Morgunblaðið - 06.06.1974, Side 29
MOKGUNBLAfíIÐ, FIMMTUDAOUK 6. JUNI 1974
29
Skuggamynd i fjarska
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MARIU LANG,
PÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJONSDÓTTIR.
Sl. fimmtudaK var spiladur tví-
menniní'ur í Domus Mediea oj>
var spilart í þremur ridlum.
Úrslit í ridlunum urdu þessi:
24
þér . . . að hún hafi verió dáin þá?
— Það er mjög sennilegt, sagði
Christer hreinskilnislega. — Ég
las krufningarskýrsluna fyrr I
kvöld og þar er kveðið upp úr með
það, að hún hafi iátizt milli klukk-
an átta og ellefu á sunnudags-
kvöldið. Alls ekki fyrr og senni-
lega ekki eftir tíu, að því er sér-
fræðingar álíta. Og nú virðist frá-
sögn yðar af símhringinu yðar
staðfesta það.
. . . Má ég spyrja um
eitt. . . hvaðan hringduð þér?
— Héðan úr bókasafninu. Ég
kom hingað klukkan hálf tíu eða
rétt fyrir.
— Er einhver sem getur stað-
fest það?
— Ja, nú er það . . . Já
auðvitað. Ég skil . . . Ég tal-
aði bæði við Karl Gustaf
og Jan, sem voru hér. Við
sátum niðri í reykherbergi og
spjölluðum saman þangað til
klukkan var að verða tólf um
kvöldið.
— Og fyrir hálf tíu .. . hvað
gerðuð þér þá?
Eg fór í bíó. Ég hélt það myndi
róa mig. Eg fór að sjá „Hinn full-
komna glæp" í fimmta eða sjötta
skiptið ....
Hann þagnaði allt í einu og
horfði ráðvilltur á Christer, eins
og honum skildist að þetta hljóm-
aði dálítið svakalega í ljósi þess,
sem gerzt hafði og hann bætti
hraðmæltur við sem svar við
spurningu Christers:
— Nei, því miður . . . ég var ein-
samall f kvikmyndahúsinu.
Christer horfði rannsakandi á
hann, en sneri sér svo aftur að því
að spyrja hann um handritið.
— Segið mér, og án þess að
ýkja, hvaða máii skiptir það í
raun og veru ef þessi skjöl eru
horfin? Hvaða afleiðingar mun
það hafa í för með sér fyrir yður,
ef ekki tekst að hafa upp á þeim?
Pelle yppti öxlum mæðulega.
— Eg er ekki að segja að þessi
skjöl séu óbætanleg. Eg hef upp
kastið að þessu öllu og ef mér
gefst góður tími, get ég auðvitað
unnið þetta upp á nýtt. En þá
verður engin doktorsvörn á þessu
misseri... það og hvorki meira né
minna skiptir þetta fyrir mig.
— Og þér eruð mjög áfjáður í
að ljúka verkinu . . . á undan
Staffan Arnold?
Hann stökk upp.
— Hver I fjáranum hefur sagt
það?
— Ég hélt ekki að það væri
neitt launungarmál... En ég við-
urkenni að ég er ekki vel að mér í
þeim reglum, sem gilda hér í há-
skólanum. Skiptir það meginmáli
fyrir ykkur hvor verður á undan?
Pelle gekk fram og aftur um
gólfið og augu hans skutu gneist-
um.
— Þetta er leiðindamál, hvern-
ig sem á það er litið. Og ég get
ekki annað sagt en að Antonsson
prófessor hafði varað okkur við.
Það gerði hann sannarlega! En
við vorum vitlausir og þrjóskir og
athuguðum ekki, hvernig þetta
kæmi út f reynd . . . En nú standa
málin sem sagt svona! Staffan er
að skrifa um trúarlega þróun í lífi
Stagneliusar. Það er dálítið sér-
hæft efni, en getur orðið mjög
athyglisverð ritgerð. Ég valdi mér
annað svið sem grípur mjög inn í
ævi Stagneliusar, en i stuttu máli
sagt og svo öllum fræðilegum
athugasemdum sé sleppt, þá er
óhætt að fullyrða, að við getum
ekki komið f veg fyrir að við för-
um dálítið hvor inn á annars svið.
