Morgunblaðið - 18.10.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974
19
Hákon Guðmundsson fyrrv.
yfirborgardómari - Sjötugur
Hákon Guömundsson yfir-
borgardómari í Reykjavík fram til
sfðustu áramóta er sjötugur í dag.
Af því tilefni vil ég bera fram
hjartanlegar hamingjuóskir hon-
um til handa og þakka honum
ágæta samvinnu um mörg ár í
stjórn Skógræktarfélags Islands,
en þar átti hann sæti frá 1957 til
1972. Formaður félagsins var
hann allt frá 1962, en sem vara-
formaður þess hafði hann gegnt
formannsstörfum nokkru lengur
sakir vanheilsu Valtýs Stefáns-
sonar.
Hákon er fæddur á Hvoli í Dyr-
hólahreppi, einum af syðstu bæj-
um þessa lands, árið 1904.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Þorbjarnarson, síðar kenndur við
Stóra-Hof á Rangárvöllum, og
kona hans Ragnhildur Jónsdóttir.
Guðmundur á Hofi var mikill at-
hafnamaður og landskunnur fyrir
störf í margvíslegum félagsmál-
um.
Þegar Hákon hafði aldur til var
hann settur til mennta, fyrst í
Flensborgarskólanum en síðan í
Menntaskólanum í Reykjavfk.
Þar bar fundum okkar fyrst sam-
an, enda þótt hann væri bekk á
undan mér, því að við einir bárum
þetta sjaldgæfa nafn í öllum
skólanum um mörg ár. Að
stúdentsprófi loknu árið 1925 lá
leið hans í lögfræðideild
Háskólans, og þar lauk hann lög-
fræðiprófi Alþingishátfðarárið
1930. En þar var hann skráður
einn af stofnfélögum Skógræktar-
félags Islands er það var stofnað
meðan á Alþingishátfðinni stóð.
Að námi loknu tóku við fulltrúa-
störf hjá lögriianninum í Reykja-
vík í fáein ár uns hann var skipað-
ur hæstaréttarritari, og því starfi
gegndi hann í 28 ár. En árið 1964
varð hann yfirborgardómari f
Reykjavík, og því starfi gegndi
hann til síðustu áramóta. Þannig
hljóðar lífshlaup hans í stuttu
máli, en þar með er minnst sagt af
störfum hans.
Auk embættisstarfa hefur
Hákon Guðmundsson gegnt ótal
trúnaðarstörfum á langri starfs-
ævi, svo mörgum, að ekki verður
allt upp talið hér. Til sumra
þeirra hefur hann verið skipaður
af valdstjórninni, en önnur og
fleiri hafa verið ólaunuð félags-
störf, sem hann hefur verið kos-
inn til fyrir traust það, sem menn
báru til hans.
Hann var skipaður formaöur
Félagsdóms þegar hann var
stofnaður árið 1938, og gengdi
hann því starfi þangað til fyrir
fáum dögum, er hann sagði því
starfi lausu. Þá hefur hann verið
formaður stjórnar Lífeyrissjóðs
starfsmanna rfkisins síðan 1961.
Um skeið hafði hann mikil af-
skipti af flugmálum og var for-
maður Flugmálafélags tslands f
Framhald á bls. 29.
ÚTGERÐARMENN
Bátavélar
Eigum til afgreiðslu nú þegar 300 hestafla
Volvo Penta bátavél. Sýningarvél á staðnum.
Allar upplýsingar hjá sölumönnum vorum.
VELTIRHF,
Suðurlandsbraut 16, Reykjavík
Sími 35200
Barnaplata þeirra Magnúsar
og Jóhanns frá Keflavík
er komin aftur
á markaðinn
JOKE S.F., BOX 59, SÍMI 92 - 1687
Ný tveggja laga hljómplata
meðJohn Miles
fáanleg í næstu hljómplötuverzlun