Morgunblaðið - 23.03.1974, Page 36
LAUGARDAGUR 23. IVIARZ 1974
Tillögur ríkisstjórnarinnar:
Allt varnarliðið farið á
lYll^íll Q|*í 1 Q^fí Míög takmarkaður lending'
llllUJ U. di i it/ I U arréttur NATO-flugvéla
Í DHÖGUM þeim að umræðu-
grundvelli í varnarmálum, sem
ráðherrarnir komu sér saman um
í fyrradag, er gert ráð fyrir, að
allt bandarfskt varnarlið verði
horfið af landi brott á miðju ári
1976 og aðeins verði um að ræða
takmarkaðan rétt bandarískra
flugvéla til lendinga á Kefla-
vfkurflugvelli eftir það.
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá i gær náðist samkomulag um
umræðugrundvöll við Banda-
ríkjamenn á ráðherrafundi í
fyrradag, og var þá boðuð frétta-
tilkynning um málið í gær að
loknum fundi í utanríkisnefnd
Alþingis. Fréttatilkynningin sem
send var út síðdegis í gær er svo-
hljóðandi: „Rikisstjórnin gekk í
gær frá drögum að viðræðugrund-
velli við Bandarikjamenn um
endurskoðun varnarsamningsins.
Hafa þær tillögur nú verið kynnt-
ar utanríkismálanefnd Alþingis
og viðræðufundur við Banda-
ríkjamenn verður væntanlega
ákveðinn á næstunni." Lengri var
hin margboðaða fréttatilkynning
ríkisstjórnarinnar ekki.
Morgunblaðið hefur aflað sér
upplýsinga um efnisþætti þess
umræðugrundvallar sem sam-
komu'ag náðist um í ríkisstjórn-
inni ettir margra mánaða
fæðingarhríðar. Hefur blaðið á
síðustu vikum sagt frá nánast öll-
um meginatriðum þessa umræðu-
grundvallar.
Samkvæmt umræðugrund-
vellinum stefnir rikisstjórnin að
Framhald á bls. 20
OFFSETPRENTAR-
r
AR I VERKFALLI
A MIÐNÆTTI s.l. skall á verkfall
Grafíska sveinafélagsins, en í því
félagi eru offsetprentarar og
prentmyndasmiðir. Torfi Hjartar-
son, sáttasemjari ríkisins, boðaði
fulltrúa Grafíska sveinafélagsins
og prentsmiðjueigenda á sinn
fund kl. 14 í gær. Stóð fundurinn
fram til kl. 18 án þess að nokkur
árangur næðist. Hefur sáttasemj-
ari boðað annan fund með deilu-
aðilum kl. 16 á morgun, sunnu-
dag.
Jóhann F. Asgeirsson formaður
Grafíska sveinafélagsins sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær,
að mikið bæri á milli í samninga-
viðræðunum eins og t.d. kaup-
prósentan sjálf, orlofsuppbót, og
nemakaup í eftirvinnu á 2.—3. og
4. ári. Þá sagði hann, að engin
vilyrði hefðu enn fengist fyrir
mörgum atriðum, sem hefðu verið
samþykkt í A.S.Í. samningunum
26. febrúar s.l.
Grafíska sveinafélagið var
stofnað fyrir rúmu ári úr tveimur
stéttarfélögum, þ.e. Offsetprent-
arafélaginu og Prentmyndasmiða-
Framhald á bls. 20
Hvers vegna
var Jón ekki
boðaður?
ÞAÐ vakti mikla athygli á
fundi utanríkismálanefndar
Alþingis í gær, þar sem utan-
ríkisráðherra gerði nefndinni
grein fyrir samningsgrundvelli
þeim, sem rfkisstjérnin hefur
samþykkt að leggja fyrir
Bandaríkjamenn í viðræðunum
um varnarmálin, að Steingrím-
ur Hermannsson var boðaður á
fund nefndarinnar í stað Þór-
arins Þórarinssonar, sem er er-
lendis.
Jón Skaftason er fyrsti vara-
maður Framsóknarflokksins í
utanríkismáianefnd. Hann var
ekki boðaður á fundinn. Aðal-
menn og varamenn í utanríkis-
málanefnd eru kosnir af sam-
einuðu Alþingi.
I GÆR var undirritaður í Reykjavfk samningur milli Reykjavíkurborgar annars vegar og
Garðahrepps hins vegar, um að Reykjavfkurborg sjái um lagningu og rekstur hitaveitu f
Garðahreppi. Myndin er tekin þegar Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri og Garðar Sigurgeirs-
son sveitarstjóri undirrituðu samninginn. Með þeim á myndinni eru t.v. Ólafur G. Einarsson
alþingismaður, Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri, dr. Gunnar Sigurðsson verkfræðingur, Ólafur B.
Thors borgarfulltrúi, Kristján Benediktsson borgarfulltrúi, Jón G. Tómasson, skrifstofustjóri
Reykjavíkur, og Albert Guðmundssön borgarfulltrúi. Ljósm. Mbl.: Sv.Þ.
