Morgunblaðið - 08.09.1974, Side 1

Morgunblaðið - 08.09.1974, Side 1
36 SIÐUR OG LESBOK 169. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Verðbólga og gjaldþrot — slæmur efnahagur Evrópu Mikil efnahagsleg vandamál hafa steðjað að löndum Vestur- Evrópu nú f sumar. Hafa þau m.a. komið fram f auknu at- vinnuleysi, hækkandi vöxtum og mikilli verðbólgu. Hefur verðbólga ekki verið jafnmikil sfðan 1950. t kjölfar þessara vandamála hefur alda gjald- þrota banka og iðnfyrirtækja gengið yfir. Vandamál Evrópu, sem leiddu af olíuskortinum síðasta vetur eru reyndar ekki bundin við þá heimsálfu eina, og því eru litlar likur fyrir því, að hver einstök ríkisstjórn geti leyst vandamál lands síns án þess að eiga viðskiptastríð á hættu. Fjórföldun ólíuverðs og sí- hækkandi verð hráefnis síðast liðið vor eiga þó ekki sök á ástandinu nema að hluta, að því er hagfræðingar segja. Benda þeir á, að verðbólga hafi grafið um sig í mörgum löndum, áður en oliukreppa kom til sög- unnar, og eins voru vextir þeg- ar byrjaðir að hækka. Vestur-Þjóðverjar voru fyrst- ir til að grípa til ráðstafana gegn verðbólgunni, en það kom þeim i slæma klemmu. Inn- flutningur minnkaði á meðan útflutningur jókst, sem varð til þess að greiðslujöfnuður þeirra varð hagstæðari en nokkru sinni fyrr. Með þessu juku þeir á vandamál nágranna sinna, sem eiga erfitt með að auka útflutning sinn. Hefur vestur- þýzki fjármálaráðherrann því mátt heimsækja bæði ítalfu og Frakkland í því skyni að bjóða stórlán, sem hresst gætu upp á greiðslujöfnuð þessara landa. I Bretlandi hrannast vanda- málin upp og hafa sumir hag- fræðingar þar í landi spáð þvi, að núverandi verðbólga kunni að ganga að stjórnarfarinu dauðu. OECD, efnahags og framfara- stofnunin hefur gefið út töflu yfir verðbólgu í aðildarlöndum sinum frá því í júní 1973 til júnl 1974: Prósent ísland 43.8 Grikkland 30.2 Portúgal 25.6 Japan 23.6 Finnland 17.3 Bretland 16.5 Spánn 16.3 Italía 16.2 Danmörk 14.3 Frakkland 13.9 Belgía 12.6 Kanada 11.4 Bandarikin 11.1 Ástralia 10.2 Sviss 9.6 Holland 8.9 Svíþjóð 8.5 Noregur 8.2 Vestur-Þýzkaland 6.9 I GÆRMORGUN var Norðurlandamótið f köstum á stöng sett á Laugardalsvelli, en mótið er haidið f Reykjavfk um þessa helgi. Keppendur eru um 40, þar á meðal þessar tvær blómarósir frá Svfþjóð, Lise-Lotte Kristianson og Krístina Anderson. Neðri myndin sýnir setningarathöfnina. Ljósm Mbl. Sv. Þorm. ,,Lygn streymir Don” ekki eftir Sholokov segir Solzhenitsyn RUSSNESKI rithöfundurinn Alexander Soizhenitsyn, sem nú er f útlegð, segist hafa fundið skýringu á máii, sem valdið hefur sovézkum bókmenntafræðingum hugarangri undanfarin 40 ár. Fydor Kryukov Segist hann hafa uppgötvað hver sé raunverulegur höfundur „Lygn streymir Don“, sem er eitt merkasta bókmenntaverk, sem skrifað hefur verið f Sovétrfkj- unum eftir byltinguna 1917. Þegar skáldsagan kom út árið 1928, var hún eignuð Mikhail Sholokhov, sem reyndar var skrif- aður fyrir henni og hlaut hann þegar mikinn heiður fyrir verkið, bæði f Sovétríkjunum og hinum vestræna heimi. En samt hafa alltaf verið uppi efasemdir um, að hann hafi getað skrifað svo mikið verk ekki eldri en hann var. I nýútkominni bók Solzhenit- syns er að finna skjöl, sem hann hafði með sér