Morgunblaðið - 27.06.1974, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JUNl 1974
A
Borgfirðingar
Mýramenn
Baráttuhátið verður í Borgar-
nesbiói föstudagskvöldið 28.
júní.
Ávörp:
Jón Sigurðsson,
Ófeigur Gestsson, og
Árni Emilsson.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Hljómsveitin Nafnið leikur
fyrir dansi.
F.U.S. Mýrasýsla.
Vestfjarðarkjördæmi
Flateyri
D-listinn efnir til almenns stjórnmálafundar í samkomuhúsinu á Flateyri
fimmtudaginn 27. júní n.k. kl. 20.30.
Ræður og stutt ávörp flytja Þorvaldur Garðar Kristjánsson fyrrv.
alþingism., Sævar Guðjónsson form. Neista FUS, I V-Barð., Sigurður
Grimsson, ísafirði, Jens Kristmannsson bæjarfulltrúi ísafirði, Pétur
Sigurðsson fyrrv. alþingismaður Reykjavík, Guðmundur Agnarsson
skrifst.m. Bolungarvik, Sigurður Guðmundsson, símstjóri Bildudal,
Kristján Kristjánsson tæknifr. ísafirði.
Fundarstjóri verður Einar Oddur Kristjánsson framkv.stj. Flateyri.
Fjölmennið á fundinn og eflið sókn sjálfstæðismanna til sigurs
ísafjörður
D-listinn efnir til almenns stjórnmálafundar í Sjálfstæðishúsinu 27. júni
kl. 20.30.
Ræður og stutt ávörp flytja Geir Hallgrimsson form. Sjálfstæðisflokks-
ins, Matthias Bjarnason fyrrv. alþingismaður, Guðmundur B. Jónsson
vélsmiðameistari Bolungarvík, Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur, Jó-
hannes Árnason sýslumaður Patreksfirði, Högni Þórðarson útibússtjóri
ísafirði, Ólafur Kristjánsson skólastjóri Bolungarvik.
Fundarstjóri verður Jón Páll Halldórsson framkv.stjóri (safirði.
Fjölmennið á fundinn og eflið sókn sjálfstæðismanna til sigurs.
Vestfjarðakjördæmi
Hólmavík
D-listinn efnir til almenns stjórnmálafundar i félagsheimilinu Hólmavik
laugardaginn 29. júní n.k. kl. 4 e.h.
Ræður og stutt ávörp flytja Matthias Bjarnason fyrrv. alþingismaður,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson fyrrv. alþingismaður, Ingi Garðar
Sigurðsson tilraunastjóri Reykhólum, Jóhanna Helgadóttir húsfrú
Prestbakka, Sveinn Guðmundsson bóndi Miðhúsum, Reykhólasveit,
Sjöfn Ásbjörnsdóttir kennari Hólmavik, Guðmundur H. Ingólfsson,
bæjarfulltrúi ísafirði.
Fundarstjóri verður Kristján Jónsson simstjóri Hólmavik.
Fjölmennið á fundínn og eflið sókn sjálfstæðismanna til sigurs.
Blönduós — Húnvetningar
Almennur stjórnmálafundur verður i félagsheimilinu Blönduósi, föstu-
daginn 28. júni kl. 21.
Ræðumenn verða Gunnar Thoroddsen, Pálmi Jónsson og Friðrik
Sophusson.
s.u.s.
Kópavogur
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi er boðað til fundar fimmtu-
daginn 27. jún! kl. 20.30 i Sjálfstæðishúsinu við Borgarholtsbraut.
Fundarefni: Alþingiskosningar
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi koma á
fundinn.
STJÓRNIN.
Keflavík
skrifstofa sjálfstæðisflokksins, í Sjálfstæðishúsinu er opin daglega frá
kl. 14 — 1 8 og 20 — 22, siminn er 2021.
Stuðningsfólk hafi samband við skrifstofuna simleiðis, eða komið i
sjálfstæðishúsið.
Kosningahátíð D-listans
Sjálfstæðisflokkurinn i Hveragerði gengst fyrir kosningahátið i Hótel
Hveragerði föstudaginn 28. júni kl. 20.30.
Dagskrá: Tizkusýning. Módelsamtökin i Reykjavik sýna nýjustu sumar-
tizku.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Frambjóðendur D-listans á Suðurlandi flytja ávörp.
Jón Tryggvason leikur fyrir dansi.
Allir velkomnir.
D-listinn
Reykjaneskjördæmi
Upplýsingasimar á kjördag:
Garða og Bessastaðahreppur: 42739.
Gerðahreppur: 92-71 24.
Grindavíkurhreppur: 92-8148.
Hafnarfjörður: bilasimar 50228 og 53727,
kosningastjórn 53725, kjörskrá og starfsfólk 53726.
Hafnarhreppur: Jósep Borgarson 92-6907
Keflavík: bilasimi 92-3050, upplýsingasimi 92-3051.
Kjalarneshreppur: Jón Ólafsson Brautarholti.
