Morgunblaðið - 04.07.1974, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚLI 1974
27
| ll'lilimiMTIIIi MOBGBMBLABSIiyS
Sepp Maier hinn sterki mark-
vörður Þjððverjanna
Harka meistaranna hafði lítið að
segja gegn snilli Hollendinganna
Cryuff leikur f peysu númer 14 hjá Hollendingum, en hann er alls
staðar númer eitt þegar rætt er um knattspyrnu. Hann átti bæði mörk
Hollands f leiknum f gær, meðfylgjandi mynd sýnir Cryuff skora gegn
Argentfnu.
Maier kom V-Þjóð-
verjum í úrslit HM
V-Þjóðverjar unnu Pólverja 1:0
Póiland: Tomaszewski, Szymanowski,
Gorgon, Zmuda, Musial, Kasperczak, Deyna,
Maszcyk, Lato, Domarski, Gadocha. Vara-
menn: Kalinowski, Cmikiewicz, Gut, Kmozvi.
V-Þýzkaland: Maier, Vogts, Breitner,
Schwarzenback, Beckenbauer, Bonhof,
Hoeness, Grabowski, Overath, Mueller,
Holzenbein. Varamenn: Nigbur, Hoettges,
Cullmann, Flohe, Heynckes.
1 þriðja skipti munu VÞjððverj-
ar leika til úrslita f heims-
meistarakeppninni f knattspyrnu.
Þeir sigruðu Pðlverja með 1
marki gegn engu f Frankfurt í
frá Ule Hoeness. Var það önnur
vítaspyrnan, sem pólski mark-
vörðurinn ver í úrslitakeppninni,
þá fyrri varði hann í leiknum
gegn Svíum.
Pólverjarnir lögðu aðal-
áherzluna á sóknarleik í þessari
viðureign, en V-Þjóðverjum
nægði jafntefli til að komast í
úrslitin. Hvað eftir annað komust
stórskyttur Pólverjanna í dauða-
færi, en sama var, hvort það var
Deyna, Gadocha, Lato eða einhver
annar sem skaut að marki, Sepp
Maier var ætíð sá klettur sem allt
strandaði á. Annar markahæsti
leikmaður HM, Pólverjinn
Szarmach, gat ekki leikið með
félögum sínum að þessu sinni, en
fjarvera hans virtist ekki skipta
máli. Samleikur Pólverjanna
hefði tæpast getað orðið betri.
Hinar slæmu aðstæður á renn-
blautum og hálum vellinum virt-
ust koma verr við Þjóðverjana, og
meira að segja Beckenbauer, sem
á allra manna nákvæmastar send-
ingar, brást að því leyti í þessum
leik. I sfðari hálfleiknum komu
Þjóðverjarnir ákveðnari til leiks
og höfðu undirtökin fyrstu 30
mínútur hálfleiksins.
Á þeim tima fengu þeir sín
beztu tækifæri, vítaspyrnu
Hoeness, sem dæmd var, er
Gorgon brá Holzenbein, og mark
Muellers, en hann var marka-
kóngur í HM í Mexicó fyrir fjór-
um árum, en hefur til þessa
aðeins gert þrjú mörk í HM. I
síðari hálfleiknum breyttu Þjóð-
verjarnir um leikaðferð, hættu
stuttu sendingunum, og tóku upp
hátt Pólverjanna og notuðu,lengri
sendingar. Reyndist það mun
betra f eðjunni á vellinum.
Taugar Þjóðverjanna voru
greinilega ekki með bezta móti að
þessu sinni. Eftir að Mueller
hafði skorað mark sitt lyftist þó
brúnin á Þjóðverjunum og meira
Framhald á bls. 16
gærkvöldi og unnu þvf alla and-
stæðinga sfna í milliriðlinum.
Það var Gerd Mueller, sem skor-
aði mark Þjóðverjanna á 75.
mfnútu leiksins, eftir undirbún-
ing Bonhofs. Þjóðverjar hafa
einu sinni orðið heimsmeistarar,
það var árið 1954, og 1966 urðu
þeir f öðru sæti eftir úrslitaleik
við Englendinga.
Pólverjar geta svo sannarlega
vel unað við þann árangur, sem
lið þeirra hcfur náð f heims-
meistarakeppninni. Liðið hefur
lagt hvert stórveldið að öðru að
velli, og á laugardaginn leikur
pólska liðið um bronsverðlaunin f
heimsmeistarakeppninni.
Seinka varð leik Póllands og
V-Þýzkalands um hálftíma vegna
úrhellisrigningar, sem gerði að-
stæður allar mjög erfiðar. Völlur-
inn var sem stöðuvatn á að líta og
leiknum hefði sennilega verið af-
lýst, ef hann hefði ekki verið í
úrslitakeppni HM.