Þvi er það augljóst, að hann hefur
fengið forskot fram yfir mig, ef
hann verður fyrri til. Aðeíns
annar okkar — sá sem verður
fyrri til að leggja fram ritgerðina
getur gert sér vonir um lárviðar-
kransinn, hvað svo sem hin rit-
gerðin, sem á eftir kemur er merk
og mikilvæg. Og dósentsstaðan,
sem er að losan . . . er bara ein og
sama máli gildir um hana og rít-
gerðarspursmálið . . .
— Og dósentstaða . . . hvað felur
hún í sér? Eitthvað fleira en titil-
inn og heiðurinn?
— Ef ég á að vera fullkomlega
hreinskilinn, sagði Pelle hægt, þá
felur dósentsnafnbót allt það í
sér, sem bæði ég og Staffan erum
að keppa að. Viðurkennd staða
innan háskólans, sem við
sækjumst báðir eftir. Þaó myndi
auk þess vera trygging fyrir þvi
aó við gætum í framtíðinni sinnt
vísindastörfum okkar og losnaó
við peningaáhyggjur.
Nokkurra minútna þögn, eftir
að Pelle hafði lokið máli sínu.
Christer sagði hugsi:
— Og hafið þér nokkra hug- >
mynd um, hvar skjölin yðar gætu ■
verið niður komin?
— Nei. Mér finnst þetta satt |
bezt að segja algerlega óskiljan- .
legt. Eva var svo hirðusöm og ■
snyrtileg með allt, að það getur |
ekki verið að hún hafi giatað a
þeim.
— Hvað hafdið þér að Staffan I
Arnold sé mikið i mun að tefja j Magnús"og Steingrimui
fyrir yður og yðar doktorsvörn? .
— l'ja, . . . ég veit það ■
ekki .. . ég býst við það skipti |
hann verulega miklu máli . , . . (
A-riðill (16 para)
Arni Egilsson —
Cestur Jónsson
Éinar og Páll
Arni og Cuðmundína
B-riðill (10 para)
Ester Jakobsdóttir —
Þorfinnur Karlsson
Dröfn og Einar
25ö
251
251
127
124
122
— Svo miklu, að hann freistað- .
ist til að fremja morð .. . í þeim I
tilgangi. j
— Nei! Pelle hrökk í kút. — ■
Nei, það er hræðileg tilhugsun. J
Svo bætti hann við, en tálaði I
hægt, eins og honum væri þvert |
um geð að segja næstu orð: ,
— En það er staðreynd að •
Staffan Arnold hefur lagt undir |
sig fyrsta daginn í vormisserinu, |
þegar hægt er að dispútera. Ef ■
honum tækist að koma í veg fvrir i
að ég lyki minni ritgerð fyrir jól, |
myndi hann, þegar allt kæmi til I
alls verða á undan mér . . . Hann "
bætti við og gætti ofsa í rödd
hans:
— Þetta er svo fjári klúðrað og
leiðinlegt .... allt . . .
Og meira sagði Pelle ekki að svo I
stöddu. I
C-riðill (10 para)
Bernharður Cuðmundsson —
Tr.vggvi Cislason ■ 121
Cuðmundur og Haukur 119
Jónína og Hannes 118
Kafn og Þorsteinn 118
Næsta spilakvöld verður í
kvöld. Stjórn TBK biður þá
spilara, sem fara til Huddersfield
á vegum félagsins, að mæta á
þetta spilakvöld.
—o—
Nýlega er lokið
Islandsmóti i
Sá sem næstur sat i stólnum var
í öllu alger andstæða Pelles. Pelle
VELVAKArSJOI
Velvakandi svarar I slma 10-100
kl. 10.30 — 1 1 30, frá mánudegi
til föstudags
% Antíkmunum
úr eir stolið
úr sumarbústað
Bjartsýnismaður kom að
máli við Velvakanda og bað um að
eftirfarandi bréf hans yrði birt:
„Fyrir þremur vikum var brot-
izt inn í sumarbústað hér í ná-
grenni Reykjavíkur og stolið
þaðan hrosshúð og mörgum fá-
gætum munum úr kopar, svo sem
nærri 200 ára gömlum tepotti með
glóðarkeri (úr eir), þremur vegg-
skjöldum (tveir þeirra með af-
steypum af verkum eftir Thor-
valdsen, nótt og dagur, og sá
þriðji með atriði úr Rómeó og
Júliu), blómapottafati, svokall-
aður „jardenier", tveimur kopar-
dollum með loki, blómavasa og
lampa úr kopar, — enn fremur
koparklukku.
