Morgunblaðið - 27.06.1974, Síða 10
VESTURLANDSKJÖRDÆMI SÓTT HEIM
o o -
Bretar fá tveggja ára
aðlögun en við enga
r
— segir Arni Emilsson, sveitarstjóri í Grundarfirði
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JUNt 1974
Hj6nin f Belgsholti, Anna Þorvarðsdóttir og Magnús Ölafsson
„Já, næst tökum við fyrir 10
hektara í viðbót. Forvinnan er
búin og við ætlum að sá í sumar.
Annars fer dýrtíðin illa með
okkur. Maður fer ekki heldur var-
hluta af því, að það er erfiðara að
fá fyrirgreiðslu í bönkunum en
'aður. Ríkisstjórnin hefur stöðvað
þar eins og annars staðar, en hún
getur ekki stöðvað grasið i að
vaxa svo ég er nú frekar kátur.
Annars tel ég, að þótt áburðurinn
sé orðinn dýr þá sé ennþá dýrara
fyrir bændur að kaupa hann ekki
eða spara þar of við sig. Ef menn
vanfóðra túnin, þá verða þeir
einnig að vanfóðra skepnurnar og
þá éta þeir sig niður. Allt verður
þetta að vera í jafnvægi og þannig
þyrfti það einnig að vera hjá
ríkisstjórninni, en þar virðast það
nú bara vera vitleysurnar sem
eru í jafnvægi. Ég tel það lika eitt
af meginvitleysunum að sekta
fólk fyrir að vinna að verðmæta-
aukningu og öflun eins og gert er
í landinu í dag. Það á að ýta undir
fólki í þessu efni, ekki refsa því
með ríkjandi skattpíningu og
óvissu í efnahagsmálum."
Er mikið byggt f Grundarfirði?
— Það hefur verið mikil upp-
bygging á vegum frystihúsanna
og hreppurinn stefnir að þvf að
gera barnaskólann kláran fyrir
haustið. Þá liggja fyrir ftarlegar
áætlanir um hafnargerð þær
fyrstu fyrir Grundarfjörð, en á
fjárlögum í ár fengum við 18,5
milljónir til hafnargerðar.
Þá munum við fagna nýjum
skuttogara á þessu ári og 150
tonna fiskiskipi, sem verða í eigu
einstaklinga eins og öll önnur út-
gerð í Grundarfirði.
Ertu ekki ánægður með sveitar-
stjórnarkosningarnar?
Jú, við endurheimtum hreinan
meirihluta með 52% atkvæða og
fengum 3 menn kjörna af 5, en
vorum með 2 áður. Ég er þvf
bjartsýnn fyrir þing-
kosningarnar. Við eigum baráttu-
glatt lið, sem einkennist af ungu
fólki. Ef ekki er við góðu að búast
frá þeim, er einskis góðs að
vænta. En straumurinn liggur til
Sjálfstæðisflokksins.
„Vitleysurnar eina jafn-
vægi ríkisstjórnarinnar”
Rabbað við Magnús
bónda í Belgsholti
Magnús Öiafsson bóndi f Belgs-
holti f Melasveit var f heyönnum
ásamt sfnu heimafólki, þegar okk-
ur bar að garði, svo við sáum
okkur óvxnna og tókum til hend-
inni við hirðinguna. Umandi
graent heyið kom f strókum út úr
heyblásaranum og lagðist á sinn
stað f hlöðunni.
Magnús keypti jörðina árið
1950 ásamt skeppnum, en þá voru
þar 8 kýr og 600 hænsni. Nú rekur
hann þarna stórbúskap með 60
mjólkandi kýr og eitthvað af geld-
neytum.
„Það er mikil vinna að sinna
svona búi,“ sagði Magnús, „en við
erum með þetta dálftið fullkomið
og notum tæknina til að létta
undir. Við mjólkum t.d. f sérstöku
mjaltafjósi í mjaltagryfju þar sem
maður stendur við verk sitt og
kýrnar ganga sitt hvorum megin
við gryfjuna. Það er því mjög
handhægt og fljótlegt að setja
tækin á þær til að mjólka og hitt
er svo allt sjálfvirkt.“
I Belgsholti byrja þau daginn
yfirleitt um sjöleytið og vinna
hefst upp úr 8.
„Þetta hefur verið upp-
byggingarstarf hérna hjá okkur,"
sagði Magnús, „en tveir menn
nægja nú til daglegrar vinnu. Við
erum núna búin að hirða f hlöðu
um 25 kýrfóður, en það er um það
bil 1/3 af því, sem við þurfuin til
að vera ðrugg.“
Þegar Magnú® hóf þarna
búskap voru ræktuð tún um
12—15 nektarar, en nú eru
ræktuð tún milli 70 og 80
hektarar, svo Ijóst er, að ekkert
hefur verið gefið eftir.
„Starfið gefur lffinu gildi,"
sagði bóndinn, „það er nú lfkast
til. Þetta eru allt saman
hjúkrunarstörf, sá til grasa og sjá
þetta síðan verða grænt og skila
árangri. Maður nær ekki árangri
nema að leggja alúð við þetta.“
,,/Etlarðu enn að auka
ræktunina?"
