Morgunblaðið - 04.08.1974, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. ÁGUST 1974
Frá bílasýningu Bifreiða- og landbúnaðarvéla.
Bílasýning á
vegum B&L
Sfðastliðinn föstudag var opnuð
bflasýning á vegum Bifreiða- og
landbúnaðarvéla f tilefni af 20
ára afmæli fyrirtækisins. Einnig
var þá tekin f notkun viðbótar-
bygging við stórhýsi B&L við
Suðurlandsbraut. Er hún 500
ferm að flatarmáli, á tveimur
hæðum.
Á sl. 20 árum hefur B&L selt
hér á landi yfir 10 þús. bfla frá
Sovétríkjunum og á seinni árum
hefur hlutur rússneskra bíla ver-
ið um 10% af bflainnflutningin-
um.
Starfsmenn B&L eru nú milli
50 og 60. Tveir þeirra, Jón
Guðjónsson og Anton Ólason,
hafa unnið hjá fyrirtækinu frá
byrjun. Fengu þeir gullpening
þjóðhátfðarnefndar sem þakk-
lætisvott frá stjórnendum fyrir-
tækisins og aðrir tveir, Guðlaugur
Pálsson og Gylfi Sigurjónsson
fengu silfurpeninginn fyrir 15
ára starf.
Yuri Kirichenko sendiherra
Sovétríkjanna opnaði sýninguna,
en Petrov aðalforstjóri Avroex-
port, sem kom hingað vegna þessa
afmælis, flutti ræðu við það tæki-
færi.
UNGT FÓLK
lirífst oft af því, sem uppruna á í eldri hlutum,
enda sameina þeir gjarnan notagildi og
aðlaðandi látleysi, sem einmitt venst svo vel.
Borðstofusettið hér að ofan er dæmi um þetta.
V þriðjudaginn verður margt nýtt að sjá hjá okkur.
Lítið inn, það er þess virði.
Ul»«
Simi-22900 Laugaveg 26
KIRKJAN 0G
ÞJÓÐHATrólN
ÁREIÐANLEGA hafa margir
veitt því athygli, að þáttur kirkj-
unnar f þeim hátíðahöldum, sem
farið hafa fram víðsvegar um
land, hefur verið mjög verulegur.
Guðsþjónustur og helgistundir
hafa verið haldnar og kirkjukórar
annazt söng og prestar víða verið
ræðumenn.
Allt hefur þetta verið gert f
beztu samvinnu við Þjóðhátíða-
nefndir á hverjum stað.
Þjóðhátíðin hér í Reykjavík
hefur nú verið undirbúin og einn-
ig hér hefur góð samvinna tekizt
við kirkjur borgarinnar, svo að
þáttur kirkjunnar f þessum
hátíðahöldum er eðlilegur.
A laugardaginn kl. 2 verður
klukknahringing í öllum kirkjum
Reykjavfkur. Biskup landsins tal-
ar á hátlðasamkomu Arnarhóls-
túni.
Á sunnudaginn verða þjóð-
hátíðarmessur I öllum krikjum
borgarinnar, eftir því sem við
verður komið og helgistund 1
garðinum í Laugardal 1 upphafi
hátíðahaldanna þar. (Ef veður
leyfir.) Mun sr. Grfmur Grímsson
og stjórna þeirri helgistund.
Þá verður hátfðasamkoma í
Dómkirkjunni um kvöldið kl.
8.30. Þar flytja erindi: Andrés
Björnsson útvarpsstjóri og Jón
Þórarinsson, tónsskáld. Strengja-
sveit og Dómkórinn mun flytja
tónlist eftir Sveinbjörn Svein-
björnsson, tónskáld.
Ég vil eintíregið hvetja bæjar-
búa til þess að sækja hátíðaguðs-
þjónustur dagsins og samkomuna
f Dómkirkjunni um kvöldið.
Þakklæti og lofgjörð til Drottins á
að vera veigamikill þáttur í
hátfðahöldum Þjóðhátíðarinnar.
Það er hlutverk kirkjunnar að
vera með fólkinu á gleði og al-
vörustundum lffsins og gera sitt
til að efla heilbrigða þróun þjóð-
lffsins. Vel mættum vér muna orð
E. Ben.
„Sújtjóð, sem f gæfu og
gengi vill búa,
á Guð sinn og land sitt
skal trúa.“
Með þjóðhátíðarkveðju til
Reykvíkinga.
Öskar J. Þorláksson
dómprófastur
— Gunnar
Framhald af bls. 8
stárfa fyrir hið opinbera algjörlega
endurgjaldslaust. Nú er svo komið,
að smásöluverzlunin er staersti inn-
heimtuaðili hins opinbera í þjóðfé-
laginu og í stórum fyrirtækjum er
þetta orðið svo mikið starf, að nauð-
synlegt er að hafa einn eða fleiri
menn á fullum launum til að annast
innheimtu á sköttum og skyldum
fyrir ríkið.
Hvaða áhrif hefur 25% innborg-
unarskyldan haft! för með sér?
