Morgunblaðið - 16.05.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.05.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 76. tbl. 61. árg. FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Örin á meðfylgjandi m.vnd bendir á skólahúsið í IVIaalot f Israel, þar sem þrír arabfskir skæruliðar héldu um 90 unglingum í gfslingu frá þvf klukkan eitt eftir miúnætti í fyrrinótt til kl. tæplega fjögur síódegis f gær (fsl. tími), er fsraelskir hermenn réóust til inngöngu í skólahúsiú. M yndin var tekin f Maalot laust eftir hádegi ígær. Izvestija Moskvu, 15. maí NTB. FRÁ því var skýrt I tiag i grein í ,,Izvestija“, irál- gagni sovézku ríkisstjórn- arinnar, aö leiðtogar Sovét- rfkjanna hafi í júní 1973 lagt tii, að efnt yrði til leið- togafundar Sovétríkjanna og Alþýðulýðveldisins Kina, en Pekingstjórnin hafi aldrei svarað þeirri uppástungu. ekki segir í grein þessari, sem fjallar um samskipti Sovétríkjanna og Kina sl. fimmtán ár. segir. að tilboð sovézku leiðtoganna stancli enn- þá. Ekki hefur fyrr verið frá því skýrt, en fréttaritarar i Moskvu telja, að það hafi verið liður i viðleitni Sovétmanna til að bæta samskiptin við Kina; þeir hafi gert til þess meiri háttar tilraunir sl. sumar. meðal annars hafi Leonid Brezhnev boðizt til þess að gera samning við Kína um. að ríkin beittu ekki hvort annað hernaðarihlutun. Izvestija segir. að þögn ráðamanna í Peking bendi tíl þess, að þeir séu ekki of tryggir f sessi eða \issir um stöðu sina. Blaðið segir, að samskipti ríkjanna hafi heldur versnað að undanförnu og tiltekur tvennt þeirri ályktun til stuðnings: ann- ars vegar, að í janúar sl. hafi fimm sovézkir borgarar verið gerðir brottrækif frá Kína og hins vegar, er sovézk þvrla hrapaði niður í kínverskt land í marz sl. Báðir þessir atburðir voru að sögn Izvestija notaðir til þess að þyrla upp andsovézkum áróðri og and- úð gegn Sovétríkjunum meðal Kínverja. Gangstéttarheliurnar, sem nú er verið að leggja í Austurstræti, eru nú farnar að gefa götunni nýjan svip eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Peking svaraði Skæruliðarnir þrír og 16 unglingar létu lífið og 70 unglingar særðust við áhlaup Israelsmanna Jerúsalem, Maalot, 15. maí AP—NTB GOLDA Meir forsætisráð- herra ísraels, skýrði svo frá í kvöld, að eftir því sem þá væri bezt vitað, hefðu sextán unglingar beðið bana og 70 aðrir hlotið meiri eða minni meiðsli, þegar ísraelskir hermenn gerðu áhlaup á skólahús í bænum Maalot nærri landamærum ísraels og Líbanons. Þar höfðu þrír skæruliðar haldið 90 ungl- ingum í gísling frá því í nótt og hótuðu að sprengja skólahúsið í loft upp, ef þeim hefði ekki borizt boð um það fyrir kl. fjögur í dag (ísl. tími), að 26skæru- liðar, sem verið hafa í fangelsum í ísrael, væru komnir til Kýpur eða Damaskus í Sýrlandi. Skæruliðarnir þrír voru skotnir í áhlaupinu á skól- ann. Golda Meir var að sögn AP afar beygð, er hún skýrði frá þessu og rakti gang málsins. Hún kvað stjórnina hafa verið reiðubúna að láta undan kröfum skæruliðanna en hún hefði farið þess á leit \nð þá að þeirgæfu frekari frest til að safna föngunum saman og koma þeim í flugvél til brottflutnings. Skæruliðarnir höfnuðu þeim til- mælum afdráttarlaust, að hún sagði, — „okkur var gert ljóst. að þeim væri full alvara að bíða ekki eina rnínútu umfrarn þann frest. sem þeirhöfðu gefið"sagði hún. Golda Meir lagði á það áherzlu. að tilkynningin um ákvörðun stjórnarinnar, ,sem birt var í morgun hefði ekki verið gefin út f þvi skyni að blekkja skæruliðana og vinna tfma til að klekkja á þeim, eins og haldið var fram af Framhald á bls. 18 Glistrup bjargaði stjórn Hartlings Búizt við ólgu á vinnustöðum 1 Danmörku á næstunni Kaupmannahöfn, 15. maí, frá fréttaritara Mbl. Jörgen Harboe BORGARAFLOKKARNIR og frjálslyndir komu f dag stjórn Pauls Hartlings til aðstoðar og bjiirguðu Iffi hennar eftir að hún hafði heitið þvf að hækka ekki fasteignaskatta á einbýlis- og rað- húsum. Voru tillögur stjórnar- innar í efnahagsmálum sam- þykktar í danska Þjóðþinginu en þær voru lagðar fram fyrir viku og ha.'a haft í för meðsér hálfgert kreppuástand í stjórnmálum landsins. Athyglisvert er, að þetta er í fyrsta sinn.sem Framfaraflokkur IVIogens Glistrups, sem er næst- stærsti flokkurinn f Þjóðþinginu, tekur þátt f mikilvægri ákvörðun en flokkurinn kom sem kunnugt er fyrst fram á þinginu eftir kosn- ingarnar 4. desember sl. Stjórnmálafréttaritarar búast við að órólegt verði vfða á vinnu- stöðum í Danmörku á næstu dög- um. Frá þvf tillögur stjðrnar- innar komu fvrst fram, hefur oft verið gripið til verkfalla til að mótmæla þeim. Þar er m.a. gert ráð f.vrir niðurskurði, sem nemur milljörðum danskra króna á ýmsum þáttum félags-og fræðslu- Framhald á bls. 18 „Þeir sögðu, að Rauði krossinn kæmi - við fögnuðum - þeir skutu”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.