Morgunblaðið - 04.07.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1974
13
Tvísöng
Scheels og
Kissingers
frestað
Borin, 3. júlf, NTB.
WALTER SCHEEL forseti
Vestur-Þýzkalands upplýsti á
blaðamannafundi f dag, að
hann og Henry Kissinger
hefðu haft á prjónunum áform
um að syngja tvfsöng opinber-
lega, en að Ifkindum yrðu þeir
nú að fresta þvf, m.a. vegna
hins nýja embættis, sem
Scheel hefur tekið við, og svo
óttaðist hann f og með, að
raddir þeirra myndu ekki falla
alls kostar vel saman.
Scheel söng fyrir skömmu
einsöng á plötu, sem var
um alllangt skeið í
efsta sæti vinsældarlistans
í V-Þýzkalandi. Hagnaður af
þeirri plötu rann til styrktar
fötluðum börnum. Þótti Scheel
takast afbragðs vel upp og
rödd hans hin fegursta. 1
fréttinni er haft á orði að ætla
megi, að þeir Kissinger og
Scheel hafi einhvern tíma
raulað saman f einrúmi til að
kanna, hvort þeir ættu frama
fyrir sér á þessu sviði tveir
saman, en þá komizt að þeirri
niðurstöðu, að raddir þeirra
féllu ekki nógu vel saman til
að þeir gætu lagt heiminn að
fótum sér með tvísöng sfnum.
Tíu negrar á
„dauða-lista”
SUMARLEYFI
SEM
SEGIR SEX!
lista“, er maðurinn, scm er
ákærður fyrir morðið á móður
Martin Luther Kings, Marcus
Wayne Chenault, gerði um fólk,
sem hann vildi feigt.
Lögreglan í Atlanta segir, að
slíkur listi með nöfnum 10 manns
hafi fundizt í íbúð Chenauits í
Columbus í Ohio þar sem hann
var áður stúdent við Ohiohá-
skóla. Chenault er 23 ára gamall
og frá Dayton f Ohio.
Lögfræðingur Chenaults sagði í
dag, að hann neitaði þvf að vera
félagi í nokkrum skipulögðum
samtökum.
Blað í Dayton segir hins vegar,
að Chenault hafi verið í sam-
tökum, sem gangi undir nafninu
„T1 Tmop“ og telji, að refsa eigi
blökkuprestum þar sem þeir hafi
brugðizt blökkumönnum.
Vinur Chenaults segir, að áhnf
presta meðal blökkumanna séu
ein helzta ástæðan til þtss, að
blökkumenn lifi enn í aðskildum
hverfum.
Atlanta, 3. júlí. AP.
NÖFN blökkusöngkonunnar
Aretha Franklin, föður Martin
Luther Kings, blökkumannaleið-
toganna séra Ralph D. Abernathy
og Jesse Jackson og fleiri kunnra
blökkumanna voru á „dauða-
Embættiseiður
Þann 1. júlf sór Walter Scheel
embættiseið sinn sem næsti
forseti Sambandslýðveldisins
Þýzkalands f viðurvist forseta
þingsins, Anne Marie Renger.
Fyrirrennari Scheels, Gustav
Heinemann, gaf ekki kost á sér
til endurkjörs.
ef 200 mílna lögsagan nær fram að ganga
Lúxusíbúðirnar Villamar eru bestu ibúðir sem hægt er að bjóða á
Mallorca.
Þar er allt sem hugurinn girnist, ibúðir með fallegum húsgögnum og
stórum svölum, tvær sundlaugar, stórir garðar með trjám og grasflöt-
um, mini golf, tennisvöllur, friðsælt umhverfi, rétt við baðströndina i
Palma Nova.
Beint þotuflug að degi til svo ekki þurfi að eiða dýrmætum sólardögum
til svefns og hvildar eftir þreytandi næturflug.
