Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 6
6
MOHGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚJMI 1974
DAGBÖK
I dag er fimmtudagurinn 6. júní, sem er 157. dagur ársins 1974. Fardagar. 7. vika
sumars hefst.
Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 07.13, síðdegisflóð kl. 19.33.
1 Reykjavík er sólarupprás kl. 03.12, sólarlag kl. 23.43.
Sólarupprás á Akure.vri er kl. 02.16, sólarlag kl. 00.10.
(Heimild: Islandsalmanakið).
Sjá, ég sendi yður sem sauði á meðal úlfa; verið þvf kænir sem höggormar og
falslausir sem dúfur. (Mattheus 10. 16).
AFHMAO
MEILLA
KROSSC3ATA
Ib
15. september sl. voru gefin
saman i hjónaband i Bíldudals-
kirkju Elsa Nína Sigurðardóttir
og Jónas Sigurðsson. Heimili
þeirra verður að IJalbraut 39,
Bíldudal.
(Ljósm. Ingrid Guðinundsson).
Lárétt: 1. trosna 6. beisli 8. sér-
hljóðar 10. leit 11. álaga 12. á fæti
13. tónn 14. þjóta 16. fallinn
Lóðrétt: 2. kindum 3. sópinn 4.
samhljóðar 5. átt 7. kraminn 9.
keyra 10. sorg 14. fyrir utan 15.
forfaðir.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1. narta 6. sár 8. kauðann
11. rúm 12. fas 13. ár 15. rá 16. fat
18. aumkaði
Lóðrétt: 2. ásum 3. ráð 4. traf 5.
skrafa 7. ansaði 9. aur 10. nár 14.
mak 16. FM 17. tá
PEIMNAVIIMIR
30. marz gaf séra Jón M.
Guðjónsson saman í hjónaband i
Akraneskirkju Guðnýju Sigurrós
Haraldsdóttur og Guðmund Siguð
Sveinsson. Heimili þeirra verður
að Skagabraut 5 B, Akranesi.
(Ljósm.vndast. Olafs Arnasonar).
5A MÆSTBESTI
1 fatagevmslu veitingahússins:
— Afsakið, en eruð þér ekki
Jón Jönsson forstjóri á Akurevri ’
— Nei, svo sannarlega ekki!
— Nú, en viljið þér þá ekki
vera svo vinsamlegur að fara úr
frakkanum hans Jóns Jónssonar,
því að ég er nefnilega hann.
Svfþjóð:
Margita Lundberg,
Backevagen 46,
94100 Piteá, ■
Sverige.
Hún vill skrifast á við stráka 15
ára og eldri. Áhugamál hennar
eru bóklestur og frímerkjasöfn-
un, en hún vill gjarnan skrifast á
við þá, sem hafa önnur áhugamál.
tsland:
Guðlaugur J. Albertsson,
Naustabúð 13,
Hellissandi.
Vill skrifast á við krakka á
aldrinum 12—14 ára.
Sigþóra Vigfúsdóttir,
Keflavikurgötu 8,
Hellissandi.
Öskar eftir að komast f bréfa-
samband við krakka á aldrinum
10—11 ára.
Anna Róbertsdóttir,
Brún,
Biskupstungum,
Arnessýslu.
Hún vill skrifast á við 8—9 ára
stelpur.
CENCISSKRÁNING
Nr.101 - 5. júní 1974.
Skráð frá Eini nK Kl. 12. 00 Kaup Sala
30/5 1974 1 Bandar íkjadollar 93, 80 94, 20
5/6 - i Sterlingðpund 225, 50 226, 70
30/5 - i Kanadadollar 97, 45 97, 95
5/6 - 100 Danskar krónur 1595, 75 1604, 25
- - 100 Norskar krónur 1725, 35 1734, 55
- - 100 Sænskar krónur 2163,90 2175, 40
4/6 - 100 Finnsk mörk 2529,70 2543, 20
5/6 - 100 Franskir frankar 1930, 40 1940, 70
- - 100 Belg. frankar 249,00 250,30
- - 100 Svissn. frankar 3180, 10 3197, 10
• - - 100 Gyllini 3567,35 3586, 40
- - - 100 V. -Þyzk mörk 3757,90 3777,90
_ _ 100 Lfrxir 14, 59 14, 66
_ - 100 Austurr. Sch. 521, 40 524,20
4/6 _ 100 Escudos 379, 60 381, 60
- - 100 Pesetar 163,70 164, 60
5/6 _ 100 Yen 33, 28 33, 46
15/2 1973 100 Reikningakrónur-
Vöruskiptalönd 99, 86 100, 14
30/5 1974 1 Reikningsdollar-
Vöruskiptalönd 93, 80 94, 20
Breyting frá siOustu skráningu.
Hér er eitthvað fyrir þá,
sem hyggjast halda á suð-
lægar slóðir tii að sleikja
sólina og busla við strönd-
ina.
Múnderingin er til þess
ætluð að bregða sér í eftir
sund.
Efnið er næfurþunnt
baðmullarefni, og skal á
það bent, að klæðnaðurinn
er jafn ætlaður karlmönn-
um sem kvenmönnum.
Heimsóknatímar
sjúkrahúsanna
Barnaspftali Hringsins: kl.
15—16, virka daga, kl. 15—17
laugard. og kl. 10—11.30 sunnud.
Borgarspítalinn:
Mánud.—föstud. kl. 18.30—19.30.
