Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 16

Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JUNI 1974 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Askriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands I lausasölu 35,00 kr. eintakið. Framboöslistar fyrir alþingiskosningarnar liggja nú fyrir og er komið í ljós, aö glundroðinn á vinstri vængnum hefur aukizt, en ekki minnkað frá borgarstjórnarkosningun- um. Fyrir þær kósningar mátti marka 10 flokka og flokksbrot á vinstri væng stjórnmálanna. Hins vegar voru vinstri menn samein- aðir á fjórum framboðslist- um fyrir þær kosningar. Á þeim tíma, sem liðinn er, hefur sundrungin á vinstri vængnum aukizt og í al- þingiskosningunum í Reykjavík eru hvorki meira né minna en 6 fram- boðslistar á vegum vinstri flokka og flokksbrota. í borgarstjórnarkosning- unum höfðu hinir svo- nefndu Möóruvellingar lát- ið við það sitja að lýsa and- stöðu við framboðslista Framsóknarflokksins, en síðan hefur klofningurinn í Framsóknarflokknum orð- ið endanlegur og ýmsir meiriháttar framámenn Framsóknarflokksins eru nú í framboði á vegum bræðingsins. Má þar nefna mann á borð við Kristján Thorlacius, sem áður var varaþingmaður Fram- sóknarflokksins f Reykja- vík, Andrés Kristjánsson fyrrum ritstjóra Tfmans og fleiri. í röðum kommúnista hefur sundrungin marg- faldazt. Á þeirra vegum var aðeins einn framboðs- listi í borgarstjórnarkosn- ingunum, en til þingkosn- inganna ganga þeir fjór- klofnir. Þar ber fyrst að nefna Alþýðubandalagið, sem hefur talið það væn- legast til árangurs í kosn- ingunum að sparka verka- lýðsmanni úr fjóröa sæti framboðslistans í Reykja- vík, en setja í hans stað blaðamann af Þjóðviljan- um. Nú bjóða æskulýðs- samtök kommúnista, Fylk- ingin, fram sérstakan lista og leiðir hann í ljós, að klofningurinn nær inn á ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans. Þriðji fram- boðslisti kommúnista í þingkosningunum er listi hinna svonefndu Marxista- Leninista og þann fjórða verður að telja það, sem eftir er af Samtökum frjálslyndra og vinstri- manna, en með brottför Hannibals og Björns úr þeim samtökum eru þau ekkert annað en deild úr Alþýðubandalaginu undir forystu fyrrverandi rit- stjóra Þjóðviljans, sem hef- ur fengið til liðs við sig nokkra nytsama sakleys- ingja úr öðrum flokkum. En glundroðinn á vinstri vængnum kemur ekki að- eins fram f því, að fram- boðslistum vinstri flokk- anna hefur fjölgað úr 4 í 6 frá borgarstjórnarkosning- um til þingkosninga. Hann kemur einnig fram innan listanna sjálfra. Þannig er í framboði á vegum SFV Magnús Torfi Ólafsson, sem neitaði að yfirgefa ráð- herrastólinn, þegar þing- flokkur SFV ákvað að hætta aðild að ríkisstjórn- inni, en í framboði á vegum samtakanna er einnig einn af fyrrverandi þingmönn- um þeirra, Karvel Pálma- son, sem var í hópi þeirra þingmanna, sem vildu lýsa vantrausti á ráðherrann Magnús Torfa. Hinn síðar- nefndi verður væntanlega í framboði sem málsvari stjórnarinnar, hinn fyrr- nefndi, ef hann er sjálfum sér samkvæmur, sem stjórnarandstæðing- ur! Þetta litla dæmi sýnir hvílík hringavitleysa er á ferðinni í framboðum vinstri inanna fyrir þessar alþingiskosningar. En þótt glundroðinn á vinstri vængnum hafi auk- izt frá borgarstjórnarkosn- ingum þýðir ekki að loka augunum fyrir þeirri stað- reynd, að veruleg hætta er á því, aö vinstri stjórn kom- ist til valda á ný að þing- kosningum loknum. Og EYKST augljóst er, að af hálfu vinstri flokkanna er mark- visst stefnt að því, að svo megi verða. í tæplega 3 ár hafa landsmenn fylgzt með þeirri upplausn, sem verið hefur í málefnum iands og þjóðar, efnahagsmálum og utanríkismálum meðan