Morgunblaðið - 19.11.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NOVEMBER 1974
13
Loftleiðir fá góðan
vitnisburð í virtu
neytendablaði
„ÞRÁTT fyrir velauglýsta stad-
hæfingu Pan American um að öll
flugfélögin fljúgi á sama far-
gjaidsverði, geta tvö flugfélög, er
fljúga milli Evrópu og Amerfku
— Loftleiðir og International Air
Bahama boðið töluvert hagstæð-
ari fargjöld en Pan American og
hin 26 flugfélögin innan IATA-
samtakanna sem ákvarða fargjöld
alþjóðlegu flugfélaganna, sem
halda uppi áætlunarferðum á
þessari Ieið.“
Eitthvað á þessa leið farast
hinu virta tímariti Consumer
Report orð nýlega, en þetta rit er
málgagn neytendasamtaka i
Bandaríkjunum, sem Rapl Nader
er helzti forsvarsmaður fyrir. í
nýlegu hefti þess er fjallað sér-
staklega um hvernig komast megi
frá Bandaríkjunum til Evrópu
flugleiðis með sem ódýrustum
hætti. Eru þar tíunduó öll far-
gjöld sem til boða standa og hvers
kyns kosta kjör sem flugfélögin
bjóða upp á í hinum ýmsu tegund-
um fargjalda.
í þessari grein er fjallað sér-
staklega um Loftleiðir og Inter-
national Air Bahama, dótturflug-
félag Loftleiða, og er skemmst frá
því að segja að bæði félögin fá þar
mjög hagstæðan vitnisburð hvað
fargjaldaverð snertir, eins og
ofangreind tilvitnun ber með sér.
í greininni er rakið, að Loftleiðir
hafi haldið uppi áætlunarferðum
til Bandarikjanna í rúmlega 20 ár
og hjá félaginu hafi aldrei orðið
mannskaði öll þessi ár. Fram
kemur hvernig Loftleiðir og Air
Bahama geti undirboðið IATA-
flugfélögin í áætlunarfluginu yfir
Atlantshafið með sérstakri að-
stöðu sinni í Luxemborg.
Einnig er i greininni sagt frá
því að Air Bahama hafi i sumar
boðið upp á sex ferðir milli Luxem
borgar og Nassau á Bahamaeyj-
um hvora leið, en frá Nassau megi
komast til Miami á 45 minútum og
fyrir 50 dollara. Hins vegar sé
ferðin með Air Bahama yfir At-
lantshafið um 10 dollurum hærri
en með Loftleiðum.
„Ef þér hyggist fara til staðar
einhvers staðar nærri Luxem-
borg, getur bo»-gað sig fyrir yóur
að fljúga með Loftleiðum eða
International Air Bahama til
Luxemborgar og halda ferðinni
áfram þaðan fremur en að fljúga
beint á áfangastað með einhverju
IATA-flugféIaganna,“ segir síðan
í greininni. Þá er á það bent, að
bæði Loftleiðir og Air Bahama
bjóði upp á eins til 21. dagsferðir
fram og til baka, sem séu sérlega
hagstæðar fyrir þá sem hyggjast
dveljast í Evrópu skemur en 14
daga og þess vegna ósambærileg
við 14 til 21. dags ferðirnar sem
önnur flugfélög bjóða upp á.
Rithöfundurinn Flosi Ölafsson,
cand phil. f útgáfu Árna Elfar.
Á bókarkápu er skýrt frá því
aó „Hneggjað á bókfell" sé sér-
staklega tileinkuð starfsiiði
Póstþjónustunnar í Reykjavík,
„sem barist hefur við höfuð-
skepnurnar í pósthúskjall-
aranum frá þvi póstsögur
hófust, við hin ægilegustu
starfsskilyrði, og rækt skyldu
sína, bæði í blíðu og striðu, sem
og flóði og fjöru." Þjónar þetta
ritverk Flosa þrennum tilgangi,
samkvæmt umsögn útgefanda,
þ.e.: „I fyrsta lagi er hægt að
lesa hana, í öðru lagi gefa hana
NúhneggjarFlosi
Flosi Ólafsson rithöfundur og
leikari er snemma á ferðinni
með jólabók sína í ár. í fyrra
kom bók hans „Slett úr klauf-
unum" ekki á markað fyrr en
fáum dögum fyrir jól, en seldist
þó vel að sögn höfundar. Nú er
önnur bók FloSa, „Hneggjað á
bókfell", komin á markaðinn,
og er hún eins og fyrri bókin
myndskreytt með skopteikn-
ingum eftir Árna Elfar.
