Morgunblaðið - 08.09.1974, Síða 7

Morgunblaðið - 08.09.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1974 7 Doði í norskum stjórnmálum Noregsbréf frá Skúla Skulasyni Nesbyen 14. ágúst. Ef gera skal grein fyrir norskum stjórnmálum I dag, er óhjákvæmi- legt að Ifta um öxl og rifja upp nokkrar undirstöðustaSreyndir. — Kosningarnar 10. sept. t fyrra leiddu af sér aukna ringlureið t flokkaskipuninni og fall minni- hlutastjórnar Korvalds, enda var henni aldrei ætlað að verða nema til bráðabirgða. Úrslit kosninganna urðu að ýmsu leyti söguleg, en þó fór þvt fjarri, að llnurnar skýrðust á stjórnmáiasviðinu. Það eftirtektar- verðasta var, að atkvæðamagn verkamannaflokksins hrapaði úr 46,5 niður f 35,5% og þing- mannafjöldi hans úr 74 í 62. En hægri, næststærsti flokkurinn hélt óbreyttri þingmannatölu, þó að kjósendur hans yrðu 2% færri en við kosningamar 1969. Hann hef- ur 29 þingsæti. Þá er næst að telja miðflokkanna: Kristilega flokkinn og Sentrums Parti Bortens. Kristilegi flokkurinn bætti við sig 6 þingsætum og hefur nú 20 þingsæti, en SP einu sæti og hefur 21. Þetta er allt sæmilega skýrt, en nú vandast málið. Haustið 1969 töldust 13 vinstrimenn kosnir á þing, en tveir flokkar, sem nefnd- ust „Kommúnistapartfet" og „Sosialistisk Folkeparti" fengu hvorugur þingsæti. Þeir komu hvorugur fram undir sama nafni 1969.en f stað þeirra birtist flokk- ur, sem nefndist „Sosialistisk Valgforbund" — einskonar „Samtök" kommúnista, róttækra vinstrimanna og óánægðra fyrr- verandi fylgismanna Brattelis. Þessi „samtök" (Sosialistisk Valg- forbud = SV) fengu tæp 240 þús. atkvæði og 16 þingmenn kjörna. Hinsvegar missti gamli Vinstri- flokkurinn 11 af sínum 13 þing- sætum, svo að nú teljast aðeins tveir þingmenn eftir f Vinstri- flokknum, sem á fyrri hluta aldar- innar var tíðum valdamesti flokk ur landsins. þó að ekki væri hann fjölmennastur. Þriðja vinstrimann á þingi má þó nefna: — Helge Rognlien. sem kallar eins manns flokks sinn „Det nye Folkeparti" — DNP. Sigurvegarinn í kosningunum f fyrra varð þannig Finn Gustavsen mikill gáfnagarpur og hæfilega ósvffinn til þess að gerast eftir- lætisgoð f útjaðri vinstrifylkingar- innar. Enn má nefna. að f þessum kosningum kom — eins og fjand- inn úr sauðarleggnum — nýr maður á leiksviðið: Anders Lange. Hann er einskonar pólitfskur tvf- buri Glistrups hins danska, sjötug- ur að aldri og áður kunnastur fyrir að hafa gefið út „Hundeavisen" svonefnda. Hann hét kjósendum sfnum þvf að berjast fyrir lækkun skatta og tolla og gegn ágengni hins opinbera ! almennum málum. Út á þetta loforð sitt náði hann atkvæðum 107 þúsund kjósenda, sem fleyttu honum inn f Stór- þingið ásamt þremur fylgi- fiskum hans. En á þessum tfu mánuðum. sem liðnir eru frá kosningunum virðist ALP (Anders Langes Parti) hafa tapað fylgi, og auk þess er þar hver höndin upp á móti annarri, t.d. hótar varaformaðurinn nú að stofna nýjan flokk. Má þvf gera ráð fyrir, að þessa ALP-flokks gæti Iftið næstu árin. Þeir flokkar, sem skipta máli f Stórþinginu núna eru þv! þessir: Verkamannaflokkurinn (AP) með 62, „Sosialistisk Valgforbund" (SV) með 16, vinstramegin, og Hægri, Kr. F. og Senterpartier með 29-21-20 = 70 þingsæti hægramegin. Þá vantar 7 þingsæti, þvf að þingmönnum fjölgaði úr 150 f 155 við kosningarnar 1969. Fjór- um