Morgunblaðið - 18.10.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974
3
Jón G. Magnússon, bæjarritari ( Kópavogi, og Karl Árnason hjá Ahaldahúsi Kópavogs við nýju vagnana,
sem teknir verða í notkun á næstunni.
Ngir strœtisuagnar
í Kópauogi
KÓPAVOGSBÆR hefur fengið
tvo nýja strætisvagna, sem teknir
verða f notkun eftir um það bil
í JUNlBYRJUN f sumar héldu
niðjar hjónanna Sæmundar Guð-
brandssonar, hreppstjóra á
Lækjarbotnum, og Katrinar
Brynjólfsdóttur, Ijósmóður. ætt-
armót að Brúarlundi í Landsveit.
Á mótinu myndaðist sjóður vegna
veitinga, sem þar voru seldar. Var
ákveðið að fyrir upphæðina
Með aflann
til Bretlands
Siglufirði, fimmtudag.
SKUTTOGARINN Dagný sigldi
héðan i dag áleiðis til Bretlands
með farm sinn, um 80 tonn af
fsvörðum fiski en af því voru um
30 tonn koli. Þá var togarinn með
60—70 tonn af heilfrystum fiski.
Togarinn selur í næstu viku.
tvær vikur. Vagnarnir eru af
gerðinni Mercedes-Benz 305, taka
allt að 80 farþegum, og munu
skyldi Skarðskirkju gefin gjöf.
Margt gat komið til greina, en
það, sem kirkjan þarfnaðist mest,
var rafhitun. Þó að sjóðurinn
nægði engan veginn til þessa
verks, ákvað þetta góða fólk að
gefa kirkjunni þessa stórgjöf, sem
nemur a.m.k. 100 þús. kr. Var
komið fyrir 11 rafmagnsofnum í
kirkjunni og sáu um framkvæmd
og uppsetningu verksins þeir
frændurnir Kári Þórðarson, raf-
veitustjóri í Keflavík, Sverrir
Sæmundsson, skrifst.m., og Daði
Ágústsson, rafmagnstæknifræð-
ingur, báðir búsettir f Reykjavík.
öllum þeim, sem stóðu að þess-
ari miklu og góðu gjöf, færir
sóknarnefnd og sóknarprestur
innilegustu þakkir. Gjöfin var af-
hent við guðsþjónustu í Skarðs-
kirkju sunnud. 6. þ.m.
H.G.
vera hinir fyrstu þessarar tegund-
ar, sem teknir eru f notkun utan
Vestur-Þýzkalands, þar sem þeir
eru framleiddir.
Reykjavík hefur einnig fest
kaup á fimm slíkum vögnum, og
verða þeir teknir í notkun á næst-
unni.
Að sögn Karls Árnasonar hjá
Ahaldahúsi Kópavogs komu vagn-
arnir hingað til lands í júní-
byrjun, þótt ekki hafi reynzt unnt
að fá þá afgreidda fyrr en nú.
Þessi töf hefur haft í för með sér
mikla verðhækkun, en þegar
samið var um kaupin i marz-
mánuði sl. var verðið um 6 millj.
fyrir hvorn vagn, en siðan hefur
hækkunin orðið um 50%, þannig
að kaupverðið er um 9 milljónir.
Vagnarnir koma yfirbyggðir frá
verksmiðjunni, og geta flutt 80
farþega hvor.
Þegar hinir tveir nýju vagnar
hafa verið teknir í notkun hafa
Strætisvagnar Kópavogs 7 vagna í
förum.
Tveir vagnanna hafa ekið um
120 þús. km. vegalengd á ári, en
til samanburðar má geta þess, að
þeir vagnar, sem mest er ekið í
Reykjavík fara um 80 þús. km. á
ári.
Skarðskirkja fær stórgjöf
Kjarabaráttunefnd námsmanna:
„...munu alls ekki una neinni skerðingu”
NVLEGA hélt nýstofnuð kjara-
baráttunefnd námsmanna fund
með fréttamönnum, en aðild að
nefndinni eiga Nemendafélag
Tækniskólans, Skólafélag
Kennaraháskólans, Skólafélag
Vélskólans, Stúdentaráð háskóla
tslands og SÍNE.
Markmið nefndarinnar er að
„sporna við tilraunum stjórn-
valda í átt til niðurskurðar f fjár-
veitingu til Lánasjóðs fslenzkra
námsmanna (LtN) og fylgja eftir
þeirri stefnu námsmanna, að
námslán nemi 100% umframfjár-
þarfar á yfirstandandi skólaári
(1974/75).“
Að sögn kjarabaráttunefndar-
innar verður gert ráð fyrir 600
milljón króna framlagi til Iána-
sjóðsins i fjárlögum fyrir árið
1975. Kjarabaráttunefndin telur
hins vegar, að lánasjóðurinn þurfi
að fá 810 milljónir króna til ráð-
stöfunar, eigi raungildi lána að
haldast óbreytt, en það var 83% á
árinu 1974.
