Morgunblaðið - 19.10.1974, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 1974
22 0-22-
RAUDARÁRSTIG 31
V_______________/
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOMEEJ1
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
Ferðabílar hf.
BílaleigaS—81260
5 manna Citroen G.S fólks og
stationbilar 1 1 manna Chervolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabilar (með bilstjórn)
Hjartans þakklæti til allra, bæði.
skyldra og vandalausra, sem
auðsýndu mér kærleika með
heimsóknum, gjöfum, skeytum
og alls konar vinarhug á 80 ára
afmæli mínu.
Algóður Guð launi ykkur og
blessi.
Þórdís Símonardóttir.
Lausn
skipstjórans
Hentugasti dýptarmælirinn fyrir
10—40 tonna báta. 8 skalar
niður á 720 m dýpi, skiptanleg
botnlína, er greinir fisk frá botni.
Dýpislina og venjuleg botnlina,
kasetta með 6" þurrpappir, sem
má tvínota.
SIMRAD
Bræðraborgarstig 1,
s. 14135 — 14340.
Formennska í
Alþýðubandalagsinu
Dagblaðið Tfminn birtir for-
sfðufrétt í gær um væntanlegan
landsfund Alþýðubandalagsins
og átök um formannskjör. t
blaðinu segir m.a.:
„Innan Alþýðubandalagsins
gilda flóknar reglur um endur-
kjör til miðstjórnar flokksins. 1
orði er þessi skipan á höfð til að
efla lýðræði innan flokksins og
tryggja, að enginn geti til fram-
búðar fest sig f sessi í mið-
stjórninni, en á borði leiðir og
af þessari skipan mála, að f
miðstjórn hefur á stundum ver-
ið kjörið fólk, sem litla eða
enga reynslu hefur f pólitfsku
starfi, og þannig geta hinir
raunverulegu foringjar flokks-
ins tryggt sér, að miðstjórnin
lúti vilja þeirra.
Staða Ragnars Arnalds hefur
um langa hrfð verið veik. Mörg-
um Alþýðubandalagsmönnum
hefur þótt nokkuð á skorta, að
hann væri nógu skeleggur og
einarður. Magnús Kjartansson
er sagður vera f hópi þessara
manna, og undanfarnar vikur
hefur hann leynt og ljóst stefnt
að þvf að taka sjálfur við
stjórnvelinum á landsfundin-
um f nóvember.
Er haft við orð innan flokks-
ins, að Magnúsi þyki nú kom-
inn tfmi til þess að formanns-
sætið skipi maður, sem
„hlustað er á og mark er tekið
á“. Nú þurfi að taka málin fast-
ari tökum og sýna meiri einurð
en gert hefur verið, ekki sfzt
með tilliti til þess, að nú sé
Alþýðubandalagið utan sjtórn-
Átök Magnúsar
og Lúðvíks
Tfminn segir ennfremur:
„Þvf fer þó fjarri, að forystu-
lið Alþýðubandalagsins sé
reiðubúið að samþykkja, að
Magnús taki við formennsk-
unni.
Innan flokksins er djúpstæð-
ur ágreiningur um ýmis mikil-
væg mál, og má t.d. nefna
bandarfska herliðið og áform
um stóriðju hér á landi. Lúðvfk
Jósepsson og Magnús eru á önd-
verðum meiði hvað stóriðjuna
áhrærir. Þá munu þeir Jónas
Árnason og Stefán Jónsson
vera andsnúnir stóriðju. Þeir
treystu báðir stöðu sína f
kosningunum sfðustu og hafa
þess vegna ekki f hyggju að láta
Magnús segja sér fyrir verkum.
Jónas hefur t.d. sfður en svo
farið dult með óánægju sfna f
viðtölum við kjósendur sfna.
Þá eru þeir Magnús og Lúðvfk
ósáttir um afstöðuna til banda-
rfska herliðsins. Magnús leggur
mikla áherzlu á að herinn verði
látinn fara, en stuðningsmenn
Lúðvfks fara hins vegar háðu-
legum orðum um það, sem þeir
kalla „Suðurnesjadelluna hans
Magnúsar“, og eiga þar við her-
stöðina."
„Aðra en Lúðvík
Jósepsson”
t lok fréttar Tfmans segir:
„Einar Olgeirsson mun hafa
verið þess fýsandi, að kosning-
um loknum, að komið yrði á
nýrri „nýsköpunarstjórn“ Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks. Aðrir gamlir sósfalistar
hafa fylgzt með þessum málum
öllum úr f jarska, og mun mörg-
um þeirra þykja sem flokkur-
inn hafi f seinni tfð mjög sveigt
af leið og fjarlægzt þau mark-
mið, sem þá dreymdi eitt sinn
um.
Samkvæmt sfðustu fregnum
mun Magnús Kjartansson hafa
verið búinn að reifa það við
alla valdamestu menn flokks-
ins, að hann tæki við formanns-
taumunum — aðra en Lúðvfk
Jósepsson. Verður þvf spenn-
andi að fylgjast með gangi
mála innan Alþýðubandalags-
ins næstu vikur.“
fólk — fólk — fólk — fólk
Fé hefur farið fjölg-
andi í Miðfirðinum
Rætt við Benedikt
á Staðarbakka
LESENDUR Mbl. kannast vel
við Benedikt Guðmundsson
bónda á Staðarbakka f Miðfirði,
enda eru þær ófáar fréttirnar
úr Miðfirðinum sem hann
hefur sent blaðinu. Blaða-
maður Mbl. hitti Benedikt sem
snöggvast að máli þegar hann
var á ferð f Miðfjarðarrétt fyrr
f haust.