vinstri flokkarnir hafa rif- izt innbyrðis um þá af- stöðu, sem taka ætti í hverju máli. Eftir það gífurlega öngþveiti, sem orðiö hefur á vinstri vængnum síðustu vikur er ljóst, að það sem sézt hefur hingað til af vinstri „sam- vinnu“ yrði barnaleikur á við það, sem viö tæki að kosningum loknum, ef vinstri flokkarnir fengju tækifæri til að mynda ríkis- stjórn á ný. Eða hvernig halda menn, að þeim mundi koma saman f stjórnarsamstarfi, Ólafi Jó hannessyni og Ólafi Ragn- ari Grímssyni? Landsmenn eru orðnir þreyttir á vinstri stjórn- inni. En kjósendur verða að gera sér þess grein, að veruleg hætta er á því, að vinstri stjórn komi til vaida á ný að þingkosning- um loknum. Til þess að koma í veg fyrir það er aðeins ein leið fær, og hún er sú að stórefla Sjálf- stæðisflokkinn og tryggja honum ekki síður fylgi í þingkosningunum en í sveitarstjórnakosningun- um. Sigurinn vannst ekki í sveitarstjórnakosningun- um. Þar var aðeins um góð- an áfanga aó ræða. Úrslita- orustan stendur 30. júní n.k. Til þess að koma í veg fyrir nýja vinstri stjórn, vaxandi verðbólgu og brottrekstur varnarliðsins, verða kjósendur aö stór- efla Sjálfstæðisflokkinn. Það er eina tryggingin fyr- ir því, að vinstri stjórn sitji ekki áfram að kosningum loknum. GLUNDROÐINN Jóhann Hafstein: forystuafl og frjálshyggja A þjódháliðarárinu hvílir ábyrgðarleysi vinstri stjórn- arinnar eins og mara yfir ís- lenzkri þjöð. Einn vonarneisti er þó fyrir hendi. Hinn ein- stæði kosningasigur sjálfstæð- ismanna í byggðakosningunum síðustu glæðir vonir fólksins um festu, sem gæti bjargað. Traustið er á þrotum hjá al- menningi. Fólk gevmir nokkra kjötskrokka í frystikistum sín- um og annað smáræði, sem keypt hefur verið á níður- greiddu verði úr galtómum ríkissjóði. Allur þorri manna veit, að seinna kemur að skuldadögunum og hann verð- ur sjálfur að borga. Aldrei verða fjármunir til af engu eða þaðan af minna. Menn eru agndofa yfir þeirri ógæfu, sem ábyrgðarleysi vinstri stjórnarinnar hefur leitt yfir þjöðina. Vinstri stjórnin er ekki enn farin frá völdum. Framsókn heldur áfram að stjórna í skjóli kommúnismans, en stjórnarliðið hefur rétt fyrir neðan 40% af fylgi þjóðarinn- ar. Hér er ölíku saman að jafna og eftir alþingiskosningarnar 1971, er þáverandí forsætisráð- herra baðst lausnar þegar í stað fyrir sig og ráðuneyti sitt. eftir að úrslit kosninganna sýndu nokkurn minnihluta stjórnar- liðsins. Samtök frjálslyndra og vinstri manna höfðu verið stofnuð vegna þess að forystu- menn þeirra þekktu svik kommúnista og vissu að þeim var ekki treystandi. Samt sem áður voru þeir innan stundar komnir í ríkisstjórn með þeim. Gjalda þessi pólitísku samtök nú afhroð þessa ófyrirgefan- lega alvöruleysis. Hvað hefur gerzt? Góðæri hefur verið meira til lands og sjávar en nokkru sinni áður. Helztu sjávarafurðir hafa selzt jafnvel fyrir fjórfalt verð miö- að við það. sem áður var. Loðna hefur veiðzt í ríkara mæli en nokkru sínní áður og selzt til annarra landa fyrir þúsundir milljarða króna. Samt hafa rík- isskuldirnar tvöfaldazt á tveim- ur árum og útgjöld ríkissjóðs hafa þrefaldazt á örskömmum tíma. Verðbólgan I landinu er óskapleg, ein mesta í heimí og miklu meiri en við íslendingar höfum nokkru sinní áður þekkt. Hún er meira en fjórföld á við það, sem var í tíð Viðreisn- arstjórnarinnar, að meðaltali um heilan áratug, en mikinn hluta þess tímabils var stöðugt jafnvægi í verðlagi og kaup- gjaldi hér á landi. Hagur al- mennings fór sfbatnandi og við lifðum við hin beztu kjör. Við nutum öryggis í varnarmálum þjóðarinnar. Aföll dundu yfir þjóðina meiri en nokkru sinni áður, þegar útflutningsverðmæti þjóðarinnar féll um nærri því