Morgunblaðið - 05.09.1974, Side 27

Morgunblaðið - 05.09.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 27 | ÍÞBdnAFRfniB MOBCUHBLABSIWS Dagur Norðurlandanna á Evrópumeistaramótinu Vetrar- starf TBR VETRARSTARF TBR er nú senn að hef jast. Formaður fé- lagsins, Garðar Alfonsson, verður til viðtals f Gnoðavogi 1, við nýja TBR-húsið frá kl. 17.00—19.00 f dag, fimmtudag, á morgun og n.k. þriðjudag. Þeir sem ætla að fá tfma hjá félaginu f vetur þurfa að skrá sig sem fyrst. Sfmi er 82266. Mál KR til aganefndar Stjórn KSÍ hefur þegar f jall- að um þá framkomu KR-inga að tefla Ölafi Ólafssyni, manni f leikbanni, fram I leik sínum við Akranes á laugardaginn, sagði Ellert B. Schram, for- maður KSÍ I gær. Stjórnin lft- ur þetta mál mjög alvarlegum augum, en kaus að afgreiða það til aganefndarinnar, sem mun síðan taka ákvörðun um hvað gera skuli. Þá kom einnig til umræðu að landsliðsþjálfarinn, Antony Knapp, hefði sent UEFA- Evrópuknattspyrnusamband- inu, kæru á hendur íslenzku dómurunum. Um það mál sagði Ell^rt. — Sú kæra hefur ekki verið send og mun ekki verða send, a.m.k. ekki meðan Anthony Knapp er starfsmað- ur KSÍ. Karl ekki nógu góður — ASTÆÐAN fyrir þvf að Karl Þórðarsson er ekki valinn f landsliðið er sú, að ég tel hann ekki nógu góðan til þess að skipa landsliðsstöðu, sagði Bjarni Felixson, talsmaður landsliðsnefndar á blaða- mannafundi KSl f gær, þar sem sú spurning var lögð fyrir viðstadda nef ndarmenn hvern- ig á þvf stæði að þessi ágæti leikmaður hefði ekki hlotið náð fyrir augum nefndarinn- ar. Bjarni sagðist oft hafa lýst þeirri skoðun sinni að Karl væri einn efnilegasti knatt- spyrnumaður sem við ættum, — en hann hefur ekki þann Ifkamsstyrk sem þarf f jafn erfiðan leik og á móti Belgfu- mönnum, sagði Bjarni. Birgir með lands- liðið Á fundi sem stjórn HSl hélt með fréttamönnum f gær, var tilkynnt að Birgir Björnsson myndi verða landsliðsþjálfari og landsliðseinvaldur, a.m.k. nú fyrst um sinn. Greindi Sigurður Jónsson, formaður HSÍ, frá þvf, að stjórnin hefði mikinn hug á því að fá hingað til starfa erlendan þjálfara, og hefði þegar hafið undirbúning að þvf að fá hann. Hins vegar væri það ólíklegt að það tækist alveg á næstunni, og hefði því verið leitað til Birgis og hann beðinn að taka að sér liðið þangað til. 400 m hlaup kvenna GlFURLEGUR fögnuður braust út meðal finnskra áhorfenda og keppenda á Evrópumeistara- mótinu f Róm f gær, er Riitta Salin, kornung stúlka frá Helsinki kom fyrst f mark f úrslitahlaupi 400 metra hlaups kvenna á nýju Norðurlandameti og Evrópumeistaramótsmeti 50,14 sek. Þar með hafa Finnar þegar hlotið tvenn gullverð- laun f kvennakeppni Evrópumeistaramótsins. Nokk uð sem enginn hafði búizt við, nema þeir sjálfir, þar sem fínnsku blöðin spáðu þvf fyrir keppnina, að nú væri tfmi finnsku stúlknanna kominn, og að þær myndu koma á óvart f keppninni. Salin hljóp 400 metra hlaupið stórglæsilega. Til að byrja með virtist hún aftarlega f hópnum, en þegar komið var út á beinu braut- ina tók hún eftirminnilegan sprett sem hún linnti ekki fyrr en í markinu. Hinar heimsfrægu austur-þýzku hlaupadrottningar féllu algjörlega í skuggann í þessu hlaupi fyrir finnsku stúlk- unni og ein verðlaun varð upp- skera A-Þýzkaiands í greininni sem flestir áttu von á að myndu færa þeim gull, silfur og brons. Urslit f hlaupinu: R. Salin, Finnl. 