frá Sovétríkjunum, til að geta sýnt fram á, að höf- undur frumhandrits „Lygn streymir Don“ hefi verið Fyodor Kryukov, liðsforingi í her Kósakka. Kryukov ritaði margar bækur um Don-hérðið, þar sem hann er fæddur, en lézt úr tauga- veiki við uppgjöf Kósakkahersins fyrir Rauða hernum árið 1920. Meginstoð fullyrðinga Solz- henitsyns er mjög nákvæm skýrsla um bókmenntalegar greiningar og rannsóknir, sem vinur hans hefur unnið í Sovét- ríkjunum. Solzhenitsyn kallar þennan vin sinn „D“, en hann lézt áður en hann gat fundið verk sitt. I formála bókar sinnar segist Solzhenitsyn harma það, að hann gæti ekki sýnt þessum vini sfnum fylla virðingu með því að skýra frá nafni hans, en þvf haldi hann leyndu enn um sinn vegna að- standenda hans, sem búa í Sovét- ríkjunum. Hvetur hann sovézka fræðimenn tii að halda rann- sóknum áfram svo að hægt verði að gefa skáldsögu Kryukovs út í upprunalegri mynd. Mikhail Sholokhov er fæddur árið 1905 og var þvf aðeins 23 ára gamall þegar fyrsta bindi „Lygn streymir Don“ kom út. Þá hafði hann verið rithöfundur að atvinnu í sex ár og gefið út nokkrar smásögur. Strax eftir útkomu bókarinnar varð uppi orðrómur um, að Sholokhov væri ekki hinn rétti höfundur bókarinnar, eða eins og Solzhenitsyn segir: „Orðrómur gekk um, að sá, sem titlaður væri \ höfundur bókarinnar, væri í raun ekki sá rétti. Sholokhov hefði fundið tilbúið handrit (sumir segja dagbók), sem tilheyrði látnum kósakkaliðsforingja, Og notað það í eigin þágu.“ Þessi orðrómur varð til þess, að hópur „öreiga" rithöfunda birti Framhald á bls. 13. Mikhaii Sholokhov 50 skotnir Höfðaborg 7. september — Reuter. LÖGREGLAN í Suður-Afrfku hefur á fyrstu sex mánuðum þessa árs skotið 50 manns til bana. Enginn þeirra var hvft- ur. Það var lögreglumálaráð- herra landsins, sem sagði frá þessu. 42 hinna skotnu voru Afrfkumenn, 7 blandaðir og 1 Asfumaður. Tyrkir vilja fækka Ankara 7. september — NTB TYRKIR eru r'eiðubúnir til að fallast á tilmæli Breta og Bandaríkjamanna um, að þeir fækki í herliði sínu á Kýpur, sögðu áreiðanlegar heimildir í Ankara. Þetta þýðir, að nú er fátt í vegi fyrir því, að friðarviðræð- ur geta hafizt á ný milli Tyrkja og Gríkkja. Lýsa stríði gegn Peron Buenos Aires 7. september — AP. UNGIR vinstrisinnar innan Peronistahreyfingarinnar lýstu þvf yfir f gærkvöldi, að þeir ætli að hef ja vopnaða bar- áttu gegn Marfu Estellu Peron, forseta Argentfnu og stjórn hennar. Segir talsmaður vinstrisinn- ana, að hún sé ekki lengur fuiitrúi þjóðarinnar. Hópur- inn, sem gengur undir nafninu Montoneros, segir, að frú Per- on eigi að leiða fyrir rétt fyrir að hafa látið pynda þrjá vinstri sinnaða unglinga til dauða. Mavros Mtt- ir Makaríos París, 7. september — Reuter. GRÍSKI utanríkisráð- herrann Georges Mav- ros fór á laugardag til Genfar til fundar við fyrrverandi forseta Kýp- ur, erkibiskupinn Maka- ríos. Átti fundur þeirra að vera síðdegis á laug- ardag. Mavros sagði fyrir brottför sína frá París, að hann óskaði ekki eftir því, að Makaríos kæmi aftur til Kýpur eins og nú standa sakir. Á fund- inum ætlaði Mavros að skýra Makaríosi frá ástandinu á eynni og hverjar tillögur Grikkir hafa fram að færa til lausnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.