þeirra ræður ALP yfir, svo að hægra megin verður að telja 74 þingmenn, en 77 ef þessir þremenningar, sem eftir eru af vinstriflokknum, eru taldir til borgaraflokkanna. II. Ef um SAMTÖK Brattelis og Finns Gustavsen væri að ræða, mundi núverandi stjórn Brattelis hafa eins atkvæðis meirihluta á þingi núna. En þvf fer fjarri, að Bratteli geti talið Gustavsen traustan fylginaut. Kosninganótt- in var ekki liðin, þegar út-vinstri- menn fóru að senda Bratteli tón- inn og minna hann á, að honum væri hollast að hafa sig hægan og hlýða kröfum þeim, er þeir settu honum. Meðal þeirra var ein sú, að allir hlutafélagabankar skyldu þjóðnýttir og fleiri kröfur voru gerðar f þjóðnýtingarátt. Sjálfur hafði Bratteli lofað þvf fyrir kosn- ingarnar að styðja að rfkisrekstri á ýmsum fyrirtækjum, sem einstakl- ingar og félög hafa stjórnað hing- að til. En þegar til framkvæmda kom, rakst Bratteli á ýmsar torfærur á þjóðnýtingarleiðinni. Og svo mikið er vfst, að fram að þessu hefur minna kveðið að framkvæmdum á þessu sviði en við hefði mátt bú- ast eftir öllum kosningaloforð- unum. Bratteli er mikill skyn- semdarmaður og laginn stjóm- málamaður og kann að sigla milli skers og báru. Þessvegna er stjórnarskúta hans enn á floti og hefur komizt hjá alvarlegum árekstrum. Þegar brim og boðar rfsa fyrir Noregsbréf frá Skúla Skúlasyni stafni, er það úrræði tfðast að skipa nefnd til að rannsaka málið. Og slfkar nefndir eru sjaldnast hraðvirkar, enda er þeim alls ekki ætlað að flýta sér. Allmikið af slfkum nefndum er nú starfandi f Noregi. bæði frá tíð fyrrverandi stjórnarog þeirrar núverandi. — En á meðan þær starfa, finnur almenningur og stjórnmálamenn sér sitthvað til dægrastyttingar. Til dæmis hefur það verið rætt mjög ftarlega undanfarna mánuði, hvort leyfa skuli fóstureyðingar og hefur kvenfólkið tekið öflugan þátt f þeim umræðum. Eitt málið er það, sem eðlilegt er, að fslendingar vilji fylgjast vel með: Landhelgismálið f Noregi. Norðmenn hafa löngum verið kröfulinir f þvf máli, en Ifklegt er, að hugur þeirra breytist núna með haustinu. — Hingað til hafa flestir þeir, sem látið hafa til sfn heyra um það mál, virzt harla ánægðir með 12 mflna landhelgina og jafn- vel legið fslendingum á hálsi fyrir 50 mflna vfkkunina, án þess að gera sér grein fyrir, að landhelgin er íslendingum margfalt dýrmæt- ari en Norðmönnum. En nú er svo að sjá sem þeir séu farnir að ranka við sér, að minnsta kosti á vestur- ströndinni norðanverðri, og sjái fram á, að norsku fiskimiðin eru f hættu, ef ásókn þangað eykst frá þvf sem nú er. En vitanlegt er, að hún gerir það, þvf að togarar þeir, enskir og annarra þjóða, sem nú hefur verið bægt frá landhelgi fs- lands, munu flestir leita til Nor- egsstranda norðanverðra. — Bret- ar. Rússar og Norðmenn hafa fy4r skömmu gert með sér samning um veiðar f Barentshafi, um hámarks- afla hverrar þjóðarinnar um sig. en það kemur upp úr dúrnum, að Rússar hafa þegar veitt talsvert fram yfir hámark. Það þykir vfst. að landhelgislfn- an verði tekin til rækilegrar athug- unar, þegar þingið kemur saman f haust. Trygve Bratteli lét heyra f sér um það mál fyrir nokkrum dögum og varaði eindregið við þvf að gera einhliða ákvarðanir f land- helgismálinu, en vildi bfða eftir ákvörðunum ráðstefnunnar f Cara- cas. En af gamalli ráðstefnu- reynslu