50,14 E. Streidt, A-Þýzkal. 50,69 R. Wilden, V-Þý-zkal. 50,88 N. Ilijna, Sovétr. 51,22 E. Handt, A-Þýzkal. 51,24 K. Kafer, Austurr. 51,77 V. Bcrnard, Bretl. 52,61 J. Pavlicic, Júgósl. 53,01 800 m hlaup kvenna BULGARSKA stúlkan L. Tomova vann nokkuð öruggan sigur í 800 metra hlaupi kvenna á Evrópu- meistaramótinu f Róm f gær. Tími hennar var mjög góður: 1:58,1 mín., enda gífurlega mikill hraði í hlaupinu frá byrjun. Fylgdust stúlkurnar að í nokkuð þáttum hnapp allt til þess að 200 metrar voru til marksins, en þá hófst mikil barátta milli Tumoya og Hoffmeister frá Austur-Þýzka- landi. Kom greinilega fram á sfðustu metrunum að sú búlgarska var sterkari og kom vel fyrst í markið. Urslit í hlaupinu urðu þessi: L Tomova, Búlgar. 1:58,1 G. Hoffmeister, A-Þýzkal. 1:58,8 M. Suman, Rúmenfu 1:59,8 M. Dubois, Frakkl. 1:59,9 V. Gerasimova, Sovétr. 2:00,1 N. Morgunova, Sovétr. 2:00,8 E. Katolik, Póll. 2:01,4 G. Klein, V-Þýzkal. 2:01,5 400 m grind ÞEGAR úrslitahlaup 400 metra grindahlaupsins hófst á Evrópu- meistaramótinu f Róm f gær beindist athygli flestra að Sovét- mönnunum þremur sem tóku þátt f hlaupinu. Þeir höfðu náð bezta árangrinum f undankeppninni og hlaupið sérstaklega vel, þannig að margir áttu þarna von á þre- föidum Sovétsigri. Til að byrja með voru hlaup- ararnir nokkuð jafnir, en eftir um 100 metra sprett tók nokkuð að greiðast úr. Bretinn Pascoe og Frakkinn Nallet tóku forystuna og fylgdust að hlið við hlið yfir hverja grindina af annarri og hlupu báðir stórglæsilega. Á endasprettinum reyndist Bretinn sterkari og sigraði á frábærlega góðum tíma 48,82 sek., og er það nýtt Evrópumesitaramótsmet. Það er af Sovétmönnunum að segja, að þeir áttu mjög í vök að verjast. Stúdentaheimsmeistar- inn Gavrilenko hreppti þó brons- verðlaunin í hlaupinu, en landar hans höfnuðu í fimmta og sjötta sæti. Urslit hlaupsins urðu þessi: A. Pascoe, Bretl. 48,82 Jean-Claude Nallet, Frakkl. 48,94 E. Gavrilenko, Sovétr. 49,32 S. Tzidritzis, Grikkl. 49,71 D. Stuckalov, Sovétr. 49,98 V. Savsjenko, Sovétr. 50,01 J. Hewelt, Póll. 50,26 R. Ziegler, V-Þýzkal. 50,49 Kringlukast EINN þeirra sem tók þátt f gleði- látum Finnanna á Evrópumeist- aramótinu f Róm f gær, að loknu 400 metra hlaupi kvenna, var Pentti Kahma, bezti kringlukast- ari Finna, en hann stóð þá f eld- lfnu úrslitakeppninnar f kringlu- kastinu. Gat hann þvf ekki gefið sér mikinn tfma til þess að sam- fagna Salin, heldur kom sér á sinn stað, f kringlukastshringinn, og þegar f næsta kasti flaug kringlan úr hendi hans 63,62 metra, og nægði það kast til sig- urs f keppninni. 