Morgunblaðið - 14.09.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974
Brezhnev: Vill helzt ekl
trúa nokkru illu um Ford.
Eftir
Victor
Zorza
Óskhyggja
í Kreml
KREMLHERRARNIR virðast
slegnir blindu þegar Ford for-
seti á í hlut, ámóta blindu og
olli því, að þeim sást yfir það,
sem raunverulega skipti máli
í Watergate-hneykslinu.
Þar sem valdhafarnir í
Moskvu voru Nixon skuld-
bundnir og töldu hann per-
sónugerving bættrar sam-
búðar vildu þeir, að hann
yrði áfram við völd og neit-
uðu að trúa því, að hann yrði
ef til vill að segja af sér.
Sama óskhyggja ræður ríkj-
um í Kreml þegar Ford forseti
á í hlut og veldur því, að
sovézk blöð gera lítið úr þeim
broddi, sem öðru hverju skýt-
ur upp kollinum í yfirlýs-
ingum nýju stjórnarinnar um
þörfina á eflingu landvarna
og stórfelldum fjárveitingum
til þeirra.
Á það er einungis lögð
áherzla í Moskvu, að Ford
hafi skuldbundið sig til að
fylgja þeirri stefnu Nixons að
draga úr spennu, að áfram
verði haldið á sömu braut og
það megi marka af því, að
Kissinger ræður utanríkis-
stefnunni. Pravda gleðst yfir
því að geta bent á, að Ford
lætur það verða sitt fyrsta
verk á hverjum morgni að
hitta Kissinger að máli og að
haukar eins og landvarnaráð-
herrann, James Schlesinger,
og yfirmaður CIA, William
Colby, verða að bíða eftir því
að á þá verði kallað.
Mennirnir í Moskvu sjá
aðeins það, sem þeir vilja sjá,
þegar Ford á i hlut en því
veldur ekki barnaskapur
heldur er þetta úthugsað
kænskubragð. Sú var tíðin,
að gengið var út frá því í
Moskvu, að ásetningur
heimsvaldasinna væri alltaf
vondur og að ráð valdhaf-
anna til þess að skáka þeim
kölluðu fram nákvæmlega
þær aðgerðir, sem þeir höfðu
óttazt. Og ef út í það er farið
kölluðu Vesturveldin fram
það versta í fari mannanna í
Moskvu. Nú er einungis góð-
ur ásetningur eignaður Ford,
hann er álitinn saklaus, og
þannig reyna Kremlverjar að
láta óskhyggju móta hugs-
unina, sem ræður gerð-
unum.
Allt á þetta heima i hinum
nýja farvegi, sem er með
röngu kallaður friðsamleg
sambúð. Óskhyggjusambúð
væri meira réttnefni. Það,
sem þér viljið, að aðrir gjöri
yður, það skuluð þér og þeim
gjöra.
En á mótun utanrikisstefn-
unnar í Washington er önnur
hlið, sem mennirnir í Moskvu
hafa öðru hverju vakið
athygli á — krókaleiðirnar,
Sem valda því, að Hvíta húsið
hagar seglum eftir vindi,
segir annað hvort kost eða
löst á bættri sambúð, venju-
lega með hliðsjón af innan-
landsstjórnmálum, sem
koma utanrikisstefnunni lítið
eða ekkert við. Kenning
manna í Moskvu er sú, að
krókaleiðirnar, sem stafa oft
af því að hliðsjón er tekin af
kosningum, muni gera það
að verkum, að forsetinn taki
harðari afstöðu gagnvart
Sovétríkjunum en hann
annars mundi kæra sig um.
Þeir, sem aðhyllast þessa
krókaleiðaskoðun á því, sem
ráði gerðum forsetans, hafa
varað við því á liðnum árum,
að Kremlverjar geti ekki tekið
nýrri holskeflu hörkulegrar
afstöðu með þegjandi þögn-
inni, að þeir hljóti að svara í
sömu mynt og að bætt sam-
búð gæti orðið fyrir stórkost-
legu tjóni ef gagnkvæm tor-
tryggni magnaðist. Þeir, sem
nú stunda sovézka ósk-
hyggjusambúð hafa gert
slíkar illar grunsemdir út-
iægar á síðum Pravda. En
þar með er ekki sagt, að þeir
menn í Moskvu, sem aðhyll-
ast krókaleiðakenninguna,
hafi verið sendir í útlegð til
Síberlu, aðeins, aðsagt hefur
verið við forsvarsmenn
þeirra, sem hafa fallið I ónáð
um stundarsakir, að þeir
verði að hafa sig hæga.
Ef hægt væri að skyggnast
undir yfirborð skoðana
manna I Moskvu á Ford for-
seta og stjórn hans kæmi
sennilega í Ijós vefur mót-
setninga og ótta um framtíð-
ina, langtum flóknari mót-
setninga og dýpri ótta en það
einfeldningslega traust, sem
þeir sýna opinberlega. Til-
raun, sem yrði gerð til þess
að draga upp heildarmynd af
því, sem undir býr og byggj-
ast mundi á fyrri hugsanaferli
Kremlverja og gögnum úr
Kremlarfræðum mundi leiða I
Ijós þá óvissu um Ford, sem
breitt er yfir í blöðunum.
