Morgunblaðið - 04.07.1974, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JULl 1974
Daufu þjóðhátíðarmóti lokið
Þjóðhátíðaríþróttamótinu hér I
Reykjavík lauk í gærkvöldi á
Laugardalsvellinum með knatt-
spyrnuleik pilta úr 2. flokki, voru
það lið Reykjavíkur og lands-
byggðarinnar, sem áttust við.
Þó að mikið hafi verið vandað
til þessa móts og margir góðir
gestir heimsótt Reykjavík undan-
farna daga verður ekki annað
sagt en að eftirtekjan hafi verið
rýr. Sárafáir áhorfendur hafa
fylgzt með mótinu og áhugi kepp-
enda hefur verið með minnsta
móti. Það er lfka erfitt að sjá
hvaða tilgangi það þjónar að kalla
æfingalausa handknattleiks- og
körfuknattleiksmenn saman um
hásumarið. Áhugi þessara vetrar-
íþróttamanna er í lágmarki og erf-
itt hefur reynzt að ná sterkustu
mönnunum saman um þetta leyti
árs.
EINS MARKS TAP
1 HANDKNATTLEIKNUM
Svo vikið sé að keppninni
sjálfri þá var á þriðjudaginn
keppt í handknattleik, körfu-
knattleik, blaki og sundi. I hand-
knattleik var aftur leikið gegn
Óslóarbúum. Eftir góðan sigur
Reykvíkinga á mánudaginn
tapaði liðið þó í fyrradag. Urslitin
urðu 16:15 fyrir Ósló og mátti
Reykjavíkurliðið þakka fyrir, að
munurinn varð ekki meiri.
Guðjón Erlendsson bjargaði því,
sem bjargað varð, með stórgóðri
markvörzlu en hann mátti ekki
við ofureflinu og flestir aðrir leik-
menn liðsins léku langt undir
getu.
GÓÐUR FYRRI HALFLEIKUR
í KÖRFUNNI
I körfuknattleiknum tókst
Reykjavfkurliðinu mun betur upp
á þriðjudaginn heldur en degin-
um áður og að loknum fyrri hálf-
leiknum leiddi lið Reykjavíkur
með einu stigi, staðan var 37:36.1
síðari hálfleiknum fór finnska
liðið loks í gang og seig örugglega
fram úr, í leikslok munaði 19 stig-
um, 86:67 — öruggur sigur Hels-
inki. Beztu menn fslenzka liðsins f
þessum leik voru þeir Þröstur
Guðmundsson, sem nú leikur
fyrir KR, en var áður með HSK,
Vfkingarnir Torfi og Páll I blak-
keppninni gegn landinu
Bjarni Gunnar, Kolbeinn og Jón
Sigurðsson. Reyndar lék allt liðið
vel í fyrri hálfleiknum, barðist
vel og náði vel skipulögðum
hraðaupphlaupum.
Sömu dómarar dæmdu báða
körfuknattleiksleikina, Hörð-
ur Tuliníus og finnskur kollegi
hans. Eins og frá var sagt í
gær gerði Finninn sig sekan um
mikla hlutdrægni í fyrri leiknum.
Það sama virtist ætla að verða
uppi á teningnum í þeim síðari,
en eftir að Einar Bollason hafði
hlaupið inn á völlinn og mótmælt
dómi hans, sljákkaði heldur í
Finnanum enda púuðu áhorfend-
ur óspart á hann. 1 síðari hálf-
leiknum hafði Finninn greinilega
öðlazt kjark aftur og hélt þá upp
þeim hætti sínum að loka
augunum er Finnar brutu af sér,
en dæma þeim mun meira á Is-
lendingana.
AÐEINS ÞRlR SIGRAR
I SUNDINU
íslenzkt sundfólk er í mikilli
lægð um þessar mundir, svo að
ekki sé meira sagt. Á þjóðhátíðar-
sundmótinu, sem fram fór í
Laugardalslauginni sunnudag og
þriðjudag unnust aðeins þrfr
íslenzkir sigrar. Gestirnir frá
Stokkhólmi voru f allt öðrum
gæðaflokki en Islendingarnir.
