Morgunblaðið - 18.10.1974, Side 22

Morgunblaðið - 18.10.1974, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974 Helgi Hermann Eiríks son fv. Iðnskólastjóri Fæddur 3. maí 1890. Dðinn 10. oktðber 1974. Hvaðan hingað, héðan hvert? Þetta eru ráðgátur, sem Helgi Hermann hugleiddi oft um sína daga hér á jörð, og hvort sem hann hefur fundið viðeigandi svör eða ekki, þá leit hann á dauð- ann án ótta eða kvíða, taldi hann frekar boða hvíld og ró eftir at- hafnasama og ianga ævi. — Hann var virkur þátttakandi I llfinu fram á síðustu daga, eftir þvi sem \ |>rekið frekast leyfði og hefði illa unað sfnum hag Iengi óvirkur, sökum heilsuleysis eða elli. — Helgi Hermann Eiríksson var fæddui> 3. mai 1890 að Efri- Tungu, Örlygshöfn við Patreks- f jörð. Foreldrar hans voru Eirík- ur bóndi Eirlksson, Mábergi á Rauðasandi, Magnússonar og kona hans Jóna Bergljót Thorodd- sen, dóttir Einars Jónssonar Thoroddsen á Látrum. — Helgi vandist I æsku sinni og uppeldi sveitastörfum sem títt var, tók þátt I iðnaðarstörfum heimilisins, lærði vel til verka, m.a. vefnað til hlítar. 11—12 ára réðst Helgi til sjós, sem hálfdrætt- ingur, þótt ungur teldist og stóð sig vel og sýndi þá þegar skap- festu sína og dugnað, sem fylgdi honum alla ævi. Hann stundaði sjóinn síðan I 8 ár, fyrst sem há- seti, síðan yfirmaður. — Hugur Helga stóð þó til meiri mennta og með tilstyrk Richardsbróður síns sótti hann til Akureyrar, þar sem hann lauk gagnfræðaprófi 1911, — og sama ár skipstjóraprófi á smáskipum. — Stúdentsprófi lauk hann frá M.R. 1913, eftir að hafa lesið 5. og 6. bekk utanskóla á einum vetri, cand phil. prófi lauk hann í Kaupmannahöfn 1914, prófi sem námuverkfræð- ingur frá háskólanum I Glasgow 1919 og sérnámi í málmfræði og rafmagnsfræði ,við sama skóla vorið 1920. Að loknu námi og reyndar áður en því lauk, hóf Helgi rann- sóknarstörf með tilliti til nýtingar íslenzkra jarðefna. A árunum 1920—1925 vann hann við silfur- bergsnámur að Helgustöðum eystra, bergrannsóknum víða um land auk mælinga og annarra verkfræðistarfa fyrir opinbera aðila. Árið 1922 gekk Helgi að eiga Jóhönnu Sigþrúði Pétursdóttur, prests á Kálfafellsstað, Jónssonar háyfirdómara Péturssonar og Helgu Skúladóttur frá Sigrlðar- stöðum I Ljósavatnsskarði. Var hjónaband þeirra farsælt en barn- laust. Stóð frú Jóhanna þétt við hlið Helga I öllum þeim um- svifum, sem störfum hans fylgdu og bjó honum mjög vistlegt heim- ili, að Sóleyjargötu 7 I Reykjavík. Var þar oft gestkvæmt bæði til fundarhalda, viðtala og sam- kvæma svo báðum var sómi að, en Helgi var glaðvær maður og þau bæði hjón gestrisin mjög en aldrei óhófsfólk. Frú Jóhanna var iðnlærð sem ljósmyndari áður en hún giftist Helga og skildi því betur en ella baráttu hans fyrir menntun og virðingu fyrir iðnaði I landinu. Hún lézt síðla árs 1958, mikill harmdauði manni sínum, ættfólki og vinum. Árið 1923 tók Helgi við stjórn Iðnskólans í Reykjavík, eftir Þór- arinn B. Þorláksson, en var jafn- framt kennari við Kvennaskólann I Reykjavík til 1929. — Auk starfa sinna sem skólastjóri, allt til árs- ins 