helmíng. Við þessum vanda var snúizt. Þjóðinni var sagt satt til um erfiðleikana, og hún treysti ríkisstjórninni, sem eín r I sjálf- stæðis- stefn- unni er varð að leysa vandann áður en lauk, þótt hún byði öðrum flokkum öllum upp á samstarf við sig um úrlausnarefni, en enginn vildi vera með og axla ábyrgðina jafnhliða ríkisstjórn- inni. Alþýðubandalagsmenn segja, að Viðreisnarstjórnin hafi ekki hirt um hagsmuni verkalýðsins í landinu. A þessum tima v.ar hið eftirminnilega júní-sam- komulag gert milli Alþýðusam- bands islands annars vegar og vinnuveitendasambands is- lands hins vegar og ríkisstjórn- ar islands. Það samkomulag kom í veg fyrir meiri kaup- hækkanir en gjaldþol atvinnu- veganna leyfði, en launþegar fengu i sinn hlut raunverulegar kjarabætur. Eðvarð Sigurðsson formaður Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar segir um Bjarna Benediktsson látinn: „Síðasta áratuginn urðu kvnni mín af Bjarna Bene- diktssyni meiri og persónu- legri. Þennan áratug hafa við- skipti ríkisstjórnar og verka- lýðshre.vfingar verið meiri en áður í sögu okkar, og allan tím- ann var Bjarni í fyrirsvari f.vrir ríkisstjórnina, fvrst sem nán- asti samstarfsmaöur Ólafs Thors og síðar eftirmaður hans í stöðu forsætisráðherra." Eð- varð Sigurðsson telur Bjarna Benediktsson hafa átt persónu- lega stærstan þátt í lausn vinnudeilunnar 1963 og gerð júní-samkomulagsins 1964. Viturleg stjórn fjármálanna reif hina litlu þjóð á örskömm- um tíma úr erfiðleikum áfalla- áranna 1967—68. A Landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 1969 gat formaður Sjálfstæðisflokks- ins og forsætisráðherra Bjarni Benediktsson gert grein fyrir því, að erfiðleikar þessarar litlu þjóðar væru hjá liðnir og nú væri aftur bjart framundan. Þegar árið 1970 gekk í garð, horfði mjög glæsilega i efna- hagsmálum þjóðarinnar. Út- flutningsverðmætin höfðu auk- izt, bæði vegna betri afla og hærra markaðsverðs og hins, að meiri breidd var komin í at- vinnulíf landsmanna. Stóriðja hafði haldið innreið sína og iðnaðurinn var að eflast til átáka og útflutnings. Sjálfstæð- ismenn fylgdu þeim boðskap, að til öryggis þyrfti athafna- og efnahagslíf þjóðarinnar að breikka grundvöll sinn með sköpun nýrra atvinnuvega sam- hliða eldri atvinnugreinum, og þannig yrði hver til styrktar an'narri. Þegar vinstri stjórnin tók við árið 1971, viðurkenndi hún einníg afdráttarlaust, að þjóðarbúskapurinn væri mjög góður, og liggja fyrir um það viðurkenningar forsætisráð- herra í Þingtíðindum. En nú er óvissan allt um kring og tjaldað til eínnar nætur. Fyrri loforð eru svikin svo ört, að ekki fær tölu á fest. Gengið er fellt og heldur stöðugt áfram að lækka, krónan verður æ minna og minna virði. Verkalýðssamtök- in eru hunzuð, hagur þeirra skertur, launasamningar van- virtir og helgustu heit rofin. Embættismenn vinstri stjórn- arinnar í Framkvæmdastofnun Íslands segja, að launahækk- anir séu að nafninu til langt umfram það, sem atvinnuveg- írnir geta staðið undir, og við blasi háskaleg verðbólguþróun, sem stefni atvinnuöryggi, láns- trausti þjóðarinnar erlendis og hagvexti í framtiðinni í hættu. i skýrslum Framkvæmda- stofnunarinnar er að finna þessa háskalegu lýsingu: „Varla er of fast að orði kveð- ið, þótt ástandið framundan sé nefnt „Hættuástand." Kjósendur verða aó kippa i taumana traustum tökum og ný forusta að taka við á sviði lands- málanna. Þess er hvergi að vænta nema af hálfu sjálfstæð- ismanna. Hinn einstæði sigur þeirra í byggðakosningunum má ekki verða minni i alþingis- kosningunum 30. júní. Þá mun aftur morgna þótt, átökin til viðreisnar þurfi að verða hörð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.