Morgunblaðið - 16.05.1974, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1974
Eggert Guðmundsson sýn-
ir að Kjarvalsstöðum
IJM þessar muntlir stendur vfir
sýning á verkum Eggerts Guð-
mundssonar, listmálara. ad Kjar-
valsstiiðum.
A sýningunni eru yfir 100
myndir, og sækir listamaðurinn
sér efnisvið á hin ólíkustu svið,
svo sem til athafnalífs þjóðar-
innar, bókmennta og íslen/.krar
náttúru. Eitt virðast þau lista-
verk, sem þarna eru sýnd, þó eiga
sammerkt, en það er hversu þjóð-
leg þau eru, enda til sýningarinn-
ar efnt f tilefni þjóðhátíðarinnar,
að þvf er listamaðurinn tjáði
blaðamanni Mbl.
í sýningarskránni er að finna
þátt, er nefnist „Þankar lista-
manns", þar sem Eggert setur
fram skoðanir sfnar um listina
sjálfa og málefni listamanna.
Segirþar m.a.:
„Ahrif listaverks vrerða af fáum
greind eða skilin, því að þau eru
dulræn. Hin ýmsu form liststefn-
unnar geta á engan hátt ráðið um
tilkomu eða sköpun listaverks,
það er á ábyrgð listamannsins að
velja verki sfnu tjáningarform"
Ennfremur:
Þeir listamenn, sem gerast þrælar
einhverra sérstakra stefna, eru
oftast nær þröngsýnir ofsatrúar-
menn. Listamönnum ber aðtjá sig
frjálst og óháðir öllum stefnum.
Það er listamannanna að skapa
sfnar eigin stefnur, en ekki stefn-
anna að skapa listamennina."
Sýningin varopnuð ll.maí.
Aðsókn hefur verið góð, og hafa
þegar selzt um 20 myndir.
Sýningin stendur til 26. maí,
eða „þar til sfðasta atkvæðið
fellur í kjnrkassann", eins og
listamaðurinn orðaði það.
Háskólamenn fengu 20%
hækkun miðað við 1. des.
í GÆRKVÖLDI var fyrirsjánlegt,
að sérkrófur nokkurra aðildar-
félaga Bandalags háskólamanna á
hendur ríkinu færu í Kjaradóm.
\'itað var með vissu um Kjara-
félag Verkfræðingafélag íslands,
en óvfst um önnur aðildarfélög.
Nokkur félög sömdu áður en
frestur til samninga rann út á
miðnætti sl. nótt. Þau félög, sem
sömdu, náðu að meðaltali hækk-
un um þrjá flokka. Bein kaup-
ha'kkun miðað við 1. desember sl.
telst vera um 20%.
Að sögn dr. Jónasar Bjarnason-
ar formanns Launamálaráðs BHM
tókust sættir fyrir Kjaradómi í
fyrradag um endurskoðun á aðal-
samningi, en Kjaradómur fékk
Vestmannaeyingar
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum við
bæjarstjórnarkosningarnar boða
tii fundar með Vestmannaeying-
um er dvelja á Reykjavíkursvæð-
inu og nágrenni í Atthagasal
Hótel Sögu laugardaginn 18. maí
kl. 2—6e.h. (Kaffiveitingar).
Kynnt verður bæjarmálastefna
Sjálfstæðisflokksins og frambjóð-
endur verða þar til viðtals.
Sjálfstæðisfélögin f Evjum.
aðalsamninginn til meðferðar 21.
apríl sl. Var sætzt á að fjölga
flokkum úr 28 i 30. Að þessari
niðurstöðu fenginni sömdu fimm
félög um sérkröfur sínar strax í
fyrradag, og búizt var við því, að
nokkur félög gengju frá samning-
um í gærkvöldi. Félögin, sem
sömdu í fyrradag, voru Félag há-
skólamenntaðra kennara, Félag
háskólakennara, Dýralæknafélag
íslands, Prestafélag íslands og
Félag íslénzkra fræða. Samningar
um sérkröfur margra félaga voru
í fullum gangi í gær, en aðildar-
félög BHM eru 14 talsins.
Aði ldarfélögum BHM þótti
skali aðalsamningsins of þröngur
til að semja sig inn í hann, og
komst því ekki skriður á sérkröfu-
samningana fyrr en sættir tókust
fyrir Kjaradómi um að bæta
tveimur flokkum ofan á skalann.