1954, gegndi Helgi margvís- legum störfum á vegum Reykja- víkurborgar, margháttuðum fé- lagsmálum iðnaðarmanna og verkfræðinga. Hann sat I bæjar- stjórn árin 1938—46, sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, I bæjarráði ’41—46, I fræðsluráði, æskulýðs- ráði og mörgum fleiri nefndum borgarinnar. Hann var eftirlits- maður með byggingu Hitaveitu Reykjavíkur 1942—43. Hann var form. Iðnráðs Reykjavíkur og Landssambands iðnaðarmanna I 20 ár, sat I stjórn iðnlánasjóðs frá stofnun hans 1935. Hann var einn af stofnendum Sambands iðnskóla á íslandi og formaður þess, meðan hann var skólastjóri. Hann sat í stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis árin 1932—1953, seinasta árið fof- maður, eða þar tii hann gerðist fyrsti bankastjóri Iðnaðarbank- ans við stofnun hans það ár. Iþróttamál lét Helgi og til sín taka, var einn af frumherjum golffþróttarinnar hér á landi, for- maður Golfklúbbs Reykjavlkur og síðar Golfsambands íslands I 10 ár. Helgi ritaði mjög margt um iðn aðar- og fræðslumál, samdi kennslubækur og fræðirit um jarðlög og efnafræði auk aragrúa annarra greina um hugðarefni sfn og áhugamál. Auk þess, sem hér er rakið, átti Helgi drjúgan þátt I samstarfi Norðurlandanna um fræðslumál iðnaðarmanna og var hin sfðari ár talinn: „The grand old gentleman" þeirra samtaka. — Fleiri opinber störf Helga verða ekki hér upp talin, þótt margt sé ónefnt, enda yrðu þar seint gerð full skil. — Hinsvegar má þess ekki vera ógetið, að innan Oddfellowreglunnar var hann þvílíkur starfsmaður og áhuga- maður um hverskonar uppbyggi- leg málefni að vart verður til jafn- að, enda starfaði hann innan Reglunnar óslitið, með elju og at- orku fram á síðustu ævidaga, eða I 53 ár. Mun stúka hans, stúkan nr. 1 Ingólfur, nú sjá um útför hans og votta ftonum þannig þökk sína og virðingu. Munu flestir Oddfell- owar landsins vilja taka I sama streng. Eins og margir vita, var Iðnað- armannafélagið I Reykjavík stofn- að 1867 til eflingar hagsmunum og menntun iðnaðarmanna I land- inu. Það rak ýmiskonar námskeið og kvöldkennslu fyrir unga iðnað- armenn framan af, en I formanns- tíð Knuds Zimsen verkfræðings, Jóns Þorlákssonar, sem einnig varð borgarstjóri og síðar ráð- herra, efndi félagið til reglulegs skólahalds haustið 1904 sam- kvæmt reglugerð er Jón gerði til- lögu að og samþykkt var. Þetta er Iðnskólinn I Reykjavík, og varð Jón fyrsti skólastjóri hans. Iðnað- armannafélagið átti og rak skól- ann óslitið I rúm 50 ár, með styrk frá ríki og bæ. Það byggðí og, að mestu fyrir eigið framtak. Iðn- skólahúsið við Lækjargötu, sem tekið vár i notkun 1906. — Allt frá því að Helgi kom heim frá námi og aðallega frá 1923, er hann tók við stjórn skólans, voru störf hans fyrir iðnað og iðn- fræðslu, mjög tengd félaginu. Lagði hann þar gott til flestra mála og var félaginu alla tíð góð- ur og styrkur liðsmaður. Kann félagið Helga hinar beztu þakkir fyrir störf hans og stuðning, ekki síst I 31 árs skólatíð hans, um leið og það vottar minningu hans virðingu og ættingjum hans sam- úð. — Helgi hlaut margvíslegan