Morgunblaðið - 18.10.1974, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974
31
Pressuleikur
Ákveðið hefur verið að
pressuleikur í handknatt-
leik fari fram f Laugar-
dalshöllinni n.k. sunnu-
dagskvöld. Mun landsliðið
sem heldur utan í næstu
viku til keppni við Ung-
verja, Vestur-Þjððverja,
Svisslendinga og Luxem-
borgara fá sína „general-
prufu“ fyrir ferðína, og má
búast við skemmtilegum
leik. Val landsliðsins er
óneitanlega nokkuð um-
deilt, og því fróðlegt að sjá
hvernig því vegnar f
keppni við lið blaðamann-
anna.
Liverpool á toppinn
og Arsenal á botninn
Ómar Ragnarsson — vítaskytta og aðalskorari liðs treua-
manna sendir þarna knöttinn í netið í leik gegn dómur-
um f fyrra.
Stjórn HSÍ
mætir íþrótta-
fréttamönnum
Nokkrir leikir fóru fram í
knattspyrnunni i fyrrakvöld og f
gærkvöldi, og urðu úrslit þeirra
þess valdandi, að lið höfðu sæta-
skipti, bæði á toppinum f fyrstu
deild og á botninum. Liverpool
náði fyrsta sætinu f deildinni, þar
sem Ipswich Town tapaði leik sfn-
um fyrir Burnley, og jafntefli f
leik Tottenham og Carlisle og tap
Arsenal fyrir Manchester City
þýðir það, að Tottenham kemst
nú upp fyrir Arsenal á botninum.
Úrslit leikja urðu annars sem hér
segir:
1. deild:
Everton — West Ham United 1:1
Burnley—Ipswich Town 1:0
Birmingham — Leeds United 1:0
Sheffield Utd. — Derby 1:2
Luton—Middlesbrough 0:1
Manchester City — Arsenal 2:1
Newcastle — Wolves 0:0
Tottenham —Carlisle 1:1
2. deild:
Portsmouth — Manch. United 0:0
Sunderland — Sheffield Wed. 3:0
Cardiff — York 3:2
Oldham — Notts County 1:0
3. deild:
Halifax — Southend 3:1
Plymouth — Aldershot 1:0
Brighton—Grimsby 3:1
Chesterfield — Bournemouth 0:0
Peterborough — Bury 3:1
Staðan í 1. deild eftir leiki þessa
er sú, að Liverpool hefur for-
ystuna með 17 stig eftir 12 leiki,
Ipswich er 1 öðru sæti með 17 stig
eftir 13 leiki, en er með óhag-
stæðara markahlutfall er Liver-
pool. Síðan kemur svo Man-
chester City, sem einnig hefur
hlotið 17 stig.
Á botninum eru Luton Town
með 8 stig, Tottenham með 7 stig
og Arsenal með 7 stig.
Manchester United hefur for-
ystu í 2. deild og er komið með 21
stig að loknum 13 leikjum, en
Sunderland hefur krækt í annað
sætið, er með 18 stig að loknum 12
leikjum.
I fyrrakvöld fóru einnig fram
nokkrir leikir í deildarbikar-
keppninni og urðu úrslit þeirra
sem hér segir:
Aston Villa—Crewe 1:0
Blackburn—Hartlepool 1:2
Liverpool — Bristol City 4:0
Norwich — West Bromwich 2:0
Stoke—Chelsea 1:1
1 fjórðu umferð leika því saman:
Colchester — Southampton, Chester —
Leeds, Newcastle — Fulham, Manchester
United — Burnley, Sheffield United — Nor-
wich, Liverpool — Middlesbrough, Ilarlepool
— Aston Villa og Ipswich — Chelsea eða
Stoke, en tvö stfðastnefndu liðin verða að
leika þriðja leikinn um rétt til að taka þátt f
fjórðu umferðinni.
Blaðamenn völdu í gær lið sitt
fyrir leikinn á sunnudaginn og
verður það þannig skipað:
Markverðir:
Ölafur Benediktsson, Val
Gunnar Einarsson, Haukum
Aðrir leikmenn:
Gunnsteinn Skúlason, Val (fyrir-
liði)
Geir Hallsteinsson, FH
Björgvin Björgvinsson, Fram
Hilmar Björnsson, KR
Stefán Jónsson, Haukum
Hörður Sigmarsson, Haukum
Brynjólfur Markússon, ÍR
Ágúst Svavarsson, IR
Árni Indriðason, Gróttu
Stefán Gunnarsson, Val
Stefán Halldórsson, Víking
Trausti Þorgrfmsson, Þrótti.
