Morgunblaðið - 25.09.1974, Page 32
jWorgiml>Int>ib
nuciV5incRR
^-•22480
GNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1974
Launajöfnunarbætur
nema allt að 10%
Bráðabirgðalögin eiga að
tryggja sama kaupmátt
launaog var 1973
Geir Hallgríms-
son, forsætis-
ráðherra, á
fundi með
fréttamönnum
í gær.
0 Rfkisstjórnin gaf f gær út
bráðabirgðalög um launajöfn-
unarbætur, bætur almannatrygg-
inga og verðlagsmál. Geir Hall-
grfmsson, forsætisráðherra, gerði
grein fyrir efni laganna á fundi
með fréttamönnum sfðdegis f
gær. Forsætisráðherra sagði, að
með þessum aðgerðum væri að
þvf stefnt, að kaupmáttur launa
yrði óbreyttur frá sfðasta ári.
0 Lögin kveða á um launajöfn-
unarbætur, er koma eiga f stað
verðlagsuppbótar fram til 31. maf
1975. Bæturnar eru 10% fyrir
lægstu launaflokkana, en heildar-
launahækkunin nemur 6 til 6,5%.
Launajöfnunarbæturnar eru 3500
krónur á laun allt að 50 þús. kr.
en fara sfðan stig lækkandi allt að
54 þús. kr. launum.
0 Fjölskyldubætur hækka um
5000 kr. með hverju barni úr
15.000 kr. f 20.000 kr. Tekjur elli-
og örorkulffeyrisþega hækka
um 10% en almennar bætur
almannatrygginga hækka um 6%.
0 Niðurgreiðslum vöruverðs
verður haldið áfram eins og þær
eru nú, en það er 12,5% lækkun
frá þvf í maf. Sömu verðlags-
ákvæði munu gilda áfram og voru
f lögum um viðnám gegn verð-
bólgu. (Bráðabirgðalögin eru birt
f heild á bls. 2.)
Meðalhækkun kauptaxta eftir
þessar aðgerðir er áætluð 6 til
6,5%, sem þýðir 3.600 til 3.900
millj. kr. aukin útgjöld. Áætlað
er, að laun iðnverkamanna,
verkamanna og verkakvenna
hækki um 10%; laun verslunar-
manna um 7 — 8%, iðnaðar-
manna, sem ekki vinna ákvæðis-
vinnu, 3 — 4% og opinberra
starfsmanna 2 — 3%. Bændur fá
launajöfnunarbætur í samræmi
við aðrar starfsgreinar. Hækkun
fjölskyldubóta um 5000 kr. með
hverju barni þýðir 280 millj. kr. í
aukin útgjöld fyrir ríkissjóð á
ársgrundvelli og lffeyrisgreiðsl-
urnar kosta um 400 millj. kr. á
ársgrundvelli. Geir Hallgrimsson,
forsætisráðherra, sagði á fundi
með fréttamönnum í gær, að ríkis-
stjórnin hefði leitast við að taka
tillit til þeirra sjónarmiða, sem
fram hefðu komið í viðræðum við
aðila vinnumarkaðarins. Reynt
hefði verið að mæta þeim eins og
kostur var á. Forsætisráðherra
sagði ennfremur, að á næstu mán-
uðum yrði unnið að endurskoðun
á fyrirkomulagi vísitöluuppbóta á
laun og vinnuaðferðum við kjara-
samninga. Þá yrðu athugaðir
möguleikar á sameiningu tekju-
skatts og bótagreiðslna almanna-
trygginga í því skyni að tryggja
Framhald á bls. 20
Áframhaldandi hrun á verði
loðnumjöls á heimsmarkaði
PERUMENN selja nú ansfósu-
mjöl á 3,80 dollarahverjaprótein-
einingu og sýnir það, hve gífur-
legt verðfall er á fiskmjöli, þar eð
verðlagning loðnunnar í vor var
upphaflega miðuð við 9,50 dollara
fyrir hverja próteineinungi. Sfð-
ustu sölur Islendinga á loðnu-
mjöli, þar sem um eitthvert magn
var að ræða, voru 5,85 dollarar og
allt upp f 6 dollarar fyrir prótein-
einingu, en nú fyrir ^iokkrum
dögum voru seld um 1.200 tonn á
4,30 dollara hver próteineining.
Þessar upplýsingar fékk Mbl. í
gær hjá Haraldi Haraldssyni hjá
Andra h.f., sem nýlega seldi um
12 til 13 hundruð tonn af þrosk-
mjöli á 4,90 dollara hverja pró-
teineiningu til Júgóslavíu, en
Haraldur kvað það í raun óeðli-
legt verð miðað við markaðinn.
Þegar verð á loðnu var ákveðið í
vetur var fyrsta viðmiðunin 9,50
dollarar fyrir hverja próteinein-
ingu, síðan lækkaði viðmiðunin í
8,25 dollara og nú eru til í landinu
um 34 þúsund tonn af fiskmjöli,
sem eru óseld, þar af um 19 til 20
þúsund tonn af loðnumjöli. Fitu-
innihald mjölsins er 10 til 12% og
sagði Haraldur, að hann teldi
enga hættu á því, að loðnumjölið
Lokaða hólfið á Strandagrunni:
„Vandamál, sem
er í athugun,
99
segir Baldur Möller
MBL. HAFÐI f gær samband við
Baldur Möller ráðuneytisstjóra f
dómsmálaráðuneytinu og Þórð
Asgeirsson skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneyt-inu vegna
fréttar blaðsins f gær þess efnis,
að brezkir togarar gætu óáreittir
veitt á lokaða hólfinu f Stranda-
grunni.
