Morgunblaðið - 04.08.1974, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. AGUST 1974
23
myndhöggvara Pálsdóttur; Björn,
bóndi í Vigur; Baldur, bóndi í
Vigur, kvæntur Sigríði
Salvarsdóttur frá Reykjarfirði við
Djúp; Þorbjörg, skólastjóri á tsa-
firði, gift Brynjólfi Samúelssyni
húsasm.; Þórunn kennari í
Reykjavík, gift Lárusi Árnasyni,
málaram. frá Akranesi og Sigur-
laug, nýkjörinn alþingismaður
Vestfjarða, gift Þorsteini rit-
höfundi Thorarensen.
Sem f öðru áttu þessar miklu
gæfumanneskjur barnaláni að
fagna.
Björg í Vigur lifir mann sinn í
hárri elli en hún varð 85 ára hinn
7. júlf s.l. Hún er höfðingi og
kvenskörungur. Björg er mér
ákaflega hugstæð kona. Ein af
mfnum fyrstu og ljúfustu
bernskuminningum eru tengdar
henni. Hún kom þá í heimsókn að
Barði og gaf mér gjöf, sem ég
aldrei gleymi. Hún var stjórnsöm
og hún var stórlynd. En ég hefi
frá því fyrsta verið sannfærður
um, að ég væri i sérstöku afhaldi
hjá henni. Kona, sem skapar slíka
sannfæringu sem endist um ævi
hjá litlum óvandabundnum
dreng, hlýtur að hafa stórt hjarta.
Ég minnist Bjargar og móður
minnar einn vordag 1942 er þær
fóru með pilsaþyt um forstofuna
á ungmennafélagshúsinu heima
en þá var verið að kjósa til
Alþingis í salnum inni. Þar heyrði
ég hjá þeim þann anda og viðhorf
sem að Sigurði yngra I Vigur hafa
síðan snúið frá þorra Norður-ís
firðinga og munu hafa dugað hon-
um vel í mikilvægum störfum
hans fyrir land og þjóð.
Ég minnist hennar frá
fermingardegi mínum, er hún
kraup við hlið mér við grátur
ögurkirkju. Hún gekk þá til
altaris með einu uppeldisbarna
sinna, Þórarni. Það var mikill sið-
ur þeirra Vigurhjóna að taka á
heimili sitt til lengri eða
skemmdri dvalar börn og
unglinga, sem kannske áttu ekki
höfðu að öðru að halla. öllum
komu þau til nokkurs þroska, eins
og segir um göfugmennið til
forna.
Ég sendi minni gömlu, góðu
g/inkonu kæra kveðju mína og bið
henni blessunar.
Bjarni í Vigur var snemma
kallaður til forystu um málefni
sveitar sinnar. Um áratuga skeið
hafði hann með höndum forystu í
öllum hagsmunamálum ögur-
hrepps sem máli þóttu skipta.
Hann var oddviti hreppsnefndar
1924— 1962. Sýslunefndarmaður
1925— 1962. Hreppstjóri ögur-
hrepps frá 1936. Form. Búnaðar-
félags Ogurhrepps 1921—1961 og
fulltrúi á fundum Búnaðarsam-
bands Vestfjarða 1923—1961. 1
sáttanefnd frá 1926. 1 stjórn For-
mannasjóðs N.-Is. í 22 ár. Fulltrúi
N.-Is. á fundum Stéttarsambands
bænda 1947—1956. I stjórn Djúp-
bátsins h/f frá 1947. Hann var
organisti f ögurkirkju um 20 ára
skeið.
Margt fleira mætti nefna og má
segja, að hann léti sér ekkert óvið-
komandi sem snerti hag og vel-
ferð sveitunga sinna. Ég hygg, að
vandfundinn sé sá maður, sem átt
hefir svo óskipt traust og virðing
samferðamanna sinna sem Bjarni
f Vigur.
Bjarni í Vigur var fríður maður
sýnum og hinn höfðinglegasti.
Hann var vel á sig kominn og
glaðbeittur f framgöngu. Jafn-
framt stafaði frá honum hlýja og
einstæð mannvinátta. „Hann var
yndislegur maður“, sagði móðir
mín er ég átti tal við hana að
honum látnum. Hún getur úr
flokki talað þar sem hún þekkti
hann um sjö tugi ára. Foreldrar
mínir heiðra og blessa minningu
hins ágætasta vinar.