Sem fyrr segir varð hækkun að
meðaltali um þrjá flokka, og auk
þess náðu mörg félaganna mjög
gagnlegum sérákvæðum, að sögn
dr. Jónasar Bjarnasonar.Hækkun
miðað við 1. desember sl., þegar
samningaskriðan fór af stað, telst
vera um 20%. Er þá talin með
hækkun, sem Kjaradómur
skammtaði háskólamönnum 15.
febrúar sl.,en ekki vfsitöluhækk-
anir.
9 milljóna
rannsóknaá
ÍSLENZKU Veiði málastofn-
uninni hefur verið veittur stór
stvrkur frá Sameinuðu þjóð-
unum, til ýmissa tækjakaupa
og til að standa straum af
kostnaði vað umfangsmiklar
rannsóknirá ám og vötnum hér
á landi. Nemur styrkurinn alls
um 9milljónum kr.
Tveir seldu
í Danmörku
TVÖ íslenzk síldveiðiskip seldu
síld í Hirtshals og Skagen i gær.
Skipin, semseldu, voru aflaskipin
Guðmundur RE 29 og Börkur NK
122.
Guðmundur seldi 1102 kassa i
Hirtshals fyrir 1.4 millj. kr. ísl.
Meðalverðið var kr. 33.20. Börkur
seldi hins vegar 689 kassa i
Skagen fyrir 870 þús. kr. Meðal-
verðið var kr. 32.40.
króna styrkur S.Þ. til
Lslenzkum ám og vötnum
Kvaðst vera guðfræðinemi
og svipti sig klæðum
KONA f Austurbænum hafði
samband viö blaðiö á miðviku-
daginn og kvaðst vilja vekja
athvgli á manni, 35—40 ára,
sem þar sé á ferðinni, villi á sér
heimildir og hafi í frammi alls
konar kynferðislega tilburði.
Sagði konan, að maður þessi
hefði nú þrivegis hringt dyra-
símanum hjá sér að undan-
förnu og hafi honum í fyrsta
skiptið tekizt að komast inn í
íbúðina á þeim forsendum, að
hann vildi ræða við hana um
dulræn fyrirbrigði enda væri
hann nemandi við guðfræði-
deild háskólans. Er inn í íbúð
konunnar kom brá svo við, að
hann var ekki lengur guðfræði-
nemi heldur kvaðst hann vera
i teikniskóla og bað hann
konuna um að vera módel fyrir
sig. Þyrfti hún ekki annað að
gera en að klæða sig úr föt-
unum svo að h'ann gæti teiknað
hana nakta. I þetta skipti tókst
konunni að koma manninum
út úr fbúðinni m.a. með
því að segja honum, að
koma aftur á ákveðnum
degi. Á tilskildum degi lét
hann hins vegar ekki sjá
sig, en þá hafði konan gert
sjá sig, en þá hafði konan gert
ráðstafanir til að tengdasonur
hennar væri þar hefma. Maður-
inn hringdi svo dyrabjöllunni
tveimur dögum síðar, en þá
sagðist konan hafa sagt honum
að hafa sig á brott hið bráðasta
ella myndi hún leita aðstoðar
lögreglunnar. Þriðja heimsókn
mannsins til konunnar átti sér
stað þriðjudaginn 14. maí sl.
Lét konan þess getið, að sfðan
þetta byrjaði hefði hún verið i
stöðugum ótta við mann
þennan, sem hún sagöi, að væri
hár og grannur með gleraugu. I
heimsóknum sínum var maður-
inn ávallt með skjalatösku
undir hendinni.
Að lokum sagðist konan hafa
áreiðanlegar fregnir af því, að
maður, sennilega sá sami, hefði
þriðjudaginn 14. þ.m. barið upp
hjá konu þar í grenndinni, sem
býr ein i íbúð. Kvaðst hann
vera gamall vinur hennar og er
konan hafði opnað útidyrnar
fletti maðurinn sig sjálfan
klæðum. Konan, sem hringdi,
kvaðst hafa haft samband við
lögregluna vegna þessa
leiðindamáis og hafi sér virzt
sem lögreglan Væri ekki óvön
slíkum ábendingum en ein-
hverra hluta vegna væri lítíð
hægt að gera i málum sem
þessum. Konan taldi híns vegar
nauðsynlegt að vekja athygli al-
mennings á þessum manni
öðrum til viðvörunar.
Er Mbl. hafði samband við
lögregluna kannaðist hún
þegar við mál af þessu tagi, sem
skotið hafa upp kollinum að
undanförnu. Hvernig á þessum
málum er tekið fer efúr eðli
þeitra en svona mál geta oft
reynzt erfið viðfangs. Oft á
tíðum hefðu slíkir menn aðeins
í frammi tilburði en stigu
sjaldnast skrefið ti) fulls. Lög-
reglan kvaðst þó að sjálfsögðu
reyna að fylgjast með slíkum
mönnum og reyna að nálgast þá
og færi þá málið hina venju-
iegu leið til dómstóla.
