Morgunblaðið - 19.10.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. OKTÖBER 1974
21
Evelyn
Anthony:
LAUNMORÐINGINN
Jöhanna v
Kristjónsdöttir
þýddi ✓
OPIDÁ
LAUGARDÖGUM
26
manni, sem átti ekki meira
sameiginlegt með Peter Mathews
en frumstæður Indjáni. Keller
var ófríður, breiðleitur og
kannski grófur og hann átti ekki
peninga.
Mathews virti hana fyrir sér og
sá að svipurinn breyttist á andliti
hennar. Hann hélt áfram að
hugsa um að víst hefði hún alltaf
verið falleg og smekklega klædd,
en nú var yfir henni einhver
ferskleiki, sem ekki var gott að
lýsa með orðum. Hún lét sítt hárið
falla laust um axlirnar I staðinn
fyrir að greiða í hnút í hnakkan-
um. Hún var sannarlega þokka-
full í meira lagi.
— Það er einhver karlmaður í
spilinu, býst ég við. Ég hef ekki
hugsað mér að fara að ónáða ef
eitthvað alvarlegt er á seyði og fá
glóðarauga fyrir vikið.
Þetta var ekki hluti af starfinu,
en hann var forvitinn. Elisabeth
svaraði ekki spurningu hans.
— Segðu mér eitthvað af sjálf-
um þér, sagði hún. — Hvernig
ganga viðskiptin á verðbréfa-
markaðnum?
— Ég veit það ekki. Hann yppti
öxlum. — Ég hætti þar. Ég er
ríkisstarfsmaður núna.
— Hvað segirðu! Elisabeth
hallaði sér aftur í stólnum og gat
ekki á sér setið að hlæja — þú ert
kannski í hjálparsveitunum?
— Nei, I skattrannsóknardeild-
inni. Ég eltist við svikahrappa
sem borga ekki gjöld sín.
— Þú ert að gera að gamni
þínu, sagði Elisabeth. — Fæst ÞU
við skattamál? Þessu trúi ég
mátulega.
— Hverju orði sannara, Liz. Og
sannleikurinn er sá að önnur
ástæða var fyrir því að mig
langaði til að hitta þig. Yfirmaður
minn hefur verið að glugga I eign-
ir þær sem faðir þinn lét eftir sig.
Mér þykir fyrir því að þurfa að
koma að þessu, en ef menn gera
öðrum þann grikk að láta eftir sig
tíu milljónir dollara, þá getur það
valdið ýmsum heilabrotum.
Veiztu hvort hann átti eignir
erlendis?
— Nei, sagði Elisabeth. — Af
hverju hafið þig ekki samband
við lögfræðingana mína út af
þessu?
— Yfirmaður minn heldur það
væri hyggilegra að hann fengi að
ræða við þig undir fjögur augu
fyrst.
— Ertu að gefa í skyn, að hann
hafi komið einhverju ólöglega
undan?
— Alls ekki. Það er bara ýmis-
legt, sem við þurfum að fá á
hreint. Sjáðu nú til, Liz, nú skal
ég vera hreinskilinn. Eg sagði að
ég þekkti þig, yfirmann minn
langaði að hitta þig að máli og ég
sagðist skyldi reyna að kójna því I
kring. Viltu gera mér þaniijgreiða
að bregðast vel við?
— Sjálfsagt, sagði hún. — Og
hver er yfirm’aður þinn?
— Hann heitir Leary, sagði
Mathews. — Ég er viss um að þér
líkar vel við hann. Hann er mesti
fyrirtaks náungi.
— Ég get bara ekki komizt yfir
að þú skulir vera farinn að fást
við skattamál. Það er eitthvað svo
virðulegt! Það er engu lfkara en
þú sért orðinn ábyrgur borgari!
Hann glotti við henni. — Hafðu
engar áhyggjur. Eg er sami apa-
kötturinn í einkalífinu. Gæti
hugsast að þú hefðir skipt um
skoðun og vildir borða með mér í
kvöld?
— Því miður.
Hún stóð upp og rétti honum
höndina í kveðjuskyni. — Eg er
upptékin og vil ekki láta bíða
eftir mér.
— Hvað í fjáranum ertu að
bera á borð fyrir mig — er enginn
þarna?
King hækkaði röddina. H;mn
hafði komið frá Evrópu seint um
kvöld. Hann hafði notið í ríkum
mæli þeirra daga, sem hann
dvaldi í Frankfurt, enda þótt
Þjóðverjar væru honum ekki að
skapi. Hann var þreyttur, hafði
orðið að bíða í þrjá klukkutima á
Lundúnaflugvelli vegna seink-
unar og hafði engrar hvíldar
notið. Þegar heim kom fór hann I
bað, fékk sér í glas og svo hringdi
hann I tengiliðinn til að kanna,
hvort skipulagið með Keller væri
ekki í bezta lagi. Enn voru þrjár
vikur til stefnu og hann vildi
aðeins ganga úr skugga um að vel
væri að honum búið og hann yrði
ekki fyrir neinum óþægindum.
