Morgunblaðið - 06.06.1974, Síða 30
30
MOKGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDACIUK 6. JUNI 1974
| ÍMiliTIAHIEITIIi MBBMBLABSIIIIS
Sparkað í
fyrri hálfleik
en spilað í
þeim síðari
Fratn — Víkingur 1:2
Þaö var ekki burðug knattspvrna sem Víkingur og
Frain sýndu í fvrri hálfleik í leik liðanna í fvrrakvöld.
Víkingar voru slakari þar sem þeir gerðu lítið annað en
sparka knettinum án þess að hugsa nokkurn skapaðan
hlut um hvert knötturinn færi. Framarar revndu að vísu
að spila, en barátta Víkinga — það eina jákvæða við leik
liðsins í fvrri hálfleiknum — stöðvaði flestar tilraunir
í>amliðsins í f-^ðingu.
í síðari hálfleiknum snerist dæmið nokkuð við. Leikur
Víkinga varð inun jákvæðari, þeir héldu sömu baráttu,
gáfu Frömurum engan frið og fundu loks leiðina til
samherjanna. Framarar máttu sín lítils því í þá vantaði
allt bit og svo fór að Víkingar hirtu bæði stigin, unnu
2:1. Sanngjarn sigur og mörk Víkinga með eindæmum
glæsileg.
Framarar sitja nú einir eftir á
botni 1. deildarinnar með aðeins
eitt stig eftir þrjá leiki. Vikingar
skutust hins vegar upp í efri
hluta deildarinnar og hafa nú
hlotið 3 stig eftir 3 leiki. Hvort
áframhald verður á þessari stiiðu
liðanna í deildinni er erfitt að
segja. Víkingar léku mun betur í
þéssum leik en gegn KR á dögun-
um. einkum f síðari hálfieiknum.
Framarar voru hins vegar alveg
máttlausir í þessum leik og léku
ver en gegn Val í síðustu viku.
Vissulega býr meira í Framliðinu
en stigatalan gefur til kynna, en
meðan framlínan er ekki beittari
en raun ber vitni og vörnin gerir
sig seka um mistök eins og í
síðustu leikjum verður tæpast
mikil breyting á.
Talaðu við
mig eftir
þrjá leiki
J ÞAÐ VAR þungt hljóðið í
■Marteini (leirssyni, einum
sterkasta leikmanni Fram, er
við ræddum við hann að lokn-
um ieik Víkings og Fram. —
Það er eitthvert slen yfir okk-
ur um þessar mundir, hefðum
við haft baráttu Víkinganna,
hefðu úrslitin orðið önnur,
sagði Marteinn. — Það er þó of
snemmt að aískrifa okkur
strax, við eigum eftir að ná
okkur vel á strik. Talaðu við
mig eftir þrjá leiki.
Anthonv Sanders þjálfari
Víkinga var ánægður með sína
menn, sagði að þeir hefðu leik-
ið eins og þeir áttu að gera. —
Þeir börðust allan tímann og
gáfu hinum sterku andstæð-
ingum aldrei frið, sagði
Sanders. — Þeir sýndu
Víkingsaðdáendum að þeir eru
ekki aðeins spilarar, heldur
einnig góðir spilarar.
Gullskalii
grískustúdentsins
Fyrri hálfleikur leiks Víkings
og Fram verður bezt afgreiddur
með því að minnast ekki einu orði
á hann. Þó tókst Víkingum að
hluta að framfylgja því, sem
þjálfari þeirra hafði farið fram á,
þeir gáfu Frömurum engan frið
og gæzla bakvarðanna á þeim
Guðgeiri og Asgeiri var góð.
Aðeins eitt umtalsvert tækifæri
kom í hálfleiknum. Það kom á 43.
minútu. Marteinn Geirsson ætlaði
að senda knöttinn til markvarðar
Fram, Árna Stefánssonar. Ekkí
tókst betur til en svo að engu
munaðí að knötturínn svifi yfir
Arna og í mark Framara og það
var aðeins snilldarmarkvarzla,
sem kom i veg fyrir sjálfsmark.