Kjósahreppur: Oddur Andrésson Neðra Hálsi.
Kópavogur: bilasimar 40708 og 43725.
Miðneshreppur: Óskar Guðjónsson 92-7557.
Mosfellshreppur: 91-66401.
Njarðvíkurhreppur: 92-3025.
Seltjarnarnes: 28187.
Vatnsleysustrandarhreppur: 92-6560.
Kosningastjórn kjördæmisins 52576.
kosninga
sjóður
Kosningar eru ný afstaðnar. Nýjar
kosningar eru framundan. Sjálf-
stæðisflokkurinn þarf á miklu fé að
halda til að standa straum af kostn-
aði við kosningarnar. Því leitar flokk-
urinn til stuðningsfólks síns um fjár-
framlög til baráttunnar. Þeirsem vilja
leggja eitthvað af mörkum, eru vin-
samlega beðnir að snúa sér til skrif-
stofu flokksins, Laufásvegi 46, sími
17100, en þar er framlögum veitt
móttaka.
Bændur
Er nauðsynlegt að kaupa hey-yfirbreiðslur ár-
lega? Við höfum hey-yfirbreiðslur, sem hafa
flesta eiginleika striga, nema þær fúna ekki.
Pokagerdin Batdur.
Sími 99-32 13, Stokkseyri.
D
Utankjörstaða
kosning
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins
er að Laufásvegi 47.
Símar: 26627, 22489, 17807, 26404.
Sjálfstæðisfólk! Vinsamlega látið skrifstof-
una vita um alla kjósendur, sem verða ekki
heima á kjördegi.
Utankjörstaðakosning fer fram í Hafnarbúð-
um alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og
20—22. Sunnudaga kl. 14—18.
Páll V. Daníels-
son skrifar frá
Hafnarfirði
Mannréttindi viljum við öll
hafa. 1 þvf efni er kosningarétt-
urinn dýrmætur. Hann skapar
okkur möguleika til þess að hafa
áhrif á uppbyggingu og skipulag
þjóðfélags okkar, hvernig hin
ýmsu veigamiklu mál þróast og á
hvaða sviði við hvert og eitt get-
um haslað okkur völl. En
kosningarétturinn skapar okkur
einnig skyldur. Við komumst ekki
hjá því að hugsa, reyna að gera
okkur grein fyrir því hvað er rétt
og hvað er rangt. Við verðum að
velja og hafna.
E.t.v. er þetta hvað erfiðast
fyrir þá, sem eru nýbúnir að fá
kosningarétt. Þeir hafa ekki eigin
reynslu til að byggja á, þeir ganga
hiklausara og ógætilegar en þeir,
sem á langri lífsleið hafa rekið sig
á sitt af hverju og lært hvað
varast ber.
Ekki er þó nein sanngirni í því
að ætlast til þess, að ungt fólk feti
í fótspor feðra sinna og mæðra,
enda þótt það læri margt af
reynslu annarra. Það yrði allt of
mikil kyrrstaða. Áhættu verður
að taka af því að fara nýjar leiðir,
reyna nýjar aðferðir f stjórnunar-
málum sem öðrum.
Einum hornsteini megum við
þó ekki raska, en það er frelsi og
sjálfstæði einstaklings og þjóðar.
Glatist frelsið þá lokast allar leið-
ir til þeirrar hamingju, sem við
leitum að hvert og eitt. í þessu
efni erum við öll á sama báti, þar
skilur hvorki aldur né reynsla því
um blákaldar staðreyndir er að
ræða.
En varðandi frelsi og sjálfstæði
lands og þjóðar reynir hvað mest
á, þegar við erum að velja og
hafna í kosningum. Stjórnarmála-
flokkar, sem flátt hugsa í þessu
efni, setja ýmis góð og þjóðholl
mál á oddinn til að afla sér kjör-
fylgis. Þegar þeir svo hafa náð
áhrifum þá beita þeir valdinu til
þess að hefta þjóð sína í fjötra
ófrelsis. Og alla jafna reyna þess-
ir aðilar að fá ungt fólk í lið með
sér í þeirri von, að það hafi ekki
næga yfirsýn til að sjá í gegnum
blekkingarvefinn.
Ein leið þessara flokka er að
vinna markvist að því að skapa
kynslóðabil, ekki aðeins að etja
stétt gegn stétt heldur og kynslóð
gegn kynslóð. Aukið miðstjórnar-
vald getur verið árangursríkt til
að ná þessu marki. Það er því
fagnaðarefni, að sú alda er að
rísa, og þá ekki sízt meðal ungs
fólks, að nauðsynlegt sé að flytja
valdið frá ríkinu aftur og til
landsbyggðarinnar og einstak-
linganna. I því efni fer þrumu-
rödd æskunnar saman við sjálf-
stæðisstefnuna og sú þrumurödd
boðar sannarlega bjartari framtíð
og aukna hamingju til handa
hverju landsins barni.
Páll V. Danfelsson.