Hann hafði hringt meira af
skyldu en vegna þess að hann
hefði haft neinar áhyggjur og því
rak hann í rogastaz að fá þetta
svar.
— Hann birtist aldrei. Maður-
inn sem hann var að tala við var
miður sín af áhyégjum sjálfur,
hann hafði haft það verk að taka á
móti Keller, þegar hann væri
kominn á hótelið. En hann kom
ekki og vegna þess að harðlega
var bannað að hafa samband við
King I Þýzkalandi, þótt um árið-
andi mál væri að tefla, hafði mað-
urinn ekkert getað aðhafst í fjar-
veru hans. Hann hafði komizt að
því að Maggio hafði orðið fyrir bll
og beðið bana og þar með vissi
hann að keðjan hafði rofnað.
Hann reyndi að koma King i
skilning um þetta.
— Þú manst eftir Maggio.
Hann átti að sjá um að koma
honum á hótelið.
— Já, King síirnaði upp.
Hamingjan góða, ef hann hefði
verið handtekinn. Hann hafði
ekki verið sérlega hrifinn af því
að nota smáglæpona eins og
Maggio til þessa starfa. En það
hafði sína kosti að velja menn til
verka, sem höfðu ekki hugmynd
um skipulagið í heild og vissu
hvorki upp né niður um hvað að
baki lá.
— Já, hvað um hann?
— Hann varð fyrir bfl. Dó sam-
stundis.
— Afleitt. Svo að þannig stóð á
þessu. Enginn hafði tekið á móti
Keller á flugvellinum. Tengiliður-
inn hafði andast snögglega og allt
var að fara í hundana. Ja, það yrði
þokkalegt að gefa skýrslu um
þetta. King var svo reiður að hann
gat varla stunið upp orði.
— Ekki meira í bili, hvæsti
hann milli tannanna. — Ég þarf
að hringja annað. Ég verð að
hringja I hótelin og vita hvort ég
hef upp á vini okkar. En haltu
herberginu áfram. Eg hef sam-
band við þig, strax og ég hef haft
upp á honum.
Hann skellti tólinu á I bræði og
hann sá að hendur hans skulfu.
Keller var týndur. Bara vegna
þess að hann hafði litið af þessum
bjálfum og treyst þeim fyrir smá-
munum var allt að fara fjárans til.
Hann minntist orða sinna við
Druet I París, þegar hann hafði
fullvissað hann um, að allt gengi
samkvæmt áætlldun. Hann gat
rétt ímyndað sér þau svör sem
hann fengi frá Druet, ef þetta
fréttist. Hann hefði engar afsak-
anir, sem yrðu teknar gildar.
Hann hafði tekið að sér að skipu-
leggja þetta og honum einum yrði
kennt um, ef allt færi nú í vask-
inn.
Hann þurrkaði svitann af
andliti sér. Það var ein vonar-
VELVAKANDI
Velvakandi svarar I síma 10-100
kl 1 0 30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Enn um slátrið
Margir urðu til að hafa við okk-
ur samband vegna meðferðar á
slátri, sem undanfarið hefur verið
til umræðu hér í dálkunum.
Margrét Sigurðardóttir hafði
orðið fyrir þvf að slátrið hennar
varð ónýtt við að hún hálfsauð
það og frysti, en áður hafði hún
ætíð fryst það hrátt með góðum
árangri.
Guðbjörg Hjálmsdóttir
kvaðst hafa hálfsoðið slátrið s.l.
12—14 ár, og hefði það aldrei
misheppnazt hjá sér. Hins vegar
bæri að gæta þess, að við slíka
meðferð mætti ekki vatnsblanda
blóðið jafnmikið og ella, og væri
nauðsynlegt að hraðkæla slátrið
áður en það væri sett í frystinn,
sem auðvitað þyrfti að gerast á
augabragði.
Reynsla Huldu Nordal er sú, áð
betra sé að frysta slátrið hrátt.
Þannig verði það bæði bragðbetra
og minna fari fyrir því í geymslu.
Nú telur Velvakandi sig vera
búinn að safna nógu miklum upp-
lýsingum til að komast að traustri
niðurstöðu um það, hvernig hag-
kvæmast sé að fara með slátur,
þegar búið er að troða því i kepp-
ina og sauma fyrir.
Bezt er að frysta það hrátt.
Þannig sparast vinnan við að hálf-
sjóða það og snöggkæla til að
hægt sé að setja það í frysti, auk
þess sem minna fer fyrir þvi i
geymslunni og lítil brögð virðast
vera að því að eitthvað sé að þvi,
þegar það er komið á diskinn.
0 Kartöflurnar
Hulda Nordal gerði einnig
kartöflur að umræðuefni. Hún
sagðist vera hissa á þvi, að ekki
væri hægt að fá góðar kartöflur
hér í verzlunum, nú þegar upp-
skera hefði sjaldan verið betri
eða meiri. Hún sagði, að ergilegt
væri að fá þessa vöru blauta,
óhreina og jafnvel með myglu-
bragði, og þætti sér augljóst, að
þetta stafaði af rangri meðferð,
en ekki af þvi, að eitthvað væri
athugavert við kartöflurnar þegar
þær væru teknar upp úr görðum.
