Morgunblaðið - 19.11.1974, Síða 1

Morgunblaðið - 19.11.1974, Síða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 229. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1974 Prcntsmiðja Morgunblaðsins. Grikkland: Karamanlis hefur nú frjálsar hendur til að gera stjórnarskrárbreytingar Mikið áfall fyrir vinstri öflin Aþenu 18. nóvember, Ap—Reuter—NTB. „VIÐ eigum eðlilega við mörg og erfið vandamál að etja og þar rfs Kýpurdeilan hæst, en við munum takast á við vandamálin fast og ákveðið," sagði Konstantion Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, á fundi með frétta- mönnum f dag, eftir að Ijóst var að flokkur hans, Nýi lýðræðis- flokkurinn, hafði unnið gffur- legan sigur f kosningunum f Grikklandi. Fékk flokkurinn 54,56% atkvæða og 213 þingmenn af 300. Með svo mikinn meiri- hluta getur Karamanlis komið stjórnarskrárbreytingum í gegn- um þingið og er það álit frétta- skýrenda að styrk stjórn undir forsæti Karamanlis geti á skömmum tíma leyst til fram- búðar vandamál Grikklands og rennt traustum stoðum undir lýð- ræði f landinu á ný eftir 7 ára einræðisstjórn herforingja. Kosn- ingaúrslitunum hefur verið fagnað vfða um heim. A fundinum sagði Karamanlis einn- ig, að það væri undir NATO komið hver yrðu framtiðartengsl Grikklands við bandalagið og benda þessi ummæli til að Karamanlis muni áfram nota hót- unina um alger slit við NATO f sambandi við lausn Kýpurdeil- unnar. Karamanlis mun tilkynna um nýja stjórnarmyndun á miðviku- dag eða fimmtudag og telja stjórnmálafréttaritarar að hann muni veita Miðflokkasamband- inu, flokki George Mavros utan- ríkisráðherra, aðild að stjórninni, en sambandið fékk 20,41% atkvæða og 65 þingsæti. Aðrir Karamanlis veifar til stuðn- ingsmanna sinna eftir að hafa greitt atkvæði á sunnudags- morgun. Gífurlegar örvggisráðstafan- flokkár, sem komu mönnum á þing var Samgrfski sósíalista- flokkurinn, sem fékk 13,61% atkvæða og 12 menn kjörna og Sameiningarflokkur vinstri manna, sem fékk 9.20% og 10 menn kjörna. Aðeins flokkar, sem fá yfir 17% atkvæða koma til greina við úthlutun uppbótar- þingsæta. Kosningaúrslitin eru gífurlegt áfall fyrir vinstri öfl í Grikklandi, því að flokkur Karamanlis er hægri flokkur og einnig Mið- flokkasambandið, sem vill nánari samvinnu við vestrænar þjóðir og fulla aðild Grikklands að EBE. Stjórnmálafréttaskýrendur segja hið mikla fylgi Karamanlis endurspegli þrá grísku þjóðarinn- Framhald á bls. 39 Japans og Bandaríkjanna gegnum þingið. Fremur litið var um mótmæla- aðgerðir í Tókió í morgun, en þó voru 200 manns handteknir, er þeir réðust gegn lögreglunni skammt frá flugvellinum i dag. Fréttamenn segja, að þrátt fyrir að öfgamenn hafi reynt að æsa til mótmælaaðgerða vegna komu for- setans virðist sem svo að Japanir séu svo uppteknir af eigin vanda- málum, efnahagslegum og þjóð- félagslegum, að þeir hafi nóg með þau og hafa undirtektir verið fremur dræmar. Þó gengu um 40 þúsund vinstri menn um miðbik Tókioborgar í gær, framhjá bandariska sendiráðinu til að mótmæla heimsókninni svo og stjórn Tanakas forsætisráðherra, Framhald á bls. 39 seti um borð I þyrlu, sem flutti hann inn f miðborg Tókíó, f gesta- höll rfkisstjórnarinnar, þar sem hann hvflist til morguns, til að jafna sig eftir rúmlega 10 þúsund km flugferð og venjast tfma- mismuninum. Hin opinbera heimsókn hefst þvf ekki fyrr en á morgun, en Hirohito Japans- keisari kemur til gestahallar- innar til að bjóða forsetann form- lega velkominn. Heimsókn Fords til Japan er mjög söguleg, þar sem hann er fyrsti Bandaríkjaforseti, sem kemur i opinbera heimsókn til Japans, en hætta varð við för Eisenhowers fyrrum Bandaríkja- forseta árið 1960 vegna gifurlegra mótmælaaðgerða í Japan, er þáverandi Japansstjórn reyndi að knýja nýjan öryggissáttmála milli Ford og Kissinger við komuna til Tókíó f gær. Moro mynd- ar stjórn Kóm, 18. nóvember AP — NTB. KRISTILEGI demókrataflokkur- inn á Italfu samþykkti f dag ein- róma að veita Aldo Moro heimild til að mynda minnihlutastjórn til að binda endi á 47 daga stjórnar- kreppu f landinu og reyna að leiða þjóðina út úr hinum mikla efnahags- og þjóðfélagsvanda, sem hún á nú við að etja. Stjórnin verður mynduð með Lýðveldisflokknum, sem aðeins hefur örfáa þingmenn, en auk þess hefur Moro tryggt stuðning sósíalistaflokksins (marxista) til að koma frumvörpum f gegnum þingið. Stjórnarmyndunarheim- ildin er mikill sigur fyrir Moro, en hann hefur sætt ásökunum fyrir að standa ekki nægilega fast gegn tilraunum kommúnista til að fá aðild að stjórninni. Bæjarstjórnarkosningar fóru fram á Italfu f gær og unnu kommúnistar nokkuð á í þeim kosningum, en Kristilegir demó- | kratar töpuðu einhverju fylgi. Tókíó, 18. nóvember, AP—Reuter—NTB. EINHVERJAR mestu öryggisráð- stafanir í sögu Japans voru gcrðar f dag, er einkaþota Geralds Fords Bandarfkjaforseta lenti á Tókfóflugvelli f dag. 25 þúsund lögreglumenn voru á verði allt f kringum flugvöllinn og eftir ör- stutta móttökuathöfn, þar sem 10 opinberir embættismenn tóku á móti Ford, gekk Bandarfkjafor- Dagblað Alþýðunnar: Rússar ógna ör- yggiNorðurlanda Peking, 18. nóv. Reuter. DAGBLAÐ Alþýðunnar í Pek- ing birti f gær grein, þar sem ráðist er harkalega að Rússum fyrir stóraukin flotaumsvif á höfunum, sem liggja að Norð- urlöndunum. Segir í greininni að þessi hafsvæði hafi verið hrifsuð undir sovézk yfirráð af endurskoðunarsinnum í Moskvu. I greininni segir að stöðugt fleiri sovézk herskip sigli nú um Barentshaf og Eystrasalt og teygi æfingasvæði sín út i Norðursjó og inn á mitt N- Atlantshaf og ógni öryggi við- komandi landa mjög alvarlega. ír vegna heimsóknar Fords

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.