Pólverjarnir áttu við allerfiða
andstæðinga að etja í þessum leik,
en sá allra erfiðasti var markvörð-
ur Þjóðverjanna Seppl Maier.
Hann varði hvað eftir annað
snilldarlega, já alveg stórkost-
lega. Kollega Maiers í marki Pól-
verjanna Tomaszewski, var held-
ur enginn viðvaningur. Varzla
hans í þessum leik var með mikl-
um glæsibrag og á 52. mínútu
leiksins varði hann t.d. vítaspyrnu
Holland: Jongbloed, Suurbier, Krol,
Neeskens, Haan, Rijsbergen, Rep, Hanegam,
Cryuff, Jansen, Rensenbrink. Varamenn:
Schrijvers, Jong, Geels, Israel, Kerkhoff.
Brasilfa: I^eao, Pereira, Marinho, Maria,
Marinho, Cesar, Jairizinho, Rívelino, Lima,
Valdomiro, Dirceau. Varamenn: Renato
Piazza, Antonio, Miranhinda, Edu.
Það var hraði og harka f leik
Brasilfu og Hollands f Dortmund
f gærkvöldi. Núverandi heims-
meistarar Brasilfu gerðu allt, sem
þeir gátu, til að tryggja sér rétt til
úrslitaleiksins, en þrátt fyrir
góða tilburði máttu þeir sætta sig
við að tapa leiknum 0:2. Til að fá
tækifæri til að verja titil sinn f
úrslitunum hefðu þeir þurft að
sigra. Hollendingunum nægði
hins vegar jafntefli.
Cryuff var maðurinn á bak við
sigur Hollendinganna í gær-
kvöldi. A 50. mínútu leiksins átti
Cryuff frábæra sendingu á
Neeskens, sem lyfti knettinum á
laglegan hátt upp undir slá marks
Brasilíumanna. Leao fékk engum
vörnum við komið. 15 mínútum
síðar tryggði Cryuff liði sínu sig-
ur með ágætu marki. Rensen-
brink gaf inn í teiginn frá vinstri
og Cryuff blakaði knettinum í
netið á þann hátt sem honum ein-
um er lagið.
I upphafi leiksins virtust
meistararnir vera mjög tauga-
óstyrkir og þrívegis skall hurð
nærri hælum við mark þeirra á
fyrstu mfnútunum. Er leið á leik-
inn náðu Brasilíumenn frum-
Enn ein rós í
hnappagat Svíanna
Svfþjóð: Hellström, Olsson, Augustsson,
Karlsson, Nordqulst, Persson, Torstensson,
Tapper, Edström, Grahn, Sandberg. Vara-
menn: Hagberg, Grlp, Cronquist, Lindmann,
Ahlström.
Júgóslavfa: Varic, Buljan, Hadziabdic,
Pavlovic, Jerkofvc, Surjak, Acimovic, Dzajic,
Varamenn: Mescovlc, Peruzovic, Karasi, Pit-
kovic, Vladic.
Það verður ekki annað sagt en
Svíar hafi staðið sig frábærlega
vel í úrslitakeppni í V-Þýzka
landi. Fæstir áttu von á því, að
liðið kæmist í milliriðil, en öllum
á óvart skutu Svíar mörgum stór-
veldum aftur fyrir sig og í milli-
riðlinum hefur liðið komizt mjög
vel frá öllum leikjum sínum. I
gærkvöldi Iéku Svíar gegn Júgó-
slövum og unnu 2:1. Mörk Sví-
anna gerðu Ralf Edström og
Gonny Torstensson, en fyrsta
mark leiksins gerði Ivo Surjak
fyrir Júgóslavana. Leikurinn
þótti lítt spennandi, og sáu hann
aðeins 14.000 áhorfendur, Svíar
voru þó greinilega sterkari aðil-
inn.
IAIM74
þessum spennandi og harða leik.
Leikurinn varð aldrei eins góður
og hinir 54.000 áhorfendur höfðu
vonazt eftir. En með þessum
úrslitum fá menn að sjá úrslita-
leik, sem margir hafa látið sig
dreyma um. Brasilíumenn töpuðu
nú sínum fyrsta landsleik af 17,
sem liðið hefur leikið að undan-
förnu.
Hollendingar hafa ekki fyrr en
nú síðustu árin getað státað af
góðu landsliði, en eftir að þeir
snéru sér af krafti að landsliðinu,
lætur árangurinn heldur ekki á
sér standa. Hollendingar leika í
fyrsta skipti til úrslita í heims-
meistarakeppni gegn V-Þjóðverj-
um í MUnchen á sunnudaginn —
leikur sem heimurinn bíður eftir.