Strax í upphafi seinni hálfleiks-
ins lifnaði yfir leiknum og fljót-
lega komst Ásgeir Elíasson í
ákjósaniegt marktækifæri eftir
góða fyrirgjöf Kristins Jörunds-
sonar. Asgeiri tókst. þó ekki að
skora, skot hans af stuttu færi fór
yfir markið.
Það hafði ekki farið mikið fyrir
Kára Kaaber í þessum leik', en á
12. mínútu minnti grískustúdent-
inn í Víkingsliðinu rækilega á, að
hann var með í leiknum. Eirikur
gaf fyrir Frammarkið frá hægri,
Kári hljóp á fullri ferð frá víta-
punkti í átt að stönginni nær og
við markteiginn stökk hann upp
og hamraði knöttinn í netið. 1:0
fyrir Víking og ekki fyrsta skalla-
markið sem hinir sterku miðverð-
ír Fram fá á sig á sumrinu, t.d. tvö
á móti Val og 1 gegn KR í Reykja-
víkurmótinu.
Þruma úr
heiðskíru
Næstu tvö tækifæri áttu
Framarar. Fyrst fylgdi Rúnar vel
eftir lengri sendingu fram völlinn
og náði að skjóta, en Diðrik
bjargaði með góðu úthlaupi. A 25.
mínútu hálfleiksins gerðu
Framarar enn á ný harða atlögu
að marki Víkings og í netinu lenti
knötturinn eftir skalla Ágústs
Guðmundssonar. Markið var þó
Markaskorarar Víkings f baráttu upi knöttinn vió hinn baráttuglaða Gunnar Guðmundsson tengilið
Framara. Gunnar Örn er vinstra megin á myndinni og Kári Kaaber til hægri.
Texti: Ágúst I. Jónsson
M.vndir: Ragnar Axelsson.
Snorri Hauksson hefur leikið
með Framliðinu í síðustu leikjum
og staðið sig vel.
dæmt af þar sem tveir Framarar
voru rangstæðir á marklínunni.
Hve.rt tækifærið rak nú annað,
Kári komst einn inn fyrir, en skot
hans var varið, Guðgeir átti
þrumuskot að Vikingsmarkinu,
en Diðrik var vel á verði. Á 35.
mínútu kom svo annað mark
Víkinga — sannkallað glæsimark
og þar sem nú er við lýði að kenna
atburðí við ár eða öld er ekki úr
vegi að kalla markskot Gunnars
Arnar skot ársins.
Dæmd var aukaspyrna um 30
metra frá Frammarkinu og Gunn-
ar Örn Kristjánsson, fyrrverandi
fyrirliði unglingalandsliðsins,
framkvæmdi aukaspyrnuna og í
fáum orðum sagt sendi hann
knöttinn með þrumuskoti rakleið-
is í vinkilhornið hægra megin.
Framarar höfðu ekki stillt upp í
varnarvegg, hugsuðu meira um að
gæta leikmanna Víkings og stað-
an var orðin 2:0 fyrir Víking.
Munurinn minnkaður
Framarar voru þó ekki með öllu
úr sögunni í þessum leik. Síðustu
mínúturnar sóttu þeir nokkuð og
á 87. mfnútu bar sókn þeirra ár-
angur. Diðrik varði vel skot Fram-
ara, en hélt ekki knettinum, sem
rann fyrir fætur Kristins Jör-
undssonar þar sem hann var í
dauðafæri. Til að forða marki
henti Diðrik sér fyrir fætur Krist-
ins og stöðvaði hann á þann veg.
Það var þó skammgóður vermir.
Dæmd var vítaspyrna, sem Mar-
teinn Geirsson notaði til hins ýtr-
asta,2:1.