Fystra flokks þjónusta fyrir Sunnu farþega, eigin skrifstofa i Palma,
með hjálpsömu islensku starfsfólki Og Mallorca stendur fyrir sinu, þar
er sjórinn sólskinið og veðrið, eins og fólk vill hafa það. Pantið strax
áður en það er um steinan. Fáein sæti laus 1 6—23 júli.
(ERflASKRIFSTDFAN SUNNA BANKASTRITI
SlMAR1640012070
I VIÐTALI við Söndags Aktuelt
nú um sl. helgi segir Niels Anker
Kofoed sjávarútvcgsráðherra
Dana, að verði 200 mflna efna-
hagslögsögustefnan ofan hjá full-
trúum á Caracasráðstefnunni geti
Danir lagt niður sjávarútvegs-
ráðuneytið, þar sem fiskveiðar
Dana f Eystrasalti mundi þá ekki
verða nema einn fjórði af þvf,
sem nú er. Segir hann, að Danir
muni þurfa að eiga allt sitt undir
náð og miskunn annarra þjóða
varðandi fiskveiðar.
— Við eigum fulltrúa á ráð-
stefnunni og leggjumst eindregið
gegn 200 mílunum, hreinlega
vegna þess að það myndi hafa f
för með sér þvílíkan samdrátt f
fiskveiðum okkar f Eystrasalti, að
við gætum allt eins hætt þar veið-
um algerlega. Danir gætu kannski
axlað þá byrði sem heild, en það
yrði verulegt áfall fyrir fiski-
menn frá Borgundarhólmi. Fyrst
voru þeir hraktir frá Grænlandi
og nú vilja Norðmenn losna við
okkur af miðunum við N-Noreg,
síðan yrði verkið kórónað ef við
yrðum hraktir af Eystrasalti. Það
væri fullharkalega að okkur vegið
á þennan hátt. I Norðursjó er
ástandið ámóta slæmt. Englend-
ingar myndu hagnast á 200 mílum
og vegna þess, að EBE-löndin
liggja að Eystrasalti má kannski
hugsa sér að ná gagnkvæmu sam-
VILLAMAR
komulagi. EBE-löndin eru á móti
200 mílum, en Bretar eru þó á
báðum áttum. Þeir hafa verið
reknir af íslandsmiðum og hafa
sem sagt komizt að þeirri niður-
stöðu, að fyrri afstaða borgi sig
ekki.
Ráðherrann ftrekaði, að Danir
væru búnir að vera ef 200 mflna
efnahagslögsaga næði fram að
ganga, en vonandi færi ekki svo
hrapallega.
Gabb hjá Fischer
að segja af sér heimsmeistaratitli?
Los Angeles, 3. júlí, AP.
I FRÉTTUM frá Los Angeles seg-
ir, að þar velti menn nú mjög
fyrir sér þvf uppátæki Roberts
Fischers að hóta að segja af sér
sem heimsmeistari f skák. Segja
sumir vina hans, að þetta sé ein-
tómt gabb hjá honum og megi
Ifkja þessu við duttlunga þá og
dynti, sem hann hafi sýnt viðvfkj-
andi heimsmeistaraeinvfginu f
Reykjavík við Boris Spassky. Þar
hafi Fischer kvartað undan þvf
sem næst hverjum sköpuðum
hlut.
Ekkert hefur komið fram, sem
bendir til, að Alþjóðaskáksam-
bandið ætli að verða við kröfum
Fischers og enn hefur hann ekki
gefið blaðamönnum færi á að
spyrja sig, hvaða ástæður liggi að
baki skeytinu, sem hann sendi til
sambandsins nú fyrir helgina.
AP-fréttastofan hefur það eftir
Lenu Grumette, sem er formaður
skákklúbbs í Pasadena að fráleitt
sé að taka yfirlýsingu Fischers
hátíðlega, þar sem hann hafi
marglýst þvf yfir við sig, að hann
ætli að halda titlinum næstu
þrjátíu árin.
