Morgunblaðið - 14.09.1974, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1974
Frá þjóðhátfð Sunnu á Mallorka þar sem 700 tslendingar mættu til
sumarhátfðarinnar. Myndin er tekin þegar borðhaldið stóð yfir. Fjærst
f salnum á sviðinu er Guðni Þórðarson að flytja ávarp sitt.
700 Islendingar í
sama húsi erlendis
— Hvað veldur ?
Framhald af bls. 12
tvær barnadeildir, önnur við
Landakotsspítala, hin við
Landspítala. í fyrra varaug-
lýst staða háskólakennara í
barnasjúkdómum, þá stöðu
hlaut læknir við Landakots-
spítala, Þröstur Laxdal. Um
prófessorsembættið sóttu
tveir læknar frá Landakots-
spítala, Björn Guðbrandsson
og Sævar Halldórsson, og
einn frá Landspítala, Víking-
ur Arnórsson. Með bessari
nýju auglýsingu og breyttum
viðhorfum ráðuneytanna —
hvað svo sem þeirri hugar-
farsbreytingu hefir valdið —
þá eru þeim tveimur læknum
frá Landakotsspítala, sem
sóttu um prófessorsembætt-
ið, gerðir tveir kostir og hvor-
ugur góður, annar sá að yfir-
gefa þann vettvang, sem þeir
hafa kosið sér til starfs, hinn
að hafna prófessorsembætti
ef þeim yrði veitt það og að
báðir eru hæfir til embættis-
ins, á því leikur enginn vafi.
Hvað veldur?
Reykjavík, 8. sept. 1 974.
Bjarni Jónsson
— Lénharður
Framhald af bls. 24
kostnaður Lista- og skemmti-
deildar (LSD) 0,3 milljónir
króna, útlagður kostnaður 0,8
milljónir eða samtals 1,1 milljón
króna. Greiðsla til leikara telst
útlagður kostnaður og er samtals
3,5 milljónir króna. Fastur kostn-
aður leikmyndadeildar er 1,7
milljónir króna, útlagður kostn-
aður 4,1 milljón og er því kostn-
aður leikmyndadeildar samtals
5,8 milljónir króna. Tæknikostn-
aður við kvikmyndatöku er fastur
0,6 milljónir, en útlagður 2,7 mill-
jónir eða samtals 3,3 milljónir
króna. Við klippingu og hljóðsetn-
ingu er fastur kostnaður 1,4 mill-
jónir króna og útlagður kostnaður
enginn. Ýmis kostnaður er síðan
2,2 milljónir króna. Samanlagður
fastur kostnaður er þvf 4,0 mill-
jónir króna, samanlagður út-
lagður kostnaður 13,3 milljónir
eða samtals kostnaður við mynda-
tökuna 17,3 milljónir króna.
Andrés Björnsson sagði á fund-
inum, að Magnús Bjarnfreðsson
hefði tekið saman kostnaðarliði
kvikmyndatökunnar og hefði það
verið flókið og vandasamt verk-
efni. Hann kvað það vera eina af
mörgum veikum atriðum við
rekstur útvarpsins, hvað mikill
skortur væri á því að unnt væri að
gera nákvæmar kostnaðaráætl-
anir um það, sem framkvæma
ætti. Hann kvaðst þó vera reiðu-
búinn að taka á sig fulla ábyrgð á
málinu, en áætlanadeild við stofn-
unina myndi að sjálfsögðu einnig
kosta peninga og þeir peningar,
sem til hennar hefðu farið, hefðu
verið notaðir til dagskrárgerðar.
Hefði Magnús Bjarnfreðsson nú
verið ráðinn til þess að sinna þess-
um málum og kvað útvarpsstjóri
hann hafa unnið þarft verk á
stuttum tíma, en hann tók fram
að Magnús hefði á engan hátt
verið viðriðinn upphaflega
áætlanagerð yfir kostnað við töku
Lénharðs fógeta.
Magnús Bjarnfreðsson sagði að
í samantekt kostnaðartalnanna
væri eðlilega nokkur matsatriði,
svo sem tækjaleiga og afskriftir
af eigin tækjum sjónvarpsins,
sem jafnframt eru notuð til ann-
arra hluta. En tækjaleigan væri
Iftið atriði f heildarkostnaðinum
og breytti ekki niðurstöðutölum
dæmisins að neinu ráði.
Leikmyndagerð kvað hann vera
dýra, einkum smíðar, en það sem
gert hefði verid þar myndi f sjálfu
sér auka eignir sjónvarpsins og
mikili hluti þess, sem smfðað
hefði verið, væri nothæft í önnur
verkefni, svo sem t.d. fatnaður,
sem þegar hefur verið notaðar
aftur. Hann kvað yfirvinnu fasts
starfsfólks f LSD hafa verið 763
þúsund krónur og laun konu, sem
ráðin var sem aðstoðarstjórnandi
um 280 þúsund krónur. Yfirvinna
f leikmyndadeild nam 4,1 milljón
króna. Yfirvinna starfsfólksins í
heild kvað Magnús vera tæplega
4,5 milljónir króna. í leikmynda-
deild er yfirvinnan greidd frá ára-
mótum, en öðru starfsfólki en
starfsfólki leikmyndadeildar var
greidd yfirvinna á tímabilinu frá
27. maf til 11. ágúst.
