Morgunblaðið - 18.10.1974, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTOBER 1974
11
eru börn einstæðra foreldra og
þau hafa flest gengið í gegnum
meiri erfiðleika en ýmsir jafn-
aldrar þeirra. Það hlýtur að setja
sinn svip.
— Og þú telur, að skóladag-
heimili eigi rétt á sér.
— Miklu meira en það. Þau eru
afskaplega þýðingarmikil. Ingi
Kristinsson, skólastjóri í Mela-
skólanum, sagði til dæmis við mig
í fyrravetur, að þetta væri allt
annað líf fyrir börnin í skólanum.
Nú flygju þau áfram í námi, væru
rólegri og ánægðari. Það segir sig
sjálft: hér hafa þau fengið at-
hvarf og skjól, en þurftu áður
annaðhvort að bjarga sér sjálf eða
vera á þeytingi milli ættingja með
misjöfnum árangri. Hér er þeirra
annað heimili, þau borða, læra,
sækja aukatíma og þau koma hér
öll eftir skólann, jafnvel þótt hon-
um ljúki ekki fyrr en að ganga
fimm. Þau koma hingað, fá að
drekka og fara heim til sín um
eða upp úr fimm. Síðasti klukku-
tíminn getur oft verið erfiður
börnunum, þau hafa langan og
jstrangan vinnudag að baki og eru
tíTöin þreytt. Þá reynum við sér-
sta’felega að hafa ofan af fyrir
þeim með því að fá þau til að
safnasrsaman í söng og gitarleik,
við segjum þeim sögur eða spjöll-
um saman. Það hefur góð áhrif á
þau.
Það, sem mest er um vert fyrir
utan að hér hafa þau athvarf, er,
að þau hafa nóg fyrir stafni í leik
og starfi. Þau fara heim til sín
undirbúin fyrir næsta dag, svo að
það léttir líka af foreldrunum og
börnunum þegar heim er komið.
Samkomulagið er upp og ofan,
rétt eins og gengur á öðrum heim-
ilum en oft gott. Strákarnir
prjóna og sauma og f öllu fylgjast
kynin að, enda þótt þess verði
vart, að stúlkurnar sækjast meira
eftir því en strákarnir að fara f
dúkkuleik. Fyrir jólin höfum við
smá jölaskemmtun fyrir þau,
skreytum heimilið og eigum smá-
gjafir handa hverju barni. i
föndrinu hefur hvert barn einnig
útbúið litla gjöf handa foreldrum
sínum, sem þau fara með heim og
hafa mikla ánægju af því.
Þetta heimili er aðeins lítið
dæmi um þörfina, sagði Hall-
grímur að lokum. — Ég er viss um
það væri til bóta að stórhækka
gjaldið fyrir börnin, ef það gæti
orðið til að peningana mætti nota
til að koma upp miklu fleiri skóla-
dagheimilum. Og ekki aðeins
Við matborðið: soðið kjöt og kartöflur með jafningi og rabbabarasúpa
voru á boðstólnum f þetta skipti.
fyrir börn einstæðra foreldra.
Margt gift fólk býr við þær að-
stæður, að það þyrfti sárlega á þvf
að halda, að börnin gætu fengið
að vera á skóladagheimilum og
það er hart að geta ekki sinnt
nema litlum hluta þeirra, sem
sækja um. Fyrir nú utan það, að
ég tel, að það sé mannbætandi
fyrir börnin að vera á skóladag-
heimilum og búa við það öryggi
og margvíslegu iðju f leik og
starfi, úti og inni, sem völ er á.
h.k.
1 legókubbaleik.
Samkeppni
um gæðamerki
EIN VIKA TIL STEFNU
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins minnir á að nú
er aðeins ein vika til stefnu til að skila tilJögum í
samkeppni um gerð gæðamerkis fyrir iðnaðar-
vörur til útflutnings.
Samkeppnisreglur fást á skrifstogu Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins, Hallveiqarstíq 1, sími
24473.
Veitt verða þrenn verðlaun, fyrstu verðlaun kr.
110.000.00 oq önnur oq þriðiu verðlaun kr.
25.000,00*
VATIMSÞÉTTUR
KROSSVIÐUR:
Harðviðarkrossviöur
(4, 6, 9, 12, 18 mm)
Mótakrossviður plasthúðaður
(12, 15, 18 mm)
Combi-krossviður (greni, birki)
(3, 4, 6/, 9, 12 mm)
Ath. Söluskattur hækkar 1. október n.k.
W TIMBURVERZLIININ VðLUNDUR hf.
Klapparstig 1 Skeifan 1 9
Símar: 18430 — 85244
Píróla Píróla Píróla Píróla Píróla
aj
o
£
jc
'O
£
JS
o
u
£
ju
o
h.
£
Píróla Píróla Píróla Píróla Píróla
s
>
sr
5
>
F
5
y
5T
3
D)
l
0)
Ert þú orðin
leið á þér?
Hvernig væri að breyta til og líta inn hjá
okkur, við bjóðum meðal annars
permanent, litanir, lokkalýsingar, lagn-
ingar og blástur. Einnig úrval af snyrtivör-
um.
P.S. Höfum oðið lengur á laugardögum.
Hárgreiðslustofan
Píróla,
Njálsgötu 49, s. 14787.
Vegamótaútibú Landsbanka Islands er opið
mánudaga til föstudaga, kl. 13 til 18.30.
Auk fyrri þjónustu útibúsins mun
Vegamótaútibúið hér eftir annast öll
almenn gjaldeyrisviðskipti.
Nýtt og rúmbetra húsnæði til i ukins
hagræðis fyrir alla þá, sem eiga viðskipti
við Landsbankann.
Viö höfum flutt starfsemi okkar
aö Laugavegi 7
éSb LANDSBANKINN
^ Vegamótaútibú