Hulda sagði, að fyrst við værum
háð einkasölu verði hún að inna
af höndum betri þjónustu. Einnig
vildi hún benda á að óeðlilega
mikill hluti þess, sem í pokunum
er, væri mold.
# Skoðanakannanir
Bjarni Jónsson, Vík í Mýrdal,
skrifar:
„Virðulegi Velvakandi.
Það spor, sem stigið hefur verið
með upptöku undirskriftarsöfnun
Varins lands og Frjálsrar menn-
ingar er spor I rétta átt.
Hér á íslandi hefur almenn-
ingur fram að þessu ekki verið
gefinn kostur á að tjá skoðanir
sínar á ýmsum málefnum, þótt
það sé mjcg algengt erlendis, sbr.
Gallup-skoðanakannanir o.fl.
Því ber að fagna þessu, og von-
andi verða skoðanakannanir
fastur liður í framtíðinni.
Mig langar að lokum að biðja
Velvakanda um að afla mér upp-
lýsinga um mál óskylt þessu. Það
er varðandi spánska listamanninn
í Austurstræti, þ.e.a.s. hvernig
liti, hvernig pappir og teikni-
kritar hann notar.
Með virðingu,
Bjarni Jónsson,
Vfk I Mýrdal."
Því miður getur Velvakandi
ekki leyst úr þessum spurningum
Bjarna, en kunni einhver skil á
þessum atriðum, væri gott að fá
vitneskju um það.
0 Tilveruréttur
lágfótu
Indfana Albertsdóttir, sem
segist vera gömul sveitakona,
skrifar:
„Ég get ekki stillt mig um að
stinga niður penna vegna greinar
eftir Hermann Tönsberg, en hún
birtist í Velvákanda 10. þ.m. og
var um tófuna.
Hann hefur sennilega aldrei átl
kindur og aldrei séð kindur rifnar
og bitnar af tófunni. Sjálfsagt
hefur honum heldur aldrei dottið
í hug að leiða hugann að líðan
kinda, sem fennt hefur I haust-
hríðum, eins og gerðist nú i haust
á Austfjörðum. Þá var frá því sagt
í blöðum, að tófan hefði grafið sig
niður á féð og rifið það I sig
varnarlaust í fönninni.
Þessi saga um þrífætta refinn,
sem hefur kannski einhverntíma
gerzt, er svo sérstæð, að hún rétt-
lætir það engan veginn, að alveg
eigi að friða tófuna um alla fram-
tíð.
Ég held, að þeir menn, sem
liggja við tófugreni á vorin, geri
það yfirleitt eins mannúðlega og
hægt er. Einnig liggja menn i
byrgjum á fjöllum uppi á vetrum
og skjóta tófuna hreinlega. Eru
þeir vel að því komnir að fá verð-
laun fyrir það.
Það er léleg samlíking að jafna
þvi saman við útrýmingu á geir-
fuglinum þótt reynt sé að fækka
þessum bitvargi eins og hægt er,
en sjálfsagt er að gera það
mannúðlega, eins og skylda er
hvaða dýr sem í hlut eiga.
Indíana AIbertsdóttir“.
# Rúmeníuferdin
útrædd
Vegna þeirra mörgu, sem
skrifað hafa Velvakanda um
Rúmeníuferð sem farin var fólki
til heilsubótar, viljum við geta
þess, að nú munu öll sjónarmið,
sem máli skipta, vera komin fram.
Upphafsmaður skrifanna var
sáróánægður með reisuna, en
aðrir, sem ritað hafa um ferðina
hafa yfirleitt verið á einu máli
um, að viðurgerningur og þjón-
usta hafi verið góð, enda þótt allt-
af megi finna að einhverjum smá-
atriðum.
Þykir þvf ekki ástæða til að
orðlengja frekar um ferðina á
þessum vettvangi, enda þótt álit-
legur stafli bréfa sé enn óbirtur.
GLÆSILEGIR
ÞÝZKIR
GÓLFLAMPAR
LOFTLAMPA
VEGGLAMPA
BORÐLAMPA
GÓLFLAMPA
STOFULAMPA
ELDHÚSLAM PA
BORÐSTOFU-
LAMPA
BAÐLAMPA
GANGALAMPA
ÚTILAMPA
VINNULAMPA
PÍANÓLAMPA
RÚMLAMPA
KRISTAL-
LAMPA
GLERLAMPA
MARMARA-
LAMPA
MÁLMLAMPA
VIÐARLAM PA
PLASTLAM PA
POSTULÍNS-
LAMPA
KERAMIK-
LAMPA
TAULAMPA
LAMPA-
SKERMA
HEIMILISTÆKI
Enn eru flestar
Dessar vðrur
á gamla verölnu
LANDSINS
MESTA
LAMPAÚRVAL
LJOS &
ORKA
SiióurhiiirisbrautlZ
sími S4488
AUGLÝSINGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810