Telja má víst, að vandamenn
þeirra, sem verknaðinn frömdu,
hafi orðið varir við þessa muni, en
viti ekki hvernig til hefur tekizt.
Er þess vænzt, að þeir vilji stuðla
að því, að þeim verði skilað þegar
þetta er upplýst. Er þvi heitið, að
ekki verði frekar að gert ef mun-
unum verður skilað aftur á sinn
stað, eða tilkynnt um þá i bréfi,
merktu: Kopar, postrestante.
Þetta er í sjötta sinn, sem brot-
izt er inn I þennan sumarbústað
og stolið þaðan verðmætum. Næst
siðast var stolið þar hrosshúð og
ýmsum útsaumi, koddum o.fl.
Það er leitt til þess að vita, að
ekki skuli vera unnt að eiga verð-
mæti í bústöðum, og það þótt
vandlega sé falið.
Slikir þjófstolnir munir geta
ekki fært neina ánægju í daglegri
umgengni við þá, því þeir hljóta
alltaf að minna á hvernig þeir eru
til komnir.
Bjartsýnismaður.“
Nú eru ekki nema nokkrir dag-
ar, síðan hér var minnzt á innbrot
i sumarbústað við Elliðavatn,
þannig að vera má, að sami aðili
hafi verið á ferðinni í báðum þess-
um tilvikum. Sá, sem þar fór,
hafði sama smekk, að þvi er virð-
ist, a.m k. hafði hann eða hún á
brott með sér muni úr kopar og
eir.
Velvakandi ætlar ekki að fara
að setja sig í neinar leynilöggu-
stellingar, en bendir þeim á, sem
höndla með kopar, að hafa hjá sér
augu og eyru, því að varla getur
sá fingralangiætlað að stilla upp
dóti þessu i stofunni hjá sér.
% Konur á
frambodslistum
Sigríður Kristinsdóttir á Eski-
firði hringdi og óskaði til ham-
ingju með sigurinn í kosningun-
um sælu. Jafnframt vildi hún
koma þvi áleiðis, að hún væri
óánægð með það hversu fá.ar
konur væru í framboði.
Fórust henni svo orð m.a.:
„Við erum helmingur kjósenda,
en við verðum að gera okkur
gæin fyrir þvi, að við fáum ekk-
ert fram, nema við gerum kröfur.
Við verðum að gera það að bar-
áttumáli, að miklu fleiri konur
skipi sæti á framboðslistum en nú
er. Þetta er ekki kvenréttinda-
mál, heldur mannréttindamál."
Sigrlður sagði líka þau tlðindi,
að konur i nágrenni við hana
þarna fyrir austan hefðu verið
komnar á fremsta hlunn með að
bjóða fram sérstakan kvennalista,
en því miður hefði það ekki verið
hægt vegna ferminga og ýmissa
anna heima fyrir.
Þá sagðist hún sjálf bæði hafa
fengizt við sjávarútveg og rekið
verzlun um árabil, og hefði hún
aldrei orðið þess vör, að slíkt væri
erfiðara fyrir kvenfólk en karl-
menn.
Að lokum sagðist hún skora á
kvenfólkið að sækja nú fast fram
og láta ekki sinn hlut fyrir karl-
mönnum.
0 Samkeppni verdur
aö vera á
jafnréttisgrund-
velli
Það færi betur að fleiri kon-
ur væru slíkir skörungar sem Sig-
ríður, en vitaskuld verður öll sam-
keppni að vera á jafnréttisgrund-
velli.
Alþýðubandalagið virðist t.d.
hafa tekið þá stefnu að setja
konur i svo að segja annað hvert
sæti á listum sínum, a.m.k. i
sumum kjördæmum. Þetta þykir
sumum alveg óskaplega sniðugt,
enda þykir þetta gott áróðurs-
bragð víðar en hér. Hreinir
kvennalistar hafa jafnvel náð um-
talsverðum árangri sums staðar,
en ekki hefur þess orðið vart, að
þjóðfélagið hafi tekið stakka-
skiptum þess vegna.
Það er nefnilega ekki nóg að
segja, að konur séu menn, — það
má ekki gleyma því, að menn eru
menn.