Sterkir varnarleikmenn
Víkingar léku seinni hálfleik
þessa leiks nokkuð vel og eru
greinilega að finna sig á grasinu,
sem þeir hafa aðeins æft á í þrjár
vikur. Beztu menn liðsins að
þessu sinni voru varnarmennirn-
ir, með bakverðina Magnús og
Eirík, ásamt Diðrik í markinu,
sem sterkustu menn.
Af Frömurum ber helzt að
nefna Guðgeir, Snorra og Ágúst,
en það verður þó að gera með
fyrirvara. Þessir leikinenn léku
vel ef á heildina er litið, en gerðu
sig allir seka um mistök á milli.
í stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Laugar-
dalsvöllur 4. júní.
Fram — Víkingur 1:2
Mark Fram: Marteinn Geirsson á
88. minútu
Mörk Víkings: Kári Kaaber á 57.
mín og Gunnar Ö. Kristjánsson á
77. mín.
Áminning: Engin
Ahorfendur: 942
Dómari: Þorvarður Björnsson
komst ekki illa frá leiknum, en þó
var yfirferð hans með minnsta
móti.
LIÐ FRAM: Árni Stefánsson 2, Ágúst Guðmundsson 3, Hlöðver
Rafnsson 1, Marteinn Geirsson 2, Jón Pétursson 2, Snorri Hauks-
son 3, Gunnar Guðmundsson 2, Guðgeir Leifsson 3, Kristinn
Jörundsson 2, Rúnar Gíslason 1, Ásgeir Elíasson 1, Atli Jósafats-
son 1 (varam.).
LIÐ VlKINGS: Diðrik Olafsson 3, Eiríkur Þorsteinsson 3,
Magnús Þorvaldsson 3, Páll Björgvinsson 2, Jón Olafsson 2,
Gunnar Gunnarsson 2, Þórhallur Jónasson 2, Gunnar Örn Krist
jánsson 3, Hafliði Pétursson 1, Kári Kaaber 1, Jóhannes Bárðar-
son 2, Bjarni Gunnarsson 1 (varam.), Oskar Tómasson 1 (vara-
m.).
Þróttur heppinn
að ná jöfnu gegn
Isfirðingunum
ÞRÖTTARAR eru af mörgum
taldir Hklegir til sigurs í 2.
deildinni í knattsp.vrnu I sum-
ar, en þeir mega svo sannarlega
taka á honum stóra sínum ef sú
spá á að rætast. Þeir hafa nú
leikið þrjá leiki, mörðu Ilauka,
voru heppnir með jafntefli
gegn Breiðahlik og íiyrrakvöld
máttu þeir þakka fyrir jafntefli
gegn Isfirðingum, sem hafa
hvorki verið fugl né fiskur það
sem af er sumrinu.
Leikur Þróttar og tBt fór
fram á Isafirði og lauk honum
án þess að mark væri skorað.
Framan af sóttu Þróttarar
meira, án þess að skapa sér
marktækifæri. I seinni hálf-
leiknum voru tsfirðingarnir
hinir sprækustu og áttu þá þrjú
gullin marktækifæri, en Þrótt-
arar döpruðust að sama skapi.
Jón Þorbjörnsson markvörður
Þróttar varði mjög vel tvívegis
í s.h. eftir að Isfirðingar höfðu
komist einir inn f.vrir og einu
sinni nötraði mark Þróttareftir
þrumuskot í þverslá. En kvött-
urinn vildi ekki inn og 0-0 jafn-
tefli því úrslit leiksins.
Heimamenn voru mjög
ánægðir með leik sinna manna
og sögðu liðið hafa staðið sig
betur nú en f langan tíma.
Beztu menn liðs tBt voru
bræðurnir Tryggvi og Hörður
Sigtryggssynir. Af Þrótturum
stóð Jón sig vel í markinu, en
úti á vellinum bar mest á
Gunnari Ingvarssyni.
SS.