Laugard. og sunnud. kl.
13.30— 14.30 og kl. 18.30—19.
Flókadeild Kleppsspftala: Dag-
legakl. 15.30—17.
Fæðingardeildin: Daglega kl.
15—16ogkl. 19—19.30.
Fæðingarheimili Reykjavfk-
ur: Daglega kl. 15.30—16.30.
Heilsuverndarstöðin: kl. 15—16
og kl. 19 —19.30 daglega.
Hvítabandið: kl. 19—19.30
mánud.—föstud. laugard. og
sunnud. kl. 15—16 og 19—19.30.
Kleppsspítalinn: Daglega kl.
15—16 og 18.30—19.
Kópavogshælið: Eftir umtali og
kl. 15—17 á helgum dögum.
Landakotsspítali:
Mánud.—laugard. kl.
18.30— 19.30. Sunnud. kl. 15—16.
Heimsóknartími á barnadeild er
kl. 15—16 daglega.
Landspftalinn: Daglega kl.
15—16 og 19—19.30.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánu-
dag—laugard. kl. 15—16 og kl.
19.30— 20. Sunnudaga og aðra
helgidagakl. 15—16.30.
Vífilsstaðir: Daglega kl.'
15.15—16.15 og kl. 19.30—20.
<&> |Bor0unt)lGt)ií>
l^mnRCFRLDRR
7( mnRKRfl VÐRR
Blöð og tímarit
Stefnir, tímarit um þjóðmál og
menningarmál, 2.—3. tbl. 25. ár-
gangs er komið út.
Ritstjórnargrein fjallar um ein-
staklingsfrelsi og umhverfismót-
un, viðtal er við Birgi ísleif Gunn-
arsson borgarstjóra, Guðrún Jóns-
dóttir arkitekt ritar grein um
varðveizlu húsa og mannvirkja,
rætt er við Hilmar Ólafsson for-
stöðumann Þróunarstofnunar
Reykjavíkurborgar um bygginga-
og skipulagsmál borgarinnar,
grein er um endurnýjun hverfa
og tillögur Garðars Halldórssonar
og Ingimundar Sveinssonar
arkitekta um þau efni, Guðmund-
ur K. Magnússon prófessor skrif-
ar um John Kenneth Galbraith,
sem er prófessor við Harvardhá-
skóla, hagfræðingur, frægur
greinahöfundur og stjórnmála-
maður m.m., og samantekt um
Morgunblaðið og valddreifinguna
eftir Ásmund Einarsson er meðal
. efnis f blaðinu.
Utgefandi Stefnís er Samband
ungra sjálfstæðismanna, en rit-
stjórí er Kjartan G. Kjartansson.
Tímarit Verkfræöingafélags ís-
lands, 1. hefti 59. árgangs er
komið út.
Ritstjóri er Páll Lúðvíksson.
I blaðinu er auk félagsmála-
frétta grein um rafbíla, þróun og
framtíð þeírra eftir Gísla Jónsson,
Guðmundur Björnsson skrifar um
þróunarhjálp við Island á sviði
landmælinga og Davíð Olafsson
skrifar um þróunina í alþjóða-
gjaldeyrismálum.
ást er
...að lesa bréfin
frá honum mörgum
sinnum meðan
hann er að heiman
I bripgéT
Hér fer á eftir spil frá leik milli
Finnlands og Bretlands í Evrópu-
móti fyrir nokkrum árum.
Norður
S. 5-2
H. K-D-9-7-2
T. K-G-10-9-7
L. D
Vestur Austur
S. 7-6 S. 9-8
II. G-10-6-5-3 H. 4
T. D-6-3-2 T. Á-8-5-4
L. 7-6 L. Á-10-8-5-3-2
Suður
S. A-K-D-G-10-4-3
H. A-8
T. —
L. K-G-9-4
Finnsku spilararnir sátu N—S
við annað borðið og sögðu þannig:
FRÉTTIR
FRÁ happdrætti Hús-
mæðraskóla Suðurlands,
Laugarvatni.
Dregið var í happdrættinu
1. júní sl. og komu eftirtal-
in númer upp.
Husqvarna-saumavél 3749
Grillofn 1942
Ryksuga 2700
Sjálfvirk kaffikanna 1838
Vöfflujárn 4359
Rafmagnshandþeytari 4600
Vinningshafar hringi í
síma 99-6146 eða 99-6123.
Suður Norður
1 1 1 h
2 s 3 h
3 s 4 t
4 s 51
6 s P
skal fram, að
Happdrættisnefnd.
doblaði 5 laufasögn norðurs.
Sagnhafi fékk að sjálfsögðu 12
slagi og vann spilið.
Við hitt borðið sátu brezku spil-
ararnir N—S og sögðu þannig:
Suður Norður
21 2 h
3 s 4 g
5 s P
Þegar norður segir 4 grönd þá
er hann að spyrja um ása og þegar
suður segist eiga 2 ása þá er
aðeins eðlilegt, að norður segi
pass. Suður hefur sennilega ekki
þorað að segja frá eyðu í tigli, en
það er orsök þess, að þeim tekst
ekki að ná slemmunni.
Þessa mynd tók Ólafur K. Magnússon fyrir skömmu. Af myndinni
verður ekki ráðið óhrekjanlega af hverju hún er, en hún er hvorki af
steinsteyptum vegg né hjarni. Þetta er vatnsyfirborð, sem geislar
sólarinnar brotna svo fagurlega á.