1 annað skiptið sama daginn hljómaði þvf finnski þjóðsöngurinn, þegar verðlaun voru afhent. Svíinn Ricky Bruch var álitinn sigurstranglegastur í kringlu- kastskeppninni, enda hefur hann verið öruggur með 65—66 metra köst á þeim mótum sem hann hef- ur tekið þátt í að undanförnu. Bruch dvaldi meira að segja á Ítalíu nær allan fyrravetur til þess að búa sig sem bezt undir þessa keppni. Þarna ætlaði hann sér ekkert minna en gullið, og að afsanna það að hann gæti ekki náð sínu bezta á stórmótum. En Bruch hafnaði þarna í þriðja sæti og mátti teljast góður með það, þar sem það var ekki fyrr en f sfðasta kasti að hann náði að hrifsa bronsverðlaunin frá A- Þjóðverjanum Pachale. Úrslitin urðu: P. Kahma, Finnl. 63,62 L. Danek, Tékkóslv. 62,76 R. Bruch, Svfþjóð 62,00 S. Pachale, A-Þýzkal. 61,20 V. Velev, Búlg. 61,00 V. Penzikov, Sovétr. 60,86 de Vincentis, ttalfu 59,68 G. Fejer, Ungverjal. 59,46 F. Tegla, Ungverjal. 58,92 L. Gajdzinski, Póll. 58,88 H. Neu, V-Þýzkal. 58,80 G. Muller, A-Þýzkal. 58,32 S. Simeon, ttalfu 56,14 J. Tuomola, Finnl. 55,85 Hástökk Þjóðargleði var f Danmörku f gærkvöldi eftir að þær fréttir bár- ust frá Evrópumeistaramótinu I Rðm að Iæknaneminn Jesper Törring hefði orðið Evrópu- meistari f hástökki. Törring sýndi mikið öryggi f þessari keppni og hlaut titil sinn út á það að nota færri tilraunir við stökk sfn en Sovétmaðurinn Shapka sem þarna varð f öðru sæti. Báðir stukku þeir 2,25 metra, en felldu 2,28 metra þrfvegis. Var Törring þó nærrí þvf að fara þá hæð f einni tilraun sinni. Törring setti Norðurlandamet f hástökki fyrr f sumar og stökk þá 2,23 metra. Fyrir Evrópumótið var það annar bezti hástökks- árangur f álfunni í ár, Sovét- maðurinn Abramov hafði gert betur og stokkið 2,24 metra. Hins vegar leit ekki alltof vel út fyrir Törring f keppni Evrópumeistara- mótsins þar sem hann meiddist á ökkla skömmu fyrir hana. Daninn varð þvf að treysta á heppni sína og sleppa eins mörgum stökkum og mögulegt var. Og einmitt það færði honum Evrópumeistaratitil- inn þegar upp var staðið. Úrslit urðu þessi: J. Törring, Danm. 2,25 K. Shapka, Sovétr. 2,25 V. Maly, Tékkóslv. 2,19 I. Major, Ungvl. 2,19 J. Wszola, Póll. 2,19 L. Falkum, Noregi 2,16 R. Bergamo, ttal. 2,16 B. Brokken, Belgfu 2,13 D. Patronis, Grikkl. 2,13 A. Pesonen, Finnl. 2,10 G. Ferrari, Italfu 2,10 V. Abramov, Sovétr. 2,10 R. Saint Fose, Frakkl. 2,10 G. Moreau, Belgfu 2,00 400 m hlaup VESTUR-Þjóðverjar hlutu sín fyrstu gullverðlaun á EM í gær, er Karl Honz kom fyrstur að marki í 400 metra hlaupinu á nýju Evrópumeistaramótsmeti 45,04 sek. Hlutur Vestur-Þjóðverja hafði ekki verið stór á mótinu til þessa, og afrek Honz þvf næsta kærkomið fyrir þessa miklu frjálsíþróttaþjóð. Honz hljóp 400 metra hlaupið glæsilega, tók snemma forystu og hélt henni til loka. Harðari barátta var um næstu sæti, sérstaklega þó þriðja sætið, en þar varð Finninn Markku Kukkoaho að láta í minni pokann fyrir öðrum Vestur-Þjóð- verja, þrátt fyrir hetjulega bar- áttu sína. Urslitin urðu: Karl Honz, V-Þýzkal. 45,04 D. Jenkins, Bretl. 45,67 B. Herrmann, V-Þýzkal. 45,78 M. Kukkoaho, Finnl. 45,84 O. Karttunen, Finnl. 45,87 M. Fredriksson, Svfþj. 46,12 E. Carlgren, Svfþj. 46,15 F. Demarthon, Frakkl. 