Jafnt hjá Argentínu
og A-Þjóðverjum
kvæði á miðsvæðinu og sköpuðu
sér hvað eftir annað góð færi, en
annaðhvort varði Jongbloed eða
skot Brassanna geiguðu. I síðari
hálfleiknum fundu Hollend-
ingarnir sig aftur, gerðu
tvö góð mörk og héldu áfram að
sækja, enda öruggir með að kom-
ast í úrslitin.
Leikurinn einkenndist mjög af
mikilvægi hans, mikið var um
brot og harkan sat á tiðum f fyrir-
rúmi. Voru heimsmeistararnir at-
kvæðameiri við þá iðju, og þrem-
ur leikmönnum liðsins var sýnt
gula spjaldið, þeim Pereira, Ze
Maria og Marinho. Sjö mínútum
fyrir leikslok var svo Pereira
vísað af leikvelli fyrir gróft brot.
Hollendingurinn Johnny Rep
fékk einnig að sjá gula spjaldið i
Austur-Þýzkaland: Croy, Kurbjuweit,
Bransch, Weise, Schnuphase, Kische,
Pommerenke, Loewe, Sparwasser, Streich,
Hoffmann, varamenn: Fritsche, Ducke,
V'ogel, Irmscher, Blockwitz.
Argentfna: Fillol, Wolff, Heredia, Bargas,
Carroscosa, Brindisi, Telch, Babington,
Housemann, Ayala, Kemees, Varamenn:
Santoro, Glaria, Toirfumo, Squeo, Balbuena.
A-Þjóðverjar og Argentfnu-
menn gerðu jafntefli, 1:1, f úr-
slitakeppni HM f gærkvöldi. Þó
svo að leikurinn hefði enga þýð-
ingu upp á sæti f úrslitum komu
54 þúsund áhorfendur á völlinn f
Gelsenkirehen til að fylgjast með
leiknum. Liðin höfðu ekkert stig
hlotið fyrir þennan leik f milli-
riðlinum og jafnteflið var sann-
gjarnt.
Joakim Streich skoraði fyrir
Þjóðverjana á 14. mínútu með
ágætum skalla. Minúturnar á eft-
ir sóttu Argentínumenn nokkuð
og á 22. mínútu jafnaði Houseman
með góðu skoti framhjá Croy.
Fleiri mörk voru ekki gerð, og
voru það eftir atvikum sanngjörn
úrslit.
Verð að senda Pól-
verjum stóran blómvönd
EFTIR leik Póllands og V-
Þýzkalands sagði v-þýzki lands-
liðseinvaldurinn, að 1:0 úrslit-
in gæfu alls ekki rétta mynd af
gangi leiksins. „Mörkin hefðu
átt að verða fleiri“, sagði Schön
„4:3 hefði verið nærri lagi.
Annars held ég, að ég megi til
með að senda Pólverjunum
stóran blómvönd, þeir léku
framúrskarandi vel og umfram
allt léku þeir drengilega. Eg víl
nota tækifærið og endurtaka
það, sem ég hef svo oft sagt,
V-Þjóðverjar verða heims-
meistarar f Miinchen á sunnu-
daginn, enda kominn tfmi til að
endurtaka leikinn frá þvf
1954“.
Bæði pólski landsliðsþjálfar-
inn Gorski og markvörðurinn
Tomaszewski tóku í sama
streng og sögðu, að V-Þjóðverj-
ar yrðu heimsmeistarar. Þeir
sögðu, að V-Þjóðverjar væru
harðskeyttustu andstæðingar,
sem þeir hefðu til þessa mætt f
HM.
Þetta var fyrsti leikurinn,
sem Pólverjar tapa í HM, alla
aðra andstæðinga sfna hafa
þeir unnið. „Það er ekki hægt
að segja neitt við sigri Þjóðverj-
anna,“ sagði Gorski, „en þó
fannst mér jafnteflislyktin
finnast langar leiðir. En það
hefði ekki breytt neinu fyrir
okkur, við þurftum að sigra í
þessum leik til að komast
áfram, en það hefði tæplega
verið sanngjarnt."
Formaður skipulagsnefndar
heimsmeistarakeppninnar,
Hermann Neuberger, sagði, að
bæði lið hefðu leikið mjög vel
við hinar erfiðu aðstæður.
Gunter Netzer sagði, að ekki
hefði verið rétt af dómaranum
að láta leikinn fara fram, en
það hefði verið Maier mark-
verði að þakka, að Þjóðverjarn-
ir leika til úrslita í HM.
Szarmach, annar markhæsti
maður keppninnar, gat ekki
leikið með Pólverjunum að
þessu sinni vegna meiðsla, en
sagði eftir leikinn, að Þjóðverj-
arnir hefðu verið mjög heppnir
að sigra.