Þessari nýju bók sinni skiptir
Flosi i tvo höfuðþætti,
„Hermur“og„Þjóðspjöll". Um
þau þáttaheiti segir í formála:
„Vert er að geta þess að bæði
þessi orð eru nýyrði i tungunni,
en skáldbróðir Flosa, ritvinur
hans og einlægur aðdáandi,
Indriói G. Þorsteinsson, gaf
honum þessi orð í skáldalaun
fyrir ónefnt kvæði.
„Herma er þýðing á alheims-
orðinu parodie, en þjóðspjall
skýrir sig sjálft.“
og í þriðja lagi er hugsanlegt að
kíkja í hana áður en hún er
gefin. í bókinni er víða komið
við, en allt á innihaldið rætur
sínar í islensku umhverfi þjóð-
hátiðarársins í ár, atburðum
þess, mönnum og málefnum."
FIosi Ólaísson
á bókfell
Bætt 18 lögreglumönnum
við
W
í
Reykjavík
A næsta ári verður bætt við 18
nýjum lögreglumönnum f
Reykjavík, en engum nýjum lög-
reglumanni hefur verið bætt við
Lýður Björnsson formaður
Sagnfræðingafélagsins
AÐALFUNDUR Sagnfræðinga-
félags íslands var haldinn 4. nóv.
sl. Fráfarandi formaður, Björn
Teitsson magister, gerði grein
fyrir starfsemi félagsins sl. starfs-
ár, en það hefur fengið sagnfræð-
inga til að halda fyrirlestra um
rannsóknarverkefni sín, haldið
umræðufundi um nýútkomnar
bækur sagnfyæðilegs efnis og um
sögukennslu í skólum. Ennfrem-
ur efndi félagið ásamt skólarann-
sóknadeild menntamálaráðuneyt-
isins til ráðstefnu um námsefni í
sögu og samfélagsfræði í grunn-
skóla sl. vor og fulltrúi þess sótti
þing norrænna sagnfræðinga. Á
aóalfundinum var mikið rætt um
sögulegar sýningar og hlutverk
félagsins á þeim vettvangi.
Stjórn félagsins fyrir starfsárið
1974 — 1975 skipa Björn Teitsson
magister, Eirikur Þormóósson
cand. mag., Helgi Skúli Kjartans-
son B.A., Jón Þ. Þór cand. mag. og
Lýður Björnsson cand. mag., sem
er formaður.
sfðan nýju lögin voru sett um að
rfkið tæki við löggæzlu af sveitar-
félögum á árinu 1972. Hafa orðið
af þessu mikil vandræði, þvf á
sama tfma hefur vinnutfmi lög-
reglumanna stytzt, orlof lengst,
borgin þanist út f Breiðholt og
Árbæ og umferð farið sfvaxandi.
— Þetta er mikilvæg bót, sem
ekki ber að vanþakka, sagði
Sigurjón Sigurðsson lögreglu-
stjóri, er hann var spurður um
þetta. En ekki nóg samt, því ég
bað um 100 lögreglumenn í viðbót
og færði að því rök. Það er t.d.
samdóma álit allra, sem með þessi
Farmenn og
fiskimenn
átelja
V-Þjóðverja
„FUNDUR stjórnar F.F.S.t.
fimmtudaginn 14. nóv. kl. 09.00
1974, ályktar eftirfarandi um
uppkastið að landhelgissamningn-
um við V-Þjóðverja.
Sambandsstjórn telur þau
samningsdrög, sem fyrir liggja ó-
aðgengileg, og skorar þvi á rikis-
stjórn og Alþingi að semja ekki á
framkomnum samningsgrund-
velli, og alls ekki meðan VÞjóð-
verjar halda við þá kröfu sína, að
fá veiðiheimildir fyrir frystitog-
ara innan fiskiveiðilögsögunnar.
Fundurinn átelur harðlega þá
þvingunaraðferð, sem fram hefur
komió að V-Þjóðverjar nota sam-
bandsþjóðir sinar til að knýja
fram nauðungarsamninga i þessu
máli.