Hér á landi er nú staddur
sérfræðingur frá Sameinuðu
þjóðunum, dr. Peter Bergman,
úl að kynna starfsmönnum
Veiðimálastofnunarinnar og
Laxeldisstöðvarinnar í Kolla-
firði, meðferð nýs og fullkom-
ins tækis til að nota við merk-
ingu laxaseiða. Tæki þetta kost-
ar um 1 milljón ísl. króna og
gerir það að verkum að hægt er
að komast yfir að merkja miklu
fleiri laxa, á skaðlausan hátt.en
hingað úl. Með þessum auknu
merkingum kemur betur í Ijós
hverjar raunverulegar heimtur
Stálvík fær
fyrirgreiðslu
NÝLEGA samþykkti ríkisstjórnin
að tryggja skipasmíðastöðinni
Stálvík í Garðahreppi fjármagns-
fyrirgreiðslu til þess að geta hald-
ið áfram raðsmíði skuttogara, þótt
ekki væri búið að tryggja kaup-
anda fyrirfram.
Þetta kom fram í ræðu
Magnúsar Kjartanssonar á árs-
þingi Félags íslenzkra iðnrek-
enda.
eru af þeim seiðum, sem sleppt
er í sjó.
Þá fær stofnunin einnig sér-
stakt dýptarmælistæki, úl að
mæla silungsmagn í vötnum.
Ýmsir sérfræðingar S.Þ. munu
á næstu 2—3 árum vinna að
þessum rannsóknum með fs-
lenzku fiskifræðingunum.
Pétur Östlund valinn
í norræna
jazzhljómsveit
í BYRJUN maf sl. var haldinn í
Kaupmannahöfn fundur á vegum
Nomus, Norrænu samstarfs-
nefndarinnar um tónlistarmál.
Þar var rætt um norrænt samstarf
í jazztónlist. Jón Múli Arnason
sat fundinn af Islands hálfu.
Eitt af málum fundarins var að
velja norræna jazzhljómsveit. Jón
Múli úlnefndi þrjá íslenzka
hljóðfæraleikara, Árna Egilsson
kontrabassaleikara, Halldór Páls-
son flautu- og saxofónleikara og
Pétur Ösúund trommuleikara.
Var Pétur einróma valinn í hljóm-
sveiúna. Hljómsveit þessi mun
koma fram viða, og einnig er fyr-
irhugað frekara samstarf Norður-
landanna ásviði jazztónlistar.
Léleg vetrarvertíð Hornfirðinga
Hornafirði, 15.5.
Lélegri vetrarvertfð hjá Horna-
fjarðarbátum er lokið. Alls voru
gerðir út 10 bátar. þar af voru 4 á
loðnuvertíð og er það 2 bátum
færra en í fyrra. Heildaraflinn
var 3.306 lestir, 1.923 lestum
D en ekki G
I AUGLÝSINGU f blaðinu í gær
um listabókstafi Sjálfstæðis-
flokksins við bæjar- og sveitar-
stjórnakosningarnar 26. maf nk.
misritaðist listabókstafurinn í
Blönduóshreppi, en hann verður
D, en ekki G eins og f auglýsing-
unni stóð.
minni en f fyrra. Alls voru farnar
415 sjóferðir, en 710 í fyrra,
meðalafli í sjóferð er nú 7,91estir,
en var í fyrra 7,3 lesúr. Aflinn var
langsóttari í ár, þvi að oftast var
um 2 lagnir a.ð ræða f sjóferð. 3
aflahæstu bátarnir eru Hvanney,
560 lesúr i 62 sjóferðum, skip-
stjóri Einar Björn Einarsson,
Sigurður Ólafsson, 390 lesúr og
Eskey með 377 lesúr.
Lionsklúbbur Hornafjarðar
heldur sína árlegu árshátíð með
aldraða fólkinu i sýslunni
fimmtudaginn 23. maí. uppstign-
ingardag. Til fagnaðar þessa er
öllu öldruðu fólki isýslunni boðið
að venju.
Gunnar.
Framboðsfundur í Kópavogi
AIAIENNUR framboðsfundur
verður haldinn í Víghólaskóla í
Kópnvogi í dag, fimmtudag, kl.
20.30. Fulltrúar allra framboðs-
lista munu tala á fundinum. Um-
ferðir verða þrjár. Af hálfu Sjá
stæðisflokksins tala Stefr
Helgason, Helgi Hallvarðsse
Axel Jónsson og Sigurður Helj
son.