Kremlverjar vita sennilega
eins vel og við flestir að duttl-
ungar kosningakerfisins í
Bandaríkjunum eru óútreikn-
anlegir. En þeir verða að gera
áætlanir um framtíðarstefn-
una í utanríkismálum og þeir
verða að gera ráð fyrir ýmsu,
sem þeir gefa sér forsendur
fyrir. Ein kenningin um þá
stefnu, sem líklegt er að at-
burðirnir taki og bersýnilegt
er, að í það minnsta vissir
menn í Moskvu aðhyllast, er
á þá leið, að kosningarnar
1976 verði barátta milli
þeirra hópa, sem sovézk blöð
kalla ill myrkraöfl og eru
undirforystu Henry Jacksons
öldungadeildarmanns og
þeirra hópa, sem hljóta að
teljast öfl Ijóssins ef þau eru
skoðuð gegnt þessu dimma
baksviði og eru undir forystu
Fords forseta.
Þetta getur í sjálfu sér gef-
ið mönnunum í Moskvu
mjög gilda ástæðu til þess að
láta Ford njóta sannmælis
þrátt fyrir allar efasemdir,
sem þeir kunna að hafa eins
og sovézk blöð gera um þess-
ar rhundir. En eins og Water-
gate-hneykslið hlýtur að hafa
kennt Moskvumönnunum
eru áreiðanlegir spádómar
um framtíðarstrauma F
Bandaríkjunum vanþakklátt
verk og ýmsir sérfræðinga
þeirra hljóta nú að vera
önnum kafnir við að gera
spádóma þar sem gert er ráð
fyrir því, að atburðarásin geti
orðið margvísleg.
Moskvumennirnir mundu
greinilega vilja hjálpa Ford
gegn Jackson og þetta gæti
Kissinger notað sér til fram-
dráttar í þeim samningavið-
ræðum, sem eru framundan.
En mörgum sovézkum ráða-
mönnum finnst, að Brezhnev
hafi verið alltof tilhliðrunar-
samur við Nixon á þremur
fundum þeirra og að tími sé
kominn til þess að Hvíta hús-
ið borgi eitthvað í staðinn.
Væntanlegar samningavið-
ræður geta orðið erfiðari en
allarfyrri viðræður.
Ytri Njarðvík Til sölu nýlegt einbýlishús 145 fm. Stór bílskúr fylgir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, sima 1 263 — 2890. Pennavinir um allan heim Kynningarþjónusta um allan heim. Myndskreyttur alþjóðapennavina bæklingur. Ókeypis. Skrifið i dag: Five Continents Ltd. Waitakere, NewZealand.
Ytri Njarðvik Til sölu 3ja herb. íbúð i fjölbýlis- húsi. Stórar svalir. Sérinngangur. Laus fljótlega. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1 263 — 2890. Til sölu sportbátur 20 f. með 130 ha Volvovél, tal- stöð o.fl. Bill, veðbréf eða annað koma til greina upp i kaup. Uppl.s. 30834.
3ja — 5 herb. ibúð óskast til leigu sem fyrst. Vinsamlegast hringið í sima 43180. Orgel Mannborg — stórt til sölu. Uppl. i sima 1 3295.
Rækjubátur til sölu Kaupandi óskast að 1 5 t. bát, sem útbúinn er til rækju- og handfæra- veiða. I bátnum er radar og Simrad dýptarmælir. Uppl. i sima 92-7558. Stúlka vön afgreiðslu óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina. Upplýsingar i sima 24794.
Góður jeppi Til sölu er Scout jeppi árg. '66 i góðu ásigkomulagi. Verð kr. 270 þús. Samkomulag. Bilasalan Hafnarfirði h.f., simi 52266 frá kl. 1 —4. Sandgerði Til sölu 4ra herb. efri hæð i stein- húsi við Brekkustíg. 80 fm bil- geymsla fylgir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1 263 — 2890.
Ung kona með barn á skólaaldri óskar eftir góðu starfi úti á landi. Tilboð sendist Mbl. merkt:„701 9". Til leigu nýtt einbýlishús úti á landi, helzt i skiptum fyrir húsnæði i Reykjavik eða nágr. Upplýsingar i sima 97-4234.
Ung hjón óska eftir ibúð til leigu. Reglusemi heitið. Upplýsingar í síma 73201. 2ja — 4ra herb. ibúð óskast strax. Reglusemi og góð umgengni. Upplýsingar í sima 72592.
Hjarta-garn enn á gamla verðinu, Hjarta-cr., Combi-cr. Mayflower-bómullarg., Mayflower-cr., Fleur-Mohair, Nuser-babyg. Hof, Þingholtsstræti 1. Til sölu Amerisk Ford vörubifreið ca. 5 tonn. m/föstum pall tækifæris- verð 100 þ. Simi 1 6290.
yy ÞRR ER EITTHVRfl 7$ FVRIR RLLR Olíukynditæki til sölu með öllu tilheyrandi. Uppl. i simá 41882 eftir kl. 7 á kvöldin.
3ja herbergja
glæsileg íbúð
í Hafnarfirði til sölu
íbúðin er endaíbúð á efri hæð í 4ra íbúða húsi í
kyrrlátu hverfi. Bílskúrsréttur, frágengin lóð og sam-
eign. Laus strax. íbúðin verður til sýnis í dag og á
morgun.
Uppl. í síma 52808.
Opið í dag
frákl.7-12
Laugalæk 2, REYKJAVIK, simi 3 5o2o
i