Spurt var á fundinum, hvort
eðlilegt mætti teljast að yfirvinna
næmi 30% af útlögðum kostnaði.
Þeir félagar töldu það ekki eðli-
legt, en sögðu að þegar ráðizt var f
verkið hafi verið gert ráð fyrir
því að leikarar, sem Sjónvarpið
hefur þurft að fá að láni frá leik-
húsunum yrði í fríi yfir sumar-
mánuðina. Vegna þjóðhátíðar
hafi þetta breytzt og hafi því oft
og einatt þurft að bíða eftir því að
leikararnir losnuðu frá leikhús-
unura, en starfsmenn þeirra eru
þeir fyrst og fremst. Þessi stað-
reynd hleypti og upp kostnaðin-
um. Gunnar Vagnsson tók fram
að það hefði verið hagur Utvarps-
ins að kvikmyndatakan tæki sem
stytztan tíma, þvf að veður hefði
getað hamlað framkvæmd verk-
efnisins. Því var það sérstakt
kappsmál, að starfsmenn ynnu
langan dag. Var starfsfólk beðið
um að fresta sumarleyfi sfnu f
nokkrum tilfellum vegna þessa.
Gunnar Vagnsson sagði að
kostnaðaráætlunin hefði upphaf-
lega verið gerð fyrir Lénharð í
júní 1973, en síðar var ákveðið að
fresta tökunni. I desember sfðast-
liðnum var síðan ákveðið að ráð-
ast í verkið, en endurskoðuð
kostnaðaráætlun lá þá ekki fyrir.
Á þessu tímabili urðu gífurlegar
hækkanir á öllum sviðum til-
kostnaðar í vinnu og efni. Hann
kvað launakostnað miðað við
vinnustund hafa aukizt á tfmabil-
inu um u.þ.b. 65% og timbur-
kostnað t.d. um u.þ.b. 130%.
Hann taldi ekki fjarri lagi að
áætla að upphafleg kostnaðar-
áætlun hefði þannig farið upp í 8
til 9 milljónir króna vegna verð-
bólgu og aukins tilkostnaðar. Þá
hafi í upphaflegri áætlun verið
gert ráð fyrir 90 mínútna mynd,
en kvikmyndin verður, þegar lok-
ið hefur verið við að klippa hana
og fínpússa tæplega tveggja
klukkustunda mynd.
Að öðru leyti kvað Gunnar fjár-
hag útvarpsins f heild vara slæm-
an og tíminn til þessarar fram-
kvæmdar því í sjálfu sér verið
óhagstæður, enda hefði útvarps-
stjóri látið þau boð út ganga til
starfsmanna að þeir gættu ítrustu
varkárni f meðferð fjár. Þá kom
fram f máli Andrésar Björnssonar
að ákveðið hefði verið að engar
framkvæmdir yrðu í bráð við leik-
ritagerð. Gunnar Vagnsson kvað
fjármálaerfiðleika útvarpsins og
mun stærri í sniðum en er varðar
kvikmyndatökuna um Lénharð og
þá einkum vegna þess að afnota-
gjöld eru miðuð við kostnað við
rekstur stofnunarinnar f desem-
ber síðastliðnum, en síðan hefðu
orðið miklar hækkanir tilkostnað-
ar.
Það kom fram á fundinum, að
kostnaður við hverja vinnustund í
stúdíói í sjónvarpinu er um 33
þúsund krónur. Sé unnið í 10
stundir er kostnaðurinn þann
daginn 330 þúsund krónur. Sé
unnið þannig f eina viku eða 6
daga er kostnaðurinn nálægt 2
milljónum króna. Af þessu sést að
rekstur stúdíós er mjög kostnað-
arsamur.
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
gat þess að samningar sjónvarps-
stöðva á Norðurlöndum væru
mjög hagstæðir fslendingum.
Þegar sjónvarpið kaupir leikrit
frá Norðurlöndum, þarf það að-
eins að greiða 5% af kostnaði við
laun leikara í viðkomandi mynd.
Þessum samningum heldur þó
Ríkisútvarpið aðeins ef það legg-
ur íslenzkt leikrit á móti í þessari
samvinnu.
— Framboð
Framhald af bls. 2
Hann sagði að fasteignamarkað-
urinn hefði dregizt saman í
júnf—júlf þar syðra, sérstaklega
væra þetta áberandi um fbúðir,
sem hefðu verið f byggingu. Arni
sagði, að núna í haust hefði fast-
eignasalan glæðzt nokkuð aftur,
sérstaklega á tilbúnum fbúðum.
A ANNAÐ þúsund fslendinga
sótti sumarhátfðir Ferðaskrifstof-
unnar Sunnu á Mallorka og Costa
del Sol um sfðustu mánaðamót.
Tókust hátfðirnar mjög vel og
fóru fram með mestu prýði, en
þær voru haldnar f tilefni þjóð-
hátfðarársins.