má ráða, að þeirra ákvarð- ana verði langt að bfða. Hljóðið f Norðmönnum hefur breytzt sfðan f vor, og mér kæmi ekki á óvart, að þeir yrðu búnir að vfkka sfna land- helgi — að minnsta kosti við Norður-Noreg — f 50 eða 200 mílur fyrir nýár, hvað sem Cara- cas-ráðstefnunni Ifður. — Náttúruverndin er mjög ofar- lega á dagskrá norsku þjóðarinnar núna f sumar. Fram til þessa hafa vatnsvirkjanir verið leyfðar tregðulftið, þótt þær hafi haft náttúruspell ! för með sér, en nú verður brotið blað f þeirri sögu. Eitt dæmi þess er það. að nú hafa yfirvöldin skorizt f leikinn og end- urskoðað virkjunaráætlanir, sem til stóð að framkvæma á Harðang- ursöræfum og hefðu stórspillt ein- um fegursta fossi Noregs, Vöring- fossen f Harðangri, sem er yfir 160 metra hár. Annar frægur foss f Sogni átti að verða fyrir sömu meðferð, en þar tóku nágrannarnir f taumana og ráku burtu verka- mennina, sem sendir voru til að byrja á virkjunarstörfunum. Eftirlit er haft með því, að ofbeit eigi sér ekki stað á öræfum lands- ins, t.d. f Finnmörk og á Harðang- ursöræfum. Á báðum stöðum eru hreindýrahjarðir og er haft eftirlit með þvf, að þær verði ekki of stórar. En eins og stendur þykir vfst. að þessi öræfi þoli meiri beit en nú er þar. — Árferði hefur verið gott f sumar, en þó er stöku sveitum spáð uppskerubresti vegna þurrka. Annars hafa Norðmenn ekki yfir neinu að kvarta — nema sköttunum. Þeir fullyrða, að að- eins tvær þjóðir f Evrópu hafi hærri skatta, Svíar og Hollending- ar. Enda hefur komið til tals að gera tilraun til að lækka skattana eitthvað á komandi þingi, en þá er eftir að vita, hvar sú lækkun á að verða, og þar togar hver sinn skækil — hátekjumenn og lág- tekjumenn. — En f efnahagsmál- um er þó alvarlegast, hve verð- bólgan fer hraðvaxandi, sú bólga hefur aldrei verið alvarlegri en nú. I vetur 1 5. febr. var að vfsu lög- leitt svokallað „avansestopp" á ýmsum nauðsynja vörum, þ.e. bann við þvf að hækka álagningu á vörum, þó að þær hækkuðu f verði. Er áætlað að þetta spari meðalfjölskyldu 110 kr. á ári, en að kaupmaður með 1,1 milljón nkr. umsetningu tapi 12—13 þús. nkr. á þessari ráðstöfun. Nýlendu- vörukaupmenn hafa nú skrifað stjórninni og krefjast þess. að þetta „avansestopp" verði afnum- ið. ella muni þeir loka verzlunum sinum f okt. f haust! Ferðamannastraumurinn upp til fjalla er sem stríðastur um þess- ar mundir og allsstaðar fullt á háfjallahótelunum. En það eru ekki fyrst og fremst útlendingar, sem fylla gistihúsin núna. heldur eru það Norðmenn, og þykir þetta benda á aukin auraráð almenn- ings. Hinsvegar er hér mun minna af bandarfsku fólki en áður var, og Bretum hefur ekki fjölgað, eða að minnsta kosti hafa þeir styttri við- stöðu en áður. Þeim þykir of dýrt að búa uppi á fjöllum ! Noregi, og þó enn verra f borgunum. Enda hefur verðlagið á gistihúsum hækkað svo mikið í sumar, að Norðmönnum blöskrar það sjálf- um. En gistihúsarekendurnir segja, að kaupkröfur starfsfólks- ins hleypi kostnaðinum meir fram en það, sem þarf til Iffsins viður- halds. Fyrir nokkrum árum var hægt að fá mat og húsnæði á dágóðu gistihúsi fyrir nkr. 28,00 — nú kostar það heilt hundrað. Það er þvf engin fprða, þó að tjöldunum og mótelunum fari Franihald á bls. 33 Fönn óskar að ráða tvær stúlkur. Upplýsingar í Fönn, Langholtsvegi 113, sími 82220. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðqreiðsla. NÓATÚN 27, sími 25891. Trommuleikara vantar i hljómsveit úti á landi frá næstu mánaðarmótum. Uppl. í sima 99-1 555 Selfossi. Til sölu Fiat 127 3ja dyra árgerð 1973 i góðu standi. Upplýsingar í sima 73590. Kaupið garn áður en ný hækkun dynur yfir. Mesta úrval borgarinnar er i HOFI, ÞINGHOLTSSTRÆTI 1. Tvist-saumur og Gobelin vörur nýkomið. Rya- og smyrnateppi á eldra verði. HOF, ÞINGHOLTSSTRÆTI 1. Handavinnunámskeið. Nýtt námskeið að hefjast. Flos, fina og grófa nálin. Myndvefn- aður. Taumálun o.fl. Innritun næstu daga i sima 41955. Húsasmiðir — Húsgagna smiðir Vantar smiði í úti- og innivinnu. Uppl. gefur Björn Traustason í síma 83685 eftir kl. 8 á kvöldin. 2 stúlkur óskast á góð heimili i U.S.A. Engin barnagæzla. Upplýsingar i sima 31212 frá kl. 7.00. Hjólhýsi til sölu. Cavalier 1 200 T. 5. manna árgerð 1974. Verð kr. 310 000.00, sendist Mbl. fyrir 14. þ.m. merkt: Upplýsingasimi 43261. Frystihólf Leiga fyrir frystihólf óskast greidd sem fyrst og ekki síðar en 30. september n.k. Annars leigð öðrum. Sænsk íslenzka frystihúsið. Til leigu 5 — 6 herb. íbúð i blokk við Háaleitisbraut. Tilboð er greini hugsanl. leigufjárhæð og fjöl- skyldustærð sendist Mbl. merkt: 9526 Einstætt tækifæri Góð íbúð i Reykjavik eða nágrenni óskast keypt. Útborgun i erlendum gjaldeyri. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Tækifæri — 9 524" Kennari óskar að taka 2ja herb. ibúð á leigu, helzt i austurbænum. Tilboð sendist á afgr. Mbl. merkt: „7268". Til sölu Benz 220 árgerð '70 með vökva- stýri. Ekinn 67.000 km. Skipti koma til greina. Simi 52905. Hey til sölu. Uppl. i síma 66245. Frímerki mun borga 1 krónu fyrir hvert stimplað og óskaddað frimerki á pappir. Sendið frimerki eða tilboð (á islenzku eða ensku) til: J. Baker, 32 W. Monaville Road, Lake Villa, 11. 60046, U.S.A. Sendill Piltur eða stúlka óskast nú þegar til sendiferða hluta úr degi fyrir eða eftir hádegi. Upplýsingar á skrifstofunni. PÁLL ÞORGEIRSSON & CO. Ármúla 27. Chevrolet Impala Custom Til sölu árg. 1969, bíllinn er 2ja dyra hard-top, 8 cyl„ sjálfskiptur með power stýri og power brems- um, i bilnum er útvarp og átta rása segulband. Uppl. i s. 53441. Óskum að taka 2ja — 3ja herb. ibúð á leigu i Reykjavik eða Kópa- vogi. Skipti á ibúð úti á landi kemur til greina. Upplýsingar i sima 831 90. Ford Falcon '64 til sölu eða í skiptum fyrir yngri bifreið. Milligjöf staðgreidd. Uppl. i sima 36548. Til sölu strax Stór bensin Land Rover. Árg. 1972, gluggalaus. Upplýsinaar i sima 27782 kl. 7—9 e.h. - Ung kona með Samvinnuskólapróf óskar eftir hálfsdagsvinnu sem fyrst. Tlb. sendist Mbl. fyrir 14 þ.m. merkt: 9528. Óskum eftir 6—8 herb. íbúð eða húsi. Allt að árs. fyrir- framgreiðsla. Upplýsingar í sima 22553 og 34191. Keflavik Suðurnes Til sölu falleg 2ja herb. ibúð. Hentug fyrir fullorðin hjón. Bila og Fasteignaþjónusta Suður- nesja, simi 2925 eftir kl. 1 3. ?SmRRGFRLDRR 7f mnRKHÐ VÐRR Kórskóli Nýtt námskeið hefst 30. september. Kennt verður í Vogaskóla á mánudagskvöldum 2 stundir í senn 110 vikur. Kennd verða a/menn undirstöðuatriði tónlistar, nótnalestur, heyrnarþjálfun og raddbeyting. Innritun ísíma 2661 1 á skrifstofutíma. Pólýfónkórinn. ÍtW':

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.