Morgunblaðið - 18.10.1974, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974
I iÞRdnAFRíniR Monngsiiiis
Hjalti leikur
400. leikinn
HJALTI Einarsson, hinn
gamalkunni leikmaður FH-
liðsins og landsliðsins, nær
merkum áfanga, er hann
hleypur inn á völlinn til
leiks við SAAB í Evrópu-
bikarkeppninni. Þetta
verður í 400. skiptið sem
Hjalti ver mark FH í meist-
araflokki, og munu fáir
leikmenn hérlendis hafa
leikið svo marga leiki.
Munu FH-ingar heiðra
Hjalta sérstaklega af þessu
tilefni.
Það er trú margra íþrótta-
manna, að þeim gangi illa, þegar
þeir eru heiðraðir í leikbyrjun.
„Blómaleikir“ eru því illræmdir
hjá mörgum. Hins vegar mun
mörgum í fersku minni frammi-
staða Hjalta í einum slíkum
„blómaleik“ sínum. Sá var á móti
rúmensku heimsmeisturunum
um árið, — er Island gerði jafn-
tefli við þá í ógleymanlegum leik í
Laugardalshöllinni. Er vonandi
að Hjalti verði í öðrum eins ham í
leiknum á móti SAAB.
Sá sem næstur kemur Hjalta að
leikjafjölda i FH-liðinu er Árni
Guðjónsson, sem leikið hefur 263
leiki með liðinu. Sá sem fæsta
meistaraflokksleiki á að baki er
svo hinn ungi en bráðefnilegi Sæ-
mundur Stefánsson.
FH-liðið í leiknum við SAAB
verður annars þannig skipað:
Leikir meðFH Landsl. Unglingal,
Hjalti Einarsson 399 71 0
Geir Hallsteinsson 256 80 4
Viðar Símonarson 71 64 8
Gils Stefánsson 207 0 0
Sæmundur Stefánsson 31 0 0
Árni Guðjónsson 263 0 0
Jón Gestur Viggósson 206 0 7
öm Sigurðsson 97 0 4
Gunnar Einarsson 80 4 13
Þórarinn Ragnarsson 88 0 0
Ólaf ur Ei narsson 127 0 3
Birgir Finnbogason 190 34 8
Fyrirliði liðsins á leikvelli er Geir Hallsteinsson, en þjálfari er
Birgir Björnsson.
&
Fjölbreyttur matseöill
OpiÖ alla daga í hádeginu
og á l<völdin.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
holre^
Heimilismatur
ipriöjubagur
Soóin ýsa með
hamsafloti eða smjöri
jfimmtubagur
Steiktar fiskbollur
með hrísgrj. og karry
Haugarbagur
Soóinn saltfiskur og
skata meó hamsafloti
eóa smjöii
iílánubagur
Kjöt og kjötsúpa
itlibbtkubagur
Léttsaltaó uxabrjóst
meó hvítkálsjafningi
jföötubagur
Saltkjöt og baunir
S>unnubagur
Fjölbreyttur hádegis-
og sérréttarmatseóill
Hjalti Einarsson tekur við verðlaunum fyrir FH-sigur f móti. Á
morgun leikur hann sinn 400. leik með FH-liðinu.
Reynslu-
keppni
fyrir HM
ARGENTÍNUMENN, sem verða
framkvæmdaaðilar næstu heims-
meistarakeppni í knattspyrnu,
hafa ákveðið að efna til „mini“
heimsmeistarakeppni annað
hvort seint á árinu 1975 eða í
byrjun árs 1976. Skal keppni.
þessi fara fram í fjórum borgum í
Argentínu: Mar del Plate, Cor-
doba, Mendoza og Rosario. Er
þetta gert í því skyni að þjálfa
starfsfólk fyrir heimsmeistara-
keppnina og reyna aðstæður allar.
Flest liðin sem taka munu þátt I
þessari keppni verða frá Suður-
Ameríku, en nokkrum Evrópulið-
um verður svo boðið til leiks.
Reyndir menn hjá SAAB
SEGJA MÁ, að valinn maður sé f
hverju rúmi hjá sænsku meistur-
unum Saab, sem leika seinni leik
sinn f Evrópubikarkeppninni f
handknattleik við FH á laugar-
daginn f Laugardalshöllinni.
Fjórir leikmanna liðsins eru
margreyndir landsliðskappar og
sjö að auki hafa leikið nokkra
unglingalandsleiki.