700 Islendingar á Mollorka
sóttu hátíðina þar, en hún var
haldin á stórum herragarði 20 km
fyrir utan höfuðborgina Palma.
Þar hófst hátíðin með ávarpi
Guðna Þórðarsonar, forstjóra
Sunnu, þá var fjöldasöngur og
síðan hófst borðhald. Skemmti-
dagskrá var undir borðum. Krist-
inn Hallsson óperusöngvari söng,
Árni Johnsen vísna- og þjóðlaga-
söngvari skemmti, Alli Rúts sagði
brandara og Los Valdemosa söng-
flokkurinn söng áður en hljóm-
sveit Ingimars Eydals tók til
óspilltra málanna. Þá fluttu gestir
ávörp ogættjarðarstemmningarog
hátfðinni lauk með: Hvað er svo
glatt...
— Ekki víttur
Framhald af bls. 2
ið og getir snúið þér algerlega að
þvf að tryggja sannleiksgildi
frétta Morgunblaðsins.
Með kveðju,
Ólafur Ragnar Grfmsson.
X
Ólafur minn Ragnar!
Ekki þarf þjóðhátíðarár til að
Morgunblaðið vilji heldur hafa
það er sannara reynist, en hér
mun vera um mismunandi túlkun
að ræða. Blaðamaðurinn, sem
fréttina skrifaði, taldi að þetta
væru vítur á formanninn sam-
kvæmt heimildum sínum, en þú
ert á annarri skoðun og er okkur
ljúft að birta þinn skilning á
málinu, enda þótt ástæðulaust
hafi verið að blanda mér persónu-
lega í mál þetta.
Ég vona svo að andi þjóðhátfð-
arinnar svífi yfir hinum grunnu
vötnum útvarpsráðs — héðan f
frá sem hingað til. Kær kveðja.
Matthfas.
— Mannrán
Framhald af bls. 1
ins. Fór hollenzk kona, sem er
læknir, þangað tafarlaust og kom-
ust þá sögusagnir á kreik um að
einhverjir gíslanna hefðu verið
særðir. Lögreglan segist hafa
heyrt skothvelli úr þeim vistaver-
um, sem ræningjarnir halda gisl-
unum f.
Ekki er fullljóst, hvort Japan-
irnir þrfr eru úr hópi átta ungra
Japana, sem voru reknir úr
Frakklandi fyrir nokkru, en
nokkrar líkur eru taldar á því.
Japanirnir höfðu ógild vega-
bréf og auk þess höfðu þeir óleyfi-
lega upphæð gjaldeyris í fórum
sfnum.
Eftir að ræningjarnir lögðu
undir sig sendiráðið reyndu marg-
ir, m.a. fréttamenn að hringja
þangað. Var þeim þá svarað tor-
kennilegri röddu að þeir skyldu
hringja f hollenzka upplýsinga-
ráðuneytið, ef þeir vildu fá að vita
eitthvað.
A Costa del Sol var hátíðin
haldin á búgarði f fjöllunum
skammt frá Torremolinos. Þar
mættu á fjórða hundrað
Islendingar á þjóðhátíðina, sem
fór fram með svipuðu sniði og á
Mallorka, nema hvað spænsk
hljómsveit lék í stað Ingimars
Eydals, sem var ráðinn til að spila
í Jack E1 Negró, næturklúbb Los
Valdemosa á Mallorka.
Fjöldi barna tók þátt í báðum
hátíðunum og tóku þau sérstakan
þátt í skemmtununum með söng.
Guðni Þórðarson lýsti því yfir í
ávarpi sínu að slíkar hátíðir yrðu
framvegis árvissar á þessum stöð-
um.
Aldrei munu fleiri Islendingar
hafa komið saman á einum stað
erlendis, en á samkomunni á
Mallorka.
— Hlaut D
doktorsgráðu
Framhald af bls. 2
frumufræðilegum rannsóknum
og það samræmi, sem er á milli
mismunandi tegunda var sett í
samband við mikinn hreyfanleik
dýranna í einhæfu umhverfi og
tiltölulega litla viðkomu
þeirra.“ Hér er um að ræða
grundvallarrannsóknir, sem jafn-
framt auka almenna þekkingu á
þessum dýrategundum og stuðla
þannig að skynsamlegri nýtingu
þeirra.
„Litningar hvalanna eru sér-
stæðir og einstakir meðal spen-
dýra, þar sem megnið af svoköll-
uðu heterokrómatíni er mjög mik-
ið, en auk þess er dreifing þess
með öðrum hætti en meðal ann-
arra spendýra. Þetta atriði ásamt
samræmi f f jölda og útliti litninga
hjá hvölum bendir ótvfrætt til
•þess að tannhvalir og skíðishvalir
séu af sama uppruna, en um þetta
hafa verið skiptar skoðanir."
Að lokum sagði Ulfur Arnason,
að næsta verkefni hans í rann-
sóknum á sjávarspendýrum yrði
að rannsaka nánar kjarnasýrur í
hvölum, en heterokrómatínið er
hluti þeirra.
Iflorfjtmlilaþiíi
margfaldar
markað vðar
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
Innflutningsdeild
Sambandshúsið Rvík sími28200