— Hún hefur haft þau áhrif, að
nú þegar er farið að bera á vöru-
skorti, sem virðist aukast með hverri
vikunni sem líður.
Nú hafa margir haldið því fram,
að lokun verzlana á laugardögum
feli ! sér skerta þjónustu við neyt-
endur — varst þú hlynntur þessari
lokun?
— Benda má á ! sambandi við
þetta, að meginkrafa V.R ! síðustu
kjarasamningum var, að verzlanir
yrðu lokaðar á laugardögum, a.m.k.
yfir sumarmánuðina. Þetta féllumst
við á og vissulega má segja, að hér
sé um að ræða minnkandi þjónustu
við neytendur. En síðan 40 stunda
vinnuvikan var lögleidd og laugar-
dagurinn varð jafn dýr vinnudagur
og raun ber vitni var ekki mikill
grundvöllur fyrir því að hafa opið
þennan dag a.m.k. ekki þann tíma
ársins, sem minnst er að gera. Ann-
ars held ég, að þessi lokunartimi
hafi ekki mælzt illa fyrir hjá neytend-
um. Þessi lokunartími rennur út ! lok
ágúst.
Er eitthvað, sem þú vilt taka fram
að lokum?
— Ég vil aðeins nefna það, að
með aukinni verzlunarmenntun og
aukinni þekkingu almennings á gildi
og þýðingu verzlunar ! nútimaþjóð-
félagi og vonast ég til, að þessi mjög
svo nauðsynlega atvinnugrein mæti
! framtiðinni auknum skilningi, jafnt
hjá opinberum aðilum sem almenn-
ingi, og verði skipað á bekk með
öðrum höfuðatvinnugreinum þjóðfé-
lagsins. Og ekki er sízt nauðsynlegt,
að verzlunin njóti í framtíðinni sam-
bærilegrar fyrirgreiðslu og skilnings
frá hendi hins opinbera og aðrar
undirstöðuatvinnugreinar þjóðfé-
lagsins.
— Magnús
Framhald af bls. 8
komin ! land er hún tekin út hjá
viðkomandi skipafélagi og ávextirnir
keyrðir beint til verzlana. Það er
þess vegna hvergi jafn mikill hraði i
dreifingu og hjá okkur.
— Flytjið þið eingöngu inn
ávexti?
„Nei, heildsölur, sem selja á jafn
lítinn markað og (sland er, geta ekki
sérhæft sig eingöngu í einni vöru
Við erum þess vegna einnig með
Melka-skyrtur og Adidas-íþróttavör-
ur, en eins og kunnugt er notuðu
átta af hverjum tíu þátttakendum !
heimsmeistarakeppninni ! knatt-
spyrnu Adidas-skó."
— Nokkuð að lokum, Magnús?
„Ég vil svo gjarnan bæta þv! við
að lokum, að mig undrar að forráða-
menn margra íslenzkra verzlunarfyr-
irtækja skuli enn þann dag í dag
leggjast svo lágt að styrkja málgagn
þess stjórnmálaflokks, sem hefur
það á yfirlýstri stefnuská sinni að
ganga af einkarekstrinum dauðum,
og á ég þá við auglýsingar einkafyr-
irtækja ! „Þjóðviljanum". — Með
því að auglýsa í þessu málgagni
alþjóðakommúnismans eru hinir
sömu ! raun og veru að grafa slnar
eigin grafir.
íslenzk verzlunarstétt stendur nú á
vegamótum. Að henni er hart vegið
af vinstri öflunum ( landinu. En
verum þess minnug, að frelsi þjóð-
arinnar og frelsi verzlunarinnar fara
saman. Þá fyrst fór íslenzka þjóðin
að rétta úr kútnum, er verzlunin
komst í hendur innlendra manna.
Ósk mín til stéttarinnar á þessum
hátíðisdegi verzlunarmanna er þv!
sú, að hún haldi vöku sinni minnug
þess, að hér eftir sem hingað til mun
fara saman verzlunarfrelsið og frelsi
þjóðarinnar.
— Eyjólfur
Framhald af bls. 8
opnunartíminn á laugardögum var
styttur, frá kl. fjögur til eitt. Auk
þess lengir þetta helgina hjá þeim
og ég trúi ekki öðru en allir aðilar
séu ánægðir með að fá lengri helgi !
jafn góðu veðri og verið hefur !
sumar."
— Er verzlunarfólk ánægt með
kjör stn?
„Já, ég tel, að kjör verzlunarfólks
séu nú sambærileg við kjör annarra
stétta, en áður vorum við yfirleitt á
eftir öðrum stéttum með að fá kjara-
bætur. Launin hafa hækkað nokkuð,
þar munar mestu, að áður fékk
verzlunarfólk föst laun fyrir allan
vinnudaginn, en fær nú greitt sér-
staklega fyrir alla yfirvinnu nætur-
og helgidagakaup.
Fasteignir vantar
Hef nokkra mjög góða kaupendur að einbýlis-
húsum, raðhúsum og margs konar íbúðum,
sérstaklega í Kópavogi.
Sigurður Helgason hrl.,
Þinghólsbraut 53,
sími 42390.