Krefst 100 millj. kr. skaða-
bóta vegna bílslyss á Islandi
BANDARÍSKUR ríkisborgari,
Louis H. Higgins að nafni, hefur
stefnt flotaverzlun Bandaríkja-
flota á Keflavfkurflugvelli og
bandarfska ríkinu vegna bifreiða-
slyss, sem hann lenti f á Reykja-
nesbraut 19. nóvember 1971.
Skaðabótaupphæðin, sem Higgins
fer fram á, er 1.005.000,00
dollarar eða 100 millj. fsl. kr. að
viðbættum 10% vöxtum frá 19.
nóvember 1971.
Higgins kom hingað til lands,
sem meðlimur hljómsveitar
haustið 1971 á vegum hersins.
Þann 19. nóvember þurfti hann
að skreppa til Reykjavík-
ur, þar sem hann van-
hagaði um eitthvað í hljóð-
færið sitt. Til þess fékk hann
Birgir Isleifur Gunnarsson á borgarstjórnarfundi:
Sífelld stækkun borga kallar
á úrbætur í umhverfismálum
lánaðan bíl hjá flotaverzluninni
og fylgdi bílstjóri með. Þegar þeir
áttu skammt eftir ófarið til
Hafnarfjarðar fór bíllinn út af
veginum og meiddist Higgins það
mikið, að hann mun aldrei verða
samur maður.
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði
f samtali við Morgunblaðið í gær
að mál þetta hefði átt að taka
fyrir um miðjan marz hjá lög-
reglustjóraembættinu á Kefla-
víkurflugvelli, en ákveðið hefði
verið að fresta því til 5. apríl.
Hann sagði, að sækjandi
mannsins væri Sigurður Gizurar-
Framhald á bls. 20
11%
hækkun
A fundi borgarstjórnar Reykja-
vfkur f fyrrakvöld fylgdi Birgir
tsl. Gunnarsson borgarstjóri úr
hlaði áætlun þeirri um umhverfi
og útivist, sem kunngerð var fyrir
nokkru og unnið hefur verið að
um rúmlega eins árs skeið að
sérstakri ósk borgarstjóra. Er
gert ráð fyrir, að tvær umræður
fari fram í borgarstjórn um áætl-
un þessa. 1 lok ræðu sinnar sagði
borgarstjóri: „Ef áætlun þessi og
þær hugmyndir, sem að baki
henni liggja koma tíl fram-
kvæmda er enginn vafi á þvf, að
borgin á mjög eftir að breyta um
svip á næstu árum og verða meira
aðlaðandi fyrir borgarbúa. Að þvf
hljótum við öll að stefna og þvf er
þess að vænta, að borgarfulltrúar
taki þessari áætlun vel og séu
reiðubúnir að greiða fyrir fram-
gangi hennar og afgreiðslu eins
og mögulegt er.“
Borgarstjóri flutti mjög ítarlega
framsöguræðu fyrir áætlun þess-
ari, þar sem hann gerði grein fyr-
ir öllum helztu þáttum hennar, en
hún skiptist í þrjá höfuðkafla. 1
fyrsta lagi er lýsí ástandi opinna
svæða í borgarlandinu og þeirri
starfsemi, sem þar fer nú fram. I
öðru lagi er áætlunin sjálf, sem
tekur mið af tveimur grundvallar-
atriðum, þ.e. núverandi ástandi
og framtíðarmarkmiðum. Aætlun-
in sjálf er svo þríþætt, sagði borg-
arstjóri, þ.e. í fyrsta lagi er gerð
grein fyrir ýmsum ófrágengnum
svæðum innan byggðra svæða f
borgarlandinu, í öðru lagi er gerð
tillaga um samfellt kerfi göngu-
og hjólreiðastíga um alla borgina,
og í þriðja lagi tillögur um svo-
nefnd útivistarsvæði innan borg-
arlandsins. Þriðji höfuðkafli
skýrslunnar er síðan fram-
kvæmdaáætlun, sem fylgir með í
sérstöku hefti.
Hvers vegna
sérstök áætlun?
Borgarstjóri sagði síðan í ræðu
sinni: „En hver er ástæða þess, að
nú er gerð sérstök áætlun um
umhverfi og útivist f Reykjavík?
A undanförnum árum hefur
skilningur manna á umhverfi
Framhald á bls. 20
ályfjum
AUGLÝST hefur verið breyt-
ing á verðskrá lyfja, sem feiur
í sér um 11% hækkun að
meðaltali, að sögn Almars
Grfmssonar, hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu. Hækkunin er
fólgin í sérstöku afhendingar-
gjaldi, er leggst á öll lyf og er
þvf hækkunin hlutfallslega
mest á ódýrustu lyfjunum en
minnst á dýrustu sérlyfjunum.
Framhald á bls. 20