Morgunblaðið - 04.08.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. AGÚST 1974
7
Eftir Bförtt V*
Mifune og Machiko Kyo í Rashomon
JAPANSKI leikstjórinn Akira
Kurosawa á ekki ófáa aðdáendur
hér á landi, en að honum töldum
má heita. að þar með sé vitneskja
hérlendra upptalin. Skylt er þó að
geta þess að verk fáeinna annarra
japanskra leikstjóra hafa verið
sýnd i Kvikmyndaklúbbi mennta-
skólanna og er það ekki eina til-
fellið, þar sem sá ágæti félags-
skapur hefur opnað mönnum ofur-
litla glufu inn í áður framandi
heim. Hvað um það — nýlega rak
á fjörur minar kynningarbækling
um Japan, þar sem finna mátti
dágott fyrirlit yfir japanska kvik-
myndagerð eftir Ken nokkurn
Wlaschin og verður hér á eftir
stiklað á nokkrum fróðleikskorn-
um úr þeirri grein.
Rifjað er upp, að japönsk kvik-
myndaframleiðsla á nú sjötíu og
fimm árað baki og ígóðærum hafa
þar verið framleiddar allt upp I 400
myndir á ári. Japanskur kvikmynda-
iðnaður er háþróaður, sennilega
hinn eini sem stendur Hollywood
eitthvað á sporði hvað skipulag,
framleiðslugetu og nýtingu áhærir.
Japönsk kvikmyndalist hefur á til-
tölulega skömmum tíma náð tölu-
verðri hylli kvikmyndaunnenda á
Vesturlöndum, einstök afsprengi
hennar eru vel kunn og viðurkennd
þar um slóðir. Bróðurparturinn af
japanskri kvikmyndagerð er þó eftir
sem áður hulinn heimur vestrænum
gagnrýnendum og kvikmyndaunn-
endum. Aðeins brotabrot japanskra
mynda hefur verið tekið til sýninga I
kvikmyndahúsum Evrópu og Amer-
iku, leikstjórar eins og Kurosawa,
Yosijuro Ozu og Kenji Mizuguchi
hafa þar tryggt sér öruggan sess I
kvikmyndasögunni með verkum sln-
um. Má þá geta þess hér I framhjá-
hlaupi, að þekktasta verk Mizuguchi
— Ugetsu — er væntanlegt sem
mánudagsmynd I Háskólabíói. En
meðan þessu fer fram, eru ýmsir
helztu leikstjórar Japans öldungis
óþekktir hér vestra. svo sem Hein-
osuke Gosho, sem nýtur þó mikils
álits heima fyrir.
Kurosawa á mestan heiður að því
að hafa lokið upp dyrum japönsku
kvikmyndarinnar fyrir vestrænum
áhorfendum. Það var þó ekki fyrr en
árið 1951 — á kvikmyndahátíðinni
I Feneyjum. Opinberunin birtist I
myndinni Rashomon, er kom kvik-
myndagagnrýnendum og kvik-
myndaunnendum, sem þar voru,
gjörsamlega í opna skjöldu og fékk
að launum aðalverðlaunin. Þar með
hafði kistulokið að einum ómetan-
legasta listafjársjóði veraldar verið
opnað. Fljótlega upp úr þvi var efnt
til sérstakra sýninga á japönskum
myndum i Bretlandi, Frakklandi og
Bandaríkjunum og smátt og smátt
rann það upp fyrir mönnum, að
leikstjórar eins og Ozu og Mizuguchi
voru ekki í hópi fremstu meistara
kvikmyndagerðar, heldur meðal
ágætustu listamanna, er Japan hafði
alið.
Vesturlandabúar hafa þannig enn
sem komið er aðeins rótað í yfir-
borði þessa fjársjóðs. Aðeins sex
myndir af 90 myndum Gosho hafa
verið sýndar erlendis og aðeins um
helmingur verka Ozu og Mizug-
uchi. Nánari könnun mun taka mörg
ár Afþreyingaþáttur japanskrar kvik-
myndaframleiðslu er að mestu
óþekktur hér um slóðir. Þó var ný-
lega efnt til japanskrar kvikmynda-
viku i London og Paris og menn
skemmtu sér konunglega að horfa á
myndir eins og Konan sem var fjár-
hættuspilari og Blindi sverðmaður-
inn; myndir, sem í Japan hafa náð
áþekkri hylli og James Bond hérna
megin. Japanskar vofumyndir, hlið-
stæða vestrænu hrollvekjunnar, eru
nær óþekktar, en fulltrúi þeirra við
framangreint tækifæri var Furðu-
sögnin um Yotsuya eftir Nobuo
Nakagawa. Áður ókunn verk
nútímameistaranna Nagisa Oshima
og Sohei Imamura vöktu hrifningu
ásamt siðustu mynd öldungsins i
hópnum — Tomu Uchida. Kvik-
myndakynningar af þessu tagi eru
þó aðeins upphafið að frekari við-
kynningu japanskrar kvikmynda-
gerðar og vestrænna áhorfenda.
Þrátt fyrir að japönsk kvikmynda-
gerð hafi þegið margt að láni vestan
að, hefur hún innra með sér þróast í
sérjapanska listgrein, sem á sér
enga hliðstæðu annars staðar. Þessi
blanda austursins og vestursins
kemur fram með 'ýmsum hætti, en
er kannski mest áberandi og jafn-
framt skemmtilegust í samspili
menningarlegra enduróma hjá Kuro-
sawa. Áhugi hans á bandariskum
sakamálabókmenntum á sér viða
stað. Eina mynd sína byggði hann
algjörlega á sögu Ed McBain — The
King's Ransom og við gerð samurai-
myndarinnar Yojimbo (Lifvörðurinn)
tók hann traustataki fyrirmyndir úr
sögum Dashiell Hammett — Red
Harvest og The Glass key. Þá mynd
stældi Sergio Leone svo til skot fyrir
skot i spaghettivestra sínum — A
Fistfull og Dollars á sama hátt og
Hollywood stældi Sjö Samurai-ana i
The Magnificent Seven.
