að þú gefir
hana.
Þriðja daginn kemur hann,
og þá stóð á skiltinu „Ný
skata“. Þá sagði viðskiptavinur-
inn við kaupmanninn: Af
hverju ertu með „Ný skata“?
Attu við að þú seljir stundum
gamla skötu?
Fjórða daginn kemur við-
skiptavinurinn og þá stóð að-
eins „Skata“ á skiltinu. Þetta
gengur ekki, sagði hann við
kaupmanninn. Þú selur miklu
meira en skötu og þar að auki
er þetta svo Ijótt orð.
Enn kemur viðskiptavinur-
inn til kaupmanns, og þá var
ekkert skilti, og þá segir hann:
Hvað er þetta, maður, hefur þú
ekkert skilti yfir búðinni?
Hvað er þetta maður, sagði
kaupmaðurinn. Hvað vilt þú
hafa?
Settu bara yfir búðina „Eitt-
hvað fyrir alla“.
Já, en ég sel bara fisk.
Það skiptir engu máli, sagði
viðskiptavinurinn. Það slæðast
hingað inn í búðina menn, og
það endar með því, að þeir fá
bara skötu.
Þetta er svolítið líkt og með
stjórnmálaflokkana. Þeir vilja
hafa yfirskriftina „Eitthvað
fyrir alla“ þó þeir selji bara
skötu.“
□ HJÓNABANDS-
UPPGJÖRIÐ
I BÓKARFORMI
Þýzki leikarinn Curt JUrgens
er reiðari en nokkru sinni fyrr
út í eiginkonu sína, Simone
hina frönsku, sem hann hefur
ekki búið með í marga mánuði.
Því að á meðan hann hefur
haldið sig að ungu stúlkunum,
Curt Jurgens og Simone — áð-
ur en hún skrifaði ævi-
minningar sfnar um hann!
hefur hún ekki legið í leti. Hún
hefur i samvinnu við þýzkan
blaðamann skrifað endur-
minningar sínar og koma þær
innan tiðar út í bók undir nafn-
inu „Villt líf mitt með Curt“.
En sagt er, að Simone, sem áður
fyrr var tízkusýningardama,
hafi lagt mest upp úr því að
lýsa villtu lífi hans. Og það mun
vist ekki vera mjög leiðinlegt
lesning, ef dæma má af við-
brögðum Curt, er hann fékk
fyrir nokkru leyfi til að lesa
próförk að bókinni. Hann varð
óhemjulega reiður, því að hon-
um finnst hann hafa hlotið hina
herfilegustu meðferð. Sagt er,
að í bókinni séu alls kyns upp-
ljóstranir um einkalif hans.
— Simone hefur hefnt sfn á
skammarlegan hátt, af því að ég
sté eitt eða tvö hliðarspor i
hjónabandi okkar, kannski
þrjú, segir Curt. Hann hefur nú
boðað málshöfðun gegn Simone
og hótað, að hann muni einnig
fá sér skrifara til aðstoðar við
gerð sinna æviminninga. Og
það leikur vist enginn vafi á
þvi, hvað hann ætlar að leggja
áherzluna á í þeim skrifum.
En við þessu hefur Simone
svar á reiðum höndum: Hún
segist ekki nærri búin með allt
efnið, sem hún hafi upp á að
bjóða.
Hjónabandsuppgjörið virðist
því komið á annað svið en áður
fyrr — hið bókmenntalega —
og endar kannski sem fram-
haldssaga!
7.00 Morgundtvarp Veðurfegnir kL
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikf ími kl.
7.20Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55 Morgunstund bamanna kl. 845:
Gísli J. Ástþíirsson heldur áfram lestri
sögu sinnar ..Lsafold fer i síld“ (2).
Morgunleikfimi kL 9.20. Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög á milb atr. Morgun-
kaffið kl. 10.25: Páll Heiðar Jónsson og
gestir hans ræða um útvarpsdag-
skrána. Auk þess sagt frá veðri og
vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Óskalög sjúklinga Kristín Svein-
björnsdóttir kynnir.
14.30 Iþróttir Umsjfinarmaður: Jón As-
geirsson.
15.00 Lslenzkt mál Asgeir Blöndal
Magnússon cand. mag. talar.
15.20 Framhaldsleikrit bama og ungl-
inga: „I sporunum, þur sem grasið
grær“ eftirGuðmund L. Friðfinnsson
Fímmti og siðasti þáttur. Leikstjóri og
sögumaður: Steindór Hjörleifsson. Per-
sónur og leikendur:
Jónsi ........EinarSveinn Þórðarson
Stella Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Þorleifur .......Sigurður Karisson
Húsfreyja .......Margrét Ölafsdóttir
Guðríður ........Þórunn Sveinsdóttir
Sigurjí'm ...........Jón Hjartarson
Thompson ........Guðmundur Pálsson
15.45 Bamalög
16.00 Fréttir.
Á skjánum
Laugardagur
23. mars 1974
16.30 Jóga til heilsubótar
Þáttur með kennslu i jógaæfingum.
Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
17.00 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmenn Bjöm Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
17.30 Iþróttir
Meðal efnis verða innlendar og eriend-
ar íþróttafréttir og mynd úr ensku
knattspyrnunni.
Umsjónarmaður Ömar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
Bandariskur söngva og gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi Heba Júliusdóttir.
Vaka
í kvöld verður Vaka á sjón-
varpsdagskránni kl. 20.50.
Þar verður fjallað um sýn-
ingar tvær, sem nú standa
yfir á Kjarvalsstöðum. Það
eru sýningar þeirra Hafsteins
Austmanns og Veturliða
Gunnarssonar.
Þá talar Guðrún Jónsdóttir
arkitekt um breytingará hús-
um hérlendis, og Sigurður
Sverrir Pálsson og Erlendur
Hans hágöfgi
Kl. 20.35 verður útvarpað
öðrum þætti framhalds-
leikritsins „Hans hágöfgi" eft-
ir Sigurð Róbertsson. Leikrit-
ið er í fimm hlutum, en ara-
grúi hlutverka og leikenda í
leiknum er slíkur, að ekki er
unnt að telja það upp hér.
Leikritið fjallar um þá per-
sónu, sem hefur orðið eitt
16.15 Veðurfregnir. Tlu á toppnum Örn
Petersen sér um dægurlagaþátt.
17.20 Framburðarkennsla I þýzku
17.30 Islandsmótið f körf uknattleik
Magnús Þ. Þórðarson lýsir.
17.50 Frá Svíþjóð Sigmar B. Hauksson
talar.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Fréttir. Tilkjnningar.
19.25 Fréttaspegill
19.40 „Vfsa Hadrian* keisara**, smásaga
eftirGuðmund Danfelsson Iðunn Guð-
mundsdóttir les.
20.05 III jömsveit Georges Martins leikur
létta tónlist
20.35 Framhaldsleikritið: „Hans há-
göfgi“ eftir Sigurð Róbertsson Annar
þáttur:
Sigriður .........Ingunn Jónsdóttir,
Skáldið................Jón Júliusson
1. vatnsberi Valdemar Helgason
2. vatnsberi .....Kari Guðmundsson
Borgari ..........Sigurður Skúlason
Gunna Nina Sveinsdótti r
Hlaupastrákur .....Július Brjánsson,
Trample..........Gisli Rúnar Jónsson,
1. kaupmaður Arni Tryggvason
2. kaupmaður Hákon Waage
Ritarinn Þorgrimur Ei na rsson
Jörundur ..........Erl ingur Gíslason
Savignac.........Jón Sigurbjörnsson,
Phelps Rúri k Hariadsson
Lífverði r:
Þórir Steingrims.Non, Bessíá Bjamar-
son, Randver Þoriáksson og Sigurður
Karisson.
21.15 Hljómplöturabb Þorsteinn Hann-
esson bregður plötum áf(>ninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma
(36)
22.25 Útvarp'sdans undirgóulok.
*
20.50 Vaka
Dagskrá um bókmennti r og listi r.
21.30 Regnskógurinn
Fræðslumynd frá Time-Life um visý
fræðirannsóknir í hitabeltisskógum
Mið-Ameríkuríkisins Panama.
Þýðandi og þulur Gísli Sigurkarisson.
22.00 Ast við fyrstu s.vn
(The Picnic)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1955,
bygð á leikriti eftirWilliam Ingé.
Leikstjóri Joshua Logan.
Aðalhlutverk William Holden, Kim
Novak, Rosalind Russel og Qiff
Robe rtson.
Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
Aðalpersóna rnvndarinnar er piltur,
sem kemur í stutta heimsókn til smá-
bæjar, og vekur strax athygli og aðdá-
un bæjarmanna —og kvenna.
23.40 Dagskrárlok
Sveinsson annast kvik-
myndaþáttinn.
Við ræddum við Sigurð
Sverri, og sagði hann, að
þeir félagar ætluðu að tala
um frönsku kvikmyndavik-
una, sem hefst á fimmtudag-
inn kemur. Þeir sýna úr
tveimur þeirra mynda, sem
sýndar verða á vikunni.
Önnur heitir „Gamla jómfrú-
in", en hin er nýjasta kvik-
mynd Truffauts. Myndin
heitir „Amerísk nótt" og fjall-
ar hún um kvikmyndagerð,
en aðalhlutverk myndarinn-
ar, kvikmyndaleikstjórann,
leikur Truffaut sjálfur.
vinsælasta umfjöllunarefni
leikritahöfunda og annarra
hugverkahöfunda hérlendra,
Jörund hundadagakonung.
Höfundur „Hans hágöfgi"
er Sigurður Róbertsson, en
áður hafa verið flutt eftir
hann fjögur leikrit i útvarp,
„Dimmuborgir", sem sýnt var
í Þjóðleikhúsinu 1963 og
flutt í útvarpinu árið eftir,
„Vogrek", „Mold" og „Storm-
urinn”, sem flutt var fyrir
tveimur árum.
félk í
fjclmiélum