Þeir Islendingar, sem náðu að
sigra, voru Axel Alfreðsson í 200
m baksundi, hann synti á
tímanum 2:39,0. A-sveit Reykja-
vfkur bar sigur úr býtum í 4x100
m fjórsundi karla á tímanum
4:35,4 og f 100 m baksundi karla
sigraði Þorsteinn Hjartarson á
1:12,5 — í þeirri grein var enginn
sænskur keppandi.
Brynjólfur Björnsson náði
þokkalegum tíma í 400 m skrið-
sundi á 4:43,9. Sömu sögu má
segja um Axel Alfreðsson í 200 m
fjórsundinu, 2:31,4, en síðan ekki
söguna meir. Sænska sundfólkið
er allt mjög frambærilegt og er
það þó ekki í hópi þess allra bezta
í Svíþjóð.
RAGNAR SIGURVEGARI
I GOLFINU
A velli GR f Grafarholti var
keppt á sunnudaginn f golfi f til-
efni fþróttahátfðar á þjóðhátfð
hér f Reykjavfk.
Sigurvegarar urðu eftirtalin:
Meistaraflokkur: Ragnar
Ólafsson 83 högg
1. flokkur: Hannes Eyvindsson,
83 högg.
2. flokkur: Jóhann Reynisson, 88
».högg.
3. flokkur: Stefán Sæmundsson,
93 högg.
’Meistaraflokkur kvenna: Elfsabet
Möller, 95 högg.
1. flokkur kvenna: Jóhanna
Ingólfsdóttir, 86 högg.
Unglingaflokkur: Sigurður
Pétursson, 80 högg.
Frá júdókeppninni, sem fram fór á sunnudaginn
(Ijósm. RAX)
Mikið spurt um
Kalottferðina
YFIRBURÐIR REYKJA-
VlKUR I BLAKI
I blakkeppninni milli Reykja-
vfkur og liðs landsbyggðarinnar á
þriðjudaginn var um algjöra yfir-
burði Reykvfkinganna að ræða.
Leikurinn endaði 3:0 og hrinurn-
ar 15:3, 15:8 og 15:5. Nokkur for-
föll voru í báðum líðum og þá
einkum í liði landsbyggðarinnar,
en aðeins mættu sex keppendur
liðsins f leikinn.
GRINDVfKÍNGAR
EFNILEGASTIR I JtJDÓ
I júdó var keppt síðastliðinn
sunnudag, voru það unglingar frá
Reykjavfk, Keflavík og Grinda-
vík sem áttust við. Keppt var í
fimm manna sveitum og reyndust
Grindvíkingarnir sterkastir.
Sigruðu þeir örugglega, Reykja-
vík varð númer 2 og Keflvíkingar
f neðsta sætinu.
EINS OG frá hefur verið skýrt
á fþróttasfðunni taka frjáls-
fþróttamenn þátt f svonefndri
Kalottkeppni f lok þessa
mánaðar. Þátt f mótinu taka
úrvalslið frá norðurhluta
Noregs, Finnlands og Svfþjóðar
auk tslendinga. Að þessu sinni
fer keppnin fram f Luleá,
vinsælum ferðamannastað f N-
Svfþjóð.
Frjálsfþróttasamband ts-
lands ákvað f samráði við
Ferðaskrifstofuna Sunnu að
efna til hópferðar til Luleá. Að
sögn Arnar Eiðssonar for-
manns FRl hefur mikið verið
spurt um þessa ferð og virðist
vera mikil) áhugi á henni.
Farið verður héðan að morgni
föstudagsins 26. og komið heim
aðfararnótt mánudagsins 29.
júlf. Ferðirnar kosta 10 þúsund
fyrir manninn og uppihald er
hægt að fá á vægu verði.
Ferðaskrifstofan Sunna sér
um skipulagningu ferðarinnar
og gefur allar upplýsingar.
USTA SKEMMTUN
fyrir þá, er störfuðu fyrir D-listann
ákjördag, föstudagskvöld
frákl. 9—1 að HÓTELSÖGU
Boðskort
verða afhent é
skrifstofu
Fulltrúaráðsins
að Siðumúla 8
og Galtafelli,
Laufásvegi 46,
fimmtudag og
föstudag kl. 9—5.
FJOLBREYTT SKEMMTIATRIÐI
AÐGANGUR ÓKEYPIS
★ Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi.
★ Ómar Ragnarsson skemmtir.