Það er ekki að furða, þótt Kuro-
sawa sé oft sakaður um það heima-
fyrir að vera vestrænastur japanskra
leikstjóra, en það gefur einfaldlega
til kynna, að hann sé ekki hefðbund-
inn að formi eða inntaki. Hefðin er
einmitt ákaflega veigamikill þáttur
innan japönsku kvikmyndarinnar á
þann hátt, er kemur vestrænum
áhorfendum framandlega fyrir sjón-
ir. Japanskar kvikmyndir eru flokk-
aðar eftir rigbundnum skilgreining-
um, byggðar upp eftir ströngum
„siðareglum", líkt og hinn dæmi-
gerði ameriski vestri.
Flestum japönskum kvikmynda-
gerðarmönnum er Ijóst, að myndir
þeirra eru ekki einstæð ný sköpunar-
verk, heldur afkvæmi fornrar hefðar,
sem fram haldið verður um ókomin
ár. Örfáir — eins og Kurosawa og
Oshima eiga það þó til að brjóta og
jafnvel hæðast að hefðinni, meðan
aðrir eins og Ozu vinna algjörlega
innan umgjarðar hefðarinnar, endur-
taka jafnvel eldri myndir sínar, en
hlaða þær nýrri hljóðlátri fegurð og
dýpt. Séu myndir Kurosawa iðandi
af ákafa, hreyfingu og hraðri atburð-
arás, er styrkur Ozu fólginn í lifsins
ró, kyrrð og stillu. Ozu er kannski
heimarikastur japanskra kvikmynda-
gerðarmanna og um margt óað-
gengilegur fyrir vestrænan smekk.
Hann einbeitir sér að innsta kjarna
japansks fjölskyldulífs, neitar að láta
deigan siga fyrir framandi smekk.
Stundum er þvi haldið fram, að
japanskar myndir séu hægar eða
„tempó" þeirra sé hægara en banda-
riskra og evrópskra mynda. Réttara
væri að segja, að hraði lífstempósins
og atburðarásar hinnar hefðbundnu
japönsku myndar sé annar en á
Vesturlöndum. Vissulega er margt
torráðið og margar óaðgengilegar
eigindir innan japönsku myndarinn-
ar fyrir vestrænan kvikmyndaáhorf-
anda, en það stafar þá fyrst of
fremst af ólíkri menningararfleifð og
lærist, ef ef vilji er fyrir hendi. Tákn-
ræn innskot og Ijóðrænar ímyndir
eru notaðar án frekari skýringa þar
eð japanskir áhorfendur vita fyrir
hvað þau standa. f hefðbundnum
myndum geta verið frásöguleg at-
vik, sem er heimamönnum opin
bók, en kemur algjörlega flatt upp á
hinn vestræna kvikmyndaáhorf-
anda. Ókennileg áhrif frá fornri leik-
list Japana, hugtök eins og no og
kabuki hafa hins vegar verið ýkt og
fyrrgreindur Wlaschin telur jafnvel
óllklegt, að dýpri skilningur á þeim
komi vestrænum áhorfendum yfir-
leitt að nokkru gagni
Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN27 simi 25891. Erum flutt á Laufásveg 1. Höfum eins og áöur mikið af bókum og frímerkj- um. Safnarabúðin, sími 27275, Laufásveg 1.
Húsbyggjendur — Byggingameistarar. Get bætt við mig verkefnum í raflöqnum. Guðm. Bertelsson. rafverktaki. Simi 42431. Stór ryksuga óskast keypt fyrir iðnfyrirtæki. Á sama stað er til sölu eða i skiptum hrærivél fyrirbakari. Simi 85080.
Hjónarúm með áföstum náttborðum og nýj- um dýnum til sölu. Upplýsingar i sima 251 58. fbúð til leigu 3ja herb. björt kjallaraibúð. Gardinur fylgja og fleira kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir föstudag merkt „Hliðar 1068 '.
Jörð til leigu skammt frá Reykjavik. Leigist frá 10. ágúst. Upplýsingar i sima 99- 3642. Til sölu Man 850 árg. 1967 með Facokrana 1 Vi tonn. Upp- lýsingar i síma 92-82 1 5.
íbúð óskast Ungur námsmaður, með konu og eitt barn óskar eftir litilli ibúð til leigu til áramóta. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Uppl. i sima 42086. íásl MR ER EITTHURfl $ FVRIRRLLR j JWöTðunfjIaííift
Vegna sumarleyfa
verður skrifstofum vorum og verksmiðju lokað
frá. 5. —12. ágúst.
Sælgætisgerðin Víkingur.
Lögmannsskrifstofa
mín er lokuð frá og með 4. til 20. ágúst 1 974,
vegna sumarleyfa.
Jón N. Sigurðsson, hrl.
Tjarnargötu WD, Reykjavík.
FENNER
kýlrelmar
fleygrelmar
reimskffur
ásteng
Fagmaðurinn kaupir Fenner því þær endast
lengur.
VALD. POULSENI
SUÐURLANDSBRAUT 10 - s 38520 - 3H42