„Þetta er visst vandamál, sem
við erum með í athugun. Þetta
hólf er innlend ákvörðun, sett
eftir að samningurinn var gerður
og er ekki að finna í honum. A
þessu stigi get ég ekki frekar tjáð
mig um þetta mál, nema hvað
Landhelgisgæzlan mun sjá um að
halda öllum veiðiskipum frá hólf-
inu á næstunni", sagði Baldur
Möller.
Þórður Ásgeirsson sagði:
„Friðun þessa svæðis var ákveðin
að tillögu Hafrannsóknastofn-
unarinnar vegna þess að þar var
að finna mikið magn af smáfiski.
Hafrannsóknastofnunin hefur
síðan gert athuganir á svæðinu,
nú síðast fyrir rúmum hálfum
mánuði, og stofnunin hefur ekki
séð ástæðu til að mæla með opnun
svæðisins á nýjan leik.“
Lentimeðhönd
í upptökuvél
Borgareyrum 24. sept.
HJÖNIN Guðrún Ingólfsdóttir
og Jón H. Magnússon, ábúend-
ur á Fornusöndum hér í sveit,
voru að taka upp kartöflur um
hádegisbilið f gær. Vildi þá
það óhapp til, að Guðrún lenti
með vinstri höndina í upp-
tökuvélina og tók hana af fyrir
ofan úlnlið.
Ekki var annað fólk á bæn-
um en þau hjónin. Jón náði
símasambandi við næsta bæ,
sem er Nýjabær. Konan þar,
Kolbrún Valdimarsdóttir, kom
og veitti alla þá hjálp, er hún
mátti. Læknirinn á Stórólfs-
hvoli, ísleifur Halldórsson,
kom mjög fljótlega með
sjúkrabfl, og flutti Guðrúnu á
sjúkrahús í Reykjavík.
Guðrún er mjög flínk sauma-
kona, og hefur veitt forstöðu
saumanámskeiðum, svo það
hafá fleiri en hennar heimili
notið hennar högu handa.
— Markús.
frá vertíðinni í vetur þyldi ekki
geymslu út þetta ár.
Tap fiskmjölseigenda er mikið,
en til þess að fá það nákvæmlega
út, verður að framkvæma flókna
og mikla reikninga, þar sem verð-
jöfnunarsjóður kemur þar inn í
myndina. Auk þess er ekki unnt
að fá niðurstöður úr þvf reikn-
ingsdæmi, fyrr en allt mjölið er
selt, því að taka verður meðaltal
af öllum sölunum. Samtals voru
framleidd um 65 þúsund tonn á
síðastliðinni vertíð. Sé miðað við
samningana, sem gerðir voru við
Pólverja, þar sem seld voru 10
þúsund tonn af loðnumjöli og 6
þúsund tonn af þorskmjöli, er tap-
ið um það bil 500 til 600 milljónir
króna á loðnumjölinu einu miðað
við markaðsverð í dag. Út frá
þessum tölum kvaðst Haraldur
geta ímyndað sér, að tapið á þeim
20 þúsund tonnum, sem óseld eru,
sé einhvers staðar á bilinu 800 til
1000 milljónir og er þá verðjöfn-
unarsjóðurinn ekki með í mynd-
inni.
Haraldur Haraldsson sagði, að
ástandið væri langt frá því að
vera gott. Hann er nýlega kominn
heim frá Danmörku og Póllandi,
þar sem hann ræddi við framleið-
endur, kaupmenn og umboðs-
menn og sagði hann, að öllum
hefði borið saman um, að dýrtíð
hefði aukizt mikið f Vestur-
Evrópu vegna olíuhækkunar og
vildu menn heldur sitja í hlýjum
húsum og aka bilum sínum en
boróa dýran og góðan mat. Því
hefur neyzla kjúklinga minnkað,
en þeir eru einmitt fóðraðir m.a. á
fiskmjöli. Sagðist Haraldur halda,
að það væri helzta ástæðan fyrir
svo gífurlegu hruni markaðarins,
fólk hefði hreinlega kippt að sér
höndum hvað mataræði snerti og
æti ódýrari fæðu. Spurningin er
svo hvort þróun þessi heldur
áfram, eða eitthvað rætist úr.
120 þúsundum
stolið úr bíl
SKÖMMU fyrir klukkan 18 f gær-
dag var stolið rauðri skjalatösku
úr jeppabifreið, sem stóð við
Skólavörðustfg f Reykjavfk. 1
töskunni voru 120 þúsund krónur
f reiðufé, ávfsanahefti frá Al-
þýðubankanum og bankabók frá
Verzlunarbankanum.
Nánari atvik voru þau, að menn
voru að bera vörur úr bifreið inn í
verzlun, sem stendur við götuna.
Taskan var í framsæti bifreiðar-
innar, sem var ólæst vegna vöru-
flutninganna. Þjófurinn hefur
greinilega beðið færis og gripið
töskuna á þeirri stuttu stund, sem
mennirnir voru staddir inni i
verzluninni. Var taskan horfin
þegar þeír komu út. Rannsóknar-
lögreglan biður alla þá, sem geta
gefið upplýsingar um þetta mál,
að hafa samband við hana strax.