Birgir Björnsson landsliðs-
þjálfari og landsliðseinvaldur
staðfesti á fundi með fréttamönn-
um í gær, að leitað hefði verið
eftir því við Geir Hallsteinsson og
Björgvin Björgvinsson að þeir
gæfu kost á sér í landsliðið, en
hvorugur hefði viljað ljá máls á
því að svo stöddu. Þeir Geir og
Björgvin ásamt Gunnsteini Skúla-
syni, eru reyndustu menn pressu-
liðsins, en auk þeirra hafa margir
leikið fleiri eða færri landsleiki.
EFTIR LANGA fundi og stranga
ákvað stjórn Handknattleikssam-
bands Islands að verða næsta
fórnardýr hins frábæra liðs
fþróttafréttamanna! Verður leik-
ur þessara aðila forleikur að leik
landsliðsins og pressuliðsins I
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldið, og eftir því sem fréttir
herma eru báðir aðilar nú farnir
að búa sig undir átökin af mikl-
um krafti.
Fararstjóri—fréttamaður
I GÆR birtist f Þjóðviljanum
klausa nokkur, þar sem einn af
blaðamönnum blaðsins lýsir
undrun sinni á þvf, að Helgi
Daníelsson, hafi verið kostaður
utan á leiki Islands við Dan-
mörku og Austur-Þýzkaland af
KSl, en síðan hafi hann ritað
um Ieiki þessa í Morgunblaðið.
Jafnframt er birt viðtai við
Friðjón Friðjónsson, einn af
stjórnarmönnum KSt, scm
virðist vera harmi lostinn, en
ftrekaðar tilraunir blaða-
mannsins til að ná sambandi
við formann KSl út af máli
þessu báru ekki árangur. Þá
fjallar Vfslr einnig um mál
þetta í gær, en blaðamaðurinn
er um það skrifar þar var þeim
mun heppnari en Þjóðvilja-
maðurinn, að hann náði f Ellert
B. Schram, formann KSl, til
þess að fá svar við spurningu
sinni.
Úr þvf sem komið er, telur
undirritaður rétt að skýra mál
þetta nokkuð, og þá fyrst og
fremst fyrir þá sök, að leitast er
við af framangreindum blöðum
að gera Helga Daníelsson tor-
tryggilegan.
Eins og fram kemur í Þjóð-
viljagreininni, lék fslenzka
knattspyrnulandsliðið leik við
Norðmenn þar ytra fyrir nokkr-
um árum. Einn af fararstjórum
íslenzka landsliðsins í þeirri
ferð var Hallur Simonarson,
fréttamaður hjá Vfsi. Ritaði
hann sfðan um leik þennan f
blað sitt, rétt eins og hann hefði
verið sendur af því til þess að
fylgjast með leiknum.
Helgi Danfelsson hefur starf-
að sem íþróttafréttamaður
Morgunblaðsins meira og
minna undanfarin ár, og þegar
Helgi var valinn fararstjóri
liðsins hafði undirritaður sam-
band við hann og bað hann um
að skrifa um leikina f Morgun-
blaðið. Hefur Helgi gert slíkt
áður, þegar eins hefur staðið á,
t.d. um Iandsleiki Islendinga í
Færeyjum, en þeir munu ekki
hafa þótt það merkilegir að
mönnum hafi þótt taka þvf að
gera við það athugasemdir.
Helgi tók að sér að skrifa um
umrædda leiki fyrir blaðið með
þeim fyrirvara að hann væri
þarna sem fararstjóri, og því
óvíst hversu mikinn tfma hann
hefði. Hafði sfðan undirritaður
samband við Helga eftir leikina
og fékk upplýsingar hjá honum
og var það algjörlega á mína
ábyrgð að Heigi var titlaður
fréttamaður blaðsins í umrædd-
um greinum, enda taldi ég að
þegar væri fordæmi fyrir þvi að
fararstjórar KSl væru jafn-
framt fréttamenn blaða.