46,19 800 m hlaup LlTT þekktur hlaupari frá Júgóslavfu hreppti gullverðlaun- in f 800 metra hlaupi á Evrópu- meistaramótinu f Róm f gær. Sýndi hann mjög óvænta yfir- burði f hlaupinu, þar sem hann kom f markið næstum tveimur sekúndum á undan næsta manni. Barátta hlaupsins stóð um silfur- verðlaunin, en þar urðu mynda- vélarnar og hin sjálfvirku tfma- tökutæki að skera úr um röð. Kom það mönnum nokkuð á óvart að tfmamunur skyldi gerður á hlaupurunum sem virtust koma hnff jafnir f markið. Meðal keppenda í hlaupinu var heimsmethafinn Fiasconaro frá Italfu. Fyrir hann varð hlaup þetta hálfgert „fíaskó“. Hann átti ekki möguleika í þeim gffurlega hraða sem haldið var uppi og hafnaði í sjötta sæti, sjónarmun á undan þeim sem urðu f sjöunda og áttunda sæti. Urslit hlaupsins urðu: L. Susanj, Júgóslv. 1:44,1 S. Ovett, Bretl. ^ 1:45,8 M. Taskinen, Finnl. 1:45,9 V. Ponomarev, Sovétr. 1:46,0 G. Stolle, A-Þýzkal. 1:46,2 M. Fiasconaro, Italfu 1:46,3 D. Fromm, A-Þýzkal. 1:46,3 W. Wulbeck, V-Þýzkal. 1:46,3 Landsliðið valið Stjórn Knattspyrnusam- bands tslands tilkynnti f gær val landsliðsnefndar á iands- liðinu sem leika á við Belgfu- menn á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Leikur þessi er liður f Evrópubikarkeppni landsliða, en sem kunnugt er leikur tsland þar f riðli með Belgfu, A-Þýzkalandi og Frakklandi. Verður þetta jafn- framt fimmti landsleikur ts- lands og Belgfu. Hafa Belgfu- menn ætfð borið sigur úr být- um og markatalan f landsleikj- unum fjórum er 21:2, þeim f vil. Landsliðið verður þannig skipað: Þorsteinn Ólafsson, tBK Magnús Guðmundsson, KR Björn Lárusson, ÍA Eirfkur Þorsteinsson, Vfkingi Jón Péturssoa Fram Marteinn Geirsson, Fram Jóhannes Eðvaldsson, Val Karl Hermannsson, tBK Grétar Magnússon, tBK Guðgeir Leifsson, Fram Asgeir Elfasson, Fram Teitur Þórðarson, t A Matthfas Hallgrfmsson, lA Gfsli Torfason, tBK Atli Þór Héðinsson, KR Asgeir Sigurvinsson, Standard Liege. Svo sem sjá má af þessari upptalningu er liðið mjög Iftið breytt frá þvf sem var í leikn- um við Finna á dögunum. Þeir sem koma nú nýir inn f lands- liðshópinn eru Magnús Guð- mundsson, KR, Björn Lárus- son, ÍA, Jón Pétursson, Fram og Asgeir Sigurvinsson, Standard Liege. Koma þeir f stað Sigurðar Haraldssonar, Magnúsar Þorvaldssonar, Jóns Gunnlaugssonar og Óskars Tómassonar. • * v.#*' Reykjavíkurmótið í frjálsum íþróttum Reykjavíkurmeistaramótið f frjálsum íþróttum — aðalhluti fer fram á Laugardalsvellinum n.k. máudag og þriðjudag. Keppnisgreinar eru eftir- taldar: KARLAR: Fyrri dagur: 100 metra hlaup, 400 metra hlaup, 1500 metra hlaup, 110 metra grindahlaup, 4x100 metra boð- hlaup, langstökk, stangar- stökk, kúluvarp, spjótkast. Seinni dagur: 200 metra hlaup, 800 metra hlaup, 5000 metra hlaup, 400 metra grindahlaup, 4x400 metra boðhlaup, hástökk, þrfstökk, kringlukast, sleggjukast. KONUR: Fyrri dagur: 200 metra hlaup, 800 metra hlaup, 100 metra grindahlaup, 4x400 metra boðhlaup, hástökk, kringlukast. Seinni dagur: 100 metra hlaup, 400 metra hlaup, 1500 metra hlaup, 4x100 metra boðhlaup, kúluvarp, spjótkast og langstökk. I 5000 metra hlaupinu verð- ur tekinn millitími á 2 enskum mílum. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt Olfari Teitssyni fyrir fimmtudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.