Morgunblaðið - 18.10.1974, Side 21

Morgunblaðið - 18.10.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974 21 Sigurlaug Guðnadóttir frá Heiði -Minning F. 15. ágúst 1910. D. 9. okt. 1974 Heiði heitir yzti bær í Sléttuhlíð í Skagafjarðarsýslu. Bærinn stendur á öxl við rætur fjalls, er heitir Heiðarhyrna. Öll mín barns og bernskuár sat þennan bæ Guðni Jónsson, valinkunnur ágætismaður, og Stefanía kona hans. Yngsta barn þeirra hjóna var Sigurlaug, sem í dag er borin til moldar i Fossvogsgarði f Reykja- vík. Sigurlaug var fædd 15. ágúst 1910 á Heiði. Hún var lang yngst barna foreldra sinna. Guðni var kominn mörg ár á sextugs aldur, þegar honum fædd- ist þessi dóttir við konu sinni, sem var ailmiklu yngri. Um fæðingu hennar, sem kom óvænt, mátti segja eins og hljóðar um annan föður, sem gat son á efri árum, að hann hafi unnað henni lang mest allra barna sinna, „því að hann átti hana í elli sinni“. Guðni unni öllum börnum sín- framarlega á Stafárdal. Þar eð ég hafði ekki fundið þær, geng ég dalinn Heiðarmegin til baka. Er ég hafði gengið nær allan dalinn niður eftir, sé ég unga stúlku sitja á steini við ána, og horfir frá sér numin á fjallshlíðina austan ár- innar, sem var öll lauguð fögru aftanskini. Hún var í bláum sumarkjól, með slegið gullbjart hár, sem hrundi niður herðar og bak. Ég hrökk við og snarstopp- aði. Mér datt í hug huldumær, en það átti allmikið rúm í hugum manna er ég var ungur. Þær kváðu vera svo töfrandi fallegar, hvíslaði óyfirveguð hugsun í hjarta mínu. En óðara sé ég, að þetta er Lauga á Heiði. Hún hefur verið að sækja kýrnar, því að þær voru nokkru fjær á leiðinni heim. Hún hefur töfrazt af vorkyrrðinni og kvöldroðanum. Það skyldi ég mæta vel. Hún horfði á vesturhlíð hins tignarlega fjalls, Gimbra- klettsins. Hún virtist vera upphaf- in í leiðslu.og áinniðaði rétt við fætur hennar og lóan söng i món- um. Vorið ríkti. Ég hugleiddi það nokkra stund, hvort ég ætti nokk- uð að trufla þessa eðlislægu og upphöfnu mynd. Eg bar skyn á ungmeyna og vissi hvað hún gat verið dreymin, hljóð og djúp, Framhald á bls. 23 KODAK Litmqndir á(3^dögum HANS PETERSEN H/f. BANKASTR. 4 SÍMI 20 313 GLÆSIBÆ SÍMI 82590 Kodak ■ Kodak ■ Kodak ■ Kodak I Kodak um. En það hygg ég, að yngsta dóttirin hafi fengið tvöfaldan hlut kærleika hans. Margar líkur hniga að því. Gjafarinn mikli, sem gefur aðeins góðar gjafir, gefur Guðna þennan sólargeisla, þegar sem dimmast var í lifi hans. Guðni hafði gengið í ábyrgð, ásamt fleirum, fyrir stórri skuld. Ábyrgðin féll síðar á hann einan, af þvi að hann vildi ekki hlaupast undan því, sem hann hafði lofað. Hann vildi heldur missa allar eigur sínar. Af þessari sterku eik er Sigurlaug sprottin. Á Heiði er fagurt sólarlag, er sól rennur að unnum. Ég sé það fyrir mér i anda, er Guðni hefur horft á sólina hníga í hafið sem eldrauðan hnött, eins og teikn yfir sorgum hans þetta kvöld er eigur hans voru seldar allar. Þegar uppboðsmenn eru allir farnir, hverfur hann hljóður og einn inn í bæ sinn. Þá kvakar Sigurlaug litla, sem þá er á fyrsta ári, til hans. Hann tekur hana i arma sér og þrýstir henni að solln- um barmi. Trúlega var það þessi litla mannvera, sem huggaði hann bezt þetta sorgarkvöld, og marga daga og kvöld, sem eftir komu. Sem barn, og alla ævi, hafði Sigurlaug sérlega bjart litaraft. Hún var einkar hýr og glaðleg, Ijúf og kyrrlát. Á þessum hlýju brosum hennar var eins grunnt og á geislum sólar, þegar himinn er breiddur léttum Maríut'ásum. Hvílíkt græðslulyf á undina, sem blæddi í brjósti föðurins, að mega taka þetta barn i arma sína og una við bros þess. Og mærin þroskaðist að vizku og vexti og varð eftirlæti allra, jafnt á sfnu eigin heimili og á nágrannaheimilinu, Reykjarhól:' Hún tók ágætis próf í barnaskóla, því að innri maður hennar og samvizkusemi við nám voru eins björt og hinn ytri maður. Anna, yngsta systir mín og hún, gerðust miklar vinkonur, báðar á líkum aldri. Sigurlaug kom því oft í nær- mynd við mig, er hún var barn og unglingur. Ég veit þvf um hvað ég er að skrifa. Systir mín tók sjúkdóm um fermingaraldur, sem braut hana fyrir lífið. En vinátta þeirra, sem á barnsárunum var bundin, var svo fölskvalaus, að hún brast aldrei. Alla ævi skrifaði Sigur- laug þessari veiku vinkonu sinni og sendi henni gjafir. Ævinlega kom hún til hennar, er hún fór um Norðurland, eftir að hún var orðin búsett í Vestmannaeyjum. Þá sat hún á rúmi hennar lang- tímum saman, og lét sér gleymast, að hún var í sumarleyfi með manni sínum. Eg tek eina mynd úr þeim fjöl- breyttu myndvef, sem ég geymi um Sigurlaugu sem barn og ung- ling. Starárdalur heitir dalur einn, sem er suðaustur frá Heiði. Strax frá Heiðartúni hallar inn í þenn- an dal. Frá bænum er fögur sýn yfir dalinn og fjöllin i kring, eink- um austan Stafár. Vordag einn hafði ég verið að leita kinda ef þú vilt vera öruggur um aö tengdamamma gisti ekki eina nóttina enn ... er betra aö hafa bílinn á TOYO snjóhjólböröum TOYO snjóhjólbaröar koma þér heilum heim og aö heiman! Útsölustaður: Hjólbarðasalan Borgartuni 24 Sími 14925 Umboð á íslandi KRISTJÁN G. GÍSLASON HF GÓLFTEPPI OG GLÆSILEGAR TEPPAMOTTUR í ÚRVALI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.