Næsta sem skeður í máli
þessu er síðan það, að undirrit-
uðum barst það til eyra að for-
maður KSI væri óánægður með
það, að Helgi hefði verið titlað-
ur fréttamaður Mbl. í umrædd-
um greinum, og hafði ég þá
samband við hann. Reyndist
mér mjög auðvelt að ná til for-
mannsins. Vitnaði ég í samtali
okkar til þess sem áður hafði
gerst og var það mat mitt að
sama regla ætti þá að gilda fyr-
ir Morgunblaðið og gerði fyrir
Vísi á sfnum tíma. Formaður-
inn benti hins vegar á, að hann
hefði ekki haldið um stjórnvöl-
inn hjá KSl, þegar það mál
gerðist, og væri það stefna sín
að fararstjórar í ferðum KSI
störfuðu ekki jafnframt á veg-
um blaða, en þeim væri að sjálf-
sögðu heimilt að gefa allar þær
upplýsingar sem þeir gætu
veitt. Óskaði Ellert eftir leið-
réttingu í blaðinu, og var hún
birt daginn eftir samtal okkar,
— að mínu mati, eins og for-
maðurinn óskaði eftir. Þessi
ieiðrétting varð svo til þess að
blaðamenn Vísis og Þjóðviljans
geystust fram á ritvöllinn og er
jafnvel farið að blanda Sjálf-
stæðisflokknum f málið.
Undirrituðum þykir það mið-
ur hvernig vegið hefur verið að
Helga Danielssyni í máli þessu,
þar sem hann á enga sök, og er
ég viss um að hann hefur rækt
fararstjóraskyldur sfnar ekki
síður en Hallur Símonarson
gerði á sfnum tima, jafnvel þótt
hann veitti sfðan Morgunblað-
inu umbeðnar upplýsingar um
leikina.
Og að lokum: Þjóðviljinn hef-
ur eftirfarandi eftir Friðjóni
Friðjónssyni, gjaldkera KSl,
sem var einn af fararstjórum
fslenzka liðsins í ferðinni:
„Friðjón Friðjónsson, gjald-
keri KSl, sagðist harma svona
misnotkun sem þarna hefði
komið fram. Hann sagðist ekk-
ert hafa vitað um að Helgi væri
fréttamaður Mbl. í ferðinni, en
stjórn KSI hefði viljað verð-
launa Helga fyrir vel unnin
störf sem formaður mótanefnd-
ar KSl i sumar með þvi að gera
hann að fararstjóra í þessari
ferð. En síðan hefði hann séð,
þegar hann kom heim, að Helgi
hefði verið fréttamaður Mbl. í
ferðinni.
Slíkt hvarflaði ekki að mér og
ég harma þetta, sagði Friðjón.“
Af þessu „gefna tilefni". Átti
Friðjón Friðjónsson ekki sæti í
stjórn KSl, er blaðamaður var
valinn sem fararstjóri KSl?
Hreyfði hann mótmælum við
þvf, eða hefur það komið fram
hjá gjaldkeranum, að hann hafi
harmað að umræddur blaða-
maður sendi blaði sinu fréttir
af þeim leik sem hann fór á sem
fararstjóri KSI? Æskilegt væri
að fá svör við þessu frá gjald-
keranum.
Steinar J. Lúðvfksson.
Lið íþróttafréttamanna á ein-
stakan feril að baki — hefur ekki
tapað leik, jafnvel þótt það hafi
keppt við eigi slakari iið en
dómaraúrval, sem hefði auðvitað
aila lagaklæki íþróttarinnar á tak-
teinum f leikjunum. Hefur mestu
um munað hið mikla öryggi, sem
íþróttafréttamannaliðið hefur
sýnt i vítaköstum sínum, en þau
hefur Ómar Ragnarsson jafnan
tekið með hinum mesta glæsi-
brag. Munu nú deilur uppi innan
stjórnar HSl hverjum verði fórn-
að i markið í leik þessum, en slíkt
hlutverk þykir ekki öfundsvert
þegar von er á skotum íþrótta-
fréttamanna, sem hitta a.m.k.
stundum f mark!
Norður-
landaþing
UM þessa helgi þinga Norrænir
frjálsíþróttaleiðtogar í Reykjavík.
Koma hingað 9 menn frá Norður-
löndunum til þessa fundar, sem
hefst í Stjórnarherberginu á
Hótel Loftleiðum kl. 9.30 i dag,
Þetta er 31. fundurinn, sem leið-
togar frjálsra íþrótta á Norður-
löndum halda, og jafnframt þriðji
fundurinn, sem fer fram hérlend-
ís.