Baráttunefndin benti á
ákvæði i lögum um námslán og
námstyrki frá 1967, en þar segir
svo f 2. grein: „Stefnt skal að því
að opinber aðstoð við námsmenn
skv. lögum þessum nægi hverjum
námsmanni til að standa straum I
af árlegum námskostnaði, þegar
eðlilegt tillit hefur verið tekið til
aðstöðu hans til f járöflunar.
Fari svo sem horfir, þ.e.a.s. að
Alþingi samþykki að veita 600
milljónir til lánasjóðsins á næsta
ári mun því raungildi lánanna
nema 61.5%.
Kjarabaráttunefnd námsmanna
telur þessa málsmeðferð vera
lagabrot, þar sem slík fram-
kvæmd sé ekki í samræmi við
lagaákvæðið hér að ofan.
Kjarabaráttunefndin kvað það
skýlausa kröfu námsmannasam-
takanna, að námslán næðu á
þessu ári 100% markinu, en lág-
markskröfu, að lánin héldu raun-
gildi sínu miðað við yfirst'andandi
ár.
Sú spurning kom fram á fund-
inum, hvort námsmenn teldu sér
ekki skylt að taka þátt í að axla þá
efnahagsbyrði, sem nú hvíldi á
almenningi hér á landi.
Svarið var á þá lund, að nefndin
telur erfiðleika f efnahagslífi
þjóðarinnar ekkert nýtt, heldur
sé hér um að ræða tylliástæðu,
sem jafnan sé slegið fram þegar
námsmenn geri kröfur um bætt
kjör.
Þá segir orðrétt í yfirlýsingu
kjarabaráttunefndarinnar:
„Námsmannasamtökin munu
alls ekki una neinni skerðingu
námslána frá því sem nú er við
haustúthlutun.
Tilraun stjórnvalda í þá átt
verður ekki tekið þegjandi eða án
gagnaðgerða. Námsmannasam-
tökin munu einskis láta ófreistað
til að verjast slíkum árásum og
lýsa um leið allri ábyrgð og afleið-
ingum slfkra tilrauna á hendur
stjórnvöldum!“
Þess skal að lokum getið að á s.l.
ári voru lánþegar 2.927 á árin
1971— 72 voru þeir 2113, og
1972— 73 2813.
Arið 1970—71 námu námslán
62,9% umframfjárþarfar, árið
1971—72 fór hlutfallið upp í
77.4%. Á fyrsta ári vinstri
stjórnar var hlutfallið 77,8%, en
árið 1972—74 hækkaði það í
82,7%.
Við afgreiðslu fyrstu fjárlaga í
tíð vinstri stjórnar var kveðið svo
á, að lög um námslán skyldu
endurskoðuð. Ári seinna var svo
skipuð nefnd, og skilaði hún til-
lögum um ný lög nokkrum mán-
uðum síðar. Þær tillögur hafa þó
ekki komið til meðferðar á Al-
þingi, og eru því lögin frá 1967
enn í gildi óbreytt.
DRUKKINN
t FYRRINOTT ók bifreió út af
Suðurgötunni í Hafnarfirði, og
hafnaði hún f stórgrýti utan
vegar. Þegar lögreglan kom á
staðinn lá ökumaðurinn við
hliðina á bifreiðinni, og virtist
hann hafa fengið höfuðhögg.
Auk þess taldi lögreglan, að
ÓK UTAF
maðurinn væri undir áhrifum
áfengis. Hann var fluttur á
slysadeild Borgarspftalans, þar
sem meiðslin voru athuguð og
blóðsýni tekið. Bifreiðin var úr
Reykjavfk, og ökumaðurinn
einnig.
Smygl í þremur skipum
MBL. SKYRÐI frá þvf f gær, að
smygl hefði fundizt f Alsey VE
sl. þriðjudagskvöld. I gær barst
fréttatilkynning . frá Toll-
bæzlunni f Reykjavfk um mál-
ið, og fleiri, sem hún hefur
afgreitt að undanförnu. Fer til-
kynningin hér á eftir:
Er m/b Álsey kom erlendis
frá til Vestmannaeyja sl.
þriðjudagskvöld fann tollgæzl-
an eftirtalinn varning í bátn-
um, sem smygla átti til lands-
ins: 115 fl. áfengi, 63 ks. áfengt
öl — 1515 fl —, 6400 vindlinga,
eitt sjönvarpstæki og nokkuð af
öðrum varningi svo sem kjúkl-
ingum og „kínverjasprengj-
um“. Rannsókn fer fram á,
hverjir eiga varninginn.