Æskilegt væri, að kvenfólk yrði
jafnvirkt á vettvangi stjórnmál-
anna og karlmenn, en áreiðanlega
yrði ekki til bóta, ef einhver alls-
herjar kvennahystería að þessu
leyti færi að magnast upp,
þannig, að kvenfólk kysi jafnvel
ekki nema kvenfólk. Þá sætum
við uppi með kynferðisstyrjöld og
enn meiri togstreitu en nú er.
% tJtundan
í áróðrinum
Uúsmóðir i Vesturbænum,
nánar tiltekið við Bræðraborgar-
I
samband við Velvak- |
stlg, hafði
anda.
Hún sagðist hafa heyrt mikið
talað um kosningaplögg ýmiss
konar, sem send voru út fyrir
kosningarnar um daginn, en hins
vegar hefði hún ekki fengið sent
frá neinum nema Framsóknar-
flokknum. Hún sagðist vilja
benda á það, að i Vesturbænum
væru áreiðanlega til óákveðnir
kjósendur, ekki síður en I Breið-
holti, en svo virtist sem allir
flokkar hefðu haft mestan áhuga
á að næla sér I atkvæðin I Breið-
holtinu.
Mæltist hún til þess. að Vestur-
bæingar yrðu ekki afskiptir hvað
snerti kosningaáróður fyrir kosn-
ingarnar siðast I þessum mánuði.
En þarna kom sem sagt að því,
sem Velvakandi hélt að hann ætti
ekki eftir að upplifa — framboð á
kosningaáróðri annar ekki eftir-
spurninni.
En — útúrsnúningalaust — hér
með er þessari ábendingu beint
til gamalla og gróinna flokka, en
ekki síður nýgræðinga og saman-
soðinna flokka og flokksbrota.
einmenningskeppni og sigraði
Stefán Guðjohnsem frá Bridge-
félagi Reykjavíkur.
Röð og stig efstu manna var
þessi:
Stefán Cuðjohnsen 219 stig
Karl Sigurhjartarson 214 stig
Bragi Erlendsson 211 stig
Helgi Benónýsson 210 stig
Þórarinn Sigþórsson 209 stig
G.vlfi Baldursson 209 stig
Einmenningskeppmn var jafn-
framt firmakeppni Bridgesam-
bands íslands og í henni sigraði
MORCUNBLADIÐ. en fyrir það
spilaði Bragi Erlendsson.
Röð og stig efstu firma var
þessi:
Morgunblaðið 122 stig
(Bragi Erlendsson)
Málning h.f. 115 stig
(Stefán Guðjohnsen)
Þórarinn Sigþórsson.
tannl. 112 stig
(sjálfur)
Atlantis h.f. 112 stig
(Jósep Sigurðsson)
Sápuverksm. Mjöll h.f. 112 stig
(Kristján Cuðmundsson)
Litavers.f. 111 stig
(Bragi Björnsson)
Bridgesamband Islands þakkar
hinum fjölmörgu aðilum. sem
st.vrktu firmakeppnina með fjár-
framlögum og starfi.
A.G.R.
83^ SlGeA V/öGA í *Í/LVE^W
MUNOIÍ&O GE.PA MER SAUMA- VÉL EP VÚ YNN\9, STÆ.RSTA Y\NN/N6\NN \ VWPDRÆfT/NO? ® F
fí l / ír^
INÚMUNAÐ/ Mióuil XV
jSkólaslit á
j Patreksfirði
■ Patreksfirði, 31. mai.
J TONLISTARSKOLA V-Barða-
I strandarsýslu var slitið með nem-
| endatónleikum á Patreksfirði 19.
Iþ.m. Þetta var fimmta starfsár
skólans og að þessu sinni stund-
| uðu 59 nemendur nám þar. en
i starfræktar voru 3 bekkjardeild-
I Ír’
I Kennarar t vetur voru 5 talsins,
| kennt var á píanó. orgel og ýmis
■ blásturshljóðfæri. Skólastjóri er
* Ólafur Magnús Einarsson.
Barna- og miðskóla Patreks-
| fjarðar var slitið sl. laugardag.
■ 235 nemendur voru I skólanum i
* vetur I 9 bekkjardeildum auk
I þess sem landsprófsdeild var við
| skólann.
s Hæstu einkunn I 6. bekk hlaut
Magnea Svavarsdóttir. Skólastjóri
er Davíð Ingimundarson.
Páll.