Morgunblaðið - 31.08.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 31.08.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1974 Sýnir í Borgarnesi X-3 JOHANNA Bogadóttir, list- málari, opnar sýningu á 30 grafík- myndum f Snorrabúð f Borgar- nesi næstkomandi laugardag, þann 31. ágúst kl. 3.00. Sýningin verður opin f þrjá daga frá klukk- an 3.00 til 10.00. Jóhanna hefur áður haldið tvisvar einkasýningar í Reykjavík og nokkrum sinnum úti á landi. Nú f vor sýndi hún verk sín á Akureyri og f Vestmannaeyjum. Einnig hefur hún tekið þátt í ýms- um samsýningum bæði heima og erlendis. Jóhanna stundaði myndlistar- nám f Frakklandi og Kaupmanna- höfn og hefur að undanförnu lagt megináherslu á grafík. Sýning hennar í Borgarnesi verður því jafnframt kynning á þessari teg- und myndlistar. Melskurðardag- ur Skarphéðins 1 DAG 31. ágúst verður skorinn melur á vegum landgræðslu- nefnda Héraðssambandsins Skarphéðins við Þorlákshöfn f Arnessýslu og á Krossandi f Aust- ur-Landeyjum f Rangárvalla- sýslu. Ætlast er til, að hvert ung- mennafélag á sambandssvæðinu sendi a.m.k. 5 þátttakendur, en auk þeirra eru allir, bæði Sunn- lendingar og aðrir, velkomnir til þátttöku f þessu starfi, sem hefst ki. 14. Það eina, sem fólk þarf að hafa með sér, eru hnífar til að skera með, en menn frá Landgræðslu ríkisins sjá fyrir pokum, leið- beina við melskurðinn og taka við skornum mel. Melurinn verður síðar þresktur í vetur og sáð næsta vor, þar sem stöðva þarf sandfok og uppblástur. Ekki er unnt að koma við nein- um vélum við melskurð, og er því eina leiðin til að nýta melfræið, sem hefur þroskast vel í sumar, að margir leggi hönd að verki við melskurðinn. Á melskurðardegi Skarphéðins f fyrra var skorið á þessum sömu stöðum um 4 tonn af mel, og er það von landgræðslunefnda H.S.K. að almennur áhugi fyrir landgræðslu á þjóðhátfðarári komi fram í því, að enn meira verði skorið á laugardaginn kem- Portúgal þjóð- nýtir bankana Lissabon 28. ágúst — NTB. PORTÚGALSKA rfkisstjórnin hefur ákveðið að þjððnýta þá þrjá banka f landinu, sem leyfi hafa tíl seðlaútgáfu, en þeir hafa hingað til verið reknir af hlutafélögum. Þá var frá þvf skýrt f Lissabon f dag, að hið rfkisrekna flugfélag TAP hefði verið sett undir stjórn hersins til þess að koma f veg fyrir frekari verkföll hjá þvf. Fyrr f dag höfðu um 2000 starfs- menn flugfélagsins ákveðið að hefja á ný vinnu eftir 3 daga verkfall. Pflot0tmMat>it> =^i mnRCFnLDRR mÖCULEIKR VÐHR KOTTURINW feux *v FlNr AUFA, IPESSAR MJOLk- URFLÖSKuf? -^gefin-sL. , GEISLARAí)AR/NN er ÞARfaÞing? EKKE.RT til Ae> fArasf VFiRr ÚÚPS! smAfúlk PFAMIS Ti. TH0U6HT YO V UJERE AFRAIP TO 60 OVE? T0 THE PLAY6R0UND... N0T AN^MORE... l'M F0LL0UIN6 THE APVlCE 0F TH60P0f?E R006EVELT..." $PEAK 50FTLY, ANP CARRY A BEA6LE /" (JHAT HAPPEN6 IF HOUMEET 60MEONE U)H0 6PEAK6 60FTLV ANPCARRIE5 A 5T.BERNARP? Ég hélt að þú værir hrædd við að fara út á leikvöllinn . . . Ekki lengur . . . Ég fer eftir heil- ræðinu „Lækkaðu róminn og hafðu hund f bagga“. Hvað gerist ef þú hittir einhvern, sem talar lágum rómi og hefur ljón f bagga? Við reynum nú bara að hugsa ekkert um svoleiðis nokkuð! FEROIIMAIMD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.