Kunnasti leikmaður SAAB-liðs-
ins, Björn Anderson, risinn í
sænskum handknattleik, mun þó
sennilega ekki leika með liðinu að
þessu sinni, en hann varð fyrir
meiðslum í sumar og mun ekki
búinn að jafna sig af þeim. Þó er
ekki útilokað að Andersson verði
með, hann er alla vega í hópnum
sem SAAB gefur upp fyrir
leikinn.
SAAB-liðið í leiknum gegn FH
verður þannig skipað:
Markverðir:
Hans Johnsson, 25 ára — hefur
leikið 24 landsleiki. Jan Wagell,
22 ára — hefur leikið 1 unglinga-
landsleiki. Mats Sjöberg, 23 ára
— hefur leikið 4 unglingalands-
leiki. Greger Larsson, 25 ára —
hefur leikið 5 unglingalandsleiki.
Jan Jonsson, 26 ára — hefur leik-
ið 36 landsleiki. Lars Enström, 24
ára — hefur leikið 31 landsleik.
Leif Olsson, 25 ára, hefur leik-
ið 5 unglingalandsleiki. Per-Ove
Andersson, 20 ára — hefur leikið
3 unglingalandsleiki. Claes Lager-
ström, 19 ára. Bo-Lennart Pers-
son, 22 ára — hefur leikið 4 ungl-
ingalandsleiki. Kent Gustavsson,
23 ára — hefur leikið 4 unglinga-
landsleikí. Björn Andersson, 24
ára — hefur leikið 65 landsleiki.
Göran Berg, 23 ára. Lars Jonsson,
20 ára. Rolf Jonsson, 24 ára.
Mikael Nystrand, 18 ára — hefur
leikið 2 unglingalandsleiki. Rolf
Jacobsson, 20 ára.
Þjálfarar liðsins eru Roger
Hedell og Jan-Áke Frekriksson.
SAAB varð sænskur meistari í
handknattleik í fyrra eftir mikla
baráttu. Þar er keppnisfyrir-
komulagið þannig í 1. deild, að 10
lið leika allir við alla I tvöfaldri
umferð. Að lokinni þeirri keppni
hafði IFK Malmö hlotið 29 stig,
Frölunda 27 stig, Hellas 23 stig og
SAAB 22 stig. Þessi fjögur félög
kepptu síðan sín á milli um
sænska meistaratitilinn. Vann
SAAB Frölunda f undanúrslitum
og mætti síðan Hellas i úrslita-
keppni. Var hún mjög þtvísýn, en
eftir þrjá leiki sigraði SAAB.
Fyrsta leikinn vann SAAB 21:15,
Hellas vann annan leikinn 17:14,
en SAAB þann þriðja 20:17, eftir
framlengdan leik.
Heil umferð
um helgar
SU NVBREYTNI verður
tekin upp f 1. deildar
keppninni f handknattleik í
vetur, að nokkrum sinnum
verður leikin heil umferð
um helgar, þ.e. tveir leikir
fara þá fram á laugardögum
og tveir á sunnudögum.
Hingað til hafa leikir í 1.
deildinni venjulega verið á
miðvikudögum og sunnu-
dögum, en mótanefnd HSl
ákvað að gera tilraun til
þess að breyta út af, m.a.
með tilliti til þess, að laugar-
dagsleikir f knattspyrnunni
hafa jafnan verið bezt sóttir.
Fyrsta leikhelgin verður
laugardaginn 30. nóvember
og sunnudaginn 1. desem-
ber. Þá leika á laugardaginn
Haukar — ÍR og Grótta—FH
og á sunnudaginn Ár-
mann—Víkingur og
Fram—Valur.
Sfðan verður leikhelgi 14.
og 15. desember, 18. og 19.
janúar og 1. og 2. marz.
Stuðlar
OPIÐ í KVÖLD! DansvJð til kl. 1
Matur framreiddur frá kl. 19.00
Borðapantanir frá kl. 16.00 í sima: 52502
Borðum eigi haldið lengur en til kl. 21.00
Veitingahúsið
SKIPHOLL Strandgötu 1 - Hafnarfiröi - “5? 52502
Alþýðuhúsið Hafnarfirði
FYRSTI
STÓRDANSLEIKURINN
eftir sumarfrí í kvöld
BIRTA LEIKUR
FRA KL. 9 - 1.00.
Aldurstakmark 16 ára.