Við ræddum við Arna
Emilsson, sveitarstjóra f
Grundarfirði, og spurðum hann
um atvinnu þar.
— Það hefur orðið skyndileg
breyting á atvinnuástandi f
Grundarfirði, sagði Árni, vegna
þess að sjómenn telja sig ekki
geta gert út vegna þeirrar hólfa-
skiptingar, sem rfkir á Breiða-
firði. Þeir hafa sent óskir til
sjávarútvegsráðherra um, að
hólfaskiptingum verði breytt, en
hafa ekkert svar fengið, en við
vonum að þessu verði breytt. Það
yrði uggvænlegt ástand, ef frysti-
húsin fengju ekki fisk, þá er ekki
að spyrja að leikslokum.
Hvað fellur ykkur ekki við
hólfaskiptinguna?
— Með henni er sumsstaðar á
Breiðafirði bannað að veiða með
botnvörpu og dragnót.
Grundfirzku bátarnir eru flestir
50 til 100 lestir að stærð og geta
því ekki veitt með annars konar
veiðarfærum og hafa ekki önnur
veiðisvæði. Okkur finnst undra-
Frá Valshamri í Alftaneshreppi, en þar eru heimamenn að hefja
byggingu nýs fbúðarhúss.
„Æskilegast, að Sjálfstæðisflokkurinn
f engi hrein an meirihlut a? ’
vert, að á meðan okkur er enginn
kostur gefinn á aðlögunartíma, fá
Bretar 2 ár til að aðlaga sig.
Náttúrlega er fjármálastjórnin
þar mesta svívirðan. Þessi ríkis-
stjórn hafði mestu möguleika,
sem nokkur ríkisstjórn hefur haft
til þess að byggja upp traustan
fjárhag, en eins og allir vita
byrjuðu þeir á því að spreða
peningum úr öllum sjóðum og
þótt þeir tæmdust voru þeir ekki
á þvf að skammast sín og hætta,
nei, þá fóru þeir bara út í það að
taka erlend lán.
Stjórnarathafnir vinstri flokk-
anna eru svo aumar og aulalegar
að það er eiginlega ekki hægt að
tala um það í alvöru. En það er þó
ekkert nema bláköld alvaran, sem
bitnar að lokum á öllum landslýð.
Stjórnendur vinstri flokkanna,
þessara flokka, sem trúa á draum-
órapólitík, virðast ekki gera sér
grein fyrir gangi fjármála og at-
hafna. Þeir geta því ekki stjórnað
betur en raunin hefur orðið á hjá
þeim tveimur vinstri stjórnum,
sem við þekkjum. Þeir hafa siglt
öllu f strand og við skulum vona
þjóðarinnar vegna að sjálfstæðis-
menn taki við stjórnartaumun-
um.“
§
ir, sem hafa leyst út vöru sína,
ekki náð henni út úr vörugeymsl-
um fyrr en eftir marga daga
vegna þess hve mikið hleðst f
vörugeymslurnar. Þetta háir
okkur á ýmsum sviðum, en hefur
ekki stöðvað okkur ennþá. En ef
ekki rætist úr munum við
stöðvast innan skamms."
„Hvaða verkefni liggja fyrir
hjá ykkur núna auk blokkar-
fnnar?“
„Við erum að steypa upp
dvalarheimili aldraðra, en því eig-
um við að skila í marz—aprfl n.k.
uppsteyptu. í þessum hluta er
reiknað með 32 vistmönnum, þá
erum við einnig að smfða viðbót
við, heimili aldraðra í Borgarnesi
og eitt og annað er á könnunni."
„Hvernig Ifzt þér á landmála-
stöðuna?“
„Ekki er hún gæfuleg eins og
hún er, en víð verðum að vona að
hún batni við breytta stjórn eftir
kosningarnar, því breyting hlýtur
að vera. Æskilegast væri, að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi hreinan
meirihluta svo hægt væri að sýna
hvað sá flokkur getur gert án þess
að vera bundinn einhverjum laus-
látum og dyntóttum vinstriflokki.
Af nógu er að taka í óstjórninni.
„Við byggjum mest á
Akranesi," sagði Gísli, „en einnig
vinnum við í Borgarnesi og víðar
og svo vinnum við til dæmis
ákveðna hluti fyrir Aton og ösp f
Stykkishólmi."
Akur er nú búinn að byggja 3
f jölbýlishús, 12 íbúðir í hverju, og
nú eru þeir að hefja byggingu
f jórðu blokkarinnar.
„Vonandi heldur þessi þróun
áfram," sagði Gísli, „en nú er
farið að gæta skorts á ýmsum vör-
um í byggingariðnaðinum, vöru.rn,
sem innflytjendur treysta sér
ekki til að leysa út vegna 25%
frystigjaldsins. Einnig hafa ýms-
Gfsli Sigurðsson verkstjóri hjá
Trésmiðjunni Akri á Akranesi
sagði, að reksturinn gengi ágæt-
lega. Það væri nóg að gera alls
staðar á þessum tfma, en ekki var
hann eins ánægður með yfir-
vofandi vöruskort. A þessum tfma
vinna 64 hjá Akri. Þar af cru 35
smiðir og lærlingar. cn talsvert af
skólafólki vinuur hjá þeim á
sumrin.