Fleiri af þeim, sem kunnugastir
eru Fischer, taka í sama streng og
segja, að þetta sé raunar ósköp
lfkt skákmeistaranum og til þess
eins ætlað að vekja athygli á sjálf-
um sér. Hafi hann allar götur frá
því hann varð alþjóðlegur meist-
ari haft í frammi ýmsar kúnstir,
sem hafi gert stjórnendum skák
móta, sem hann hefur tekið þátt í,
gramt í geði.
Sjónvarpssendingar banda-
rískra frá Moskvu truflaðar
Þegar mál Sakharovs og meðferð
á Gyðingum komu til umfjöllunar
Moskva 3. júlí AP.
TRUFLANIR voru gerðar á út-
scndingu bandarfskra sjónvarps-
manna frá ABC og NBC f gær, er
verið var að senda um gervi-
hnött kvikmynduð viðtöl við
sovézka vfsindamanninn Andrei
Sakharov. 1 sendingu CBS voru
tvívegis gerðar truflanir f annað
skipti, þegar kynnirinn Murray
Fromson var að tala úti fyrir
byggingu, þar sem átti að halda
vfsindamannaráðstefnu, áður en
sovéskir vfsindamenn voru teknir
höndum. Marvin Kalb frá CBS
fékk óáreittur að ræða um sam-
ræður bandarfska og sovézka leið-
togans um eldflaugar, en þegar
hann var að ræða um, að svo virt-
ist sem Sovétmenn væru að reyna
að trufla útsendingu þeirra, var
klippt á sambandið.
I íítsendingu ABC var sýnd
mynd af Sakharov f eina eða tvær
sekúndur, en síðan hvarf myndin
og kynnirinn sagði, að bersýni-
lega væri verið að trufla útsend-
inguna. Var þá líka klippt á sam-
bandið.
Þegar að því kom, að málefni
Gyðinga væru tekin fyrir og með-
ferðin á þeim, svo og sérstaklega
vikið að Sakharov, var enn klippt
á sambandið.
Gerald Warren, blaðafulltrúi
Nixons Bandaríkjaforseta, sagði
fréttamönnunum eftir að þeir
höfðu lagt fram kvartanir sínar,
að Nixon forseti myndi formlega
bera fram mótmæli vegna þessa
áður en hann héldi frá Moskvu,
enda væri Bandaríkjaforseti
þeirrar skoðunar, að sjónvarps-
fyrirtækjunum hlyti að vera
heimilt að fá að vinna óáreitt að
dagskrám sínum.
Kekkonen
Helsinki 3. júlíNTB,
KEKKONEN Finnlands-
forseti var í dag lagöur
inn á Háskólasjúkra-
húsið í Helsinki vegna
skyndilegrar bólgu, sem
veikur
hann fékk f blöðruháls-
kirtil. Var tilkynning
þessa efnis gefin út frá
skrifstofu forsetans í
dag og lofað nánari sjúk-
dómslýsingu fljótlega.
Yfirvöld f Dayton vilja yfir-
heyra Chenaults f sambandi við
morð tveggja blökkupresta fyrir
skömmu. Þau vilja ekki útiloka
þann möguleika, að Chenault hafi
verið viðriðinn þessi morð.
Utför móður Martin Luther
Kings var gerð í dag f Atlanta frá
kirkjunni þar sem hún var myrt
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Tyrkir
leyfa ópíum
Ankara, 3. júlf, AP.
BULENT Ecevit forsætisráð-
herra sagði f dag, að tyrkneska
stjórnin mundi gera „öruggar
ráðstafanir til þess að firra
mannkynið skaða“ vegna
þeirrar ákvörðunar hennar að
leyfa aftur ópfumframleiðslu f
Tyrklandi.
Bannið hefur verið I gildi f
tvö ár og var sett vegna þrýst-
ings frá Bandarfkjamönnum,
sem sögðu, að 80% alls heró-
fns, sem bandarfskir eitur-
lyfjaneytendur fengju, kæmu
frá Tyrklandi.
Sjávarútvegsráðherra Dana:
Fiskveiðar Dana í hættu