Sama kvöld fann toligæzlan
einnig smyglvarning I m/s
Hólmanesi, er skipið kom er-
lendis frá til Eskifjarðar. Var
þar um að ræða 81 fl. áfengi og
9 ks. af áfengu öli —.216 fl.
Eigendur þess varnings reynd-
ust vera matsveinn og vélstjóri
á skipinu.
Loks má geta þess, þó nokkuð
sé umliðið, að tollgæzlan fann
smyglvarning í m/s Norðra
þann 15. sept. sl., er skipið kom
til Raufarhafnar frá útlöndum.
Fundust í skipinu 205 fl.
áfengi, 23 ks. áfengt öl. — 522
fl., 2200 vindlingar, eitt út-
varpstæki, eitt sjónvarpstæki
o.fl. Eigendur smyglvarnings-
ins voru stýrimaður, tveir vél-
stjórar og bryti.
TVEIR í ÁREKSTRI
I GÆR var harður árekstur á nokkuð. Annar skarst á enni,
Grensásvegi, á móts við nyrðri en hinn hlaut áverka á hálsi.
enda Skeifunnar. FiatbfH ók Báðir bflarnir skemmdust
aftan á Datsunbfl, og meiddust mikið.
ökumenn beggja bifreiðanna
23 ÞÚSUND ENDUR-
SKINSMERKI í SÖLU
aðan bækling í þessu tilefni.
Þessi nýbreytni hefur hlotið
góðan hljómgrunn. Oliufélagið
Skeljungur og Kassagerð
Reykjavíkur voru fyrst til að
panta siík merki fyrir starfs-
fólk sitt og fjölskyldur þeirra.
Þá hefur Lífeyrissjóður Vest-
mannaeyinga pantað merki og
Hólabrekkuskóli einnig fyrir
alla nemendur sfna.
Umferðarráð vill leggja sér-
staka áherslu á þá staðreynd, að
endurskinsmerki eru ekki síður
nauðsynleg fullorðnu fólki en
börnum og unglingum, því full-
orðnir eru meira í umferðinni
er skyggja tekur.
UMFERÐARRAÐ hefur nú
þegar dreift til sölu 23 þús.
endurskinsmerkjum, sem er
mun betri árangur en búist var
við á aðeins tveimur vikum. I
upphafi setti ráðið sér það tak-
mark, að selja 40.000 merki f
vetur og hefur þvf þegar verið
dreift rúmlega helmingi þess
magns.
Umferðarráð bryddaði á
þeirri nýbreytni við fyrirtæki,
stofnanir, sveitarfélög og skóla,
að þessir aðilar keyptu endur-
skinsmerki fyrir starfsfólk sitt
og viðskiptavini, þar sem á væri
prentað nafn og/eða merki við-
komandi. Gaf ráðið út sérprent-
KÓPAVOGUR LEIÐIR
DEILDARKEPPNINA
FYRSTA umferð deilda-
keppni skákfélaganna fór fram
um sfðustu helgi og urðu úrslit
sem hér segir:
Taflfélag Kópavogs sigraði
skáksveit Hreyfils með 17‘A
vinning gegn 2V5. Taflfélag
Reykjavíkur sigraði Skákfélag
Akureyrar með 16 vinningum
gegn 4 og Skáksamband Suður-
lands sigraði Skákfélag Hafnar-
fjarðar með 13V4 vinningi gegn
6VL
Næsta umferð verður tefld
27. október og keppa þá saman
Skákfélag Akureyrar og Hreyf-
ils á Akureyri, Taflfélag
Reykjavíkur og Skákfélag
Hafnarfjarðar í Reykjavík og
Skáksamband Suðurlands og
Taflfélag Kópavogs f Hvera-
gerði.
ENGIR MEIRI HÁTTAR
KVILLAR í BORGINNI
I ÞANN mund er vetur hefur
innreið sfna skjóta jafnan upp
kollinum ýmsir kvillar samfara
kólnandi veðráttu og þá helzt
kvef og hálsbólga. Að sögn
borgarlæknis hefur dálftið
borið á þessum ártfðarbundnu
veirusjúkdómum undanfarið
en að öðru leyti kvað hann
heilsufar borgarbúa fremur
gott um þessar mundir. Þó
kvaðst hann hafa fregnað, að
magakveisa gengi f borginni,
en hún virtist vera injög væg.
ganga yfir á nokkrum klukku-
stundum og kæmi þvf ekki
fram á skýrslum heimilis-
lækna.
Borgarlæknir var spurður að
því hvort nokkuð bæri á því, að
inflúensa væri farin að stinga
sér niður. Svaraði hann þvi til,
að fregnir frá nágrannalöndun-
um hermdu, að ekkert væri
farið að bera þar á inflúensu og
taldi síður von á, að ný tegund
inflúensu ætti eftir að leggjast
á borgarbúa í vetur.