Morgunblaðið - 06.06.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, KIMMTUDAOUR ö. .IUNI 1974
3
„Ekki kóngur,
heldur lögga”
MARGT barna var á hafnar-
bakkanum við komu Olafs
Noregskonungs og voru sum
meira hrifin en önnur. Lítill
hnokki sneri sér að félaga sín-
um og sagði í ákafa sinum.
þegar konungur gekk niður
landganginn: „Sjáðu kónginn,
sjáðu kónginn." Hinn virti fyr-
ir sér konung og einkennis-
búning hans og svaraði: „Þetta
er ekkert kóngur, þetta er
lögga."
Þjóðhöfðingjar Noregsog Islands á svölum ráðherrabústaðarins.
— Noregskonung-
ur á Islandi...
Barnafans fagnaði konungi með íslenzka og norska fánanum.
heimila Ijósmyndurum og blaða-
mönnum aðgang t upphafi kvöld-
verðarboða sem þessa. svo lesend-
ur gætu jafnt fengið ljósmyndir
sem frásagnir af veizlum. sem
haldnar eru í nafni þjóðarinnar
allrar.
Dagskráin í dag
I dag fyrir hádegi fara Ölafur
konungur og forseti íslands
ásamt föruneyti að skógræktar-
stöðinni við Mógilsá og þaðan í
laxaræktarstöðina í Kollafirði. A
báðum stöðum verður konungi
sýnt um. Hádegisverð snæðir kon-
ungur í boði Reykjavíkurborgar á
Kjarvalsstöðum, en kl. 15 verður
haldið flugleiðis til Akure.vrar.
þar sem konungi verður sýndur
bærinn. Kl. 19.30 snæðir konung-
ur kvöldverð í boði Akureyrar-
bæjar að Hótel KEA, en haldið
verður til Reykjavikur á ný um
kl. 22.30.
Framhald af bls. 1
Klappaði manni'jöldinn
þjóðhöfðingjunum lof í
lófa og húrrahróp kváðu
við.
„Fagurt við tjörnina.“
Frá höfninni var ekið um mið-
bæinn og að ráðherrabústaðnum
og var mannfjöldi við þær götur,
sem ekið var um og fagnaði kon-
ungi. Þegar komið var í ráðherra-
bústaðinn sýndi forseti Islands
konungi vistarverurnar, en síðan
gengu þjöðhöfðingjarnir út á sval-
irnar og veifuðu til fölksins, sém
beið þeirra bæði í Tjarnargötu og
í Suðurgötu. Heyrðist Ólafur kon
ungur hafa orð á því hve útsýnið
væri fagurt yfir tjörnina, en þess
má geta, að miður góða lykt lagði
um miðbæinn í Reykjavík í gær-
rnorgun frá fiskimjölsverk-
smiðjunni.
A hádegi hélt konungur með
föruneyti sínu að Bessastöðum í
hádegisverð forseta Islands.
Stóðu þjóðhöfðingjarnir um
stund á tröppum forsetasetursins
og virtu fyrir sér útsýnið. Lét
Olafur konungur orð falla á þá
leið, að fallegt væri yfir að sjá frá
Bessastöðum og vítt útsýni.
í hádegisverðarboðinu á Bessa-
stöðum færði konungur forseta
íslands emaleraða gullskál og tólf
skeiðar og gaffla úr saina efni að
gjöf, en forseti færði konungi að
gjöf bronsafsteypu af styttu
Einars Jónssonar af Ingólfi
Arnarsyni, sem stendur á Arnar-
hóli.
Hátíöleg athöfn
í Fossvogi.
Að loknum hádegisverði á
Bessastöðum hélt konungur á ný í
ráðherrabústaðinn, en rétt fyrir
fjögur fór hann ásamt Einari
Agústssyni utanríkisráðherra,
öunnari Bergsteinssyni og öðru
fylgdarliði í Fossvogskirkjugarð.
Þar lagði konungur blómsveig að
minnisvarða um norska hermenn,
sem hér létust f stríðinu. Karla-
kórinn Fóstbræður undir stjórn
Jóns Þórarinssonar söng norska
þjóðsönginn, „Ja, vi elsker," en
norskir sjóliðar stóðu heiðurs-
vörð. Viðstaddir þessa hátíðlegu
athöfn í kirkjugarðinum voru auk
förune.vtis konungs ýmsir Norð-
menn búsettir hérlendis, þar á
meðal ýmsir í hópi eldri Norð-
manna, sem nú töku á móti Olafi
konungi í þriðja sinn.
Úr kirkjugarðinum var ekið í
ráðherrabústaðinn. þar sem kon-
ungur tók á móti sendiherrum
erlendra rt'kja á milli kl. 17 og
17.30.
Veizla á Hótel Sögu
I gærkvöldi hélt forseti Islands
konungi veizlu á Hötel Sögu og
voru þar um 270 manns. Þegar
konungur og forseti gengu í sal-
inn var blásið í fornaldarlúðra og
gerðu það félagar úr Sinfönfu-
hljömsveitinni, sem jafnframt
léku undir borðum og á undan
ræðum þjóðhöfðingjanna. öuð-
mundur Jónsson óperusöngvari
skemmti með söng á meðan á
borðhaldi stóð. Salurinn var
fagurlega skreyttur. Lögreglan
meinaði fréttamönnum og Ijós-
myndurutn aðgang að anddyri
Hótel Sögu áður en veizlan hófst,
en samið hafði verið milli fs-
lenzkra og norskra fjölmiðla og
utanríkisráðuneytisins um að þeir
fengju að taka rnyndir í andd.vr-
tnu og í upphafi veizlunnar.
Tfðkazt hefur við þjóðhöfðingja-
heimsöknir fram til þessa. að
Úr hádegisverðarboði forseta Íslands að Bessastöðum. F.vrir enda
borðsins situr frú Halldóra Eldjárn, en henni á hægri hönd Ólafur
Noregskonungur, frú Olöf Jónsson og Einar Ágústsson utanrfkisráð-
herra, en á móti konungi situr Frvdenlund utanríkisráðherra Norð-
manna.
Yfirlitsm.vnd yfir hafnarbakkann við komu Ölafs konungs.
I
Konungur við norska minnisvarðann í Fossvogi.