Morgunblaðið - 20.08.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST 1974
7
Séð yfir hluta sýningarsvæðisins í Leipzig.
Haustkaupstefnan í Leipzig:
Sýningaraðilar frá
rúmlega 50 löndum
HAUSTKAUPSTEFN-
AN í Leipzig verður hald-
in dagana 1.—8. sept-
ember n.k. Lætur nærri,
að rúmlega 100 sýningar-
hallir af sömu stærð og
Laugardalshöllin hér f
Reykjavík þyrfti til þess
að koma fyrir sýningu af
svipaðri stærð og Leipzig
sýningin. Sýningin fer
fram f 44 stðrum sýning-
arskálum á tæknisvæð-
inu og 16 sýningarhúsum
f miðbæ Leipzig og nær
yfir 270 þús. fermetra.
Kaupstefnan í Leipzig er
haldin tvisvar á ári, vor
og haust. Leipzigkaup-
stefnan er hin stærsta,
sem haldin er í heimin-
um og hún á sér rúmlega
800 ára sögu.
Sýnendur á Haust-
kaupstefnunni í
Leipzig nú í næsta
mánuði verða frá rúm-
lega 50 löndum og gestir
frá 80 löndum hafa þegar
boðað komu sína. — Af
hálfu Þýzka alþýðu-
lýðveldisins hefur mjög
verið vandað til þessarar
kaupstefnu, en nú í
september heldur það
hátíðlegt 25 ára afmæli
sitt. — Frá erlendum
sýningaraðilum er deild
Sovétrfkjanna stærst, en
þátttakendur eru frá 12
sólíalistaríkjum og sýna
þau í öllum vöruflokkum.
Þátttakan frá þróunar-
löndunum og frá vest-
rænum iðnaðarríkjum
hefur enn aukizt, sér-
staklega frá Frakklandi,
ítalíu, Japan, Svíþjóð,
Bretlandi, Sviss og
Bandaríkjunum og eru
meðal sýningaraðila frá
löndum þessum mörg
heimsþekkt fyrirtæki svo
sem Solvay, Belgíu,
Rhóne-Poulenc, Frakk-
landi, Shell og ICI, Bret-
landi, Mont-edison og
Eni, Italíu, Bayer,
Höchst og BASF, V-
Þýzkalandi, og Du Pont
og Dow Chemical frá
Bandaríkjunum.
í sambandi við
kaupstefnuna verða
haldnar margar ráðstefn-
ur og fyrirlestrar fluttir í
tugatali í ýmsum grein-
um af sérfræðingum frá
mörgum löndum.
Að venju er mikið um
að vera í Leipzig í tónlist-
ar- og leikhúsalífi meðan
sýningin stendur yfir og
koma þar fram margir
heimsþekktir kraftar. —
Ferðir til Leipzig eru
mjög hentugar og beinar
daglegar flugferðir verða
frá flestum höfuðborgum
Evrópu m.a. með INTER-
FLUG og SAS frá Kaup-
mannahöfn.
Umboðsmenn Kaup-
stefnunnar í Leipzig hér,
eru Kaupstefnan Reykja-
vík h.f., sem afhendiir
kaupstefnuskirteini er
jafnframt gilda sem
vegabréfsáritun. Þar má
fá allar upplýsingar um
sýninguna.
Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓTATÚN 27 sími 25891. Grindavik — ibúð Til leigu stór íbúð í Grindavík. Tilboð sendist afgr. Mbl merkt: ..962 ".
Toyota '72 Til sölu Toyota '72 4ra dyra, ekinn 26. þús. km. Fallegur bíll. Upplýsingar í síma 43179 eftir kl. 7. Keflavik — Suðurnes Til sölu 4ra herb. 1 1 0 fm sér efri hæð í Njarðvík. Laus strax. Verð 3,4 milljónir. Bila- og fasteignaþjónusta, Suðurnesja, Hafnargötu 50, sími .92-2925.
Ytri-Njarðvík Til sölu einbýlishús og nýlegar 3ja og 4ra herb. íbúðir. Fasteiqnasalan, Hafnargötu 2 7, Fasteignasalan, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Til sölu er vönduð 4ra herb. ibúð við Vesturberg. Upplýsingar i sima 71649.
Til sölu Datsun 160 B árgerð 1972. Mjög góður bíll. Útvarp. Stöng rafdrifin. Vetrardekk. Upplýsingar i sima 92-2925 eftir hádegi daglega. m WR ER EITTHURÐ $ FVRIR RLLR ^ 2Bíirgunt>I&MÍ>
SVFR
Nokkrar stengur lausar, verðkrárverð, í Grímsá
23 — 25 ágúst.
Stanga veið ifélag Reykia víkur,
sími 86050.
<2<3<2<2<2<2<S<S <2<2<2<2<3 <S<2<S<S<2<S <2<5<2<3<2 <2 <2 <2<2<2<2<2<2 <2 <2<2<2<-í>
| Stórglæsileg |
| íbúð í Hraunbæ |
■5? g
3ja herbergja 90 fm. íbúð á 3ju hæð, harðvið- Æ
arinnréttingar fullfrágengin lóð, góð sameign. |
Sölumenn: " %
Kristján Knútsson
§ Lúðvík Halldórsson.
V
v
<3<2<2<2<2 <3<2<2<2<3<3<2 <3<3<3<2<3<3<2<2 <3<3<3<2<3 <S<3<S<3<2'3<S<S*2<3-3<2 <2
IMámsstyrkir fyrir
starfandi félagsráðgjafa
og æskulýðsleiðtoga.
Cleveland International Programs for Youth
Leaders and Social Workers (CIP) býður styrki
til starfsþjálfunar fyrir félagsráðgjafa, æskulýðs-
leiðtoga og kennara vangefinna fyrir árið 197 5.
Þátttökuskilyrði fyrir námskeiðum CIP, sem
haldin verða sumarið 1975, eru:
1. Umsækjendur skulu vera á aldrinum frá 23
til 40 ára.
2. Umsækjendur verða að standast enskupróf.
3. Umsækjendur verða að geta tekið frí frá
störfum í fjóra mánuði, u.þ.b. frá aprílmán-
uði 1 975.
Frá því 1962 hafa 28 íslendingar hlotið styrki
til starfsþjálfunar frá CIP. Cleveland-áætlunin
(CIP) er sérstætt framlag til að auka skilning
milli þjóða á hinum ýmsu félagslegu vandamál-
um með því að styrkja þá er starfa að slíkum
vandamálum til náms- og starfsdvalar í Banda-
ríkjunum þar sem þeir kynnast af eigin raun
starfsbræðrum sínum og þeim verkefnum, sem
þeir glíma við. Styrkir þessir bjóða úpp á
fyrirlestra, umræðuhópa og raunhæft starf, auk
þess sem þátttakendur kynnast bandartsku
þjóðlífi af eigin raun.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
liggja frammi hjá Fulbright-stofnuninni (U.S.
Educational Foundation in lceland), Neshaga
1 6, Reykjavík, frá kl. 1 3 til 18 daglega.