sóma um sína daga fyrir vel unnin störf. Hann var sæmdur stórridd- arakrossi hinnar íslenzku fálka- orðu, samsvarandi dönsku heið- ursmerki, sænsku heiðursmerki, heiðursmerki Landssambands iðnaðarmanna úrgulli, gullmerki Iðnaðarmannafélagsins I Reykja- vík á 100 ára afmæli þess auk ýmissa virðingarmerkja annarra. Hann var heiðursfélagi margra félagssamtaka iðnaðarmanna og þeirrar Oddfellowstúku, sem hann var fyrst og fremst félagi I og enn mætti lengur telja. — Undirritaður kann frá því að segja, eftir rúmlega 40 ára kynni og 30 ára samstarf, að hinn harði húsbóndi og dugmikill athafnar- maður, sem alltaf gerði þó meiri kröfur til sjálfs sín en annarra, gat stundum gengið fram af sam- starfsfólki sfnu I að halda því að verki, boða til funda á frídögum o.s.frv. En hann hefir nú, fyrir áratugum síðan, öðlast fulla virð- ingu okkar, vináttu og þakkar- hug. Nemendur hans kunnu sum- ir varla að meta hörku hans, en virtu hann jafnan að námi loknu, semgóðan mannogréttsýn an, enda hafði Helgi hreina lund og ljúfa til að bera, það vissu þeir, er þekktu hann nokkuð að ráði. — Helgi var tengdur Iðnskólanum I Reykjavík alla tlð eftir að hann varð skólastjóri og á honum Ienti það fyrst og fremst, lengi vel, að berjast við „kerfið", — eins og nú er kallað, reyna að vekja skilning ráðamanna þjóðfélagsins fyrir bættri verkmenntun I landinu og útvega fjármuni I því skyni að byggja viðunandi húsakosi fyrir iðnfræðsluna. — Löng og erfið barátta fyrir þessu hófst skömmu eftir að hann tók við skólanum og fyrsti sigur vannst er þáverandi iðnaðarmálaráðherra skipaði byggingarnefnd árið 1944, til þess að undirbúa og sjá um byggingu nýs skólahúss á Skólavörðuholti. — Baráttan fyrir fjárveitingum var hörð. — Skólar fyrir iðnaðar- menn voru utan við ,,kerfið“, — og Helgi var kvaddur til annarra starfa áður en flutt yrði I hið nýja hús við Skólavörðutorg, þó hvergi nærri fullbyggt árið 1955. Þegar lög um iðnskóla voru samþykkt á Alþingi 1955 sköpuð- ust ný viðhorf m.a. að þvi leyti, að heimilað var, að upp yrði tekin verkleg kennsla I skólunum, — og fjárhagsábyrgð vegna iðnskól- anna og iðnskólabygginga var létt af iðnaðarmannafélögunum og yfirfærð á ríki og sveitarfélög sameiginlega, líkt og tíðkaðist um kostnað við gagnfræðaskóla. — Þessi nýja aðstaða kallaði á breytta stjórnsýslu, aukin umsvif skólanna og innreið verkkennslu i fræðslukerfið. — En því miður gleymdist ráðamönnum þjóðar- innar þá, — og oft sfðar, að aukin umsvif og verkefni kostuðu meiri peninga. — Baráttan um fram- kvæmdafé hélt því áfram og var erfið á þeim árum. — Þótt Helgi væri nú hættur sem skólastjóri, hélt starf hans sem formaður byggingarnefndar áfram og þegar byggingaráformum var breytt 1963 til samræmis við kröfur tímans um verkkennslu I skólum, þurfti auknar fjárveitingar, en tregðan á því sviði var söm við sig. Málaleitan byggingarnefndarinn- ar um að byggingarframkvæmdir yrðu felldar undir sömu stofnun og aðrar skólabyggingar I borg- inni var synjuð og var nefndinni og Helga því nauðugur einn kost- ur að halda áfram þungri baráttu fyrir fjárveitingum við skilnings- lltil yfirvöld. 