Þá krefst stjórnin þess að land-
helgisgæzlunni verði beitt til hins
itrasta til verndar fiskiveiðilög-
sögunni."
mál fara að aukin umferðarlög-
gæzla sé enn bezta ráðið til að
fækka slysum og að góðri um-
ferðarlöggæzlu er beinlínis sparn-
aður.
Áður en nýju lögin gengu í gildi
1972 var gert ráð fyrir einum lög-
reglumanni á móti 500 íbúum og
ríkislögreglumönnum að einum
þriðja á móti heildartölunni, og
var þá alltaf lágmarkstölu haldið.
Með nýju lögunum var gert ráð
fyrir þvi að dómsmálaráðherra
ákvarðaði þetta að fenginni til-
lögu lögreglustjóra, en þó ekki
nema samkvæmt fjárveitingum,
og þær urðu engar til viðbótar.
Nú eru um 200 lögreglumenn i
Reykjavík að meðtöldum rann-
sóknalögreglumönnum, sem eru
30—32 talsins.
Frá Fiskiþingi:
Fiskleit og
hafrannsóknir
SAMÞYKKT tillaga á Fiskiþingi
borin fram af fiskiðnaðar- og
tækninefnd:
33. Fiskiþing telur, að hraða
beri sem mest leit og rannsóknum
á hinum ýmsu tegundum skeldýra
og smáfiska, svo nokkur vissa
fáist um magn þeirra og vaxtar-
hraða.
Einnig telur þingið, að athuga
þurfi hvort hægt sé og hagkvæmt
að veiða aðrar ónýttar fisktegund-
ir á djúpmiðum, til vinnslu. Vill
þingið fela stjórn Fiskifélagsins
og fiskimálastjóra, að fylgjast vel
með þessum athugunum, og ýta á
eftir framkvæmdum.
Nefndarmenn áttu tal við
Hrafnkel Eiriksson fiskifræðing,
og upplýsti hann, að stöðugt væri
unnið að leit og athugunum á
skel- og fisktegundum, með hag-
nýtingu fyrir augum, en of hægt
gengí vegna skorts á fjármagni.
Taldi hann, að áfram yrði haldið
leit að rækju og fljótlega yrði
aukin athugun á magni kúfísks.
Þá sagði hann, að unnið hefði
verið að undirbúningi á athugun
kræklings í Hvalfirði.
Vegna þess, að leit og athugun á
hinum ýmsu tegundum geta ekki
farið frarn nema stuttan tíma i
senn, geti verið hyggilegra að
taka báta og minni tæki, ef hægt
er, á leigu fremur en kaupa.
sportbíll sem
tekið er eftir!
Strompleikur
Laxness
í útvarpinu
STROMPLEIKURINN,
gamanlcikrit Halldórs Lax-
ness, verður flutt í útvarp-
inu n.k. fimmtudagskvöld
kl. 20,15. Stefán Baldursson
leikstjóri mun flytja inn-
gangsorð að verkinu, en
meðal leikara eru Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, Róbert
Arnfinnsson, Þorsteinn
Gunnarsson, Brynja Bene-
diktsdóttir, Valur Gíslason,
Kristbjörg Kjeld og Valde-
mar Hclgason.
Kynnist MAZDA 929, bíl sem er glæsilegur út-
lits, en án alls prjáls Undir vélarhllfinni er
1 800 cc. vél, sem er í senn aflmikil og sérlega
sparneytin í innréttingunni er lögð sérstök
áherzla á þægmdi farþega og ökumanns:
Framsætin eru stólar með afturhall-
anlegum bökum og höfuðpúða.teppi
á gólfum og pluss eða vinyláklæði
á sætum, öflug miðstöð og loft-
ræstikerfi með 3 hraða blásara.
vindlingakveikjari og bak-
sýnisspegill með nætur-
stillingu. Og öryggið
gleymist heldur ekki
Tvöfalt hemlakerfi —
diskahemlar að framan
meðaflátaki (power-
bremsur). stýrisás.
sem leggst saman
við árekstur, stál-
bitar I hurðum
og toppi, bólstrað
mælaborð. 3 hraða
rúðuþurrkur og
rúðusprauta,
rafmagnshituð aftur-
rúða, snúningshraðamælir
klukka og fl. Komið, hrmgið eða
skrifið og fáið nánari upplýs-
ingar um MAZDA 929
SiBÍLABORG HF.
HVERFISGÖTU 76 S/MI 22680