— Þú ert ekki alveg ókunn-
ugur hér í Miðf jarðarrétt Bene-
dikt?
„Nei, ég hef verið hér við
réttir í ein 50—60 ár og held
því áfram alveg ótrauður. Hins
vegar hef ég ekki farið á fjall í
nokkur haust, en áður fyrr fór
ég oft í göngur."
— Er hún ekki komin nokkuð
til ára sinna þessi rétt?
„Jú, hún hefur staðið síðan
nokkru eftir aldamót. Hún er
orðin anzi léleg eins og sjá má,
en hún gerir þó enn sitt gagn.“
— Fjárbúskapur er algeng-
astur í Miðfirðinum?
„Það er nú svo, að fé hefur
heldur farið fjölgandi með ár-
unum en tala kúa hefur verið
svipuð. Á mæðuveikiárunum
urðum við fyrir miklu áfalli
eins og aðrir bændur 1 landinu,
það varð að skera allt fé árið
1947 og skipta um. Skiptin tók-
ust mjög vel að mínu mati, það
hefur ekki orðið vart neinna
alvarlega kvilla síðan. Nú hafa
Miðfirðingar um 13—14
þúsund fjár á fóðrum og að
lömbum meðtöldum um 30
þúsund fjár. Þar af var helm-
ingur rekinn á fjall, en hinn
helmingurinn gékk 1 heimahög-
um“.
— Kemur fé vænt af fjalli að
þessu sinni?
„Svona rétt í meðallagi sýnist
mér, en ekki eins vel og í fyrra.
Benedikt á Staðarbakka dregur f dilka f Miðf jarðarrétt.
Þeir sögðu það gömlu menn-
irnir, að lömbin yrðu smærri
þegar voraði vel. Annars hefur
veður verið mjög gott upp til
heiða í sumar, alveg eins og
niður í byggð. Heyskapur hefur
gengið með allra bezta móti I
sumar og heyfengur er góður.“
— Og að lokum, Benedikt,
finnst þér bragurinn 1 Mið-
fjarðarrétt hafa breytzt eitt-
hvað síðan þú komst hér fyrst
fyrir 50—60 árum?
„Mér finnst nú þetta ósköp
sviðað og það hefur alltaf verið,
það sækir margt fólk réttina og
réttarstörfin ganga vel. Það er
þá helzt að breytingin sé sú, að
nú sjást færri fullir í réttinni
en þegar ég fór fyrst. að venja
komur mínar hingað, og er það
athyglisvert á þessum síðustu
og verstu tímum, sem margir
telja, en ég er nú ekki í þeim
hópi.“
—SS.
Fimm felldir
Salisbury, 18. okt. AP.
ÖRYGGISSVEITIR Rhódesíu-
stjórnar hafa fellt fimm afríska
skæruliða síðustu daga og þar
með hafa alls verið felldir 426
skæruliðar síðan I desember
1972 að sögn stjórnarinnar í
dag.
Byssum skilað
Lourenco Marpues, 18.
október. AP:
Borgurum í Mozambique var
í dag skipað að afhenda öll
vopn innan 30 daga þar sem
óttazt er að óánægðir Portúgal-
ar reyni að koma 1 veg fyrir að
Afríkumenn taki við völdunum
25. júní á næsta ári eins og
ráðgert er.
Tafir verða
á framkvæmd
laga um tann-
læknaþjónustu
SAMKVÆMT lögum, er sam-
þykkt voru á sfðasta Alþingi um
tannlæknaþjónustu, er gert ráð
fyrir hlutdeild sjúkrasamlags-
ins f tannlækningakostnaði
almennings. Hluti þessara laga
átti að koma til framkvæmda
hinn 1. september sl. en af þvf
hefur ekki orðið enn.
Morgunblaðið sneri sér til Páls
Sigurðssonar, ráðuneytisstjóra,
og spurði hann hverju þessi drátt-
ur á framkvæmd laganna sætti.
Páll sagði það rétt vera, að hluti
þessara laga hefði átt að koma til
framkvæmda nú 1. september sl.
og aftur 1. janúar, ef samkomulag
yrði um slíkt fyrirkomulag við
tannlækna, Ifkt og samkomulag
hefði orðið við lækna um svipaða
skipan heimilislæknisþjónust-
unnar. Astæðuna fyrir þessum
drætti sagði hann vera þá, að
viðræðurnar við tannlækna hefðu
dregizt á langinn vegna sumar-
leyfa meðal annars en nú væri þó
búið að halda einn fund um
málið. Kvað hann tannlækna nú
vera að tilnefna fulltrúa sína i
samninganefndina, sem ræða
myndi við fulltrúa Trygginga-
stofnunarinnar um þessi mál.
Kvaðst Páll vona, að fljótlegayrði
hægt að framkvæma þetta ákvæði
laganna, ef tannlæknar lýstu sig
ekki andvíga þvi.