10 ára viðbótar bar- áttutími bættist við. Og Helgi sat enn við stjórnvöl byggingar- nefndarinnar ásamt öðrum nefndarmönnum, upphaflega skipuðum, þar til segja má að hann eygði þann dag að skila mætti af sér störfum og afhenda byggingaráfanga II. Það ætlaði hann að gera formlega við 70 ára afmælishátlð skólans, er haldin verður upp úr næstu mánaða- mótum. — Þessa langþráðu óskastund mun Helgi nú ekki lifa hérnamegin grafar,, en ekki efasl ég um að hann muni, verða við- staddur, sé lífió þess eðlis að slíkt sé hægt, — hann trúði því, tel ég, það mun koma fram I ljóðum hans, sem þó örfáir vissu, að væru til. Helgi var mjög vinsæll meðal kennara sinna og starfsliðs skól- ans og vildu þar allir sóma hans sem mestan, svo sem kennara- félag skólans hefir sýnt og ein- stakir aðilar I ræðum og ritum við ýms tækifæri. — Forráðamenn skólans hafa og haft góðan hug til Helga og stóð skólanefnd að því með fjárstuðn- ingi fleiri aðila, að ævisaga hans var skráð og gefin út I tilefni 80 ára afmælis hans 1970. Bókina reit Guðmundur G. Hagalín rit- höfundur eftir sögu Helga sjálfs Þökkum + innilega auðsýnda samúð við fráfall eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, LAUFEYJAR JÖRGENSDÓTTUR, írabakka 8. Eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför bróður okkar, HANNESAR KJARTANSSONAR, Hrauni, Hnlfsdal. Anna Kiartansdóttir, Friðrik Kjartansson. t Fósturmóðir okkar, GUÐRÚN SÆMUNDSDÓTTIR, lézt að heimili sinu, Flókagötu 1 0, þann 1 6, þ.m Sæunn Gunnarsdóttir, Lilja Þórhallsdóttir. + Konan min og móðir okkar, REGÍNA ÞÓROARDÓTTIR, andaðist, fimmtudaginn 1 7. okt. Bjarni Bjarnason, Edda Bjarnadóttir, Kolbrún Bjarnadóttir. + ÓLÖF GUÐFINNSDÓTTIR, Sundstræti 24, ísafirði, verður jarðsett frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 19. okt n.k. kl. 14 00. Börn, tengdaborn, barnabörn. + Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall sonar okkar, ÞORLEIFS KRISTINS ÁRNASONAR, þökkum við af alhug Guð blessi ykkur öll. Fyrirokkar hönd, systkina, tengdabarna og annarra vandamanna, Þórgunnur Þorleifsdóttir, Árni Guðiaugsson. + Jarðarför móðurokkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LOVfSU RANNVEIGAR KRISTJÁNSDÓTTUR, fer fram frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 1 9. október kl. 2. Þorgeir Ibsen, Edda Lárusdóttir, Lovisa Ibsen, Egill Guðjónsson, Arína Ibsen, Lilja Ölafsdóttir, Halldór Ibsen, Sigþrúður Tómasdóttir, Guðmundur Ibsen, Sesselja Guðnadóttir, Helgi Ibsen, Þorbjörg Þorbjörnsdóttir, Guðfinnur Jón Ibsen, bamabörn og bamabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför BIRGITTU GUÐBRANDSDÓTTUR, Njálsgötu 40. Vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við fráfall og útför dóttur minnar, systur okkar og mágkonu, GUÐFINNU SIGURÐARDÓTTUR, Laugavegi 41. Einnig vil ég færa læknum og hjúkrunarfólki Borgarspitalans kærar þakkir fyrir góða umönnun I veikindum hennar. Fyrir hönd barna minna og tengdabarna, Ástrfður Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.