Bjarni andaðist f sjúkrahúsi í
Reykjavík aðfaranótt hins 30. júlf
s.l. Hinn starfsfúsi maður hafði
átt næðisamt og fagurt ævikvöld
með konu sinni heima í Vigur í
skjóli sona og tengdadóttur. Til
blessunar varð lokabaráttan
skammvinn.
Þriðjudaginn 6. ágúst næst-
komandi verður héraðshöfðing-
inn til moldar borinn í ögri, þar
sem stendur kirkja hans.
Þótt sviðið verði autt um ögur-
sveit, þá stendur það sjálft eftir,
landið sem runnið er í merg og
bein. Endurnýjuð kynni við það
mun rifja upp svipmót þess fagra
mannlffs, sem var við Djúp vestur
fyrir margt löngu. Og mun þar í
fylkingarbrjóti fara, sem ávallt
áður, gæfusmiðurinn sveitar
sinnar, Bjarni bóndi í Vigur.
Sverrir Ilermannsson.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Móðir mfn hefur verið sjúk mánuðum saman og þjáist
stöðugt. Hvers vegna leyfir Guð þetta? Hjálpið mér til að skilja
þetta.
Hugsið andartak! Ef Guð veitti öllum þeim, sem
þjónuðu honum, fullkomna heilsu og velgengni,
mundu margir þjóna honum í von um hreysti og
ávinning. Trú á hann yrði óþörf, og kærleikur til
hans vegna hans sjáJfs yrði úr sögunni.
Jesús lofaði lærisveinum sinum ekki „dansi á
rósum“. Hanri sagði, að þeir myndu verða fyrirlitnir,
ofsóttir og píndir. En hann sagði: „Ég er með yður
alla daga, allt til enda veraldarinnar.“ Hann gengur
fram á svið sögunnar með þeim, sem þjóna honum,
og veitir sigur þar, sem ósigur virtist blasa við.
Sjúkleiki móður yðar kemur verr viö yður en
hana, af því að hún á trúartraustið, en þér efist.
Hvað sem þér gerið, þá látið ekki beiskju yðar í ljós í
návist hennar.
Það, sem mestu varðar í kristindómnum, er ekki
það, að kristnum mönnum sé hlíft við erfiðleikum,
heldur hitt, að þeir geta sagt, í erfiðleikunum: „Ég
veit, að lausnari minn lifir.“ Slik trú ætti að vera til
hvatningar öllum þeim, sem efast.
Evrópumót
unglinga
í bridge
AF FRÁSÖGN Morgunblaðsins af
úrslitum Evrópumóts unglinga f
bridge þriðjudaginn 30. júlf 1974,
mátti skilja, að Island hefði verið
f 12. sæti af 13. Svo var ekki.
Island var f 12. sæti af tuttugu
þjóðum, sem tóku þátt.
Heildarúrslit; stig.
1. Svfþjóð 266
2. Irland 258
3. Bretland 233
4. Noregur 228
5. Holland 223
6. Israel 221
7. Danmörk 220
8. Frakkland 217
9. Italfa 212
10. Pólland 206
11. Ungverjaland 203
12. Island 175
13. Finnland 170
14. Þýzkaland 165
15. Belgfa 164
16. Austurríki 155
17. Portugal 131
18. Spánn 110
19. Grikkland 89
20. Sviss 87
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin
störf:
BLAÐBURÐARFÓLK
AUSTURBÆR
Leifsgata
Vesturbær
Tómasarhagi.
Nýlendugata.
ÚTHVERFI
Selás.
Upplýsingar í síma 35408.
Einnig óskast umboðsmaður í
Teigahverfi
Uppl. í síma 10100.
Hofum tekið að okkur söluumboð fyrir hin
viðurkenndu vestur-þýzku eldhústæki frá
GAGGENAU. Öll tækin eru ætluð til inn-
byggingar í eldhúsinnréttingar. Ofnar, hellur,
djúpsteikingarpottar og kolagrill.
Allir ofnar eru sjáifshreinsandi.
Lítiö í gluggann um helgina
ÁRMÚLA 1A, SÍMI 86112, REYKJAVÍK